Gera má ráð fyrir að sala á endurnýttum tölvubúnaði muni aukast um 15% á ári fram til 2030. Hugmyndin um að eldri búnaður sé eingöngu neyðarúrræði fyrir notendur er liðin. Meginbreytingin er aukin ábyrgð á búnaði, vottað viðgerðarferli og auknar áherslur á að fyrirtæki lækki kolefnisfótspor sitt.
Samkvæmt alþjóðlegum markaðsgreiningum MarkNtel Advisors og Custom Market Insights stefnir heimsmarkaður fyrir endurnýttan PC-búnað í að vaxa um nær 75% fram til ársins 2030; úr rúmlega 8 milljörðum Bandaríkjadala í yfir 14 milljarða dala. Það eru einkum stórfyrirtæki og opinberir aðilar sem draga vagninn í þeim efnum.
Breytingin er drifin áfram af tveimur meginstraumum: Annars vegar hröðum gæðaframförum í vottaðri endurnýtingu (certified refurbishment), líkt og hjá hringrásarfyrirtækjum, og hins vegar auknum kröfum um mælanlegan sparnað í kolefnisbókhaldi fyrirtækja.
Blandaður tækjafloti er skynsamleg lausn
„Staðalímyndir gagnvart endurnýttum tækjabúnaði eru hægt og bítandi að hverfa,“ segir Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður Notendalausna hjá tæknifyrirtækinu OK. „Fyrirtæki sem sýsla með eldri eða notaðan tölvubúnað tryggja að tæki sem fara í gegnum vottunarferli skili góðum gæðum, gagnaröryggi og sömu ábyrgðum og ný tæki.“
Að sögn Gísla eru fyrirtæki í stigvaxandi mæli að uppgötva að endurnýttur tölvubúnaður er ekki lengur sparnaðarúrræði í kreppu heldur skynsamleg tækjaflotastýring. Stór hluti starfsmanna í atvinnulífinu þarf öflugar og traustar tölvur fyrir hefðbundna skrifstofuvinnu þar sem tæki úr enterprise-línum framleiðenda, sem hafa verið vottuð og endurnýjuð, skila í mörgum tilvikum góðum afköstum.
„Áður fyrr keyptu fyrirtæki annaðhvort allt nýtt og horfðu á endurnýtingu sem óvissuferð. Í dag sjáum við að stórnotendur eru að færa sig yfir í svokallaðan „hybrid fleet“ eða blandaðan tækjaflota. Lykilnotendur eða sérhæfðir sérfræðingar fá nýjustu gerðir, en hluti flotans samanstendur af svokölluðum „certified“ endurnýttum tækjum. Slík nálgun lækkar kostnað umtalsvert og minnkar kolefnisfótspor tækjaflotans í einu skrefi,“ segir Gísli.
Endurnýttur búnaður nýtist vel fyrir Scope 3
Þá má sjá breytingu á viðhorfi fyrirtækja þegar horft er til næstu ára. Fram til 2030 verður innkaupaferli tölvubúnaðar samofið sjálfbærni- og samfélagsskýrslugjöf vegna CSRD (Corporate Sustainability Reporting Directive), sem er tilskipun ESB um sjálfbærniupplýsingar fyrirtækja. Þar skipar upplýsingatækni stórt hlutverk í svokallaðri Scope 3 kolefnislosun.
„Þegar stórfyrirtæki mæta nýjum kröfum um kolefnisbókhald nýtist endurnýttur búnaður sem fljótleg og áreiðanleg leið til að sýna raunverulegan árangur,“ undirstrikar Gísli. „Þú getur breytt heildartölu tækjaflotans á einu bretti án þess að slá af kröfum um afköst, öryggi eða þjónustustig.“




