12/11 — 17:00

OK á Suðurlandi – Tæknidagurinn 2026

Staðsetning: Tryggvaskáli, Selfossi

OK á Suðurlandi – Tæknidagurinn 2026

Tækni, tengsl og góður matur

Fimmtudaginn 12. nóvember í Tryggvaskála á Selfossi

OK býður fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi á Tæknidaginn 2026.

Sérfræðingar OK fara yfir það helsta sem er að gerast í tækninni – meðal annars gervigreind, tölvubúnað, netkerfi, öryggi og lausnir fyrir vinnuumhverfið.

 


Dagskrá

16:30 – Húsið opnar
17:00 – Velkomin
17:10 – Gervigreind í fartölvum – hvað er raunverulega hægt að gera?
17:25 – Hljóð- og myndlausnir – frá fundarherbergjum í stærri rými
17:40 – Hlé
17:50 – Er netbúnaður þinn mikilvægasti búnaður?
18:10 – Microsoft 365 á tímum gervigreindar – hvað þarf að vera í lagi?
18:25 – Á réttum kili: Af hverju öryggi er undirstaðan undir öllu hinu
18:40 – Lokaorð
18:45 – Matur, drykkur og spjall

 


Nánar um erindin

Gervigreind í fartölvum – hvað er raunverulega hægt að gera?

Trausti Eiríksson, vörustjóri PC hjá OK

Ný kynslóð fartölva býður upp á sífellt öflugri gervigreindarvinnslu beint í tækinu. Við skoðum muninn á staðbundinni gervigreind og skýjalausnum, hvaða möguleikar eru í boði í dag og hvað fyrirtæki og stofnanir ættu að hafa í huga við næstu tölvuendurnýjun.

 

Hljóð- og myndlausnir – frá fundarherbergjum í stærri rými

Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK

Við förum yfir helstu möguleika í hljóð- og myndlausnum, allt frá fjarfundalausnum og fundarherbergjum til stærri rýma, skjálausna og sérsniðinna lausna.

 

Er netbúnaður þinn mikilvægasti búnaður?

Gunnar Ingi Björnsson, forstöðumaður innviðasölu hjá OK

Netbúnaðurinn er sjaldnast mest áberandi búnaður fyrirtækisins en mögulega er hann sá mikilvægasti. Við skoðum hvernig netið hefur þróast úr tæknilegum bakgrunni yfir í grunn að öruggum, skilvirkum og samfelldum rekstri.

 

Microsoft 365 á tímum gervigreindar – hvað þarf að vera í lagi?

Halldór Áskell Stefánsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þjónustu hjá OK

Gervigreind er að umbreyta vinnulagi fyrirtækja og opna ný tækifæri innan Microsoft 365. Fjallað verður um mikilvægi góðs undirbúnings áður en gervigreindarlausnir eru teknar í notkun, helstu öryggisáskoranir og hvernig reglulegt og fyrirbyggjandi eftirlit með Microsoft 365-umhverfi stuðlar að öruggri og ábyrgri nýtingu tækninnar.

 

Á réttum kili: Af hverju öryggi er undirstaðan undir öllu hinu

Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK

Öryggi er ekki eitthvað sem bætt er ofan á eftir á. Það er kjölurinn sem heldur fyrirtækinu stöðugu í ólgusjó.

Öryggi snertir alla þætti rekstrarins, allt frá kerfum og birgjum til fólksins sjálfs.

Við förum yfir raunveruleg dæmi um hvað gerist þegar kjölurinn bregst og hvað fyrirtæki og stofnanir geta gert til að halda sínu skipi á réttum kili.

 


Veitingar frá Tryggvaskála

Tryggvaskáli sér um veitingarnar og á matseðlinum verður meðal annars:

  • Blinis með heitreyktum laxi og fetakremi
  • Blinis með önd og chilihnetum
  • Timjankartöflur með nauti og béarnaise
  • Risarækjur í chili með kokteiltómötum
  • Blómkálsvængir með hvítlaukssósu
  • Avókadófranskar með chili-majó
  • Mini grísasamlokur með BBQ
  • Mini ostborgarar
  • Kjúklingaspjót með satay-sósu
  • Mozzarellakúlur í trufflu með parmaskinku og melónu

 

Skráning er nauðsynleg og sætafjöldi takmarkaður.

Deildu viðburðinum