Search
Close this search box.

Tækifærin með gervigreind

Hádegisverðarfundur á Reykjavík EDITION
Miðvikudaginn 9. október kl. 11:30 – 13:30

Sagt er að gervigreind muni stuðla að hraðari umbreytingum samfélaga en áður hefur þekkst. En hvaða áhrif mun gervigreindin hafa á fyrirtæki og starfsfólk þeirra? Hvernig munu þau geta nýtt sér tækifærin sem skapast?  Getur gervigreind skapað einhverjar hættur fyrir fyrirtæki?

Þessum spurningum og mörgum öðrum munu sérfræðingarnir
 frá HP svara á viðburðinum. Jafnframt munum við fræðast um þróun í blandaðri vinnu, nýja prentlausn og hvernig HP er leiðandi fyrirtæki í sjálfbærni.

Fyrirlesarar​

Hans Petter Espelid

Area Category Manager
HP Inc.

Anna Josefson

Country Category Manager
HP Inc.

Fredrik sveen

Print Consultant
HP Inc.

Søren Meyer

Partner Business Manager
HP Inc.

Dagskrá

Gervigreindin er bara byrjunin (25 mín.)

Hans Petter Espelid

Hvernig mun nýjasti HP tölvubúnaðurinn gjörbylta vinnunni þinni? Hvernig getum við nýtt okkur þessar nýjungar til fullnustu?

Ný tækni í höndum tölvuþrjóta (20 mín.)

hans petter espelid

Hvernig geta fyrirtæki nýtt sér gervigreind án þess að eiga á hættu að það dragi úr öryggisþáttum? Eru einhverjar hættur sem leynast handan hornsins?

Ekkert járn – prentþjónusta í skýinu (15 mín.)

fredrik sveen

Já, þú last rétt. Nú þarftu ekki lengur á netþjónum að halda til þess að halda utan um aðgangsstýrða prentþjónustu. Lausnin er komin í skýið. Hér færðu að vita allt um kosti þessarar nýjungar og hvernig er hægt að hámarka öryggi og draga úr kostnaði.

Er endurnýtt sjávarplast í þinni tölvu? (15 mín.)

Anna Josefson

Sjálfbærni er lykilorð í framleiðslu HP á tölvubúnaði. Til þess að ná sjálfbærnimarkmiðum sínum leggur HP áherslu á að endurnýta plast, fiskinet og pólýstýren-froðu (EPS) úr sjó við framleiðslu sína.

Þú getur unnið hvar sem er (15 mín.)

Søren Meyer

Talið er að 30% af vinnuafli heimsins sé komið að hluta til í fjarvinnu. Hvernig getur HP aðstoðað fyrirtæki við að mæta breyttum þörfum starfsfólks hvað varðar sveigjanleika og blandaða vinnu (e. Hybrid Office)?

Matseðill

Forréttur:

SPICED MANGO AVOCADO SALSA

Tortilla chips, cherry tomatoes & tajin spices

Aðalréttur:

BRAISED BEEF CHEEK

Ragout, tomatoes, red onion, carrots, red chili oil & grana padano

Eftirréttur:

DARK CHOCOLATE WITH SMOKED HAZELNUT

 
Austurbakki 2, 101 Reykjavík
The Reykjavik EDITION
Ballroom