Hvernig fyrirtæki geta lagt grunn að öruggri og árangursríkri notkun gervigreindar.
Eftir því sem fyrirtæki kynnast betur möguleikum gervigreindar færist áherslan frá því hvað hún getur gert yfir í hvernig á að undirbúa umhverfið fyrir örugga og árangursríka notkun. Þar skipta skipulag gagna, aðgangsstýring og skýr upplýsingastjórnun miklu máli.
Lausnir innan Microsoft vistkerfisins, eins og Microsoft Purview, Microsoft Entra og Microsoft Defender, hjálpa fyrirtækjum að halda utan um aðgang, vernda gögn og setja skýrar reglur áður en gervigreind er tekin í notkun.
3 lykilskref til að undirbúa gervigreind
Til að nýta gervigreind á öruggan og árangursríkan hátt þarf að leggja góðan grunn í gagna- og öryggismálum. Þrjú lykilatriði skipta þar mestu máli:
1. Skipulag og flokkun gagna
Kortleggja hvar gögn eru geymd og flokka þau eftir viðkvæmni. Microsoft Purview getur hjálpað við að merkja og vernda upplýsingar með skýrum reglum.
2. Skýr aðgangsstýring
Tryggja að starfsmenn hafi aðeins aðgang að þeim gögnum sem þeir þurfa í starfi sínu. Microsoft Entra styður við örugga auðkenningu og stjórnun aðgangs.
3. Öryggi og vernd upplýsinga
Vernda gögn gegn ógnum og óheimilri notkun. Microsoft Defender hjálpar til við að greina og bregðast við öryggisatvikum.
Með þessum grunni geta fyrirtæki byggt upp traust umhverfi þar sem gervigreindarlausnir, eins og Microsoft 365 Copilot, nýtast á öruggan og árangursríkan hátt í daglegu starfi.
Nýtt lausnasett: Microsoft 365 E7 (Frontier Suite)
Microsoft kynnti 9. mars 2026 nýtt lausnasett sem kallast Microsoft 365 E7. Það sameinar lykillausnir fyrir framleiðni, gervigreind, öryggi og auðkennastjórnun í einum pakka:
- Microsoft 365 E5
- Microsoft 365 Copilot
- Microsoft Agent 365
- Microsoft Entra Suite
Markmiðið er að einfalda innleiðingu og bjóða fyrirtækjum heildstæða lausn fyrir nútímalegt vinnuumhverfi.
Microsoft 365 E7 og Microsoft Agent 365 verða almennt aðgengileg frá 1. maí 2026.
Copilot Business – kynningartilboð
Microsoft hefur framlengt kynningartilboð fyrir Microsoft 365 Copilot Business til 30. júní 2026.
Í boði eru afslættir fyrir fyrirtæki sem vilja byrja að nýta Copilot:
- 15% afsláttur af Copilot Business
- Allt að 35% afsláttur af pakka með Microsoft 365 Business Standard og Copilot Business (10–300 notendur)
- Allt að 25% afsláttur af pakka með Microsoft 365 Business Premium og Copilot Business (10–300 notendur)
Sveigjanlegri leið til að byrja
Frá 1. mars 2026 er einnig í boði mánaðarleg skuldbinding (month-to-month), sem gerir fyrirtækjum kleift að prófa Copilot án langtímaskuldbindingar.
Viltu vita hvernig þetta getur nýst þínu fyrirtæki?
Hafðu samband við okkur og við hjálpum þér að meta næstu skref.



