23.07.2026

Fartölvan eins og við þekkjum hana gjörbreytist

Hugmyndin um hefðbundna vinnufartölvu í bakpokanum er að breytast hratt. Á sjónarsviðið er mætt ný kynslóð búnaðar þar sem róttæk hönnun, staðbundið gervigreindarafl, aukið gagnaöryggi og byltingarkennd sjálfbærni mætast. Hvort sem um ræðir tæki sem koma heilli gervigreindartölvu fyrir beint í lyklaborðinu, ómetanlegt afl fyrir staðbundna gervigreind án skýjaáhættu, eða einingaskipta hönnun sem flýtir fyrir viðgerðum og dregur úr rafrænum úrgangi. Það má því segja að HP sé að endurskilgreina hvernig nútíma vinnustaðir starfa.

Nýja tækið, HP EliteBoard G1a, dregur úr flækjustigi í fjarvinnu og á skrifstofum. Í stað þess að burðast með þunga fartölvu og vesenast með dokkur mæta starfsmenn einfaldlega með stílhreint lyklaborð í töskunni, tengja það við hvaða skjá sem er og eru samstundis komnir með öfluga Copilot+ gervigreindartölvu. „Þá geta tölvunotendur fengið búnað sem skilar allt að 85 TOPS gervigreindarafli. Það gerir fyrirtækjum kleift að keyra flókin gervigreindarmódel staðbundið á tækinu sjálfu í stað þess að senda viðkvæm rekstrargögn upp í skýið,“ segir Trausti Eiríksson vörustjóri PC hjá OK.

Viðgerðir orðnar miklu einfaldari-minni bið

Þá eru tölvuframleiðendur farnir að taka stórt skref í átt að sjálfbærni og viðgerðarhæfni (Right to Repair) með nýrri einingaskiptri hönnun. „Ef kaffislys verður á vinnustaðnum þarf ekki lengur að senda alla tölvuna á verkstæði í marga daga eða afskrifa hana, heldur er hægt að smella nýju lyklaborði á tækið á innan við fimm mínútum. Með því að gera upplýsingatæknideildum kleift að skipta um einstaka íhluti á staðnum er líftími vélbúnaðarins lengdur til muna, dregið úr flutningsþörf og komið í veg fyrir óþarfa rafrænan úrgang (e-waste). Þetta fellur beint að auknum kröfum fyrirtækja um sjálfbæran rekstur, hringrásarhagsmuni og vistvæni í innkaupum,“ segir Trausti.

Hann segir að notendur séu að sjá stærsta stökkið í hönnun tölvubúnaðar í mörg ár. „Fyrirtæki eru ekki lengur bara að leita að hraðari örgjörvum heldur lausnum sem tryggja gagnaöryggi með staðbundinni gervigreind og auðvelda sveigjanlega vinnu. Með því að færa tölvuna alla inn í lyklaborðið, bjóða val um örgjörva í sömu skelinni og auðvelda viðgerðir er svar við kalli vinnustaða um að lengja líftíma búnaðarins og draga úr rafrænum úrgangi í senn.“

Deila frétt

Nýjustu fréttir