09/12 — 09:00

Á réttum kili: Af hverju öryggi er undirstaðan undir öllu hinu

Staðsetning: Veffundur

Hvað: Veffundur á Teams
Hvenær: Miðvikudaginn 9. desember kl. 9:00–9:30
Fyrirlesari: Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK

Hvað gerist þegar birgir verður fyrir netárás, starfsmaður smellir á rangan hlekk eða mikilvægt kerfi liggur niðri heilan dag? Flestir vita að öryggi skiptir máli, en færri vita hvar veikustu hlekkirnir eru fyrr en á reynir.

Öryggi er ekki eitthvað sem bætt er ofan á eftir á. Það er kjölurinn sem heldur fyrirtækinu stöðugu í ólgusjó.

Öryggi snertir alla þætti rekstrarins, allt frá kerfum og birgjum til fólksins sjálfs.

Við förum yfir raunveruleg dæmi um hvað gerist þegar kjölurinn bregst og hvað fyrirtæki og stofnanir geta gert til að halda sínu skipi á réttum kili.

Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK, leiðir okkur í gegnum efnið, en hann hefur unnið við öryggis- og tæknimál í yfir 20 ár.

Erindið tekur um 20 mínútur og gert er ráð fyrir spurningum í lokin.

Deildu viðburðinum