56% starfsmanna nota gervigreind daglega eða vikulega. Slíkir starfsmenn eru skilgreindir sem „virkir notendur gervigreindar“ sem endurspeglar hversu rótgróin gervigreind er orðin í daglegu starfi víðs vegar um atvinnulífið – hjá sérfræðingum, stjórnendum og upplýsingatæknifólki, að sögn HP 2024 Work Relationship Index.
Í skýrslunni kemur fram að „virkir notendur“ upplifi verulegan ávinning af gervigreind í starfi. Fram kemur að 82% skrifstofufólks, sem nota gervigreind reglulega, telji að hún auðveldi vinnuna. 77% segja að gervigreind opni ný tækifæri til að njóta starfsins og 69% segja að gervigreind auki jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Þessar niðurstöður gefa til kynna að notkun gervigreindartækja sé ekki aðeins orðin algeng heldur hafi hún jákvæð áhrif á starfsánægju og framleiðni, að sögn HP.
Ávinningur af notkun gervigreindar:
✅ 82% að gervigreind geri starfið auðveldara.
✅ 77% að gervigreind geri vinnuna skemmtilegri.
✅ 69% að gervigreind auki jafnvægi milli vinnu og einkalífs.
Hvað þýðir aukin notkun gervigreindar fyrir fyrirtæki?
✅ Fjárfesting í gervigreind getur aukið ánægju og framleiðni starfsmanna.
✅ Stuðningur við notkun á gervigreind hjálpar til við að laða að og halda í hæfileikaríkt starfsfólk.