OK og Yealink bjóða til morgunverðarfundar 2. september þar sem farið verður yfir nýjustu lausnir Yealink fyrir fundarherbergi og vinnustaði.
Gestir fá að sjá búnaðinn í notkun, prófa nýjustu heyrnartólin og heyra reynslusögu viðskiptavinar af Yealink-lausnum og þjónustu OK.
Dagskrá
08:30–09:00
Húsið opnar – morgunverður
09:00–09:10
Velkomin
09:10–10:20
Nýjungar frá Yealink: AV-ONE, YMCS og nýjasta heyrnartólalínan
Nikita Wei, lausnaráðgjafi hjá Yealink, fer yfir nýjustu fundarlausnirnar, miðlæga stýringu og búnað frá Yealink.
10:20–10:35
Reynslusaga
Viðskiptavinur segir frá reynslu sinni af Yealink-lausnum og þjónustu OK.
10:35–11:00
Prófun á búnaði, spurningar og spjall
Sérfræðingar frá Yealink og OK verða á staðnum og svara spurningum.
Fyrir hverja?
Fundurinn hentar stjórnendum, upplýsingatæknistjórum, rekstrarstjórum og öðrum sem bera ábyrgð á fundarbúnaði og samskiptalausnum fyrirtækja.
