OK og HPE bjóða til morgunverðarfundar á Hilton Reykjavík miðvikudaginn 7. október þar sem farið verður yfir helstu nýjungar og áherslur HPE í innviðum, skýjalausnum og gervigreind.
HPE hefur þróast frá því að vera fyrst og fremst framleiðandi netþjóna, gagnageymslu- og netlausna yfir í leiðandi fyrirtæki á sviði innviða, skýjalausna og gervigreindar. Með HPE GreenLake og lausnum frá Juniper Networks, Morpheus Data, OpsRamp og Zerto býður HPE nú upp á samþætt lausnaframboð sem nær yfir netkerfi, skýjalausnir, sjálfvirkni, vöktun og netöryggi.
Sune Orry frá HPE mun fara yfir hvernig þessar lausnir tengjast saman og hvaða möguleika þær skapa fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda rekstur, auka sveigjanleika og undirbúa upplýsingatækniumhverfið fyrir næstu skref.
Meðal þess sem fjallað verður um eru nýjungar í HPE SimpliVity, HPE GreenLake Intelligence, sýndarvæðingu og netöryggi. Einnig verður farið yfir hvernig HPE nýtir agentic AI til að draga úr handvirkri vinnu og einfalda umsýslu innviða, ásamt því að sýna hvernig hægt er að nýta tæknina við undirbúning og framkvæmd flutnings á milli sýndarvæðingarlausna.
Viðburðurinn hentar stjórnendum og sérfræðingum í upplýsingatækni sem vilja kynna sér nýjustu þróunina hjá HPE og fá betri yfirsýn yfir möguleika í innviðum, skýjalausnum, sýndarvæðingu og gervigreind.
Dagskrá
08:30 Húsið opnar og morgunverður
09:00 Beyond Infrastructure: HPE’s Next Chapter in Hybrid Cloud and AI – Part 1
09:45 Kaffipása
10:00 Beyond Infrastructure: HPE’s Next Chapter in Hybrid Cloud and AI – Part 2
10:45 Spurningar og umræður
11:00 Viðburði lýkur
Hvenær: Miðvikudaginn 7. október, kl. 08:30–11:00
Hvar: Hilton Reykjavík
Sætaframboð er takmarkað og því hvetjum við áhugasama til að skrá sig sem fyrst.
