Rekstrarráðgjöf

Við aðstoðum fyrirtæki við að reka upplýsingatækniumhverfið sitt á öruggan og hagkvæman hátt. Ráðgjafarnir okkar aðstoða við rekstur, hýsingu og skýjalausnir, hvort sem kerfin eru hýst innanhúss, í skýinu eða hvort tveggja, og hjálpa þér að fjárfesta á réttum stöðum til framtíðar.

Gerum vinnustaðinn okkar örlítið snjallari

Snjallari notkun á innra neti, samskiptalausnum og nettengdum snjalltækjum getur gert vinnustaðinn betri – aukið starfsánægju og bætt frammistöðu starfsfólks. Upplýsingatæknin getur bætt fundarherbergjabókanir, aðgangsstýringu, fjarfundi, samskiptatækni, umhverfismælingu og orkunotkun.

Engin tvö fyrirtæki eru eins og þarfirnar eru ólíkar en næstum allir vinnustaðir gætu orðið snjallir með réttum lausnum.

Almenn rekstrarráðgjöf

 

Við bjóðum upp á almenna rekstrarráðgjöf í Azure, AWS (Amazon Web Services) og „Hybrid Cloud“ lausnir sem hjálpa þér að tvinna saman þjónustur hýstar hjá þér og einnig í skýinu. 

Hýsing og rekstur

Rekstur kerfa getur verið dagtímarekstur eða allan sólarhringinn. Við bjóðum kerfisrekstur, netrekstur, afritun og vöktun sem hægt er að raða saman í pakka eftir þörfum hvers viðskiptavinar.

Stafræn umbreyting er fjárfesting í betri þjónustu

Stafræn umbreyting​

Stafræn umbreyting er eiginlega stafrænt kapphlaup sem sér ekki fyrir endann á. Það er mikilvægt að fjárfestingarnar séu á réttum stöðum og séu til framtíðar.​

Fjárfesting í innviðum skilar sér fljótt í betri rekstri. Betra aðgengi að gögnum, samræmdu aðgengi starfsfólks að upplýsingum um viðskiptamenn, beinum tengingum milli kerfa, bættum samskiptum við viðskiptavini og aukinni sjálfvirknivæðingu.​