Tæknifyrirtækið HP heiðraði OK fyrir „sigur ársins“ í prentþjónustu, á árlegri uppskeruhátíð þess í Danmörku.
Verðlaunin eru veitt fyrir stærsta og áhrifamesta árangurinn á árinu. OK vann á liðnu ári útboð í heildarlausn í prentþjónustu hjá Reykjavíkurborg. Útboðið náði til hátt í 700 prenttækja hjá stofnunum borgarinnar.
Markmiðið með samningi OK við Reykjavíkurborg felst í að auka hagræði í prentþjónustu; fækka prenttækjum, greina prentnotkun og efla öryggi svo sem með aðgangstýringu. Prentlausn OK dregur einnig úr sóun á pappír, rekstrarvöru og orkukostnaði og gerir viðskiptavinum kleift að ná umhverfisviðmiðum með því að velja sjálfbærari lausnir.
„Þessi verðlaun eru mikill heiður fyrir okkur enda öttum við kappi við fjölmarga samstarfsaðila HP í Danmörku, segir Hallur Flosason rekstrarstjóri prentlausna hjá OK um „sigur ársins“. „Við erum sérstaklega stolt af þeirri heildarlausn sem við búum yfir í prentþjónustu þar sem áhersla er lögð á rekjanleika, sjálfvirkni og sjálfbærni. Aðgangsstýrð prentþjónusta (MPS) gegnir lykilhlutverki í því að tryggja öruggan og skilvirkan rekstur, minnka sóun og auka yfirsýn yfir alla prentstarfsemi – og það skiptir sífellt meira máli í rekstri fyrirtækja og stofnana.“
Viðurkenningin var formlega afhent á árlegu samstarfs- og ráðstefnuviðburði HP Danmörku. Á viðburðinum voru tilkynnt fjölda verkefna sem miða að sjálfbærni og hvernig hægt sé að efla hringrásarhagkerfið.