Vefviðburður OK 15. september
Innkaup á tæknibúnaði ráðast ekki lengur eingöngu af kaupverði. Með því að meta kostnað tæknibúnaðar yfir líftíma þess, þar á meðal orkunotkun, endingu, viðhaldsþörf og möguleika á endurnýtingu, geta fyrirtæki dregið úr sóun, lækkað rekstrarkostnað, kostnað við förgun og nýtt fjárfestingarfé sitt betur. Auknar kröfur um hagkvæmni í rekstri kalla því á áreiðanleg, traust og samanburðarhæf gögn um auðlindanotkun og umhverfisáhrif innkaupa.
Slík gögn skapa traustan grundvöll fyrir upplýstar ákvarðanir og gera fyrirtækjum kleift að ná raunverulegum og mælanlegum árangri í sparnaði og sjálfbærni. Markviss auðlindastýring og áhersla á sjálfbærni eru því ekki aðeins viðbrögð við auknum kröfum heldur einnig áhrifarík leið til sparnaðar, aukinnar skilvirkni og sterkari samkeppnisstöðu.
🕐 9:00–10:30
📍 Veffundur – hlekkur sendur við skráningu
- Anne Marie Jensen sjálfbærnistjóri hjá HP Nordic: Græn vöruþróun og kolefnishlutleysi 2040.
- Hver er drifkrafturinn á bak við sjálfbærnistefnu HP: Hvernig hyggst félagið ná kolefnishlutleysi árið 2040?
- Mark Dyhr Mortensen, sölustjóri hjá Foxway: Ný viðmið í kaupum á tæknibúnaði:
- Sprenging hefur orðið í sölu á endurnýttum búnaði: Hvers vegna þessi breyting nú?
- Jón Ágúst Þorsteinsson, meðstofnandi Klappa: Auðlindastýring og sjálfbærni, frá kröfu til samkeppnisforskots
- Hvernig áreiðanleg auðlindagögn verður grunnur að rekstrarsparnaði og traustu sjálfbærniuppgjöri
