Search
Close this search box.

Tölvubúnaður

Hjá OK finnur þú tölvubúnað sem hentar þínum vinnustað. Fáðu ráðgjöf hjá okkur eða skoðaðu úrvalið á vefverslun.

HVAÐ BJÓÐUM VIÐ UPP Á?

Vörur

Fjölbreytt úrval af vörum sem henta öllum fyrirtækjum. Sérþjálfað starfsfólk á verkstæði með vottanir frá okkar birgjum. Flestar okkar tölvuvörur hafa fengið umhverfisvottanir líkt og Energy Star og EPEAT.  

Fartölvur

Fartölvur sem henta fyrir allar gerðir vinnustaða. Mikið úrval véla frá HP og  Microsoft.

Borðtölvur

Allur skalinn í boði. Borðvélar sem henta vel í grafíska vinnu yfir í einfaldar vélar fyrir einfaldari verkefni.

Skjáir

Skjáir í öllum stærðum og gerðum. Tölvuskjáir, dokkuskjáir, fundarherbergjaskjáir og upplýsingaskjáir.

Heyrnartól

Mikið úrval heyrnartóla frá Jabra og Poly. Allir ættu að geta fundið tólin sem henta.

Fjarfundarbúnaður

Fjarfundir eru að verða tíðari og þá er orðið mikilvægara að fundarherbergjabúnaðurinn sé góður. Bjóðum upp á heildarlausnir fyrir fundarherbergi og stakar vörur.

Aukahlutir

Allur aukabúnaður sem vinnustaðurinn þarf. Lyklaborð, mýs, snúrur, kaplar, töskur og fleira.

Uppfærðu búnaðinn á vistvænan hátt!

OK er í samstarfi við Foxway

Ef þú kemur með gamlan tölvubúnað til okkar getur þú fengið inneign upp í næstu kaup. Við metum búnaðinn með aðstoð Foxway sem sérhæfir sig í endurvinnslu á raftækjum, viðgerðum og endurnotkun á varahlutum. Með þessu hjálpumst við að í endurvinnslu, endurnotkun og drögum úr rafeindaúrgangi.

Samstarfsaðilar​