05.06.2026

Ferrari og HP hanna AI-tölvu 

Tæknirisinn HP hefur svipt hulunni af Scuderia Ferrari AI PC, 14″ tölvu sem er  unnin í náinni samvinnu við sportbílaframleiðandann Ferrari. Tölvan dregur dám af hönnunarsögu Ferrari, sem leggur áherslu á straumlínulögun og glæsileika í sinni framleiðslu. Hún er framleidd í afar takmörkuðu upplagi og stíluð inn á áhugafólk um hönnun og tækni.
Tölvan verður sett á markað þann 12. júní næstkomandi en hún verður eingöngu seld í örfáum löndum: Bandaríkjunum, Bretlandi, Sviss, Frakklandi, Ítalíu, Spáni, Þýskalandi, Japan og Ástralíu.
Undir vélarhlífinni býr gríðarlegt afl þar sem Intel® Core™ Ultra 7 örgjörvi og 64GB af vinnsluminni (RAM) sjá um að keyra flóknustu gervigreindarverkefni beint á tölvunni. Vélbúnaðurinn skilar samtals allt að 180 TOPS afli (CPU+GPU+NPU), sem flýtir gríðarlega fyrir hvort sem um ræðir þunga gagnavinnslu eða krefjandi skapandi vinnu. Geymsluplássið er sömuleiðis ríflegt, en hún er búin allt að 2TB PCIe hraðdrifi.
Skjárinn er með 3K Tandem OLED+ snertiskjár með 120Hz breytilegum endurnýjunarhraða, sem skilar allt að 700 nits birtustigi. „Með 100% DCI-P3 litanákvæmni hentar þessi tölva mjög vel fyrir þá sem vinna mikið með myndir, myndbönd eða annað skapandi efni þar sem skiptir máli að skjárinn sýni 100% rétta liti. Það sem mér finnst þó standa upp úr er að HP hefur náð að sameina mjög sterkan vélbúnað og glæsilega hönnun í einni vél. Þetta er tölva sem höfðar bæði til fagfólks og þeirra sem hafa einfaldlega gaman af hönnun og glæsilegu útliti á tölvum.“ segir Trausti Eiríksson vörustjóri PC hjá tæknifyrirtækinu OK.
Verkefnið er hluti af víðtækara samstarfi fyrirtækjanna, en HP er samstarfsaðili Formúlu 1 liðs Ferrari (Scuderia Ferrari HP). Samstarfið felur meðal annars í sér að tæknifólk HP vinnur náið með verkfræðingum Ferrari við að nýta tæknilausnir til að hámarka afköst og greina gögn á keppnisbrautinni.
„Samstarf HP og Ferrari er áhugavert vegna þess að bæði fyrirtækin leggja mikla áherslu á afköst, nákvæmni og hönnun. Það sést vel í þessari vél. Hún er öflug AI-tölva með mjög öflugan vélbúnað en á sama tíma er mikið lagt upp úr útliti og smáatriðum. Þetta er klárlega vara sem mun vekja athygli hjá þeim sem hafa áhuga á bæði tækni og Ferrari.“ segir Trausti.
Deila frétt

Nýjustu fréttir