Hjá OK finnur þú tölvubúnað sem hentar þínum vinnustað. Fáðu ráðgjöf hjá okkur eða skoðaðu úrvalið í vefversluninni.
HVAÐ BJÓÐUM VIÐ UPP Á?
Fjölbreytt úrval af vörum sem henta öllum fyrirtækjum. Sérþjálfað starfsfólk á verkstæði með vottanir frá okkar birgjum. Flestar okkar tölvuvörur hafa fengið umhverfisvottanir líkt og ENERGY STAR og EPEAT.

Fartölvur sem henta fyrir allar gerðir vinnustaða. Mikið úrval véla frá HP og Microsoft.

Allt frá öflugum vélum fyrir grafíska vinnu yfir í einfaldari vélar fyrir hversdagsleg verkefni.

Skjáir í öllum stærðum og gerðum. Tölvuskjáir, dokkuskjáir, fundarherbergjaskjáir og upplýsingaskjáir.

Mikið úrval heyrnartóla frá Jabra og Poly. Allir ættu að geta fundið tólin sem henta.

Góður fundarbúnaður skiptir máli þegar hluti hópsins er á fjarfundi. Við bjóðum heildarlausnir fyrir fundarherbergi og stakar vörur.

Allur aukabúnaður sem vinnustaðurinn þarf. Lyklaborð, mýs, snúrur, kaplar, töskur og fleira.
Ef þú kemur með gamlan tölvubúnað til okkar getur þú fengið inneign upp í næstu kaup. Við metum búnaðinn með aðstoð Foxway sem sérhæfir sig í endurvinnslu á raftækjum, viðgerðum og endurnotkun á varahlutum. Með þessu hjálpumst við að við endurvinnslu, endurnotkun og drögum úr rafeindaúrgangi.



