15/10 — 11:00

UT-rekstur án óvæntra uppákoma

Staðsetning: Hilton Reykjavík, Suðurlandsbraut 2. Salur H. Gengið inn baka til. Næg bílastæði.

OK og HP bjóða til hádegisfundar fimmtudaginn 15. október kl. 11:00–13:00 á Hilton Reykjavík.

 

Flestar UT-deildir þekkja það að stór hluti dagsins fer í að bregðast við vandamálum sem koma upp hjá notendum og í búnaði. Það þarf þó ekki alltaf að vera þannig.

Á þessum hádegisfundi fara sérfræðingar frá HP yfir það sem er að gerast núna í heimi tölva, gervigreindar og rekstrar. Farið verður meðal annars yfir hvernig tölvur eru farnar að vinna meira sjálfar og hvernig hægt er að greina vandamál fyrr og bregðast við áður en þau fara að hafa áhrif á notendur.

Sérfræðingar HP á Norðurlöndum verða á staðnum, boðið verður upp á hádegisverð og að sjálfsögðu verður tími fyrir spurningar og spjall.


1# Tölvan sem vinnur sjálf (20 mín.)

Gervigreindartölvur eru að breyta því hvað tölvan sjálf getur gert. Hans Petter fer yfir hvað felst í þessari þróun, hvað nýjustu tölvur frá HP geta gert öðruvísi og hvað þetta þýðir í raun fyrir notendur og UT-deildir.

Hans Petter Espelid, Area Category Manager hjá HP Nordic


2# WXP – lætur vita áður en eitthvað bilar (20 mín.)

HP Workforce Experience Platform (WXP) fylgist með heilsufari búnaðar í rauntíma og hjálpar til við að greina vandamál áður en þau fara að hafa áhrif á notandann.

WXP sýnir meðal annars hvaða tölvur eru að verða minnislausar og hvar þörf er á uppfærslu. Þannig verður auðveldara fyrir UT-deildir að sjá hvar þarf að grípa inn í og forgangsraða uppfærslum þar sem þeirra er mest þörf.

Vanessa Wilson, Nordic Business Development Manager for Services, og Anders Mørk Jakobsen, PC Specialist hjá HP Nordic


3# Tölvan sem ver sig sjálf (20 mín.)

Þegar meiri vinnsla færist yfir á tölvuna sjálfa breytast líka kröfurnar til öryggis. Gögnin fara síður upp í ský og meira er unnið beint á tækinu, sem þýðir að það verður enn mikilvægara að verja tölvuna sjálfa.

HP byggir öryggisvarnir inn í vélbúnaðinn. BIOS getur sannreynt og endurheimt sig ef breytingar greinast og áhættusamt efni, eins og viðhengi úr tölvupósti eða óþekktar vefsíður, er hægt að opna í einangruðu umhverfi. Þar fyrir ofan eru varnir sem nýta gervigreind til að greina nýjar ógnir.

Hans Petter Espelid, Area Category Manager hjá HP Nordic


Matur og drykkur

Boðið verður upp á hádegisverð og drykki á meðan á fundinum stendur.

Deildu viðburðinum