365 AI Readiness frá OK

Er Microsoft 365 umhverfið ykkar tilbúið fyrir gervigreind?

Áður en þið takið gervigreind í notkun borgar sig að vita hver hefur aðgang að hverju. Við förum yfir Microsoft 365 umhverfið ykkar, metum stöðuna og bendum á hvað þarf að laga.

69.000 kr.án vsk.

Microsoft
Undirbúningur

Af hverju skiptir undirbúningurinn máli?

Copilot vinnur með þau gögn í Microsoft 365 sem hver notandi hefur aðgang að. Ef aðgangsréttindi eru of víð eða gögn illa skipulögð getur það haft áhrif á svörin sem Copilot gefur.

Viðkvæm gögn geta komið fram í svörum

Ef starfsmaður hefur aðgang að launagögnum eða samningum sem hann á ekki að sjá getur Copilot nýtt þau í svörum.

Úreltar aðgangsheimildir

Þegar fólk skiptir um hlutverk eða verkefnum lýkur er aðgangur ekki alltaf endurskoðaður. Með tímanum geta fleiri haft aðgang að gögnum en þörf er á.

Gæði gagna hafa áhrif á svörin

Úrelt, tvítekið eða illa skipulagt efni getur dregið úr gæðum svaranna.

Gervigreind getur sparað tíma við leit og samantektir, en hún lagar ekki aðgang eða skipulag gagna. Það þarf að laga sérstaklega áður en farið er lengra með notkun gervigreindar.

Við elskum Microsoft 365

Hvað er 365 AI Readiness?

Í 365 AI Readiness förum við yfir aðgangsréttindi, deilingu, skipulag og vernd gagna í Microsoft 365 umhverfinu ykkar og metum hversu vel það er undirbúið fyrir gervigreind. Úttektin á við hvort sem þið ætlið að nota Microsoft Copilot, Claude eða aðra lausn sem tengist umhverfinu.

Þið fáið yfirsýn yfir stöðuna og forgangsraðaðar tillögur að úrbótum sem hjálpa ykkur að ákveða næstu skref.

Úttektin

Hvað skoðum við hjá ykkur?

Við förum yfir SharePoint, Teams og OneDrive og skoðum sérstaklega aðgangsréttindi, deilingu, skipulag og vernd gagna.

Aðgangur

Hverjir geta séð gögnin ykkar?
Aðgangsheimildir notenda og hópa, opin svæði og aðgangur sem erfist milli svæða og skjala.

Deiling

Hverju er deilt út fyrir fyrirtækið?
Gestaaðgangur, deiling með utanaðkomandi aðilum og hlekkir sem hver sem er getur opnað.

Skipulag

Hvernig eru gögnin skipulögð?
Uppbygging SharePoint og Teams, notkun OneDrive og svæði sem ekki eru lengur í notkun.

Gagnavernd

Hvernig verndið þið viðkvæm gögn?
Stillingar í Microsoft Purview, trúnaðarmerkingar og reglur um meðferð gagna.

Niðurstöður

Hvað fáið þið út úr úttektinni?

Skýrslu um stöðuna, forgangsraðaðar tillögur að úrbótum og fund með sérfræðingum OK.

01

Mat á stöðu

Heildareinkunn sem sýnir hversu vel umhverfið er undirbúið fyrir gervigreind.

02

Yfirlit yfir áhættu

Helstu veikleikar í aðgangsheimildum, deilingu, skipulagi og vernd gagna.

03

Forgangsröðun

Hvað þarf að laga áður en prófanir hefjast, hvað þarf að vera komið í lag fyrir innleiðingu og hvað má bíða.

04

Aðgerðaáætlun

Tillögur að úrbótum og hver sér um hvað, unnar í samráði við ykkur.

05

Niðurstöðufundur

Sérfræðingar OK fara yfir niðurstöðurnar og tillögurnar með ykkur.

Þið ákveðið framhaldið

Þið ákveðið hvaða úrbætur þið viljið ráðast í og hvort þær eru gerðar innanhúss eða með OK.

Ferlið

Svona fer úttektin fram

Fyrstu þrjú skrefin eru innifalin í verðinu. Úrbætur og áframhaldandi innleiðing eru ekki hluti af úttektinni og eru unnar sérstaklega ef þið viljið fá OK með í framhaldið.

1

Gagnasöfnun

Við tökum saman skýrslur úr Microsoft 365 umhverfinu ykkar.

2

Greining

Við metum aðgangsréttindi, deilingu, skipulag og vernd gagna.

3

Niðurstöðufundur

Við kynnum niðurstöðurnar og tillögur að úrbótum.

4

Val á úrbótum

Þið veljið hvaða úrbætur verða gerðar. Ef OK tekur verkið að sér gerum við tilboð.

Ekki innifalið
5

Prófun og innleiðing

Þið prófið gervigreindina með afmörkuðum hópi áður en hún fer í almenna notkun.

Ekki innifalið
Verð

365 AI Readiness

69.000 kr. án vsk.

Fast verð fyrir mat á stöðu, forgangsraðaðar tillögur að úrbótum og niðurstöðufund.

Þetta er innifalið

  • Greining á SharePoint, Teams og OneDrive
  • Mat á aðgangsheimildum, deilingu, skipulagi og vernd gagna
  • Heildareinkunn og yfirlit yfir áhættu
  • Forgangsraðaðar tillögur að úrbótum
  • Niðurstöðufundur með sérfræðingum OK
Athugið: Úrbætur og áframhaldandi innleiðing eru ekki innifaldar í verðinu. Ef OK á að sjá um úrbæturnar metum við umfangið og gerum tilboð áður en vinnan hefst.
Gott að vita

Algengar spurningar

Fyrir hverja er 365 AI Readiness?

Fyrir fyrirtæki sem nota Microsoft 365 og eru að skoða Copilot eða aðra gervigreind sem tengist umhverfinu.

Á úttektin bara við um Microsoft Copilot?

Nei. Hún á líka við um Claude og aðra gervigreind sem tengist Microsoft 365 umhverfinu.

Hvað skoðið þið?

Við skoðum aðgangsréttindi, deilingu, skipulag og vernd gagna í SharePoint, Teams og OneDrive.

Eru úrbætur innifaldar í verðinu?

Nei. Þið ákveðið hvaða úrbætur verða gerðar og hvort þið sjáið um þær sjálf. Ef þið viljið að OK taki verkið að sér gerum við tilboð.

Hvað tekur við eftir úttektina?

Sérfræðingar OK fara yfir niðurstöðurnar og tillögurnar með ykkur á fundi. Eftir það ákveðið þið hvað verður gert og hvenær.

Næsta skref

Bóka úttekt

Fyllið út formið til að bóka úttekt.

Viljið þið frekar ræða málin fyrst?

Fá ráðgjöf

Bókunin er staðfest þegar söluráðgjafi OK hefur haft samband og tími hefur verið ákveðinn.

69.000 kr.án vsk. · 365 AI Readiness
Bóka úttekt