Nýjungar og framtíðarsýn Yealink
Yealink er leiðandi í hönnun og þróun á fjarfundalausnum á heimsvísu. OK er öflugur samstarfsaðili Yealink og hefur komið að uppsetningu á hundruðum fjarfundarýma á allra síðustu árum.
Til þess að segja frá hvað er í deiglunni í heimi fjarfundalausna höfum við fengið Lucian Liu, einn allra öflugasta sérfræðing Yealink, í heimsókn. Hann mun segja frá fjarfundalausnum sem leysa úrlausnaefni fyrirtækja á tímum „Hybrid“ vinnustaða.
Þeir sem komast ekki en vilja fylgjast með í gegnum vefinn geta skráð sig hér.
DAGSKRÁ:
Kl: 08:30-09:00
Skráning og morgunmatur
Kl: 09:00-09:15
Þjónusta og vöktun fundaherbergja viðskiptavina OK
Gísli Þorsteinsson, forstöðumaður notendalausna OK.
Kl: 09:10-09:55
Árangursríkari fundir: Vegvísir Yealink 2025
- Microsoft Teams Rooms fundalausnir fyrir Windows (MTRoW). Hvað er framundan?
- Microsoft Teams Rooms fundalausnir fyrir Android (MTRoA). Hvað er framundan?
- MeetingBoard: Fjölhæf lausn fyrir hvaða fundarými sem er.
- Leiðandi Yealink hljóð- og myndlausnir (ProAV). Allt á einum stað.
Lucian Liu, Senior Solution Architect frá Yealink.
Kl: 09:5-10:00
Lútsterkt kaffi og kruðerí
Kl: 10:00-10:30
Kynning á Yeallink búnaði í þremur fundaherbergjum:
- Yealink Skysound skoða í þaula í fundaherberginu Mími
- Kíktu undir „húddið“ á MVC S40 í fundaherberginu Hliðskjálf
- Yealink A20 fyrir smærri rými
Kl: 10:30
Dagskrálok