Þó tæknilausnir skipti miklu máli byrja flestar netárásir ekki á tæknilegum veikleikum heldur mannlegum mistökum. Grunsamlegur tölvupóstur, fölsk innskráningarsíða eða óvarleg meðhöndlun gagna getur verið nóg til að opna dyr fyrir árásaraðila.
Þess vegna leggjum við hjá OK mikla áherslu á öryggisvitund starfsfólks.
Öryggi sem venja, ekki viðburður
Það er auðvelt að hugsa sér öryggisvitund sem eitthvað sem á sér stað einu sinni á ári. Ein herferð, einn fyrirlestur eða einn öryggismánuður. Hjá OK lítum við öðruvísi á málið.
Öryggi er venja, ekki viðburður.
Fyrir um ári síðan innleiddum við Öryggismánudag þar sem starfsfólk fær stutta og markvissa fræðslulotu í gegnum Vaknaðu í upphafi hverrar vinnuviku. Markmiðið er að gera öryggisvitund að eðlilegum hluta af daglegu starfi í stað þess að treysta á stakar herferðir.
Þjálfunin tekur aðeins örfáar mínútur í senn en hjálpar starfsfólki að þekkja helstu netógnir og bregðast rétt við þegar á reynir.
Niðurstöðurnar tala sínu máli
Í síðustu viku lauk fyrri hluta ársins í þjálfunarferlinu okkar.
Á tímabilinu náðist 95% meðalþátttaka í þjálfuninni og starfsfólk lauk samtals 26 vikulegum fræðslulotum á sex mánaða tímabili.
Þessar tölur sýna að þegar þjálfun er stutt, regluleg og hluti af vinnuvikunni verður þátttakan meiri og lærdómurinn varanlegri.
Hvað lærir starfsfólk í Vaknaðu?
Þjálfunin tekur meðal annars á:
- Vefveiðum og félagslegri blekkingu (social engineering)
- Lykilorðaöryggi og fjölþátta auðkenningu
- Meðhöndlun viðkvæmra gagna
- Öruggri notkun tækni, skýjaþjónusta og farsíma
Fyrsta varnarlínan er fólkið
Besta tæknin í heiminum kemur ekki í stað upplýsts starfsfólks.
Við trúum því að sterk öryggismenning byggist á því að starfsfólk þekki hætturnar, viti hvernig á að bregðast við þeim og láti vita þegar eitthvað virðist ekki rétt.
Við byrjum á okkur sjálfum og erum stolt af þeim árangri sem við höfum náð.
Viltu kynna þér Vaknaðu fyrir þitt fyrirtæki?
Vaknaðu er öryggisvitundarþjálfun frá OK sem hjálpar fyrirtækjum að byggja upp sterkari öryggismenningu og draga úr áhættu í daglegum rekstri.
Skoðaðu nánar á ok.is/oryggismal/vaknadu eða hafðu samband við sérfræðinga OK.







