Reykjavík Prentský

Prentun, skönnun og ljósritun hjá Reykjavíkurborg

Leiðbeiningar fyrir starfsfólk borgarinnar um PaperCut-prentarana: hvernig þú skráir þig inn með starfsmannakorti eða ID-númeri, sækir prentverk, skannar í tölvupóst eða OneDrive, ljósritar og hvað á að gera þegar tóner klárast.

Starfsmannakort lagt að kortalesara á HP prentara
Vantar tóner eða pappír?
Ef tóner hefur ekki skilað sér á starfsstöðina eða pappír vantar, sendið póst á þjónustuborð borgarinnar.
hjalp@reykjavik.is
Innskráning Prenta Skanna Ljósrita Tóner og pappír
Hagnýt ráð
Notaðu tvíhliða prentun (duplex) til að spara pappír.
Veldu svarthvíta prentun (B/W) þegar unnt er.
Ef prentarinn er lengi að ræsa sig, prófaðu að snerta skjáinn áður en þú endurræsir.

Innskráning á prentara

Það eru tvær leiðir inn á prentarana. Með starfsmannakorti skráir þú kortið einu sinni og leggur það síðan bara að lesaranum. Án korts notar þú ID-númer úr Prentskýinu.

Með starfsmannakorti
Kortið er skráð einu sinni, síðan dugir að leggja það að lesaranum
Skrá kortið í fyrsta sinn
1
Leggið starfsmannakortið að kortalesaranum á prentaranum.
2
Ef kortið er óskráð birtist Log In valmynd. Skráið inn netfang og lykilorð og veljið Log in.
3
Kortið er nú virkt og opnar valmyndina á öllum prenturum með kortalesara.
Log In valmynd á prentara
Prenta frá tölvunni
1
Veljið File – Print og prentbiðröðina REYKJAVÍK_PRENTSKÝ.
2
Leggið starfsmannakortið að kortalesaranum á prentaranum.
3
Veljið Print release til að sækja prentunina, Copy til að ljósrita eða Scan til að skanna.
Án aðgangskorts
Skráð inn með ID-númeri sem þú sækir í Prentskýið
Sækja ID-númer
1
Farið á prentsky.reykjavik.is og skráið inn netfang og lykilorð.
2
Veljið Show og ID-númerið birtist. Geymið það á vísum stað.
Prentskýið – veljið Show til að sjá ID number
Við prentarann
1
Veljið Sign In á skjá prentarans.
2
Veljið ID number og sláið númerið inn.
3
Að innskráningu lokinni velur þú Print release, Scan eða Copy.
Sign In hnappur á HP prentara
Username and password eða ID number
Valmynd prentara: Print Release, Scan, Copy
Valmyndin eftir innskráningu
Sama valmynd birtist hvort sem skráð er inn með korti eða ID-númeri: Print Release sækir prentverk sem bíða í biðröðinni, Scan skannar í tölvupóst eða OneDrive og Copy ljósritar.

Prenta

Prentverk fara í biðröð og prentast ekki fyrr en þú sækir þau við prentarann. Þannig lenda engin blöð í röngum höndum.

1
Veljið Print Release í valmyndinni.
2
Hakið við þau prentverk sem á að prenta, eða veljið Select all jobs.
3
Veljið Print. Neðst á skjánum má líka haka við Print as grayscale eða Print as 2-sided fyrir öll valin verk.
Print Release skjár með lista yfir prentverk
Fleiri valkostir fyrir hvert prentverk
Veljið örina hægra megin við prentverkið (í rauða rammanum) til að opna Print Settings. Þar má stilla fjölda eintaka, eins- eða tvíhliða prentun og lit eða gráskala (svarthvítt) fyrir þetta eina verk.
Print Settings fyrir eitt prentverk

Skanna

Veljið Scan í valmyndinni og síðan hvort skjalið á að fara í tölvupóstinn þinn eða beint inn á OneDrive. Allt er forvalið, svo yfirleitt dugir að ýta á Start.

Scan Details: Skönnun í tölvupóst
Skönnun í tölvupóst
Skjalið kemur sem PDF í pósthólfið þitt. Ýtið á Start, eða veljið Change settings til að breyta stillingum: eins- eða tvíhliða, PDF/TIFF/JPEG, upplausn (DPI), litur eða svarthvítt og pappírsstærð.
Scan Details: Skönnun inn á OneDrive
Skönnun inn á OneDrive
Skjalið vistast í möppunni Apps/Scans for PaperCut MF á OneDrive. Ýtið á Start eða breytið stillingum með Change settings.
Í fyrsta sinn: þú færð tölvupóst frá PaperCut-kerfinu. Veljið PaperCut-hnappinn í póstinum og skráið ykkur inn með netfanginu ykkar til að tengja OneDrive.

Ljósrita

Veljið Copy í valmyndinni eftir innskráningu. Stillingarnar eru forvaldar, svo oftast dugir að leggja frumritið í vélina og ýta á Start.

Svona ljósritar þú
1
Skráið ykkur inn á prentarann með starfsmannakorti eða ID-númeri.
2
Veljið Copy.
3
Leggið frumritið í skjalamatarann eða á glerplötuna.
4
Veljið fjölda afrita, lit eða svarthvítt og eins- eða tvíhliða.
5
Ýtið á Start.
Algengar stillingar
Tvíhliða afritun
Litur eða svarthvítt
Stækkun eða minnkun
Fjöldi afrita

Tóner og pappír

Leiðbeiningar HP um tónerskipti fylgja hverri prentaragerð og þeim fylgir myndband, sem er einfaldasta leiðin. Finndu gerðina á miðanum framan á prentaranum.

HP LASERJET
E50145 Skipta um tóner · HP support
HP LASERJET MFP
E47528 Skipta um tóner · HP support
HP COLOR MFP
X58045 Skipta um tóner · HP support
HP COLOR MFP · A3
E877 Skipta um tóner · HP support
HP COLOR MFP · A3
E877 (TCU) Skipta um TCU · HP support
Vantar tóner eða pappír?
Ef tóner hefur ekki skilað sér á starfsstöðina eða pappír vantar, sendið póst á þjónustuborð borgarinnar.
hjalp@reykjavik.is
OK
Opin kerfi hf.
Skútuvogi 2, 104 Reykjavík
Þjónustuborð Reykjavíkurborgar
© 2026 Opin kerfi hf. Allur réttur áskilinn. Kt. 420103-2040 · VSK 77629