OK á Suðurlandi – Tæknidagurinn 2026
Tækni, tengsl og góður matur
Fimmtudaginn 12. nóvember í Tryggvaskála á Selfossi
OK býður fyrirtækjum og stofnunum á Suðurlandi á Tæknidaginn 2026.
Sérfræðingar OK fara yfir það helsta sem er að gerast í tækninni – meðal annars gervigreind, tölvubúnað, netkerfi, öryggi og lausnir fyrir vinnuumhverfið.
Dagskrá
16:30 – Húsið opnar
17:00 – Velkomin
17:10 – Gervigreind í fartölvum – hvað er raunverulega hægt að gera?
17:25 – Hljóð- og myndlausnir – frá fundarherbergjum í stærri rými
17:40 – Hlé
17:50 – Er netbúnaður þinn mikilvægasti búnaður?
18:10 – Microsoft 365 á tímum gervigreindar – hvað þarf að vera í lagi?
18:25 – Á réttum kili: Af hverju öryggi er undirstaðan undir öllu hinu
18:40 – Lokaorð
18:45 – Matur, drykkur og spjall
Nánar um erindin
Gervigreind í fartölvum – hvað er raunverulega hægt að gera?
Trausti Eiríksson, vörustjóri PC hjá OK
Ný kynslóð fartölva býður upp á sífellt öflugri gervigreindarvinnslu beint í tækinu. Við skoðum muninn á staðbundinni gervigreind og skýjalausnum, hvaða möguleikar eru í boði í dag og hvað fyrirtæki og stofnanir ættu að hafa í huga við næstu tölvuendurnýjun.
Hljóð- og myndlausnir – frá fundarherbergjum í stærri rými
Kristinn Helgason, vörustjóri hljóð- og myndlausna hjá OK
Við förum yfir helstu möguleika í hljóð- og myndlausnum, allt frá fjarfundalausnum og fundarherbergjum til stærri rýma, skjálausna og sérsniðinna lausna.
Er netbúnaður þinn mikilvægasti búnaður?
Gunnar Ingi Björnsson, forstöðumaður innviðasölu hjá OK
Netbúnaðurinn er sjaldnast mest áberandi búnaður fyrirtækisins en mögulega er hann sá mikilvægasti. Við skoðum hvernig netið hefur þróast úr tæknilegum bakgrunni yfir í grunn að öruggum, skilvirkum og samfelldum rekstri.
Microsoft 365 á tímum gervigreindar – hvað þarf að vera í lagi?
Halldór Áskell Stefánsson, framkvæmdastjóri stafrænnar þjónustu hjá OK
Gervigreind er að umbreyta vinnulagi fyrirtækja og opna ný tækifæri innan Microsoft 365. Fjallað verður um mikilvægi góðs undirbúnings áður en gervigreindarlausnir eru teknar í notkun, helstu öryggisáskoranir og hvernig reglulegt og fyrirbyggjandi eftirlit með Microsoft 365-umhverfi stuðlar að öruggri og ábyrgri nýtingu tækninnar.
Á réttum kili: Af hverju öryggi er undirstaðan undir öllu hinu
Arnar S. Gunnarsson, öryggisstjóri OK
Öryggi er ekki eitthvað sem bætt er ofan á eftir á. Það er kjölurinn sem heldur fyrirtækinu stöðugu í ólgusjó.
Öryggi snertir alla þætti rekstrarins, allt frá kerfum og birgjum til fólksins sjálfs.
Við förum yfir raunveruleg dæmi um hvað gerist þegar kjölurinn bregst og hvað fyrirtæki og stofnanir geta gert til að halda sínu skipi á réttum kili.
Veitingar frá Tryggvaskála
Tryggvaskáli sér um veitingarnar og á matseðlinum verður meðal annars:
- Blinis með heitreyktum laxi og fetakremi
- Blinis með önd og chilihnetum
- Timjankartöflur með nauti og béarnaise
- Risarækjur í chili með kokteiltómötum
- Blómkálsvængir með hvítlaukssósu
- Avókadófranskar með chili-majó
- Mini grísasamlokur með BBQ
- Mini ostborgarar
- Kjúklingaspjót með satay-sósu
- Mozzarellakúlur í trufflu með parmaskinku og melónu
Skráning er nauðsynleg og sætafjöldi takmarkaður.
