25.06.2026

Upplifa sig „annars flokks“ á fundum

Rúmlega helmingur starfsmanna játar að þeir gleyma hreinlega samstarfsfólki sem situr heima þegar fundir eru haldnir. Skipulagsleysi og lélegur búnaður getur búið til gjá á milli fólks á vinnustöðum, samkvæmt nýrri rannsókn tæknifyrirtækisins Jabra, sem sérhæfðir sig í hljóðlausnum.

Hugmyndin um sveigjanlega „hybrid“ vinnu átti að auka vellíðan og jafnræði, en ný rannsóknin sýnir dekkri hlið á þessari þróun. „Hybrid“ fundir, þar sem hluti teymisins situr saman í fundarherbergi en aðrir tengjast í gegnum skjá, getur valdið skautun á vinnustöðum.

Í niðurstöðum rannsóknarinnar The Billion Dollar Brain Drain, sem unnin var í samstarfi við rannsóknastofuna Toluna, var púlsinn tekinn á rúmlega 2.300 sérfræðingum um allan heim og er niðurstaðan sögð sláandi: 46% þeirra sem starfa í fjarvinnu upplifa sig nú sem „annars flokks“ (e. second-class) á hybrid fundum. Þeir upplifa að það sé talað ofan í þá, erfiðara sé að fá orðið og að þeir sitji hreinlega ekki við sama borð og samstarfsfólkið í herberginu.

Gleymast fljótt

Þessi tilfinning er ekki sögð að ástæðulausu. Í rannsókninni játa 51% starfsmanna að þeir gleyma reglulega að hleypa fjarstarfsmönnum að eða sýna þeim athygli þegar þeir sitja sjálfir inni í fundarherbergi með öðrum. Ef fólk er ekki líkamlega mætt á svæðið, hættir því til að gleymast í umræðunni.

Þá sýna niðurstöður Jabra og Toluna að 87% starfsmanna upplifa einhvers konar fundakvíða eða vanlíðan áður en fundir hefjast og 42% segjast algjörlega tæmdir á orku eftir tveggja tíma samfellda fundarsetu.

Niðurstaðan sýnir að fyrirtæki þurfi að huga betur að því hvernig fundarherbergi eru hönnuð og tæknivædd. Ef fjarstarfsmenn eiga ekki að einangrast og dragast aftur úr, þarf fundabúnað sem tryggir að allir sjáist og heyrist jafnt — óháð því hvar þeir sitja í heiminum.

Deila frétt

Nýjustu fréttir