Stuðningi við Windows 10 lýkur í október – tími til að skipta?
Microsoft hættir að styðja Windows 10 í október 2025. Það þýðir að engar frekari öryggisuppfærslur munu berast og hætta á öryggisbrestum eykst. Einnig fara fleiri hugbúnaðarlausnir að krefjast Windows 11 – og samhæfni við eldri kerfi getur orðið takmörkuð. Windows 11 býður upp á öruggari og hraðvirkari vinnuumhverfi, betri samþættingu við nýjustu lausnir og nútímalegri notendaupplifun.
Uppfærðu í dag og tryggðu þér áframhaldandi öryggi, betri afköst og samhæfni við nýjustu hugbúnaðarlausnir. Ekki bíða þar til stuðningurinn fellur niður – tryggðu þér nýjan búnað á frábæru verði!