03.02.2026

Adobe og OK – öflug stafræn vinnsla fyrir fyrirtæki

Adobe og OK – öflug stafræn vinnsla fyrir fyrirtæki

Adobe er eitt af leiðandi hugbúnaðarfyrirtækjum heims og þróar lausnir sem gera einstaklingum og fyrirtækjum kleift að búa til, hanna og miðla stafrænu efni á skilvirkan og öruggan hátt. Lausnir Adobe hafa lengi verið mikilvægur hluti af stafrænum vinnuferlum, meðal annars á sviði grafískrar hönnunar, myndvinnslu, vef- og forritahönnunar, myndbandsgerðar og útgáfu stafræns efnis.

Kjarninn í starfsemi Adobe er Creative Cloud, hugbúnaðarpakki sem sameinar yfir 20 forrit fyrir skapandi vinnu. Þar má nefna Photoshop, Illustrator, Premiere Pro, After Effects og InDesign, sem styðja við sköpunarferlið frá hugmynd til fullbúinnar afurðar. Creative Cloud býður jafnframt upp á skýjageymslu, samvinnutól og skilgreind verkflæði sem auðvelda teymavinnu, óháð staðsetningu.

Stjórnað miðlægt á Adobe Admin Console

Adobe býður upp á lausnir sem henta bæði litlum og stórum fyrirtækjum. Með fyrirtækjaleyfum er hægt að úthluta, breyta og stýra aðgangi notenda í gegnum Adobe Admin Console. Þar hafa stjórnendur yfirsýn yfir leyfanotkun og geta auðveldlega bætt við eða fækkað leyfum eftir þörfum, sem einfaldar utanumhald og styður við hagkvæman rekstur.

Nýtt: AI Assistant í Acrobat

Adobe hefur kynnt AI Assistant í Acrobat, gervigreindarlausn sem einfaldar og hraðar allri vinnu með PDF-skjöl og önnur skjalaform.

AI Assistant getur meðal annars:

  • búið til samantektir úr löngum skjölum með tilvísunum í frumtexta
  • svarað spurningum um efni skjala
  • endurskrifað og lagað texta, til dæmis gert hann styttri, formlegri eða ítarlegri
  • framkvæmt skipanir á skjölum með náttúrulegri málnotkun
  • umbreytt skjölum í kynningar eða hljóðsamantektir
  • búið til myndefni með samþættingu við Adobe Express

Er AI Assistant innifalinn í Acrobat Pro?
Nei – AI Assistant er seldur sem viðbót (add-on) og er ekki sjálfkrafa innifalinn í hefðbundnu Acrobat Pro leyfi.

Fyrirtæki geta einnig valið stærri pakkalausnir, svo sem:

  • Acrobat Premium, sem sameinar Acrobat Pro, AI Assistant og rafrænar undirritanir
  • Acrobat Studio, sem bætir við PDF Spaces og Adobe Express Premium fyrir aukna samvinnu og efnisgerð

Gervigreind í Adobe forritunum

(Photoshop, Illustrator, Premiere Pro, After Effects, Lightroom, Express o.fl.)

Adobe hefur aukið notkun gervigreindar í öllum helstu Creative Cloud forritunum. Með Firefly-tækninni er markmiðið að einfalda verkflæði, stytta framleiðslutíma og gera notendum kleift að einbeita sér meira að sköpuninni sjálfri.

  • Photoshop nýtir gervigreind í myndvinnslu, meðal annars með Generative Fill, Expand og Remove
  • Illustrator býður upp á AI-aðstoð í vektorhönnun, þar sem textalýsingar geta orðið að grafík
  • Premiere Pro og After Effects sjálfvirknivæða tímafrek verkefni í myndbandsvinnslu
  • Lightroom styður ljósmyndara með snjallari flokkun, vali og eftirvinnslu
  • Adobe Firefly er grunnur gervigreindarlausna Adobe og er þjálfað á efni sem er öruggt til viðskiptanotkunar

OK – viðurkenndur endursöluaðili Adobe á Íslandi

OK er viðurkenndur endursöluaðili Adobe á Íslandi og býður upp á heildarlausnir fyrir fyrirtæki, skóla og stofnanir. Með Adobe lausnum frá OK fá viðskiptavinir bæði traustan hugbúnað og aðstoð við val, uppsetningu og rekstur lausna sem styðja við daglega vinnu.

Fyrir nánari upplýsingar eða ráðgjöf um Adobe leyfi er hægt að hafa samband á hugbunadur@ok.is

Deildu færslu

Nýjasta bloggfærsla