Viltu vita hvaða búnaður ræður við krefjandi AI verkefni í dag?
Við förum yfir nýjustu vinnustöðvar HP og hvernig þær nýtast í AI, gagnavinnslu og öðrum krefjandi verkefnum.
Kynning frá sérfræðingi hjá HP (Hans Petter Espelid).
Fundurinn er stuttur og hnitmiðaður.
📅 Miðvikudaginn 13. maí
🕐 9:00–9:45
📍 Veffundur – hlekkur sendur við skráningu
Hvað verður farið yfir?
AI: Local vs. Cloud
Hvernig staðbundinn búnaður getur dregið úr kostnaði, bætt öryggi og minnkað háð skýjalausnum.
HP ZGX Nano: Minnsta vinnustöð í heimi (eða því sem næst)
Öflug lausn fyrir staðbundna AI vinnslu og gagnavinnslu.
Z8 Fury og Z4 vinnustöðvar: Þegar mörkin milli vinnustöðvar og ofurtölvu hverfa
Hannaðar fyrir þyngstu verkefnin með miklu vinnsluafli og stuðningi við nýjustu grafíkkort.
ZBook vinnustöðvar (fartölvur)
Vinnustöðvar í fartölvuformi sem ráða við krefjandi verkefni.
Fyrir hverja er þetta?
Fyrir þá sem vinna með:
- AI og gagnagreiningu
- 3D hönnun og myndvinnslu
- tæknilega þróun og önnur krefjandi verkefni
…og vilja fá betri yfirsýn yfir hvaða búnaður hentar best.
Af hverju að mæta?
- Fá skýra mynd af hvaða búnaður hentar þínum verkefnum
- Sjá hvað er raunhæft að keyra staðbundið í dag
- Betri skilning á kostnaði og möguleikum (local vs. cloud)
