15/09 — 09:00

Hagkvæm og sjálfbær innkaup á tæknibúnaði

Staðsetning: Veffundur

Vefviðburður OK 15. september 

Innkaup á tæknibúnaði ráðast ekki lengur eingöngu af kaupverði. Með því að meta kostnað tæknibúnaðar yfir líftíma þess, þar á meðal orkunotkun, endingu, viðhaldsþörf og möguleika á endurnýtingu, geta fyrirtæki dregið úr sóun, lækkað rekstrarkostnað, kostnað við förgun og nýtt fjárfestingarfé sitt betur. Auknar kröfur um hagkvæmni í rekstri kalla því á áreiðanleg, traust og samanburðarhæf gögn um auðlindanotkun og umhverfisáhrif innkaupa.

Slík gögn skapa traustan grundvöll fyrir upplýstar ákvarðanir og gera fyrirtækjum kleift að ná raunverulegum og mælanlegum árangri í sparnaði og sjálfbærni. Markviss auðlindastýring og áhersla á sjálfbærni eru því ekki aðeins viðbrögð við auknum kröfum heldur einnig áhrifarík leið til sparnaðar, aukinnar skilvirkni og sterkari samkeppnisstöðu.    

Á viðburðinum varpa þrír sérfræðingar ljósi á tækifærin sem felast í sjálfbærum innkaupum allt frá endurnýtingu og lengri líftíma tæknibúnaðar til markvissra mælinga á umhverfisáhrifum.

 

📅 Þriðjudagur 15. september
🕐 9:00–10:30

📍 Veffundur – hlekkur sendur við skráningu

 


Dagskrá
  • Anne Marie Jensen sjálfbærnistjóri hjá HP Nordic: Græn vöruþróun og kolefnishlutleysi 2040.
    • Hver er drifkrafturinn á bak við sjálfbærnistefnu HP: Hvernig hyggst félagið ná kolefnishlutleysi árið 2040?
  • Mark Dyhr Mortensen, sölustjóri hjá Foxway: Ný viðmið í kaupum á tæknibúnaði:
    • Sprenging hefur orðið í sölu á endurnýttum búnaði: Hvers vegna þessi breyting nú?
  • Jón Ágúst Þorsteinsson, meðstofnandi Klappa: Auðlindastýring og sjálfbærni, frá kröfu til samkeppnisforskots
    • Hvernig áreiðanleg auðlindagögn verður grunnur að rekstrarsparnaði og traustu sjálfbærniuppgjöri

Fyrir hverja?
Stjórnendur, fjármálastjóra, innkaupastjóra, sjálfbærnistjóra og þá sem móta tækni- og umhverfisstefnu fyrirtækja og stofnana.
Deildu viðburðinum