Rétt rúmir 4 mánuðir til stefnu – Allt að 500 milljón tæki enn í hættu
Núna eru bara rétt 4 mánuðir til stefnu en 14. október næstkomandi mun Microsoft formlega hætt að styðja Windows 10 stýrikerfið. En hvað þýðir þetta og hvað gerist 14. október?
Hvað þýðir þetta ?
- Þetta þýðir að formlegum stuðningi við stýrikerfið verður hætt að hálfu Microsoft og uppfærslur munu ekki vera gefnar út.
- Í hugbúnaðargerð er „eðlilegt“ að það komi upp gallar og veikleikar og þó að Windows 10 sé núna í júlí að verða 10 ára eru enn að koma upp veikleika í stýrikerfinu sem þarf að laga, mikilvægast hér eru svokallaðar öryggisuppfærslur sem lagfæra veikleika sem hafa verið uppgötvaðir sem að óprúttnir aðilar geta nýtt sér til að komast yfir gögn, lykilorð eða taka stjórn yfir tölvunni.
- Hvað gerist á þessum degi ?
- 14. október halda allar tölvur áfram að virka og ekkert gerist á þessum degi nema uppfærslur hætta að berast.
- Hver er öryggis áhættan ?
- Áhættan er lítil fyrstu dagana en eykst sem líður lengur á, Mælingar segja okkur að það verði um 500 milljón tölvur enn með Windows 10 seinni hluta þessa árs sem verður ekki hægt að uppfæra.
- Þeir aðilar sem stunda að stela gögnum, brjótast inn í tölvukerfi og annað sambærilegt ráðast alltaf á garðinn þar sem hann er lægstur. Áætlaðar 500 milljón tölvur með Windows 10 eru freistandi tækifæri fyrir þessa aðila og líklegt að þeir beini spjótum sínum í þessa átt.
- Eru aðrar áhættur ?
- Aðrar áhættur eru einnig til staðar en hægt og rólega mun annar hugbúnaður einnig hætta að styðja Windows 10 og upp gæti komið sú staða frekar fljótt að algengur hugbúnaður muni með uppfærslu hætta að virka á Windows 10
- Jafnframt þarf að huga að mögulegri aðstoð sem gæti verið þörf frá Microsoft í stærri vandamálum en mörg fyrirtæki eru með samninga við Microsoft þar sem hægt er að leita til tæknimanna Microsoft þegar upp koma önnur vandamál í rekstri tölvukerfa en Microsoft mun einnig hætta þannig stuðningi.
Hvaða lausnir eru til staðar ?
- Uppfæra
- Mikið af tölvum er hægt að uppfæra beint í Windows 11 og það er sú leið sem er ráðlegt að fara og mælt með því að gera það sem fyrst.
- Skipta um tölvu
- Eins og áður hefur komið fram er áætlað að um 500 milljón tölva styðji ekki uppfærslu í Windows 11 en í þeim tilfellum þarf að fara í útskipti á tölvunni og kaupa nýja.
- Kaupa ESU samning
- Hægt er að kaupa svokallaðan ESU (Extended Security Updates) samning við Microsoft og kaupa framlengingu á öryggisuppfærslum við Windows 10 til að tryggja að mögulegar öryggisholur séu lagfærðar komi þær upp. Á þessum samningum eru þónokkrir vankantar samt sem áður.
- Eingöngu er um að ræða öryggisuppfærslur, en aðrar uppfærslur og möguleg vandamál verða ekki löguð.
- Ekki er hægt að tryggja að annar hugbúnaður virki samt sem áður þegar að aðrir framleiðendur hætta að styðja Windows 10
- Ef upp koma vandamál mun Microsoft samt ekki
- Þessir samningar verða eingöngu í boði næstu 3 árin og tvöfaldast verðið á þeim á hverju ári, ekki verður hægt að kaupa sig inn í eingöngu ár 2 nema að borga ár 1 einnig.
- Verðið fyrir þessa samninga nemur um 10.000kr per tölvu fyrir fyrsta árið
- Hægt er að kaupa svokallaðan ESU (Extended Security Updates) samning við Microsoft og kaupa framlengingu á öryggisuppfærslum við Windows 10 til að tryggja að mögulegar öryggisholur séu lagfærðar komi þær upp. Á þessum samningum eru þónokkrir vankantar samt sem áður.
Hvað ráðleggjum við ?
OK ráðleggur sínum viðskiptavinum sem eiga kost á að uppfæra sem fyrst í Windows 11 þar sem það er hægt en að fara í útskipti á vélbúnaði ef að stuðningur er ekki til staðar fyrir Windows 10.
Við ráðleggjum eingöngu að horfa á ESU samninga sem tímabundna lausn til að komast yfir styttri tímabil vegna útskipta en ekki horfa á þá samninga sem langtíma lausnir.