Yealink hefur ekki haft undan á þessu ári að kynna nýjungar leiks. Á morgunfundi OK og Yealink mun Lucian Liu, sérfræðingur frá Yealink, svipta hulunni af nýjum og spennandi lausnum sem streyma frá fyrirtækinu um þessar mundir.
Dagskrá:
08.45 – 09.15 – Skráning og morgunverður
09.15 – 09.30 – Þjónusta og vöktun fundaherbergja
09.30 – 10.30 – Lucian Liu kynnir nýjungar í lausnaframboði Yealink
- Fjórðu kynslóð fundakerfa sem nota gervigreind sem undirstöðu og fleiri myndavélar sem tryggir að allir þátttakendur sjáist, óháð staðsetningu.
- AV ONE, samþætt lausn sem sameinar hátalara, hljóðstýringu, AVoIP, stjórnkerfi og gervigreind í einni stýringu.
- Nýir Yealink MeetingDisplay upplýsingaskjáir sem henta þeim sem vilja endurhanna fundarherbergi sín og færa sig í snjallari, sjálfstýrð og samhæfðari fjarfundakerfi.
- Næstu kynslóð MeetingBoard PRO gagnvirku fundarherbergisskjáina sem búa yfir hærri upplausn, gervigreind sem styður myndvinnslu, öflugri hátalara og gríðarlega einfalt notendaviðmót.
- SkySound, hljóðbúnað fyrir stærri fundarherbergi og sali sem tryggir fyrsta flokks hljóðupplifun. Lausnin tryggir skýrt og náttúrlegt samtal þar sem allir heyra og eru heyrðir, óháð fjarlægð eða hljóðvist í rýminu.
- Samþætting við Microsoft Device Ecosystem Platform (MDEP) og nýjar Android-lausnir.
10.30 – 11.00 – Að lokinni kynningu munu sérfræðingar frá Yealink og OK veita ráðgjöf um hvaða lausnir henta þér og þínu fyrirtæki.
Komdu, upplifðu og prófaðu nýjustu Yealink lausnirnar.
Þeir sem komast ekki en vilja fylgjast með í gegnum vefinn geta skráð sig hér.
