Ok.is fréttaveita
		<link>http://www.ok.is/</link>
Opnunartilboð í fullum gangi
			<author>ok@ok.is</author>
Ný netverslun Opinna kerfa
			<author>ok@ok.is</author>
Vertu uppfærður
			<description><![CDATA[ Vertu uppfærður til að standast nýjustu ógnir. 
Flestir sem koma að rekstri tölvukerfa í dag eru sammála um mikilvægi eldveggja í tölvukerfum. Hugbúnaðurinn sem stýrir eldveggnum er í raun vitræni hluturinn og það er hann sem skiptir mestu máli. Eins og með hvern annan hugbúnað t.a.m. vírusvarnir þarf því að uppfæra þennan hugbúnað reglulega svo hann þjóni hlutverki sínu sem best. 
Cisco sendir reglulega frá sér uppfærslur og viðbætur á stýrikerfi eldveggja. Til þess að tryggja það að eldveggurinn sé sem skilvirkastur, þekki ný árásarmynstur o.þ.h., hvetjum við alla okkar viðskiptavini til að ganga úr skugga um það að þeir séu með nýjustu uppfærslur, bæði meiriháttar sem og minniháttar. Fullyrða má að nánast allir eru í dag með áskrift af vírusvarnarhugbúnaði fyrir útstöðvar og netþjóna til að hindra að röskun verði á tölvukerfunum vegna vírusárása og annarra óværa, en hugsa minna um að uppfæra eldvegginn. 
Hugleiðum hvaða áhrif það hefur á tölvukerfið ef hægt er að setja eldvegginn á hliðina. Hver er kostnaðurinn við að koma tölvukerfinu aftur í samt lag - eftir að hakkarar hafa notfært sér veilur til að ráðast á það - samanborið við kostnaðinn við að hafa eldvegginn á uppfærslusamningi? Tvær leiðir eru í uppfærslu: Cisco þjónustusamningur um uppfærslur á hugbúnaði og staðkvæmdarþjónustu búnaðar eða kaup á hugbúnaðarleyfinu einu og sér. 
Hugbúnaðarleyfið kostar um 99 þúsund krónur* plús vsk. og er einskiptis uppfærsla en sú upphæð jafngildir kaupum á einum Windows Standard Server óháð frá því hvaða týpu af ASA boxi þú ert að keyra. 
Opin kerfi bjóða viðskiptavinum Cisco aðgengissamninga sem innifela:  
• Vélbúnaðarábyrgð á viðbragði frá næsta virka degi á skrifstofutíma og niður í 2 tíma 24/7 
• Hugbúnaðaruppfærslur  
• Cisco.com aðgengi  
• TAC aðgengi  
Samningsverð eru árgjöld og reiknast út frá týpunúmeri ASA boxins og viðbragði á samningi. Sem dæmi um árgjöld:  
Fyrir ASA 5505 er árgjaldið allt frá 7.500kr. m/vsk. 
Fyrir ASA 5510 er árgjaldið allt frá 55.000kr. m/vsk. 
Fyrir ASA 5520 er árgjaldið allt frá 98.000kr. m/vsk. 
*m.v. gengi USD 20.05.2010 
Nýjasta útgáfa af stýrikerfinu er 8.3. Til viðbótar er hægt að kaupa svokallaðan Botnet Filter eiginleika sem er ekki hluti af grunnhugbúnaði. Í dag er sífellt erfiðara að greina Malware og Spyware þar sem margar heimasíður sem notendur telja „löglegar“ eru sýktar af óværum eða eru falskar. Eigendur slíkra síðna nýta sér gjarnan samfélagsvefi og aðrar gagnvirkar síður til að koma fyrir hvers kyns hugbúnaði á tölvur viðkomandi og taka þær síðan yfir. Botnet Traffic filterinn greinir hvaða tölvur innan tölvukerfis eru sýktar, hvert þær sækja og hvaða síður eru ekki löglegar. Hérna er mögulegt að sjá nánar hvað um ræðir:  Cisco ASA Botnet Traffic Filter 
Þessi viðbót er seld í áskrift þar sem notendur greiða árgjald af þessum hugbúnaði. Hér skiptir máli hvaða stærð eldveggjar er í notkun líkt og með samningana hér að ofan. Þessi viðbót gerir kröfu á meira innra minni en staðlað er og þarf því samhliða Botnet áskrift að kaupa minnisuppfærslu. Þetta er því stofnkostnaður upp á um þrjátíu þúsund krónur og svo árlegur kostnaður upp sem fylgir að hafa samning á eldvegginn. 
Nánari upplýsingar veita Þórður Jensson  thordurj@ok.is  og Anna Lovísa  anna@ok.is  hjá Opnum kerfum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hver er að passa upp á netþjóninn þinn?
			<author>ok@ok.is</author>
TimeXtender morgunverðarfundur
			<description><![CDATA[ Þann 26. maí sl. buðu Opin kerfi til morgunverðarfundar um TimeXtender. TimeXtender er hugbúnaðarkerfi sem dregur fram og hleður gögnum inn í vöruhús gagna ásamt því að hanna OLAP- tening þar sem öll forritun fer fram innan kerfisins. Tæknilegur framkvæmdastjóri TimeXtender, Thomas Christiansen var fyrirlesari fundarins og kynnti "Accelerated BI". Niðurstaðan skilar sér í lágmarks kostnaði í uppbyggingu á BI umhverfi, allt að 80% styttri innleiðingartíma og lækkun á rekstrarkostnaði. TimeXtender styður MS SQL, Oracle, IBM DB2, Excel, TXT, ODBC, Microsoft Dynamics Nav (Native), IBM Informix og My SQL. QuickCubes í TimeXtender eru tilbúnir teningar sem hægt er að bæta við kerfið og er þá hægt að koma BI umhverfi í gang á einum degi. QuickCubes eru til fyrir Microsoft Dynamic Nav, Ax, CRM, LSRetail og fleiri kerfi. Árið 2006 markaði tímamót hjá TimeXtender þegar fyrirtækið varð aðili að Microsoft‘s DataWarehouse Alliance (DWA).  www.timextender.com Nánari upplýsingar um TimeXtender veitir Stefán Rafn Stefánsson hjá Opnum kerfum í síma 570-1000 eða í gegnum tölvupóst  stefan@ok.is . Einnig má skoða TimeXtender nánar  hér 
 Við þökkum gestum fundarins innilega fyrir komuna. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
OK afleysingaþjónusta
			<author>ok@ok.is</author>
Skráning hafin á Red Hat námskeið í haust
			<author>ok@ok.is</author>
OK búðin - ný og glæsileg verslun Opinna kerfa
			<description><![CDATA[ Þann 8. maí opnuðu Opin kerfi nýja og stærri verslun í húsnæði félagsins að Höfðabakka 9. Nýja verslunin er öll hin glæsilegasta með áherslu á fjölbreytt úrval á búnaði og þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lögð er áhersla á upplifun viðskiptavina sem njóta framúrskarandi þjónustu. Nýja verslunin ber nafnið „OK búðin“ sem undirstrikar enn frekar þá stefnumörkun Opinna kerfa að leggja aukna áherslu á einstaklingsmarkað við hlið hins hefðbundna reksturs þar sem áherslan hefur verið sala og þjónusta við fyrirtæki og stofnanir. Með nýrri og glæsilegri verslun gefst félaginu kostur á því að auka vöruúrval sitt verulega því þó HP vörulínan sé í um helmingi rýmisins þá njóta viðskiptavinir fjölbreyttara úrvals s.s. tölvubúnaðar og smávöru frá Apple, aukahluta og hugbúnaðar frá Microsoft, netbúnaðar og fleira frá Cisco, farsíma og símtæki svo fátt eitt sé nefnt.   
Við hönnun OK búðarinnar var tekið mið af því sem HP, Apple og Microsoft eru að gera í sínum verslunum úti í heimi. Fjölmörg spennandi tilboð verða áberandi fyrstu vikurnar eftir opnun sem vert er að líta eftir. Þessi tilboð á búnaði verða jafnt fyrir fyrirtæki og einstaklinga. Endilega fylgist með opnun OK búðarinnar. Allir velkomnir á Höfðabakkann! ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi og Snerpa gefa Sjálfsbjörgu fartölvu.
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft gengisfesting verður 150
			<author>ok@ok.is</author>
Eldgosið með Flip Mino HD
			<author>ok@ok.is</author>
Fermingarleikur Opinna kerfa
			<author>ok@ok.is</author>
Red Hat og Microsoft námskeið í fullum gangi
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi taka þátt í Góðverkadögum
			<author>ok@ok.is</author>
Windows 7 uppfærslur
			<author>ok@ok.is</author>
Aukin áhersla á heimilistölvur
			<author>ok@ok.is</author>
Breytingar á þjónustuborði Opinna kerfa
			<author>ok@ok.is</author>
Matís flytur í nýjar höfuðstöðvar
			<description><![CDATA[ Í lok árs 2009 flutti Matís starfsemi sína í nýjar höfuðstöðvar að Vínlandsleið 12 og sameinuðu þar með starfsemina á höfuðborgarsvæðinu á einn stað. Að mörgu er að huga í flutningum sem þessum og komu Opin kerfi að því að flytja upplýsingakerfi Matís og sáu að auki um verkefnastýringu og samhæfingu. Flutningarnir voru lýsandi dæmi um frábæra samvinnu starfsfólks Opinna kerfa og starfsfólks Matís og unnið var markvisst að lausn þeirra mála sem upp komu. Í heild gengu flutningarnir mjög vel fyrir sig enda einvala lið sem þar kom að verki.  
„Flutningarnir gengu afar vel fyrir sig og þegar starfsfólk mætti til vinnu að Vínlandsleið 12 á mánudagsmorgni þá voru upplýsingakerfi komin upp og starfsemi gat hafist hnökralaust. Opin kerfi héldu afar vel utanum alla verkþætti sem snéru að upplýsingatækni og unnið var markvist að þeim málum sem þurfti að leysa. Það var virkilega gaman að vinna að þessu verkefni í svo samhentu teymi starfsmanna Opinna kerfa og Matís.“  
Guðlaug Þóra Marinósdóttir, skrifstofustjóri Matís. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Símkerfi forsætisráðuneytisins öruggt
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi styrkja skólastoðina
			<description><![CDATA[ Opin kerfi hefur gefið Skólastoðinni 70 minnislykla, sem eru annars vegar tvö gígabæt og hinsvegar fjögur gígabæt að stærð. Heildarverðmæti gjafarinnar er í kringum 200.000 kr. 
Viðbrögð við mikilli neyð margra fjölskyldna 
Skólastoðin eru samtök sem stofnuð voru í enda sumars í þeim tilgangi að safna ritföngum og bókum fyrir skólabörn sem koma frá efnaminni fjölskyldum. Kostnaður við þessa innkaup hefur hækkað um tugi prósenta og margar fjölskyldur réðu ekki við útgjöldin nú í haust. Skólastoðin stóð fyrir söfnun sem fór fram 27. og 28. ágúst og gekk hún vonum framar, en eftir söfnunina var 500 ritfangapökkum úthlutað. 
Ekkert mikilvægara en menntun barnanna 
Það eru ekki eingöngu ritföng og bækur sem eftirspurn er eftir, en margir skólar eru farnir að krefjast þess að nemendur hafi undir höndum sér minniskubba. Tölvufyrirtækið Opin kerfi frétti af þessari þörf og ákvað þess vegna að leggja sitt af mörkum og gefa söfnuninni 70 minniskubba í stærðunum 2 og 4 Gb. „Við erum virkilega ánægð með hvernig bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa brugðist við söfnuninni. Maður hefði ekki trúað þessu. En það virðast flestir vera sammála um það að ekkert sé mikilvægara en menntun barnanna okkar,“ segir Alma Tryggvadóttir, ein af stofnendum Skólastoðarinnar. 
16 milljónir ritgerða á einum minnislykli 
Hákon Davíð Halldórsson, markaðsstjóri Opinna kerfa segir fyrirtækið ánægt með að geta lagt eitthvað að mörkum til þessa góða málefnis. „Þessir minnislyklar sem Skólastoðin úthlutar á morgun eru af þeirri stærð sem flestir nota í skólum landsins. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vilt þú vaxa og dafna með okkur?
			<description><![CDATA[ Opin kerfi ehf er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Mannauður  fyrirtækisins er forsenda þess árangurs sem fyrirtækið hefur náð og tryggir  viðskiptavinum Opinna kerfa bestu og  reiðanlegustu þjónustu sem völ er  á. 
            Við leitum að framúrskarandi starfsfólki til að bætast í þann öfluga hóp  sem Opin kerfi hafa á að skipa. Eftirtaldar stöður eru lausar til umsóknar: Tæknimaður á verkstæði Við leitum að öfl ugum starfsmanni  á verkstæði Opinna kerfa. Helstu verkefni felast í bilanagreiningu og viðgerðum  á fartölvum og PC vélum. Rafeindavirkjun eða sambærileg menntun er skilyrði, einungis vanir tæknimenn  koma til greina. Viðkomandi verður að búa yfir faglegum áhuga og metnaði til að  ná árangri í starfi, vera fær í mannlegum samskiptum og getu til að vinna vel  undir álagi.  Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Sérfræðingur á Lausnasviði  Við leitum að öflugum  starfsmanni til að sinna Ráðgjöf og þjónustu hjá viðskiptavinum okkar.               Helstu verkefni eru þjónusta við rekstur upplýsingakerfa, hönnun og  innleiðing lausna. Við leitum að aðila með háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði,  kerfisfræði eða sambærilega menntun. MCSE gráða eða sambærileg sérhæfing er  æskileg. Viðkomandi skal búa yfir minnst 5 ára reynslu af kerfisrekstri eða  sambærilegum störfum. Reynslu af rekstri helstu Microsoft kerfislausna s.s.  Active Directory, Exchange, Windows Server, SQL, ISA, SharePoint og System  Center lausna. Við sækjumst eftir samstarfsmönnum með brennandi áhuga á upplýsingatækni og  metnaði til að ná árangri í starfi. Úrræðasemi og geta til að vinna vel undir  álagi, skipulögð, traust og öguð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum eru  kostir sem við leitum eftir. Hugbúnaðarsérfræðingur á Lausnasviði Við leitum að  öflugum hugbúnaðarsérfræðingi til liðs við okkur.  Helstu verkefni felast í   ugbúnaðargerð í Microsoft .NET umhverfi, hönnun, þróun, prófun og  samþættingu   hugbúnaðarlausna. Við leitum að aðila með háskólapróf í tölvunarfræði,  verkfræði, kerfisfræði eða             sambærilega menntun. MCPD gráða eða sambærileg  gráða er æskileg. Viðkomandi skal búa yfir minnst 5 ára reynslu af hugbúnaðargerð og reynslu af  forritun í Microsoft.NET og Microsoft SharePoint. Við sækjumst eftir samstarfsmönnum með brennandi áhuga á upplýsingatækni og  metnaði til að ná árangri í starfi. Úrræðasemi og geta til að vinna vel undir  álagi, skipulögð, traust og öguð vinnubrögð og hæfni í mannlegum samskiptum eru  kostir sem við leitum eftir. Umsóknir sendist á  starfsumsokn@ok.is ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft vinnur áfram með íslendingum
			<author>ok@ok.is</author>
Cisco CCIE VOICE vottun í fyrsta sinn á Íslandi!
			<description><![CDATA[Hafþór Hilmarsson, sérfræðingur hjá Opnum kerfum ehf. lauk um helgina vottun sem Cisco CCIE Voice sérfræðingur. Cisco CCIE vottun er talin meðal æðstu vottana sem hægt er að öðlast á sviði upplýsingatækni, og gjarnan kölluð doktorsgráða í samskiptalausnum.
Hafþór hefur með vottuninni sýnt fram á afburða þekkingu og hæfni í samskiptalausnum. Til þess að hljóta þessa eftirsóknarverðu vottun þarf að þreyta bæði skriflegt og verklegt próf, þar sem að reynir gríðarlega á færni þátttakenda við hönnun, uppsetningu og úrlausn tæknilegra mála sem fylgja samskiptakerfum hjá fyrirtækjum.
Hafþór er fyrsti Íslendingurinn sem hlýtur þessa merku vottun á sviði VOICE og bætist í hóp CCIE sérfræðinga Opinna kerfa, en auk hans bera þeir Þorsteinn Einarsson og Guðbjarni Guðmundsson CCIE vottun á sviði Routing and Switching hjá Cisco. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fótboltadagur hjá Opnum kerfum
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi endurnýja Cisco silfrið og skara frammúr
			<description><![CDATA[Opin kerfi lauk í síðustu viku endurnýjun á Cisco Silver partner stöðu sinni.Í samhangandi úttekt á þjónustu Opinna kerfa hlaut félagið hámarks einkunn og viðurkenningu fyrir "Customer Satisfaction Excellence", sem er sérstök viðurkenning fyrir samstarfsaðila Cisco sem veita frammúrskarandi þjónustu til viðskiptavina sinna.
Opin kerfi hafa markvisst bætt við þekkingu sína á hinum ýmsu lausnum frá Cisco og stefna ótrauð áfram að því að vera í fremstu röð Cisco þjónustuaðila á Íslandi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Rif Verkefni ehf. gerir hýsingarsamning við Opin kerfi
Rif Verkefni ehf. hefur bæst í stækkandi hóp fyrirtækja sem kjósa að hýsa kerfi sín hjá Opnum kerfum. 
Um er að ræða hýsingu á vef og gögnum fyrirtækisins.  Með hýsingunni losnar Rif Verkefni við þær áhyggjur sem felast í varðveislu gagna.  Í hýsingu hjá Opnum kerfum eru gögnin í öruggum höndum sérfræðinga og Rif Verkefni ehf. getur einbeitt sér að því sem skiptir máli í rekstrinum.
Við bjóðum Rif Verkefni ehf. velkomið í hóp viðskiptavina Opinna kerfa sem kjósa örugga hýsingu gagna sinna.
			<author>ok@ok.is</author>
Ríkissaksóknari og Opin kerfi endurnýja samning
			<description><![CDATA[Embætti Ríkissaksóknara hefur endurnýjað samning sinn við Opin kerfi um alrekstur á prentkerfi.
Samningurinn felur í sér að Opin kerfi veita embætti Ríkissaksóknara alla þjónustu og rekstrarvöru tengda prenturum.  Starfsmenn Ríkissaksóknara einbeita sér að sinni kjarnastarfsemi á meðan sérfræðingar Opinna kerfa hlúa að prentumhverfinu. 
Með þessari þjónustu hjá Opnum kerfum næst allt að 20% hagræðing.  Umhverfið er einsleitt og staðlaðar uppsetningar, ásamt reglulegum heimsóknum tengiliða sem gjörþekkja prentumhverfi þeirra, auðvelda starfsfólki Ríkissaksóknara að sinna störfum sínum. Uppitíminn á prenturum er til fyrirmyndar og embætti Ríkissaksóknara hefur 100% sýn yfir kostnað tengdan rekstri prentkerfisins.
Að sögn Jennýjar H. Björnsdóttur, skrifstofustjóra hjá embættinu, var mikill áhugi fyrir því að endurnýja samninginn, þar sem þjónusta Opinna kerfa er til fyrirmyndar. 
HP prentbúnaður sá besti sem völ er á
Með Síðu fyrir síðu, alrekstri á prentumhverfi, fá fyrirtæki aðgang að HP prentbúnaði. HP hafa verið leiðandi í framleiðslu bleksprautuprentara sem og í þróun og framleiðslu laserprentara. Viðskiptavinir vita að HP prentarar standa fyrir gæði, áreiðanleika og tæknilega yfirburði enda hafa HP prentarar verið valdir bestu prentararnir af lesendum PC Magazine, fimmtán ár í röð.
Síðu fyrir síðu er alrekstrarþjónusta á prenturum sem stendur fyrirtækjum til boða. Með Síðu fyrir síðu greiðir þú einungis fyrir prentaðar blaðsíður.
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast hér: /Fyrirtaeki/Lausnir/Rekstrarlausnir/Rekstur_prentkerfa/
			<author>ok@ok.is</author>
Fastus ehf. og Opin kerfi ehf.  undirrita samning um alrekstur.
			<description><![CDATA[Fastus ehf. og Opin kerfi ehf.  hafa undirritað samning um alrekstur.
Fastus er stór heildsala á sviði veitinga- og iðnaðar, heilbrigðistækni, tækni- og þjónustu.  Að baki Fastus ehf. stendur öflugur hópur starfsfólks með mikla reynslu í sölu, þjónustu og ráðgjöf á heilbrigðis- og fyrirtækjamarkaði.  Fastus býður upp á hagkvæmar lausnir hvort sem um ræðir hönnun á skurðstofu, veitingastað eða mötuneyti.
Nánari upplýsingar um fyrirtækið má nálgast á heimasíðu þess: http://fastus.is/
Opin kerfi bjóða heildverslunina Fastus velkomna í hóp ánægðra viðskipta í alrekstri.  Nánari upplýsingar um alrekstur Opinna kerfa er hægt að nálgast á síðu félagsins:  http://www.ok.is/Fyrirtaeki/Lausnir/Rekstrarlausnir/Alrekstur/]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Matís endurnýjar alrekstrarsamning við Opin kerfi
			<description><![CDATA[Matís hefur ákveðið að endurnýja alrekstrarsamning sinn við Opin kerfi. 
Það var fyrst og fremst ánægja með gott samstarf sem lagði grunninn að því að samningurinn var endurnýjaður. 
Hlutverk Matís er að efla samkeppnishæfni íslenskra afurða og atvinnulífs, bæta lýðheilsu, tryggja matvælaöryggi og sjálfbæra nýtingu umhverfisins með rannsóknum, nýsköpun og þjónustu. Matís er framsækið þekkingarfyrirtæki sem eflir samkeppnishæfni Íslands. 
Starfsemi Matís skiptist í eftirfarandi: 
-Vinnsla og vöruþróun 
-Líftækni og nýjar afurðir 
-Matvælaöryggi 
Alrekstrarsamningur Matís nær yfir heildar upplýsingakerfi þeirra og tryggir Matís aðgang að öllum helstu sérfræðingum Opinna kerfa. 
Matís getur einbeitt sér að kjarnastarfsemi á meðan sérfræðingar Opinna kerfa reka upplýsingakerfið þeirra. 
Nánari upplýsingar um alrekstur Opinna kerfa má nálgast á slóðinni: 
http://www.ok.is/Fyrirtaeki/Lausnir/Rekstrarlausnir/Alrekstur/]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýr forstjóri Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Gunnar Guðjónsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa og tekur við starfinu af Agnari Má Jónssyni sem hefur látið af störfum. Gunnar er rekstrarhagfræðingur að mennt með M.Sc. gráðu frá Strathclyde University og hefur starfað hjá félaginu í níu ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri HP lausna og staðgengill forstjóra. 
Opin kerfi hafa verið umboðsaðili Hewlett Packard í u.þ.b. 20 ár. HP hefur stutt dyggilega við Opin kerfi í því umróti sem verið hefur á Íslandi undanfarið. Framlag HP felst m.a. í lækkuðu vöruverði og auknum sveigjanleika í greiðslum með það að markmiði að tryggja stöðuga þjónustu við viðskiptavini og vöruflæði á HP búnaði til landsins.
Nánari upplýsingar veita Frosti Bergsson starfandi stjórnarformaður og Gunnar Guðjónsson forstjóri í síma 570 1000.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
OK-beint opnar fyrir einstaklinga
			<description><![CDATA[Opin kerfi hafa opnað OK-beint vefverslun  fyrir einstaklingum en sl. 10 ár hefur OK-beint þjónað fyrirtækjum í landinu. Á OK-beint má finna fjölbreytt úrval upplýsingatæknibúnaðar allt frá minnislyklum, bleki og pappír upp í fullkomnar tölvur og prentara. Notendur geta stundað sín viðskipti á OK-beint á þeim tíma sem þeim hentar og varan berst þeim fljótt og vel heim að dyrum.
Fyrsta mánuðinn mun OK-beint notendum bjóðast opnunartilboð en ætlunin er að bjóða viðskiptavinum upp á spennandi tilboð á upplýsingatæknibúnaði allan ársins hring. Ennfremur verður heimsending á vörum með Íslandspósti ókeypis fyrir notendur í desember 2008. Eftir það býðst heimsending gegn vægu gjaldi en einnig má sækja vörur á lager Opinna kerfa að Höfðabakka 9.
Hægt er að staðgreiða vörur sem keyptar eru á OK-beint með millifærslu í heimabanka og einnig er hægt að greiða með kreditkorti.
Það er von okkar að þú hafir ánægju af að skoða vefverslunina OK-beint og eiga þægileg viðskipti á tíma sem hentar þér.
www.okbeint.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýja HP fartölvulínan kynnt
			<description><![CDATA[Nýja fartölvulínan frá HP var kynnt fyrir endursöluaðilum og viðskiptavinum Opinna kerfa í höfðustöðvum fyrirtækisins að Höfðabakka 9 í síðustu viku. Hingað til lands kom Henrik Johansson, vörustjóri fyrir fartölvur frá HP í Danmörku, og leiddi hann viðstadda í allan sannleikann um nýju fyrirtækjalínuna í HP fartölum sem þykir einstaklega glæsileg í ár.
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru fundargestir sérlega áhugasamir um nýju HP fartölvurnar og fylgdust einbeittir með kynningu Henriks.
Allar nánari upplýsingar um nýju fartölvulínuna veita sölumenn Opinna kerfa í síma 570 1000 en einnig má fræðast um HP fartölvur hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP EliteBook fartölvur fá góða dóma
			<description><![CDATA[Tvær þeirra HP fartölva sem til eru á lager Opinna kerfa hafa nýverið fengið frábæra dóma gagnrýnenda. LaptopMag lýsir HP EliteBook 6930p sem bestu kaupunum í fyrirtækjafartölvum sem þeir hafa nokkurn tíma prófað. Dóminn í heild sinni má lesa hér.
NotebookReview segir að HP EliteBook 2530p sé besta 12" fyrirtækjafartölvan á markaðnum í dag og veitti fartölvunni Editors Choice viðurkenninguna í október. Dóminn um HP EliteBook 2530p má lesa í heild sinni hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Breytingar hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Þær breytingar hafa orðið hjá Opnum kerfum ehf. að Frosti Bergsson stjórnarformaður mun koma í auknum mæli að daglegum rekstri félagsins.
Agnar Már Jónsson hefur því látið af störfum sem forstjóri Opinna kerfa. Frosti mun stýra félaginu fyrst um sinn sem starfandi stjórnarformaður og Gunnar Guðjónsson framkvæmdastjóri HP lausna verður staðgengill hans og er í forsvari fyrir framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórn er að öðru leyti óbreytt. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Red Hat framhaldsnámskeið
Linux kerfisstjórnun - RH133 
Opin kerfi bjóða upp á Red Hat framhaldsnámskeið dagana 1. - 4. desember 2008.
Námskeiðið verður haldið í húsakynnum Opinna kerfa að Höfðabakka 9.
Kennari :  Richard Allen sérfræðingur hjá Opnum kefum, Red Hat Certified Engineer, Red Hat Certified Examiner
Kerfisstjórnun (Red Hat Linux System Administration). 
Farið verður í:
·         Uppstilling vélbúnaðar
·         Allt sem þarf að vita eða gera fyrir uppsetningu
·         Hvernig PC tölva ræsir og hvernig Linux ræsir
·         Yfirferð um mörg mismunandi skráarkerfi (Ext2, Ext3, ReiserFS og JFS)
·         Umsýsla með notendur og hópa
·         Að stilla netið og netþjónustur
·         Tólin sem kerfisstjórinn notar
·         Uppsetning prentara
·         Notkun RPM forritsins
·         Ræsistjóra (boot loaders)
·         Kickstart (hraðuppsetning Linux)
·         Kjarnann og /proc skráarkerfið
·         X gluggakerfið
·         Villuleit (Troubleshooting and diagnostics)
Það eru 10 kaflar á RH133 og í lok hvers kafla eru verklegar æfingar. Forkröfur RH133 eru RH033 eða sambærileg þekking
Verð á námskeiðinu er kr. 196.000.-
Þátttakendum gefst kostur á að fara í RHCT prófið þann 5. desember 2008 en kostnaður við það er kr. 35.000.-
Nánari upplýsingar veitir María Ingimundardóttir í síma 570-1000 og á netfangi: maria@ok.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft tekur stöðu með íslensku krónunni
Í tilkynningu sem barst frá Microsoft á Íslandi segir að Microsoft hefur ákveðið að festa gengi íslensku krónunnar. Í tilkynningunni segir ennfremur: Markmiðið er að styðja við samstarfsaðila og viðskiptavini í þeim sérstöku efnahagslegu aðstæðum sem eru á Íslandi í dag. Microsoft mun festa gengið þannig að 1 Evra er jafngildi 120 ISK. Festingin gildir í 3 mánuði og verður svo endurskoðuð að því tímabili liðnu. Það er ljóst að þetta er frábær virðisauki fyrir viðskiptavini og samstarfsaðila sem nú geta stundað viðskipti undir stöðugu gengisumhverfi. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
CRM örnámskeið á leið heim úr vinnu!
Nú er tækifæri fyrir þig að kynnast CRM. Vertu með í því  sem allir eru að tala um og skráðu þig á örnámskeið hjá Ský. 
Hvað er CRM?  Er það í þínu fyrirtæki? Hvernig getur þú nýtt þér það?
Fimmtudaginn 6. nóvember kl. 16:30 ? 18:00 ætlar SKÝ að standa fyrir stuttu örnámskeiði í CRM fyrir félaga sem vilja fá hnitmiðaða kynningu á CRM en hafa lítinn tíma. Örnámskeiðið verður haldið að Engjateigi 9 í salnum á neðstu hæð. 
Skráðu þig núna með því að senda póst á sky@sky.is eða að hringja í síma 553 2460.
Dagskrá:
16:30Hvað er CRM?
16:45Innleiðing
17:00Sölutækni
17:15Markaðshluti CRM
17:30Samantekt
17:40Spurningar og umræður
18:00Námsskeiði slitið
Leiðbeinendur eru Bjarmi Guðlaugsson frá Skýrr viðskiptalausnum og Elín Gränz verkefnisstjóri hjá Opnum kerfum ehf.
Í undirbúningsnefnd eru: 
Sigrún Gunnarsdóttir og Bjarni Sigurðsson út stjórn Ský
Þátttökugjald fyrir félagsmenn Ský er kr. 2.500
Þátttökugjald fyrir utanfélagsmenn er kr. 3.500
Þátttökugjald fyrir námsmenn er kr. 1.000 við framvísun námsskírteinis
Bestu kveðjur,
Skýrslutæknifélag Íslands
Engjateig 9
105 Reykjavík
www.sky.is 
sky@sky.is   ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Innköllun ATL-rafhlaðna í GN9120 höfuðtólum
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft leyfi hjá heildsölu Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Töluvert hefur borið á því undanfarið að íslenskum Microsoft endursöluaðilum sé neitað um fyrirgreiðslu á leyfum og vöru frá Danmörku.
Opin kerfi vilja því benda á að engir hnökrar eru á viðskiptum heildsölu Opinna kerfa við Microsoft og við tökum vel á móti nýjum Microsoft endursöluaðilum.  
Heildsala Opinna kerfa er eini íslenski dreifingaraðili Microsoft.  Þar fá endursöluaðilar faglega og vandaða ráðgjöf við sölu á Microsoft vörum og samningum.  
Veljum íslenskt, veljum heildsölu Opinna kerfa þegar kemur að Microsoft leyfum.
Allar nánari upplýsingar veitir Andrés Karl Sigurðsson, vörustjóri  Microsoft, í síma 570 1000 eða netfanginu andresks@ok.is.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vinningshafar í fartölvuleik HP og FM957
			<description><![CDATA[Í haust stóðu heildsala Opinna kerfa, umboðsaðili HP á Íslandi, og útvarpsstöðin FM957 fyrir skemmtilegum leik og áttu þátttakendur möguleika á að vinna HP fartölvu, HP prentara, fartölvutöskur og HP ferðamýs svo eitthvað sé nefnt. Aðal vinningshafi í fartölvuleik HP og FM957 er Hildur María Sævarsdóttir, rúmlega tvítug Skagamær, sem skráði sig sem HP félaga á www.fartolvur.is og datt í lukkupottinn. Hildur María fékk afhenta glæsilega HP Pavilion dv6680ea fartölvu að verðmæti 144.900 kr. og veitti hún henni viðtöku í Verslun Opinna kerfa að Höfðabakka 9. Vinningurinn kemur sér einstaklega vel fyrir Hildi Maríu þar sem hún er að hefja fjarnám við Fjölbrautaskóla Vesturlands og stefnir á að klára stúdentspróf með HP fartölvuna sér til halds og trausts.
Aðrir vinningshafar í fartölvuleik HP og FM957 höfðu heim með sér ýmiskonar varning allt frá fartölvutöskum upp í fjölnotaprentara. 
Á meðfylgjandi mynd má sjá aðalvinningshafa leiksins, Hildi Maríu Sævarsdóttur, ásamt markaðsstjóra Opinna kerfa, Helgu Jóhönnu Oddsdóttur, með fartölvuna góðu á milli sín. Opin kerfi eru umboðs- og þjónustuaðili fyrir HP á Íslandi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi kynna Cisco samskiptalausn fyrir minni fyrirtæki
			<description><![CDATA[Cisco Unified Communications UC500 er IP símalausn hönnuð með þarfir minni fyrirtækja í huga. Lausnin hentar vel fyrirtækjum með allt að 48 notendur.   
Hægt er að velja úr miklu úrvali af símtækjum og þannig er hægt að koma til móts við þarfir mismunandi notenda innan fyrirtækisins.  
Lausnin býður meðal annars upp á talhólfakerfi og sjálfvirka símsvörun. Dæmi: ?Veljið 1 fyrir þjónustudeild, 2 fyrir söludeild? o.s.frv. Hægt er að fá þráðlausan sendi á stöðina og nýta hana fyrir þráðlausan netbúnað.
Lausnin býður upp á straumfæðingu símtækja og er með innbyggðum netskipti þannig að hægt er að nettengja allar tölvur og síma fyrirtækisins.  
Eldveggur er innbyggður í lausninni sem ver netkerfið fyrir óboðnum gestum.   
VPN fjartengingin gerir notendum kleift að tengjast inn á kerfið hvaðan sem er með öruggum hætti, t.d. til að nálgast gögn, fá símtöl eða hringja með Cisco IP Communicator hugbúnaðarsímanum. 
Helstu kostir UC500 lausnarinnar eru:
Allt í einu boxi: VPN, eldveggur, talhólfakerfi og straumfæðing á símtækjum
Auðvelt í notkun og aðgengilegt notendaviðmót
Númera- og nafnabirting 
Mikið úrval af símtækjum og mjög vandaður softsími 
Hægt að tengja iPod til að spila biðtónlist 
Hægt að fylgjast með stöðu á öllum tengdum tækjum
Möguleiki á samtengingu við Outlook 
Hægt að tengjast með SIP trunk til fjarskiptafyrirtækis 
Margra ára reynsla og lág bilanatíðni
Hægt að tengja stöðina við Skype og nýta sér ódýrari símataxta
Frekari upplýsingar má fá hjá Cisco sölumönnum Opinna kerfa í síma 5701014 eða 570 1134]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fréttabréf Opinna kerfa komið út
			<author>ok@ok.is</author>
Fundur Stjórnvísi hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Afburðaárangur - einkenni afburðafyrirtækja og yfirlit stjórnunaraðferða er yfirskrift fundar sem Gæðastjórnunarhópur Stjórnvísi hélt 24. september síðastliðinn í húsakynnum Opinna kerfa.
Dr. Helgi Þór Ingason dósent við Verkfræði- og náttúruvísindasvið HÍ var gestur fundarins sem var mjög vel sóttur. 
Lagt var út af bókinni Afburðaárangur eftir Agnesi Gunnarsdóttur og Helga Þór Ingason sem út kom hjá Háskólaútgáfunni haustið 2007. Fjallað var um rannsóknir á fyrirtækjum sem náð hafa afburðaárangri og yfirlit gefið yfir helstu niðurstöður. Í þessu samhengi var rætt um nokkrar stjórnunaraðferðir sem byggja á gæðastjórnun og stuttlega gerð grein fyrir rannsókn á því í hversu miklum mæli er verið að beita þessum aðferðum í starfi grunnskóla á Íslandi.
Opin kerfi sem hýstu fundinn og buðu til morgunverðar í húsakynnum sínum að Höfðabakka 9, 110 Reykjavík. Fundargestir fylltu fundarsal Opinna kerfa og var almenn ánægja með fundinn og gestgjafann.
			<author>ok@ok.is</author>
Ferðakompaníið í alrekstur hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Ferðakompaníið, fyrirtæki í ferðaþjónustu, gekk nýverið frá samningi við Opin kerfi um alrekstur. Hjá Ferðakompaníinu starfa um tíu manns og sjá Opin kerfi alfarið um rekstur tölvukerfisins. Að auki sáu Opin kerfi um uppsetningu Asterisk símstöðvar fyrir Ferðakompaníið. Bæði fyrirtækin fagna samstarfinu og eru starfsmenn Opinna kerfa hæstánægðir með að bæta Ferðakompaníinu í hóp ánægðra viðskiptavina í alrekstri.
Nánari upplýsingar um alrekstur hjá Opnum kerfum má finna hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Menntaskólinn á Ísafirði velur HP Blade
			<description><![CDATA[Í ágúst sl. gerðu Opin kerfi, Snerpa og Menntaskólinnn á Ísafirði með sér samning sem markar tímamót í stefnu skólans. Samningurinn er alrekstrarsamningur í samvinnu við Snerpu þar sem MÍ getur treyst á hátt þjónustustig og vönduð vinnubrögð Opinna kerfa og Snerpu. Samningurinn felur m.a. í sér sölu á tveimur HP Bladesystem c7000 stæðum, 5 Blade netþjónum og 19 workstation blöðum í stæðurnar. Opin kerfi geta því státað af einni stærstu Workstation Blade innleiðingu í Skandinavíu. MÍ ætlar sér m.a. að nota þessi workstation blöð í fjarkennslu í notkun á þungum forritum svo sem Autocat og Inventor. Blöðin notast við HP Remote Graphics sendi til að senda videomerki yfir netið til notanda með móttöku hugbúnað. Að öðru leyti eru Workstation Blade mjög svipuð hefðbundnum grafískum vinnustöðvum. MÍ keypti einnig af þessu tilefni 300 fartölvur sem ætlaðar eru nemendum og kennurum skólans. Tækjabúnaðurinn er fjármagnaður með kaupleigu HP Finance, sem er fjármögnunarleið sem Opin kerfi bjóða upp á í samstarfi við HP Financial Services. Leigusamningurinn er til þriggja ára en að leigutíma loknum getur MÍ valið að leigja búnaðinn áfram, kaupa hann eða skila honum. Alrekstrarsamningurinn er mikilvægt og stórt skref í stefnu skólans um að verða í fararbroddi á sviði upplýsingatækni og hvatning til áframhaldandi góðs samstarfs Opinna kerfa og Snerpu.
Samningurinn var undirritaður á Ísafirði af starfsmönnum Opinna kerfa, Sif Helgadóttur og Þórði Jenssyni; skólameistara MÍ, Jóni Reyni Sigurvinssyni; fjármálastjóra MÍ, Gísla Halldórssyni; og starfsmönnum Snerpu, Matthildi Helgadóttur og Ragnari Árnasyni.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP netþjónar söluhæstir
			<description><![CDATA[Með uppbyggingu stórra gagnavera víða um veröld hefur eftirspurn eftir netþjónum aukist mikið. Tekjur af sölu netþjóna jukust um 13 milljarða bandaríkjadala á heimsvísu á fyrsta ársfjórðungi 2008 miðað við sama tíma árið á undan, samkvæmt upplýsingum frá greiningarfyrirtækinu Gartner. 
HP netþjónar eru þeir söluhæstu á fyrsta ársfjórðungi 2008 og voru tekjur af sölu HP netþjóna fjórir milljarðar bandaríkjadala. Fjöldi seldra HP netþjóna á sama tímabili voru vel á sjöunda hundrað þúsund á meðan tveir helstu samkeppnisaðilar HP seldu annars vegar fimm hundruð þúsund netþjóna og hins vegar einungis þrjú hundruð þúsund netþjóna. 
Þessar tölur sýna það og sanna að HP er á fullri siglingu í framleiðslu, sölu og dreifingu á netþjónum og að markaðurinn kunni að meta góðar og áreiðanlegar vörur.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Húsfyllir á morgunverðarfundi
			<description><![CDATA[Mikill áhugi var á morgunverðarfundi um Microsoft Unified Communications sem Opin kerfi buðu til í gær. Hvert sæti í salnum var skipað áhugasömum viðskiptavinum um þessa frábæru lausn frá Microsoft.  Með Unified Communications geta fyrirtæki sparað stórlega í samskiptakostnaði á milli starfsmanna, samstarfsaðila og viðskiptavina. Það er gert með því að samnýta öll samskiptatæki svo sem símtæki, spjallskipaboð (Instant Messaging), tölvupóst og síma- og fjarfundabúnað. 
Almenn ánægja var með fundinn þar sem sérfræðingar Opinna kerfa og Microsoft á Íslandi fóru í gegnum notkunarmöguleika þessarar nýju lausnar og sýndu fram á einfaldleika hennar í notkun. 
Nánari upplýsingar um Microsoft Unified Communications veita starfsmenn Opinna kerfa í síma 570 1000 en einnig má nálgast upplýsingar um lausnina hér. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP og Cannes kvikmyndahátíðin
			<description><![CDATA[Kvikmyndaáhugamenn og þeir sem fylgjast með fjölmiðlum hafa ekki farið varhluta af því að Cannes kvikmyndahátíðin stendur nú sem hæst. HP er meðal alþjóðlegra stuðningsaðila Cannes að þessu sinni en HP hefur verið leiðandi afl innan kvikmyndaiðnaðarins í ein 70 ár. Upphafið að aðkomu HP að kvikmyndum var samningur við Walt Disney, árið 1938, sem fól meðal annars í sér notkun á búnaði til hljóðvinnslu fyrir hina klassísku teiknimynd "Fantasia".
Enn þann dag í dag vinnur HP ötullega að því að nýta kosti hátækninnar í skemmtanaiðnaði. Samstarf HP og DreamWorks teiknimyndaframleiðandans hefur verið farsælt undanfarin ár og skilað sér í myndum eins og Shrek og nýjustu afurðinni, Kung Fu Panda, sem einmitt er frumsýnd á Cannes hátíðinni í ár. 
HP er einnig áberandi þegar kemur að myndskreytingum á sjálfri Cannes hátíðinni en flestöll veggspjöld og ljósmyndir af stjörnunum sem hátíðina prýða eru prentuð á HP Designjet plottera. 
Nánari upplýsingar um aðkomu HP að Cannes kvikmyndahátíðinn má finna hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Sorpa innleiðir gæðalausnina Rekstrarhandbók
			<description><![CDATA[Þann 9.maí s.l. skrifuðu Opin Kerfi undir samning við Sorpu um kaup og innleiðingu á Rekstrarhandbók. Lausnin hentar einkar vel þeim fyrirtækjum og stofnunum sem þurfa aðgengilegt kerfi til að halda utanum gæðaskjöl, rýniferla og innri úttektir.  Um er að ræða lausn sem færir fyrirtækjum tæki til að aga rekstur sinn á hagkvæman hátt, hvort sem ætlunin er að stefna á gæðavottun eða ekki. Styrkur kerfisins felst í einfaldleika þess, sveigjanleika og aðgengi. Notendur vinna gæðaskjöl í algengustu ritvinnslukerfum og því þarf ekki að kenna notendum á nýjan slíkan hugbúnað. Hægt er að byggja upp mismunandi handbækur og aðgreina út frá innra skipulagi eða rekstrareiningum. Með netvafra geta allir notendur, sem til þess hafa réttindi, skoðað gæðaskjölin. Nánari upplýsingar má finna hér.
Á myndinni má sjá Björn H. Halldórsson framkvæmdarsstjóra Sorpu og Elínu Gränz, ráðgjafa og verkefnastjóra Opinna Kerfa handsala samninginn.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ok Beint - ný útgáfa
			<description><![CDATA[Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að ný útgáfa af Ok Beint hefur verið gangsett. 
Fyrir þá sem ekki þekkja til þá er Ok Beint, netverslun Opinna kerfa 
fyrir fyrirtæki og stofnanir. 
Með von um að gera Ok Beint enn aðgengilegri höfum við bæði breytt útliti og umgjörð. 
Með andlitslyftingu höfum við gefið útlitinu léttara og sumarlegra yfirbragð. 
Við köfuðum einnig dýpra og hinum ýmsu undirliggjandi ferlum var breytt til að gera notkunina enn auðveldari.
Fyrirtæki geta sótt um aðgang á heimasíðu okkar með því að smella á hnappinn ,,Nýskrá" neðst til vinstri. 
Því er oft hvíslað að okkur að Ok Beint sé besta netverslunin, eða netport þar sem um er að ræða mun meira en hefðbundna netverslun, í upplýsingatæknigeiranum á landinu - smá grobb.
Við erum ekki með niðurstöður úr formlegum rannsóknum um þetta núna en langar til að trúa þessu. Til að viðhalda forskotinu er afar mikilvægt að heyra frá notendum.   Það væri gaman að heyra bæði um það sem ykkur líkar vel og ekki síður hvernig við getum bætt okkur. Ábendingar eru mjög vel þegnar. Þær má til dæmis senda til okkar á 
netfangið okbeint@ok.is 
Ef það má bjóða þér eða einhverjum í fyrirtæki þínu kynningu á notkunarmöguleikum Ok Beint, vinsamlegast hafðu samband við viðskiptastjóra þinn eða Örnu Maríu Gunnarsdóttur (arna@ok.is)
Við óskum ykkur gleðilegs sumars og þökkum kærlega fyrir viðskiptin hingað til!
Með kveðju frá 
starfsmönnum Opinna kerfa ehf. 
			<author>ok@ok.is</author>
Morgunverðarfundur - System Center Essentials
			<description><![CDATA[Opin kerfi, sem eru Microsoft Gold Partner, bjóða til morgunverðarfundar þann 7. maí næstkomandi í höfuðstöðvum fyrirtækisins að Höfðabakka 9. Skráning fer fram hér.
Viðfangsefni fundarins er Microsoft System Center Essentials en það er nýtt stjórnunartól sem hentar litlum og meðalstórum fyrirtækjum með 5 til 500 útstöðvar. Essentials 2007 auðveldar alla stjórnun tölvukerfa og sér um verkefni sem áður voru unnin í höndunum. Aukið öryggi og uppitími kerfa er meðal þeirra kosta sem Essentials hefur fært þeim fyrirtækjum sem nota þessa nýju lausn.
Dagskrá
08.30 Morgunverður meistanna
09.00 Opnun - Halldór Jörgensson, Microsoft
09.15 System Center Essentials - Björgvin Arnar Björgvinsson, Opin kerfi
10.00 Essentials í notkun: raundæmi - Stefán Rafn Stefánsson, B&L
10.15 Leyfismál - Helgi Þór Helgason, Opin kerfi
10.30 Fundarslit
Skráning fer fram hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi verða Cisco Silver Partner
			<description><![CDATA[Opin kerfi hafa um langan tíma selt og þjónustað Cisco búnað en Cisco Systems er stærsti framleiðandi í heiminum á netbúnaði og netlausnum. Cisco gerir miklar kröfur til samstarfsaðila sinna og Opin kerfi hafa núna eftir viðamikla úttekt hlotið útnefningu sem Cisco Silver Partner en félagið er eini Cisco Silver Partner á Íslandi. Þetta er mikil viðurkenning og staðfestir að þekking og þjónusta Opinna kerfa á Cisco lausnum er í fremstu röð.
Ennfremur voru Opin kerfi valin Premier Partner ársins 2007 fyrir Noreg og Ísland sem og Nordic-svæðið, sem nær til Norðurlandanna og Eystrasaltsríkja, á Cisco Partner ráðstefnu sem haldin var í byrjun apríl. Í framhaldi af því vali voru Opin kerfi meðal tilnefndra sem besti Premier Partner í Evrópu. Niels Furu, forstjóri Cisco Nordic, hrósaði fyrirtækinu í ræðu af þessu tilefni og sagði skýran fókus á viðskiptavini og samband við þá hafa átt stóran þátt í vexti fyrirtækisins á íslenskum markaði.
?Við höfum lagt mikla áherslu á Cisco lausnir undanfarin ár og byggt upp viðskiptasambönd og þekkingu með markvissum hætti. Sú vinna er nú að skila sér með þessum hætti og erum við að sjálfsögðu afskaplega ánægð með þessar viðurkenningar og Silver Partner stöðuna. Viðurkenningar sem þessar efla okkur svo sannarlega til frekari dáða,? segir Agnar Már Jónsson forstjóri  Opinna kerfa.
Á meðfylgjandi mynd má sjá Cisco hóp Opinna kerfa ásamt forstjóra fyrirtækisins fyrir utan höfuðstöðvar Opinna kerfa að Höfðabakka 9. Frá vinstri: Jóhann Helgi Agnarsson, Tryggvi Farestveit, Þorsteinn Einarsson, Agnar Már Jónsson, Þórður Jensson, Arnar Kjærnested, Guðbjarni Guðmundsson, Hafþór Hilmarsson, Benedikt Gröndal, María Ingimundardóttir, Anna Lovísa Þórsdóttir og Hans Pétur Jónsson. Á myndina vantar Jóhann Þór Guðnason og Júlíus M. Pálsson.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opnir kynningafundir á Microsoft Dynamics CRM
			<description><![CDATA[Opin Kerfi ehf hafa boðið upp á reglulega kynningafundi á Microsoft Dynamics CRM frá áramótum. Þar hefur viðskiptavinum gefist kostur á að fá ítarlega kynningu á lausninni ásamt því að prófa hana á staðnum undir leiðsögn ráðgjafa.  Kynningarnar eru þátttakendum að kostnaðarlausu og fara fram í námsskeiðssal Opinna Kerfa að Höfðabakka 9, 2. hæð.  
Kynningarnar eru einkum ætlaðar þeim sem hafa áhuga á að kynna sér CRM hugmyndafræðina, þeim sem vilja prófa viðmótið eða fá frekari ráðgjöf um möguleika CRM lausnarinnar.
Næstu fundir: 
13. maí kl. 13.00 ? 14.30
10. júní kl. 13.00 ? 14.30 
Elín Gränz tekur á móti skráningum á netfangið elin@ok.is eða í síma 570 1000.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Samstarf heildsölu Opinna kerfa og Ljósgjafans á Akureyri
			<description><![CDATA[Ljósgjafinn og heildsala Opinna kerfa hafa undirritað samstarfssamning um sölu, dreifingu og þjónustu við búnað frá HP á Norðurlandi. 
Heildsala Opinna kerfa hefur gert samstarfssamning við Ljósgjafann á Akureyri. Í samningnum felst að Ljósgjafinn mun sjá um sölu á og þjónustu við HP búnað á Norðurlandi. Ljósgjafinn mun einnig selja og þjónusta búnað frá Alcatel, Cisco, Microsoft og fleiri birgjum sem heildsala Opinna kerfa sér um innflutning á.
Opin kerfi og Ljósgjafinn hafa þegar heimsótt nokkur fyrirtæki á Norðurlandi og kynnt þá þjónustu sem í boði er og hafa viðtökur norðanmanna verið gríðarlega jákvæðar. Helsta breytingin sem felst í þessum samningi er að nú hafa fyrirtæki á Norðurlandi greiðan aðgang að þjónustu, sem áður þurfti að sækja til Reykjavíkur, í heimabyggð. Ljósgjafinn veitir alla þjónustu tengda HP búnaði með dyggum stuðningi frá Opnum kerfum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Lögformlegu sameiningarferli lokið
			<description><![CDATA[Lögformlegu sameiningaferli Opinna kerfa og Titan er nú lokið en hluthafafundir fyrirtækjanna samþykktu sameiningu á dögunum. Hjá sameinuðu fyrirtæki eru 140 starfsmenn og er áætluð velta 4,5 milljarðar króna. Samhliða sameiningunni tekur nýtt skipurit gildi hjá Opnum kerfum. 
Að sögn Frosta Bergssonar stjórnarformanns Opinna kerfa er nýju skipuriti ætlað að draga fram nýja áhersluþætti í rekstri sameinaðs félags. "Fyrir utan það að vera sölu- og þjónustuaðili á HP, Cisco og Microsoft lausnum á Íslandi þá viljum við skerpa á nálgun okkar varðandi þjónustu til fyrirtækja sem eru með stórar tölvudeildir og vinna í alþjóðlegu umhverfi. Við munum leggja mun meiri áherslu en áður á alrekstrarlausnir sem henta fyrirtækjum sem vilja úthýsa upplýsingatæknimálunum og Microsoft hugbúnaðarlausnir eru færðar yfir í nýtt svið og höfum við hug á að stórefla þann þátt í starfseminni."
Í nýju skipuriti má finna fjögur tekjusvið. Þessi svið eru kerfislausnir, rekstrarlausnir, Microsoft lausnir og heildsala.
Kerfislausnasvið þjónar fyrirtækjum sem hafa stærri tölvudeildir, reka eigin tölvusali og eru mörg hver með alþjóðlega starfsemi. Dæmi um viðskiptavini kerfislausnasviðs eru bankarnir, fjarskiptafyrirtæki, ASP fyrirtæki og flutningafyrirtækin. Framkvæmdastjóri kerfislausna er Benedikt Gröndal.
Rekstrarlausnarsvið sinnir almennri sölu og þjónustu auk þess sem þar verða boðnar pakkalausnir og alrekstrarlausnir fyrir fyrirtækjamarkað. Framkvæmdastjóri rekstrarlausna er Gunnar Guðjónsson.
Á Microsoft lausnasviði er megináherslan á sölu og þjónustu tengda lausnamengi Microsoft. Ráðgjöf og sérsniðnar lausnir er einnig að finna á Microsoft lausnasviði. Framkvæmdastjóri Microsoft lausna er Árni Þór Jónsson.
Heildsala Opinna kerfa sinnir heildsöluþjónustu fyrir HP á íslenskum markaði. Þar að auki sinnir heildsalan almennri sölu á tölvubúnaði, hugbúnaði og rekstrarvörum fyrir íslenskan endursölumarkað. Heildsalan er jafnframt eini íslenski dreifingaraðili Microsoft á Íslandi. Framkvæmdastjóri heildsölusviðs er Sverrir Jónsson. 
Forstjóri Opinna kerfa ehf. er Agnar Már Jónsson.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Konfektkassinn tilnefndur
			<description><![CDATA[Þær gleðifréttir bárust í morgun að konfektkassinn sem Opin kerfi létu framleiða og gefinn var viðskiptavinum fyrir jólin hefur hlotið tilnefningu til ÍMARK verðlauna í opnum flokki. 
Markaðsdeildin er að vonum himinlifandi og óskar starfsmönnum öllum til hamingju með tilnefninguna.
Sjá nánar um ÍMARK tilnefningar á http://imark.is/Pages/82?NewsID=245 ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft CRM 4.0 morgunverðurfundur  
			<description><![CDATA[Opin kerfi héldu morgunverðarfund um Microsoft CRM 4.0 hugbúnaðinn og helstu nýjungar þess á Hótel Grand nýlega. 
Þar var CRM notendum, bæði almennum notendum og kerfisstjórum sem aðlaga lausnina, kynntar helstu nýjungar lausnarinnar. 
Fundurinn var vel sóttur. 
Opnunarerindi hélt Árni Þór Jónsson, forstöðumaður Microsoft lausna, Opnum kerfum. Björn Eilert frá Microsoft Danmörku kynnti framtíðarþróun á Microsoft CRM, Elín Gränz, ráðgjafi og verkefnastjóri, Opnum kerfum, kynnti nýjungar fyrir CRM notendur og Sigurður Helgi Sturlaugsson, hugbúnaðarsérfræðingur, Opnum kerfum, kynnti nýjungar í högun kerfisins. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hönnunarkeppni Véla- og iðnverkfræðinema
			<description><![CDATA[Hin árlega Hönnunarkeppni Véla- og iðnverkfræðinema HÍ var haldin í Háskólabíó sl. föstudag.
Opin kerfi hefur verið styrktaraðili keppninnar frá upphafi. 
Agnar Már Jónson, forstjóri, veitti fyrstu verðlaun en það var vegleg og kröftug ,,workstation" fartölva, HP Compaq 8510w. 
Ellefu lið voru skráð í keppnina en keppnisdaginn tóku níu lið þátt. Keppnin var að venju æsispennandi og lausnirnar mjög frumlegar. 
Sigurliðið var Dóra og aðstoðarmennirnir en í því eru Dóra Guðlaug Árnadóttir, Hjörtur Már Gestsson, Kristján Arnór Grétarsson, Kristján Finnur Sæmundsson, Stefán Þór Bjarnason og Valdimar Ómarsson. 
Keppninni verður sýnd með vorinu á RÚV en frétt má sjá á eftirfarandi netslóð:
http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397823/12]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP mest seldu tölvurnar 2007
			<description><![CDATA[IDC greiningarfyrirtækið hefur kunngjört skýrslu um fjölda seldra tölva árið 2007. Samkvæmt henni eru HP tölvur þær mest seldu á alheimsvísu árið 2007.
269 milljón tölvur voru seldar á alheimsvísu og var aukningin á milli ára 14,3%. HP seldi 50,5 milljónir tölva en Dell 40 milljónir. Acer seldi 21,2 milljónir tölva og Lenovo 20,2 milljónir.
HP er með 18,8% markaðshlutdeild, Dell 14.9%, Acer 7.9% og Toshiba 4,1 %.  
Nánari upplýsingar má sjá með því að smella á eftirfarandi netslóð: IDC fréttatilkynning
Tilvísun: IDC Worldwide Quarterly PC Tracker, 16. Janúar 2008. Með tölvum eða PC í skýrslunni er átt við borðtölvur, fartölvur og x86 netþjóna en engar lófatölvur.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft Dynamics CRM kynningar framundan
			<description><![CDATA[Næsta Microsoft Dynamics CRM kynning verður haldin miðvikudaginn 29.janúar 2008.   Í desember s.l þá hófu Opin Kerfi ehf a bjóða upp á kynningar  á Microsoft Dynamics CRM þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að fá ítarlega kynningu á lausninni ásamt því að prófa hana á staðnum undir leiðsögn ráðgjafa.  Áhugasamir geta síðan fengið uppsett eintak af CRM til prófunar í mánuð, þeim að kostnaðarlausu.  Kynningarnar fara fram í námsskeiðssal Opinna Kerfa að Höfðabakka 9, 2. Hæð.  Elín Gränz tekur á móti skráningum á netfangið elin@ok.is eða í síma 570 1000.
Næstu kynningar:
29.janúar kl 09:00 - 11:00
19. febrúar kl 09:00 - 11:00
18.mars  kl 09:00 - 11:00]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi og Títan sameinast
			<description><![CDATA[Stjórnir Opinna kerfa ehf. og Titan ehf. hafa samþykkt að sameina félögin.
Samhliða þessari ákvörðun hefur stjórn Opinna kerfa ehf. ráðið Agnar Má Jónsson sem forstjóra félagsins og tekur hann við því starfi í dag, 17. desember. Hann mun ásamt stjórnarformanni beggja félaga, Frosta Bergssyni, leiða sameininguna.
Á sama tíma mun Þorsteinn Gunnarsson láta af störfum sem forstjóri Opinna kerfa ehf.
Gert er ráð fyrir að hægt verði að ganga frá sameiningunni fyrir áramót. Hjá sameinuðu félagi munu þá starfa um 140 starfsmenn og  gera má ráð fyrir að velta félagsins verði um 4,5 milljarðar króna á árinu 2008.
Opin kerfi ehf. eru í nánu samstarfi við alþjóðleg upplýsingatæknifyrirtæki eins og Hewlett-Packard (HP), Cisco og Microsoft. Félagið hefur starfað náið með HP síðan 1984 en HP er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki heims. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
8 sæti laus á næstu árshátíð
			<description><![CDATA[Hefur þú áhuga á tækninýjungum og metnað til að ná langt í starfi?
Vegna aukinna verkefna leita Opin kerfi ehf. að framtakssömum og hugmyndaríkum einstaklingum sem vilja slást í hóp færustu sérfræðinga landsins á sviði upplýsingatækni. Fyrirtækið var á árinu útnefnt Fyrirmyndarfyrirtæki 2007 af VR. 
Umsókn ásamt ferilsskrá skal senda til Opinna kerfa, Höfðabakka 9, 110 Reykjavík eða á netfangið starfsumsokn@ok.is fyrir 15. desember 2007.
Söluráðgjafi í verslun
Starfslýsing:
Sala og þjónusta við viðskiptavini í ört vaxandi verslun Opinna kerfa.
Hæfniskröfur
Stundvísi 
Góðir samskiptahæfileikar, jákvæðni og sjálfstæði í starfi 
Góð íslensku- og enskukunnátta 
Frumkvæði og öguð vinnubrögð 
Þjónustulund og heiðarleiki 
Reynsla af sölustörfum kostur
Upplýsingar um starfið veitir Halldóra Matthíasdóttir, halldora@ok.is.
Hugbúnaðarsérfræðingur Microsoft lausna
Starfslýsing:
Greining og hönnun lausna í Microsoft Dynamics CRM og SharePoint.
Samþætting upplýsingakerfa og forritun Microsoft lausna í .NET umhverfinu.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði verk-, kerfis- eða tölvunarfræði eða sambærileg menntun 
Þekking á greiningarvinnu og hugbúnaðargerð 
Þekking á .NET forritunarumhverfi 
Frumkvæði, metnaður og sjálfstæð vinnubrögð 
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
Upplýsingar um starfið veitir Árni Þór Jónsson, arnithor@ok.is. 
Viðskiptastjóri á sölusviði
Starfslýsing:
Ráðgjöf og sala á upplýsingatæknilausnum í öflugum hópi viðskiptastjóra.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði viðskipta-, verk-, kerfis- eða tölvunarfræði æskileg 
Þekking á upplýsingatækni 
Áhugi á sölumennsku 
Reynsla af ráðgjöf og sölu æskileg 
Frumkvæði og metnaður til að ná árangri í starfi 
Þjónustulund
Viðskiptastjóri þjónustusamninga
Starfslýsing:
Sala og umsýsla á hvers kyns þjónustulausnum hvort sem þær eru í formi rekstrarsamninga, sérlausna eða
ráðgjafar.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun á sviði viðskipta-, verk- eða tölvunarfræði æskileg 
Þekking á upplýsingatækni 
Reynsla af söluráðgjöf og metnaður til að ná árangri 
Góð færni í rituðu og mæltu íslensku máli 
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð og lipurð í samskiptum
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Guðjónsson, gunnarg@ok.is.
Sérfræðingur í afritunarlausnum
Starfslýsing:
Ráðgjöf og stjórnun verkefna varðandi afritun og endurheimtingu gagna. Þjónusta og rekstur afritunarstöðva
og hugbúnaðar (Openview Data Protector) í margbreytilegum umhverfum þar sem öryggi og áreiðanleg vinnubrögð eru skilyrði.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun í verk- eða tölvunarfræði er kostur 
Starfsreynsla æskileg 
Mjög góð stýrikerfis- og gagnagrunnsþekking 
Góð þekking á vistun og meðhöndlun gagna, s.s. diskakerfum og gagnanetum 
Tæknimaður á verkstæði
Starfslýsing
Uppsetning, þjónusta og viðgerðir á tölvubúnaði. Samskipti við viðskiptavini eru mikil og því eru skipulögð og öguð vinnubrögð nauðsyn.
Hæfniskröfur
Menntun á sviði rafeindavirkjunar eða sambærilegt nám 
Þekking og reynsla af tæknistörfum 
Áhugi á tölvutækni 
Sjálfstæði og lipurð í samskiptum 
Þjónustulund, vandvirkni og reglusemi
Upplýsingar um starfið veitir Helgi S. Sigurðsson, helgis@ok.is.
Starfsmaður á upplýsingatæknisviði
Starfslýsing:
Starfið felst í notendaaðstoð af ýmsu tagi, almennri aðstoð við rekstur innra nets, vinnu við viðhald og þróun á heimasíðum auk hugbúnaðargerðar.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Menntun í kerfisfræði eða sambærilegum greinum æskileg 
Lipurð í samskiptum 
Frumkvæði í starfi 
Öguð vinnubrögð
Upplýsingar um starfið veitir Geir Björnsson, geir@ok.is.
Sérfræðingur á sviði Microsoft netkerfa
Starfslýsing:
Ráðgjöf til stjórnenda upplýsingakerfa. Greining og stjórnun verkefna vegna innleiðinga/breytinga á Microsoft lausnum. Þjónusta og rekstur flóknari Microsoft netkerfa og samhæfing þeirra við ólík kerfi, s.s. IP símalausnir.
Hæfniskröfur:
Starfsreynsla æskileg 
Góð þekking á Windows stýrikerfum, Active Directory og Exchange 
MCSA eða MSCE prófgráða æskileg 
			<author>ok@ok.is</author>
Kynningafundir á Microsoft Dynamics CRM
			<description><![CDATA[Opin Kerfi bjóða nú upp á reglulega kynningafundi á Microsoft Dynamics CRM þar sem viðskiptavinum gefst kostur á að fá ítarlega kynningu á lausninni ásamt því að prófa hana á staðnum undir leiðsögn ráðgjafa.  Áhugasamir geta síðan fengið uppsett eintak af CRM til prófunar í mánuð, þeim að kostnaðarlausu.  Kynningarnar fara fram í námsskeiðssal Opinna Kerfa að Höfðabakka 9, 2. Hæð.  Elín Gränz tekur á móti skráningum á netfangið elin@ok.is eða í síma 570 1000.
Næstu fundir:
11.desember kl 09:00 - 11:00 - Uppbókað
29.janúar kl 09:00 - 11:00
19. febrúar kl 09:00 - 11:00
18.mars  kl 09:00 - 11:00]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi eru HP "Partner of the Year 2007"
			<description><![CDATA[Í nóvember blés Hewlett-Packard til verðlaunahátíðarinnar HP Award 2007 en á hátíðinni voru samstarfsfyrirtæki HP verðlaunuð. Mikið var um dýrðir á hátíðinni sem talað hefur verið um sem Óskarsverðlaunahátíð upplýsingatækninnar. Rauða dreglinum var rúllað út og 450 prúðbúnir samstarfsaðilar HP fögnuðu góðum árangri á liðnu ári. 
Fulltrúar Opinna kerfa gengu svo sannarlega ekki tómhentir frá hátíðinni en Opin kerfi hlutu titilinn "HP Partner of the Year 2007" í norður Atlantshafi. Til viðurkenningar á titlinum höfðu Þorsteinn Gunnarsson, forstjóri Opinna kerfa, og samstarfsfólk hans með heim í farteskinu forláta brons styttu sem listamaðurinn Peter Hesk Möller skóp. Styttan góða prýðir nú móttöku Opinna kerfa.
Á myndinni hér til hliðar má sjá Þorstein Gunnarsson taka á móti verðlaununum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki í heimi!
			<description><![CDATA[Tekjur Hewlett-Packard síðustu 12 mánuði voru 104,3 billjónir dollara eða um 6500 milljarðar króna. Með þessu braut fyrirtækið blað í upplýsingatæknisögunni því þetta er í fyrsta skipti sem upplýsingatæknifyrirtæki er með ársveltu yfir 100 billjónir dollara.
Söluaukning var 14% árið efnahagsárið 2007.  Söluaukning síðasta ársfjórðungsins var 15% á milli ára. 
Tekjur vegna hugbúnaðarsölu tvöfölduðust á milli ára. Fartölvusala jókst um 49% og borðtölvusala um 15% á fjórða ársfjórðungi.
Mark Hurd, forstjóri HP,  segir frammistöðuna hafa verið mjög góða á öllum tæknisviðunum en að sérstaklega eftirtektarverður sé árangurinn á sviði HP hugbúnaðar.
Söluaukning í Personal Systems Group (PSG) hluta fyrirtækisins var 30% á árinu, 4% í Imaging and Printing Group (IPG), 10% í Enterprise Storage and Servers (ESS), 7% í HP Services (HPS) og tvöfaldaðist í hugbúnaðarhlutanum HP Software.
Frammistaða HP var betri en Wall Street  fjármálaráðgjafar  höfðu gert ráð fyrir. 
Nánari upplýsingar um áruppgjör Hewlett-Packard má finna á netslóðinni:
http://www.hp.com/hpinfo/newsroom/]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
CRM morgunverðarfundur 21. nóvember
			<description><![CDATA[Nýjar leiðir við innleiðingu á Microsoft Dynamics CRM
Opin kerfi og Microsoft á Íslandi efna saman til morgunverðarfundar miðvikudaginn 21. nóvember næst komandi, þar sem nýjar leiðir við innleiðingu á Microsoft Dynamics CRM verða kynntar.
Fundurinn verður haldinn í Opnum kerfum, Höfðabakka 9.
08:30  Morgunverður
09:00  Stefna Microsoft í hýsingu lausna -  Halldór Jörgensson, Microsoft á Íslandi
09:15  Software + Service -  Thomas Formann, Microsoft Danmörku
09:45  Hosted Dynamics CRM - Rasmus Foged, Mondo
10:30  Innleiðing á Microsoft CRM - Árni Þór, Opin Kerfi ehf.
Skráning stendur yfir og geta áhugasamir skráð sig með því að senda póst á netfangið: jarthrudur@ok.is 
Allar nánari upplýsingar veitir Árni Þór Jónsson, forstöðumaður Microsoft lausna Opinna kerfa í síma 570-1000 og í netfanginu arnithor@ok.is ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýtt Fréttabréf Opinna kerfa. 
			<author>ok@ok.is</author>
Myndir prentaðar á HP Photosmart B9180 prýða veggi Grand Hótel
			<description><![CDATA[Nýr hótelturn Grand Hótel Reykjavík var opnaður á dögunum en veggi nýja turnsins prýða 500 myndir sem teiknaðar eru af Jóni Baldri Hlíðberg. Teikningarnar voru allar prentaðar út með HP Photosmart Pro B9180 ljósmyndaprentara og varð sá prentari sérstaklega fyrir valinu vegna þess hve nákvæmur hann er í littónum og sökum góðrar litfestu. Listamaðurinn er sérlega ánægður með útkomuna og með prentarann.
HP Photosmart Pro B9180 er hannaður fyrir atvinnuljósmyndara sem þurfa hraðvirkan og góðan A3+ prentara en hann prentar út á margar pappírsgerðir og í mjög nákvæmum litatónum. Prentarinn hefur fengið lofsverða dóma bæði frá neytendum og í fagtímaritum. Hér má lesa niðurstöður prófunnar "What Digital Camera" á HP Photosmart B9180.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vel sóttur Cisco fundur
			<description><![CDATA[Cisco hópur Opnna kerfa stóð fyrir vel heppnuðum morgunverðarfundi á Grand Hótel síðast liðinn föstudag. Fjölmargir viðskiptavinir lögðu leið sína á fundinn þar sem Cisco sérfræðingar Opinna kerfa sögðu frá athyglisverðum lausnum og nýjungum frá Cisco.
Jóhann Helgi Agnarsson Cisco sérfræðingur (johann.helgi@ok.is) sagði frá Wirleless Lan Controllers.  Lausn sem einfaldar allan rekstur á þráðlausum netkerfum og eykur jafnframt öryggi.
Tryggi Farestveit Cisco sérfræðingur (tryggvi@ok.is) sagði frá Web VPN. Örugg, einföld og notendavæn lausn þar sem notandinn þarf eingöngu að keyra browser. Tryggvi hefur reynslu af uppsetningu og rekstri á þessari lausn sem segja má að sé bylting í notendaþjónustu.
Júlíus M. Pálsson Cisco sérfræðingur (julli@ok.is) sagði frá og sýndi nýjasta notendaviðmót ASA Security Appliance (ASDM 6.0). Aðgengilegt notendaviðmót sem eykur öryggi í rekstri og gefur t.d. aukna möguleika á skýrslugerð. Júlíus sagði einnig frá nýjasta stýrikerfinu (8.0) breytingum frá fyrri útgáfu og helstu nýjungum.
Þórður Jensson viðskiptastjóri (thordurj@ok.is) sagði frá UC500 boxinu sem er frábær nýjung fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki. "All in one" lausn sem inniheldur m.a. router, switch, eldvegg, VPN og símstöð á ótrúlega góðu verði. Þórður sagði einnig frá Cisco Networkers notendaráðstefnunni sem haldin verður í Barcelona í janúar næst komandi. Opin kerfi munu standa fyrir hópferð, en áhugasömum er bent á að skrá sig sem fyrst á ráðstefnuna til að fá ráðstefnugjaldið á hagstæðasta verði.
Ef þú hefur áhuga á að fá fyrirlestrana senda til þín eða frekari upplýsingar varðandi lausnir og nýjungar sem kynntar voru á fundinum, þá endilega hafðu samband við Maríu Ingimundardóttur forstöðumann samskiptalausna í síma 570-1062 eða með því að senda henni póst, maria@ok.is.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi bjóða CRM sem hýsta lausn fyrst allra á Íslandi
			<description><![CDATA[Opin kerfi í samstarfi við fyrirtækið Mondo A/S í Danmörku bjóða nú Microsoft Dynamics CRM sem hýsta lausn í fyrsta sinn á Íslandi
Opin kerfi ehf. og Mondo A/S í Danmörku hafa gert með sér samkomulag sem felur í sér samvinnu fyrirtækjanna tveggja við hýsingu á Microsoft Dynamics CRM lausninni. Þetta er í fyrsta sinn sem Microsoft Dynamics CRM er boðin sem hýst lausn á Íslandi og eru Opin kerfi stolt af því að vera í fararboddi sem Microsoft þjónustuaðili hér á landi. 
Samkomulagið gerir Opnum kerfum ehf. kleift að bjóða viðskiptavinum sínum fljótlegustu og einföldustu leiðina til að innleiða Microsoft Dynamics CRM. Í kjölfarið býðst meiri sveigjanleiki en áður þar sem bæði gefst kostur á að innleiða Microsoft Dynamis CRM sem hýsta lausn eða sem blöndu af hýstri lausn og staðbundinni uppsetning. Viðskiptavinirnir geta því valið það fyrirkomulag sem hentar þeim best. 
Þorsteinn Gunnarsson, forstjóri Opinna kerfa ehf. bendir á að fyrirtæki í dag þurfi fljótlega og hentuga leið til að innleiða CRM lausnina. "Micosoft Dynamics CRM er öflug lausn hvort heldur sem um ræðir hýsta lausn, lausn sem er uppsett hjá viðskiptavinum eða blöndu af hvoru tveggja. Með hýsingarmöguleika frá Mondo á Microsoft Dynamics CRM kerfinu getum við nú boðið viðskiptavinum okkar uppsetningu sem hentar þeirra umhverfi sem best og þannig veitum við þeim hámarks stuðning við farsæla innleiðingu".
Sú lausn sem nú býðst gerir fyrirtækjum kleift að innleiða CRM með mun fljótvirkari hætti en áður hefur þekkst og með talsvert minni tilkostnaði. Þannig verður áhættan við innleiðingu CRM  mun minni en áður og mögulegt að ná betri stjórn á umfangi hennar. Sem dæmi gætu fyrirtæki byrjað með fáa notendur í hýstu umhverfi en síðar fjölgað notendum og með einföldum hætti flutt lausnina yfir í staðbundna uppsetningu ef þörf er á.
Opin kerfi eru leiðandi þjónustuaðili fyrir Microsoft Dynamics CRM á íslenskum markaði og  byggir fyrirtækið á  á langri  reynslu af innleiðingu Microsoft CRM og aðlögun kerfisins að þörfum viðskiptavina ásamt samþættingu við önnur upplýsingakerfi. Opin kerfi hafa gengt forystuhlutverki í uppsetningu á ýmsum stórum og flóknum upplýsingakerfum á Íslandi og getið sér gott orð sem afar traustur þjónustu- og samstarfsaðili við rekstur slíkra kerfa. Opin kerfi samhæfa búnað frá ólíkum framleiðendum og prófa til hlítar hvernig búnaðurinn vinnur saman. 
Opin kerfi voru stofnuð árið 1984 og hafa því starfað á upplýsingatæknimarkaði í yfir 20 ár. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu á tölvu- og samskiptabúnaði, auk ráðgjafar og þjónustu. Opin kerfi eru umboðs- og þjónustuaðli Hewlett-Packard á Íslandi. Auk þess selur fyrirtækið og þjónustar búnað frá Cisco, Linksys, Alcatel, og Belkin. Opin kerfi eru Microsoft Gold Partner og einn stærsti sölu- og þjónustuaðili Microsoft á Íslandi og eini dreifingaraðili Microsoft á Íslandi. 
Nánari upplýsingar veita:
Opin kerfi ehf. 
Árni Þór Jónsson
Fostöðumaður Microsoft lausna
Beinn sími: +354 570 1183 
Sími: +354 570 1000
E-mail: arnithor@ok.is
Mondo A/S
Lars Munch Johansen
VP, Sales and Marketing Mondo A/S
Beinn sími: +45 29 99 2000
Sími: +45 3913 0200
E-mail: lmj@mondo.dk]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
vmware námskeið
			<description><![CDATA[VMware námskeið verður haldið 29. október - 2. nóvember næst komandi í Opnum kerfum, Höfðabakka 9. Verð án vsk. er 325.000 kr. en innifalið er námsefni, morgunverður, hádegisverður og kaffi. 
Kennari er Tommi Dragert.
Á þessu námskeiði verður VMware Infrastructure 3, sem samanstendur af VMware ESX Server og VMware Virtual Center skoðað. Þetta námskeið er undirbúningur undir það að verða VMware Certified Professional. 
Fyrir hverja?
Þetta námskeið er fyrir kerfisstjóra sem eru að reka ESX/Virtual center og þá er vilja að kynna sér lausina fyrir sitt fyrirtæki.
Markmið námskeiðs:
Að setja upp ESX server
Að setja upp sýndarvélar frá ?template? og að deila ?resources?
Að sameina og stjórna sýndarvélum
Að tryggja uppitíma kerfanna okkar
Að bilanagreina venjulegar bilanir í ESX server
Framhalds námskeið: VMware Infrastructure 3: Deploy, Secure, and Analyze.
Nánari upplýsingar er að finna hér.
Skráning fer fram hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Frosti Bergsson nýr eigandi að Opnum kerfum ehf.
			<description><![CDATA[Frosti Bergsson nýr eigandi að Opnum kerfum ehf.OK2 ehf. eignarhaldsfélag í eigu Frosta Bergssonar hefur keypt Opin kerfi ehf. af Opin Kerfi Group hf. Markmiðið með kaupunum er að efla enn frekar starfsemi Opinna kerfa ehf.
Opin kerfi ehf. í 100% eigu Frosta Bergssonar
Frosti Bergsson þekkir rekstur Opinna kerfa ehf. á Íslandi vel því hann var einn af stofnendum félagsins árið 1984, sem þá hét HP á Íslandi og var rekið sem dótturfélag Hewlett-Packard frá Danmörku. Nafni félagsins var breytt í Opin kerfi árið 1995 þegar HP seldi öll sín hlutabréf og árið 1997 var félagið skráð í Kauphöll Íslands. Árið 2004 keypti Kögun öll hlutabréf í félaginu af Frosta Bergssyni og öðrum hluthöfum. Nú eftir kaupin er félagið 100% í eigu Frosta Bergssonar.
Mikill mannauður og góður rekstur
Að sögn Frosta Bergssonar er um gott fjárfestingatækifæri að ræða. Opin kerfi eru félag í góðum rekstri sem hefur skilað prýðis rekstrarafkomu undafarin ár. Helsta auðlind félagsins er  samstiltur hópur starfsmanna sem hefur lagt metnað í það að veita góða þjónustu. Markmiðið er að vaxa og að veita viðskiptavinum ennþá betri þjónustu með því breiða þjónustuframboði sem Opin kerfi bjóða upp á, segir Frosti.
Með þarfir viðskiptavina að leiðarljósi
Að sögn Þorsteins Gunnarssonar, forstjóra Opinna kerfa ehf., sjá starfsmenn mikil tækifæri í að fá Frosta Bergsson aftur að félaginu. Það mun hjálpa okkur að hrinda í framkvæmd metnaðarfullri stefnu félagsins til vaxtar, til að geta betur uppfyllt þarfir viðskiptavina okkar, segir Þorsteinn.
Framkvæmdastjórn óbreytt
Framkvæmdastjórn félagsins er óbreytt en hana skipa: Þorsteinn Gunnarsson forstjóri, Gunnar Guðjónsson  framkvæmdastjóri Ráðgjafar- og þjónustusviðs, Halldóra Matthíasdóttir framkvæmdastjóri Sölusviðs og Sverrir Jónsson framkvæmdastjóri Heildsölu.  Fjármálastjóri er Jón Óskar Þórhallsson.
Um Opin kerfi ehf.
Opin kerfi ehf. er leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Félagið sérhæfir sig í sölu tölvu- og samskiptabúnaðar, auk ráðgjafar og þjónustu. Opin kerfi eru umboðs- og þjónustuaðili Hewlett-Packard á Íslandi. Auk þess selur félagið og þjónustar búnað frá Cisco, Alcatel, Linksys og Belkin. Opin kerfi eru innflutningsaðili Microsoft á Íslandi, Microsoft Gold Partner, og eru einn stærsti sölu- og þjónustuaðili Microsoft á Íslandi. Opin kerfi eru traustur og góður samstarfsaðili sem hefur viðskiptavininn í fyrirrúmi. Áralöng reynsla starfsmanna félagsins tryggir viðskiptavinum Opinna kerfa bestu og áreiðanlegustu þjónustu sem völ er á. 
Fjöldi starfsmanna hjá Opnum kerfum ehf. er 115. Nánari upplýsingar veitir forstjóri félagsins, Þorsteinn G. Gunnarsson, steini@ok.is, eða í síma 897 4600. 
			<author>ok@ok.is</author>
Cisco morgunverðarfundur 26. október nk.
			<description><![CDATA[Opin kerfi standa fyrir morgunverðarfundi á Grand hótel föstudaginn 26. október næst komandi. Kynntar verða nýjungar frá Cisco eins og Wireless Lan Controllers sem einfalda uppsetningu og rekstur netkerfa, Cisco WebVPN og samtengingu við Citrix, notendaviðmót ASA eldveggjar og UC500 "All in one" lausn fyrir meðalstór fyrirtæki. 
Þessi fundur á erindi við alla sem vilja fá meira út úr samskiptakerfum sínum og vilja kynnast því nýjasta sem Opin kerfi bjóða upp á í Cisco lausnum. 
Skráning er hafin hér.
Fundurinn verður haldinn á Grand hótel, Gullteig B.
Dagskrá:
8:30      Morgunverður
9:00      Setning:  Gunnar Guðjónsson, framkvæmdastjóri Ráðgjafar- og þjónustusviðs Opinna kerfa
9:05      Wireless Lan Controllers
Kynning á Wireless Lan Controllers og hvernig þeir geta einfaldað uppsetningu og rekstur á þráðlausum netkerfum fyrirtækja og stofnanna.   Farið verður yfir helstu möguleika sem búnaðurinn býður uppá.
Jóhann Helgi Agnarsson, Cisco sérfræðingur hjá Opnum kerfum
9:25      Cisco WebVPN
Kynning á WebVPN og samtengingu við Citrix.  Örugg og einföld fjartenging fyrir starfsmenn í gegnum notendavænt viðmót og ekki þörf á að keyra upp annað en browser.   Með samvinnu Cisco og Citrix geta starfsmenn keyrt upp allan hugbúnað, sem dæmi Office pakkann og lotus notes hvaðan sem er, hvort sem þeir eru heima eða á netkaffihúsi.
Tryggvi K. Farestveit, Cisco sérfræðingur hjá Opnum kerfum
9:45      Notendaviðmót ASA eldveggjar ( ASDM 6.0 )
Kynnt verður nýjasta notendaviðmót ASA eldveggjanna ( ASDM 6.0 ) ásamt nýjasta stýrikerfinu ( 8.0 ).   Farið verður yfir helstu breytingar frá fyrri útgáfum og helstu nýjungar skoðaðar.
Júlíus M. Pálsson, Cisco sérfræðingur hjá Opnum kerfum
10:05    UC500 
"All in one" lausn fyrir smærri og meðalstór fyrirtæki.   Inniheldur m.a. router, switch, eldvegg, VPN og símstöð.
Þórður Jensson, viðskiptastjóri hjá Opnum kerfum
Kynning á Cisco Networkers 2008 í Barcelona
10:25    Ráðstefnuslit]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Spennandi námskeið í október
			<description><![CDATA[Opin kerfi bjóða upp á fjölda spennandi námskeiða á næstunni.
Hér er dagskrá yfir námskeið í október, en hægt er að nálgast allar upplýsingar um námskeiðin hér.
Dagskrá námskeiða í október
Nr.NámskeiðFjöldi dagaVerð án VSKDags
RH300Hraðnámskeið + próf5241.000 kr.1.-5. okt.
CRM001CRM grunnnámskeið1,565.000 kr.8.-10. okt.
CS001Grunnnámskeið í routing og switching3130.000 kr. 15.-17. okt.
CS002Cisco ASA eldveggjanámskeið286000 kr. 18.-19. okt.
ITILAWARE-1-1ITIL Awareness165.000 kr. 22. okt.
ITILAWARE-1-2ITIL Awareness165.000 kr. 23. okt.
VMinstall-1-H-07Vmware Install & Configure5283.000 kr. 29. okt. ? 2. nóv. 
ITILFOUND-1ITIL Foundation + próf3170.000 kr. 10.-12. okt.
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft Dynamics CRM námskeið
			<description><![CDATA[Microsoft Dynamics CRM grunnnámskeið verður haldið 08 - 10.október næst komandi.
Kennari er Elín Gränz ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Opnum kerfum.
Microsoft Dynamics CRM (Customer Relationship Management) er lausn sem heldur utan um samskipti við viðskiptavini og aðra tengiliði á miðlægum stað og stýrir aðgengi allra starfsmanna að dýrmætum upplýsingum.  Lausnin býður upp á ótal möguleika hvað varðar sjálfvirkni í  sölu-, markaðs- og þjónustuferlum svo og tengingar við önnur kerfi og gagnagrunna.  Microsoft Dynamics CRM er samþætt við Outlook og því er notandinn alltaf að vinna í því umhverfi sem hann er þekkir.
Á námskeiðinu verður farið yfir grunnatriði í CRM sem eru best til þess fallinn að byggja á frekari notkun og þekkingu á lausninni. 
Námskeiðið er hannað fyrir þáttakendur sem hafa litla þekkingu á CRM og vilja læra að nota lausnina, en nýtist einnig þáttakendum sem eru að íhuga kaup á CRM og vilja þar af leiðandi íhuga þá möguleika sem CRM hefur upp á að bjóða.
Sjá nánar um CRM námskeiðið hér.
Skráning fer fram hér.
Allar nánari upplýsingar varðandi námskeið veita Sveinbjörn, sveinbjorn@ok.is og Ingibjörg, inga@ok.is og í síma 570-1000]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
ITIL Foundation námskeið
			<description><![CDATA[Námskeið í ITIL Foundation + vottun verður haldið 10.-12.október
Kennari er Lasse Andersen, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Kerfi í Noregi.
ITIL (IT Infrastructure Library) er safn bestu aðferða í þjónustustjórnun sem hægt er að beita hvort sem er í upplýsingatækni eða annarri þjónustu.  ITIL liggur til grundvallar ISO20000 sem fjallar um þjónustustjórnun í upplýsingatækni.
Sjá upplýsingar um námskeið hér.
Skráning fer fram hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Upplýsingatækni er viðskiptatækni
Hvernig geta stjórnendur fyrirtækja samhæft viðskiptaþarfir
við skilvirkan rekstur upplýsingakerfa?
Opin kerfi bjóða þér á morgunverðarfund, þriðjudaginn 25. september næstkomandi, þar sem fjallað verður um það hvernig fyrirtæki geta samræmt upplýsingatækni við starfsemi sína og hvernig hægt er að láta hana hjálpa sér við að ná arðsemiskröfum og hámarka þannig hagnað.
Dagskrá:
08:30 Morgunmatur
09:00 Niels Boeggild Cristensen, HP Software specialist
09:30 Wael Al-Assadi, HP Software Solutions
10:00 Fundarlok
Meðal annars verður fjallað um hvort að fyrirtæki nái að nýta sér upplýsingatækni til að geta:
Greint og leyst vandamál áður en þau hafa áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækisins? 
Haft stjórn á þeirri áhættu sem fylgir breytingum í rekstri ? 
Stýrt útgjöldum til upplýsingatækni þannig að meirihluti þeirra fari í þau verkefni sem skila rekstri fyrirtækisins mestum hagnaði?
Niels og Wael fjalla um nokkur lykilatriði við að ná hámarks árangri í rekstri með því að nýta möguleika upplýsingatækni til hins ítrasta og benda á leiðir fyrir fyrirtæki til að ná þessum markmiðum. Greint verður frá aðferðafræði ITIL (Information Technology Infrastructure Library) í þessum efnum. 
Áhugasamir geta skráð sig með því að senda póst á jarthrudur@ok.is 
			<author>ok@ok.is</author>
Sumir mynda sumarmyndir betur
			<description><![CDATA[Verslun Opinna kerfa og Bylgjan stóðu fyrir skemmtilegum ljósmyndaleik í júlí.
Þátttakendur tóku fallega sumarmynd og skráðu sig til leiks á ok.is. Ljósmyndirnar þurftu að fanga sumarið eins og það birtist fjölskyldunni. Gríðarlegur fjöldi mynda bárust í keppnina og er óhætt að segja að þær hafi allar verið frábærar á sinn hátt. 
Fjórar myndir og voru valdar úr og skemmtilegustu ljósmyndararnir unnu gáfaðar græjur, myndavélar og prentara frá HP. Vinningsmyndirnar má sjá hér til hliðar.
Tilkynnt var um sigurvegara í þætti Ívars Guðmundssonar á Bylgjunni en hægt er að skoða allar innsendar myndir hér. 
Eftirfarandi ljósmyndarar hlutu verðlaun í sumarmyndaleik Opinna kerfa og Bylgjunnar.
Esther Gísladóttir hlaut glæsilega HP Photosmart M527 myndavél fyrir mynd sína af gömlum manni liggjandi á bekk.
Sigrún S. Jónsdóttir hlaut glæsilega HP Photosmart M527 myndavél fyrir mynd sína af manni við foss.
Sóley Þórisdóttir hlaut glæsilega HP Photosmart R837 myndavél fyrir mynd sína af dreng innan um hvönn.
Krstján Einarsson hlaut glæsilega HP Photosmart R837 myndavél og HP Photosmart D7360 ljósmyndaprentara fyrir mynd sína af tveimur ungmennum á fjallsbrún.
Bylgjan og Verslun Opinna kerfa, Höfðabakka 9, þakka öllum þátttakendum fyrir innsendar myndir.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
BorderWare Security Platform tryggir öryggi í netsamskiptum með innleiðingu nýrra öryggisstaðla
			<description><![CDATA[Samþættar lausnir veita meira öryggi og geta lækkað kostnað um allt að 50%
BorderWare Technologies hefur sett nýtt kerfi á markað, BorderWare Security Platform, sem samanstendur af BorderWare Web Security Gateway, BorderWare IM Security Gateway og BorderWare Email Security Gateway, en það síðastnefnda var þróað út frá MXtreme eldveggnum. BorderWare Security Platform er fyrsta lausn sinnar tegundar til að tryggja öryggi í notkun tölvupósts, spjallrása og nets með einu og sama kerfinu, en með notkun þess þurfa fyrirtæki ekki lengur að koma fyrir stökum búnaði til að vernda hvert netsamskiptaforrit fyrir sig. BorderWare Security Platform, sem nú er fáanlegt, gerir netsamskipti fyrirtækja um allar samskiptarásir öruggari með aðeins einni reglu bæði fyrir umferð til og einnig frá fyrirtækinu. BorderWare Security Platform veitir ekki aðeins meira öryggi heldur einfaldar stjórnun og eykur afkastagetu jafnframt því að lækka kostnað um allt að 50%. Það er því hagkvæmara fyrir fyrirtæki að eignast hið nýja netöryggiskerfi í stað þess að kaupa sérlausnir.
"Samskipti í viðskiptum eru að færast að sama punkti. Við höfum ekki lengur tölvupóst eingöngu heldur spjallrásir, netið, samvinnu í gegnum netið og bloggsíður," segir Brian Burke, rannsóknarstjóri Security Products-deildar IDC. "Stofnanir þurfa á tryggari öryggislausnum að halda, á samþættri vöru sem kannar hættur með prófunum, setur reglur um innihald og einblínir á þá þörf að samræma skipanir á öllum samskiptarásum."
Með aukinni notkun spjallrása og gagnaflutninga um netið eru hætturnar meiri og því brýn nauðsyn að tryggja öryggi í öllum netsamskiptum en ekki í tölvupóstnotkun eingöngu. Hvert netsamskiptaforrit getur þjónað sem eins konar inngangur fyrir ýmsar hættur og því er nauðsynlegt að geta varist hættulegum hugbúnaði (malware), vírusum, ormum, ruslpósti í gegnum spjallrásir (SPIM), svikum í formi tölvupósts (phishing), sendingum úr tölvum sem hafa verið sýktar án vitneskju eigenda (botnet) og ólögmætum vefsíðum (zombie) sem eru notaðar í ruslpóstherferðum. Ef stofnanir verja sig ekki eru þær berskjaldaðar gagnvart ýmis konar netárásum, óæskilegri vefnotkun o.fl.
"Hinn aukni vandi og kostnaður við að tryggja netsamskiptaforrit eru staðreynd í viðskiptum sem kallar á skipulögð viðbrögð," segir Tim Leisman, framkvæmdastjóri BorderWare. "Við leggjum til einfalda lausn: Fyrirtæki geta klastrað saman ýmsum ótengdum skyndilausnum sem eru kostnaðarsamar, án þess að veita víðtækt öryggi, eða þau geta fjárfest í þeirri samþættu og einföldu lausn sem við bjóðum upp á og um leið lækkað kostnaðinn um helming." 
Með BorderWare Security Platform þurfa viðskiptavinir ekki lengur að festa kaup á ólíkum búnaði til að tryggja öryggi eða gefa margþættar skipanir til að tryggja kerfi sín. Helstu kostir BorderWare Security Platform eru þessir:
Samþætt snið
- Fyrsta flokks samþætting öryggis á tölvupósti, spjallrásum og neti sem veitir samfellt öryggi og er auðvelt í notkun.
Meira öryggi í verndun innleiða
- Víðtækt öryggi fyrir tölvupóst, spjallrásir og net með samþættri þjónustuvernd: vírusvörn, vörn gegn hættulegum hugbúnaði, vörn gegn njósnahugbúnaði, vörn gegn svikum í tölvupóstformi, samdægursvörn (zero-day protection) og eftirlit með óleyfilegum viðhengjum, en beiting þessa alls og uppfærsla er með samræmdum hætti til að tryggja varnir.
- Öflug samþætting við BorderWare Security Network (http://bsn.borderware.com/) sem veitir nýjustu álitsþjónustu (reputation services) og vörn gegn árásum.
Öflugt eftirlit með efni á útleiðum
- Öflugt eftirlit með innihaldi og síun sem veitir vörn gegn leka á viðkvæmum gögnum og einkaupplýsingum, en slíkt tryggir að fyrirtæki framfylgi viðteknum viðskiptavenjum sem dregur úr lagalegri og fjárhagslegri áhættu.
Auðveld uppsetning og stjórnun
- Minni tími, vinna og kostnaður með setningu einfaldra reglna, sem ekki þarf að huga að aftur, sem gerir fyrirtækjum kleift að einblína á verðmætari viðskiptatækifæri innan upplýsingatæknisviðs þeirra í stað þess að eyða tíma í að verja kerfi sín gegn nýjasta hættulega hugbúnaðinum eða ruslpóstárásum.
Mikil afkastageta til að uppfylla auknar þarfir
- Skalanleiki eftir þörfum er veittur með háþróuðum klösum sem tryggja öryggisaðgengi og afkastagetu þar sem þarfirnar breytast með tímanum.
- Umfremd og sveigjanleg framtefling eru tryggðar þar sem hægt er að keyra notbundnar öryggisleiðir eftir þörfum, fyrir hvern BorderWare öryggisklasa í kerfinu.
Lágur kostnaður af leyfum
- Með stöðluðum einingum geta fyrirtæki keypt það sem þau þarfnast þá stundina og síðar fengið viðbætur eftir þörfum. BorderWare Security Platform öryggisvörurnar - Email, IM og Web Security Gateways - eru þróaðar sem sérsniðinn, stakur verkvangur til að tryggja tölvupóst, spjallrásir og net þannig að viðskiptavinir geta komið fyrir einni eða öllum einingunum. 
- Heildarkostnaður vegna leyfa er lækkaður um allt að 50%.
"Email, IM og Web er ómissandi hugbúnaður í okkar rekstri," segir Axel Einarsson hjá Flugstoðum. "Reynsla BorderWare á sviði netöryggis, og tækninýjungar, nú með BorderWare Security Platform, mun hjálpa okkur að koma upp samþættu netsamskiptaumhverfi sem dregur úr hættunni á niðritíma og framleiðnitapi."
Um BorderWare
BorderWare Technologies sérhæfir sig í öryggi netsamskipta. Fyrirtækið býður upp á öryggi í boðskiptum, leynd og samræmingu lausna sem gerir viðskiptvinum kleift að draga úr bæði áhættu og ógn sem tengjast netsamskiptum. BorderWare var stofnað árið 1994 og hefur gert samninga og myndað tengsl við vel kunn fyrirtæki á sviði upplýsingartækni, eins og CommVault, Ericsson, F5 Networks, FaceTime Communications, Kaspersky Labs, LignUp, Marconi, McAfee, Mitel, Natural Convergence, PostX, PGP, RSA Security, Radware, snom technology, Sun Microsystems, SurfControl, Symantec, Ubiquity, Utimaco, Zfone. Þúsundir viðskiptavina um allan heim hafa valið lausnir frá BorderWare vegna mikils öryggis, skalanleika eftir þörfum, samfelldni í viðskiptum og lægri heildarkostnaðar af leyfum.
(c) 2007 BorderWare Technologies Inc. Allur réttur áskilinn. BorderWare, MXtreme og S-Core eru vörumerki í eigu BorderWare Technologies Inc. Öll önnur fyrirtækis- og vöruheiti kunna að vera vörumerki eða skrásett vörumerki viðkomandi rétthafa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi styðja kvikmyndagerð í grunnskólum
			<description><![CDATA[Kvikmyndagerð er blómleg í grunnskólum eins og sjá mátti á nýafstaðinni kvikmyndahátíð grunnskóla Reykjavíkur. Opin kerfi eru stolt af því að styðja við bakið á ungum kvikmyndagerðamönnum og veitti fyrirtækið verðlaun fyrir bestu myndina í hverjum flokki. Það eru því fimm grunnskólar í Reykjavík sem geta nú boðið nemendum sínum upp á þjálfun í Adobe Premier Pro CS3 klippihugbúnaðinum. Um er að ræða fullkominn hugbúnað sem býður upp á allt sem þarf til að fullvinna kvikmynd til sýningar. 
Mikill áhugi er fyrir kvikmyndagerð meðal grunnskólabarna en yfir 60 myndir bárust í keppnina. Opin kerfi óska framtíðarkvikmyndagerðarmönnum til hamingju með frábæran árangur. Það verður spennandi að fylgjast með afrekum þessa unga fólks á braut kvikmyndagerðar í framtíðinni.
Frekari upplýsingar um kvikmyndahátíð grunnskóla Reykjavíkur má finna hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi fyrirmyndarfyrirtæki 2007
			<description><![CDATA[Opin kerfi hafa hlotið nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki 2007 fyrir frábærar niðurstöður úr könnun VR á fyrirtæki ársins. Nafnbótin endurspeglar það góða starfsumhverfi sem er innan fyrirtækisins og staðfestir það sem starfsmenn Opinna kerfa upplifa á hverjum degi. 
Opin kerfi hafa í nokkurn tíma unnið undir þeim merkjum að samvinna skili árangri, og hefur það sannað sig bæði út á við og ekki síður í innra starfi fyrirtækisins.
Listann yfir fyrirmyndarfyrirtæki VR 2007 má finna hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP vistvænar tölvur
			<description><![CDATA[Umhverfisvernd hefur verið eitt af leiðarljósum HP um langan tíma og er gætt að því að vernda umhverfið eftir bestu getu í framleiðsluferlinu auk þess sem sífellt er verið að leita nýrra leiða til að rekstur HP tölva og prentara sé sem hliðhollastur umhverfinu. Sem dæmi um umhverfisstefnu HP er að fyrirtækið hefur sett sér það markmið að draga úr orkunotkun sinni um 20% á heimsvísu fyrir árið 2010. 
Framleiðsluvörur HP standast flestar núgildandi umhverfisstaðla kennda við Energy Star hvað varðar orkunotkun en Umhverfisstofnun Bandaríkjanna hefur boðað nýja og strangari staðla sem taka munu gildi í júlí 2007. HP framleiðir og dreifir nú þegar borðtölvum sem standast þessa strangari umhverfisstaðla og eru þessar tölvur þær fyrstu til að hljóta vottun þar að lútandi. Um er að ræða HP Compaq dc5700, dc5750 og dc7700 borðvélar. Galdurinn felst í öflugra rafmagnsinntaki en nýja inntakið nýtir 80% orkunnar og er ríflega 30% skilvirkara en inntök á öðrum tölvum. Þetta veldur því að mun minna rafmagn fer í að knýja tölvurnar sem kemur bæði umhverfinu og buddu neytendans til góða.  
HP Compaq dc5750 og dc7700 borðvélar fást hjá Opnum kerfum, Höfðabakka 9. 
Nánari upplýsingar um Energy Star umhverfisstaðlana má fá hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi opna verslun að Höfðabakka 9
			<description><![CDATA[Opin kerfi opnuðu verslun á 1. hæð höfuðstöðva fyrirtækisins að Höfðabakka 9 í febrúar. Að sögn Halldóru Matthíasdóttur, framkvæmdastjóra sölusviðs Opinna kerfa, var mikil eftirspurn ástæða þess að ákveðið var að opna verslunina. ?Með tilkomu verslunarinnar verður mun auðveldara fyrir einstaklinga að kynna sér sérstöðu HP varanna hjá sérfræðingum fyrirtæksins. Þá mun verslunin veita gott aðgengi að allri tengdri þjónustu Opinna kerfa, svo sem lager og verkstæði.? 
Halldóra segir vöruúrvalið miðast við þarfir einstaklinga og fjölskyldna, en HP vörumerkið er eina vörumerkið sem býður upp á heildarlínu í tölvubúnaði. Í versluninni eru því HP borðtölvur, fartölvur, lófatölvur, bleksprautuprentarar, fjölnotatæki, geislaprentarar, skannar og stafrænar myndavélar. Hægt er því að nálgast alla vörulínu HP fyrir einstaklinga á einum stað. Verslunarstjóri er Sigurbergur Árnason, sem hefur mikla reynslu af rekstri verslana.
Mest seldu tölvur í heimi
HP býður mikið tölvuúrval og voru HP tölvur þær mest seldu í heimi árið 2006, samkvæmt IDC og Gartner. Fartölvur eru að verða sífellt vinsælli og býður HP upp á tvenns konar fartölvur, HP Compaq og Pavilion, sem sniðnar eru að þörfum einstaklinga og henta vel þeim sem nota tölvur til afþreyingar. Kröfur markaðarins til stærri og betri skjáa verða sífellt meiri og hefur HP staðið sig vel í að svara þeim. Boðið er uppá margar tegundir LCD flatskjáa, allt frá 17 tommu upp í 30 tommu breiðtjaldsskjá. Þó að eftirspurn eftir fartölvum hafi aukist eru enn margir sem kjósa öflugar borðtölvur en þær eru einnig til í miklu úrvali frá HP.
A+ einkunn í 15 ár í röð
HP prentarar eru einu prentararnir sem hafa fengið A+ í einkunn hjá PC Magazine, 15 ár í röð. HP framleiðir til dæmis hágæða ljósmyndaprentara með sex til átta blekhylkjum, sem auka gæði ljósmyndaprentunar verulega. Fjölnotatæki sem prenta, skanna og ljósrita hafa notið aukinna vinsælda meðal fjölskyldna en not fyrir slík tæki eru margvísleg, allt fá því að ljósrita mataruppskriftir upp í að skanna inn og lagfæra gamlar ljósmyndir. HP hefur einnig lagt mikla áherslu á þróun og framleiðslu stafrænna myndavéla. Úrval HP myndavéla hefur aukist undanfarið og er breiddin í vörulínunni nú talsverð. 
Tónlist unnin á HP tölvum
Hljómsveitin Ampop var á meðal fyrstu viðskiptavina nýju verslunarinnar, en meðlimir hennar hafa allt frá stofnun hljómsveitarinnar unnið tónlistina á HP tölvur. Að þessu sinni endurnýjuðu þeir búnað sinn og fengu sér grafíska vinnustöð af gerðinni HP Workstation XW 4400. Meðlimir sveitarinnar hafa að undanförnu verið búsettir í sitt hvoru landinu og því er það mikilvægara nú en nokkru sinni að hafa góðan tölvubúnað. 
Á myndinni sjást meðlimir Ampop, þeir Kjartan Friðrik Ólafsson og Jón Geir Jóhannesson ásamt Sigurbergi Árnasyni verslunarstjóra og Halldóru Matthíasdóttur framkvæmdastjóra sölusviðs. Þriðji meðlimur Ampop, Birgir Hilmarsson, er búsettur í Skotlandi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Cisco hópur viðheldur Partner Status Opinna kerfa
			<author>ok@ok.is</author>
Ný störf hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Hjá Opnum kerfum bjóðast nú starfstækifæri og leitum við því að fólki í eftirfarandi störf. 
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 2. apríl nk.
Sérfræðingur á sviði net- og samskiptalausna
Starfslýsing:
Ráðgjöf, hönnun, þjónusta og rekstur á netbúnaði, símkerfum og tengdum lausnum. Samskipti við fjarskiptabirgja, samstarfsaðila og viðskiptavini.  
Menntunar- og hæfniskröfur:
Tæknimenntun æskileg og háskólamenntun kostur 
Reynsla af rekstri símkerfa og IP netkerfa  kostur
Góð almenn stýrikerfisþekking (Linux og/eða Windows)
Upplýsingar um starfið veitir Gunnar Guðjónsson hjá Opnum kerfum, gunnarg@ok.is.  
Tæknimaður á verkstæði
Starfslýsing:
Uppsetning, þjónusta og viðgerðir á tölvubúnaði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þekking og reynsla af tæknistörfum
Áhugi á tölvutækni
Sjálfstæði og lipurð í samskiptum
Þjónustulund, vandvirkni og reglusemi
Menntun á sviði rafeindavirkjunar eða sambærileg menntun kostur
Sjálfstæð og öguð vinnubrögð og liðurð í samskiptum
Upplýsingar um starfið veitir Helgi S. Sigurðsson hjá Opnum kerfum, helgis@ok.is.  
Viðskiptastjóri
Starfslýsing:
Við leitum að einstaklingi sem er tilbúinn að ganga til liðs við öflugan hóp
viðskiptastjóra. Um er að ræða ráðgjöf og sölu á upplýsingatæknilausnum.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þekking á upplýsingatækni
Áhugi á sölumennsku
Reynsla í ráðgjöf og sölu æskileg
Frumkvæði og öguð vinnubrögð
Metnaður til að ná árangri í starfi
Þjónustulund
Upplýsingar um starfið veitir Halldóra Matthíasdóttir hjá Opnum kerfum, halldora@ok.is. 
Ráðgjafar og verkefnastjórar á sviði Microsoft lausna
Starfslýsing:
Greining, ráðgjöf og verkefnastjórn í samþættingu upplýsingakerfa.
Innleiðing hugbúnaðarlausna og samskipti við viðskiptavini. 
Menntunar- og hæfniskröfur:
Háskólamenntun í tölvunarfræði, verkfræði eða skyldum greinum
Minnst 2ja ára reynsla af greiningarvinnu og hugbúnaðargerð
Þekking á Microsoft .NET umhverfinu
Sjálfstæði, ábyrgð og skipulögð vinnubrögð 
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum 
Upplýsingar um starfið veitir Árni Þór Jónsson hjá Opnum kerfum, arnithor@ok.is.
Hugbúnaðarsérfræðingur á sviði Microsoft lausna
Starfslýsing:
Greining, hönnun og útfærsla hugbúnaðarlausna í Microsoft .NET umhverfinu.  
Samþætting upplýsingakerfa. 
Gagnavinnsla og útfærsla verkferla.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Þekking á greiningarvinnu og hugbúnaðargerð
Þekking á Microsoft .NET umhverfinu
Sjálfstæði, ábyrgð og skipulögð vinnubrögð 
Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum 
Sérfræðingur í afritunarlausnum
Starfslýsing:
Ráðgjöf og stjórnun verkefna varðandi afritun og endurheimtingu gagna.  Þjónusta og rekstur afritunarstöðva og hugbúnaðar (Openview Data Protector) í margbreytilegum umhverfum þar sem öryggi og áreiðanleg vinnubrögð er skilyrði.
Menntunar- og hæfniskröfur:
Starfsreynsla æskileg
Mjög góð stýrikerfis og gagnagrunns þekking 
Mjög góð þekking á vistun og meðhöndlun gagna s.s. diskakerfum og gagnanetum
Skipulögð, sjálfstæð og öguð vinnubrögð 
Opin kerfi eru leiðandi fyrirtæki í upplýsingatækni á Íslandi. Fyrirtækið sérhæfir sig í sölu tölvu- og samskiptabúnaðar, auk ráðgjafar og þjónustu. Opin kerfi eru umboðs- og þjónustuaðili Hewlett Packard á Íslandi. Opin kerfi eru Microsoft Gold Partner og eru einn stærsti sölu- og þjónustuaðili Microsoft á Íslandi. Þá er fyrirtækið leiðandi í Linux / Unix og samskiptalausnum. 
Hjá Opnum kerfum starfar landslið sérfræðinga í upplýsingatækni sem leiðbeina viðskiptavinum við val á vöru og þjónustu til að tryggja að hagkvæmasta og besta lausnin sé valin hverju sinni. 
Opin kerfi leggja ríka áherslu á ánægju starfsmanna og mælist starfsánægjan með því allra hæsta á landinu. Opin kerfi eru fjölskylduvænt fyrirtæki sem býður upp á sveigjanlegan vinnutíma, virka endurmenntunarstefnu, símenntun í starfi og fjölbreytt og krefjandi verkefni í lifandi og skemmtilegu umhverfi. Þá bjóðast margvísleg tækifæri til starfsþróunar. Starfsmenn Opinna kerfa eru ríflega 100 talsins.
Leiðarljós Opinna kerfa er að samvinna skilar árangri.
			<author>ok@ok.is</author>
Nýr forstjóri hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Þorsteinn G. Gunnarsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa ehf. frá og með 1. mars.  
Þorsteinn tekur við af Gylfa Árnasyni sem gegnt hefur stöðunni frá júní lokum síðastliðnum.  Gylfi mun helga sig á ný starfi forstjóra Opin Kerfi Group hf. og stjórnarformennsku dótturfélaga Opin Kerfi Group á Íslandi, í Svíþjóð og í Danmörku.
Þorsteinn Gunnarsson er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, og með Meistarapróf frá University of Washington.  Þorsteinn var sérfræðingur hjá Kerfisverkfræðistofu Verkfræðistofnunar HÍ og stundakennari við HÍ.  Hann hóf störf hjá Opnum kerfum 1996 sem sérfræðingur, síðar þjónustustjóri og nú síðast var hann framkvæmdastjóri ráðgjafar- og þjónustusviðs.  Þorsteinn er giftur Herdísi Rafnsdóttur og eiga þau saman drengina Rafn Viðar og Gunnar Smára.
Samhliða þessum breytingum tekur Gunnar Guðjónsson við framkvæmdastjórn ráðgjafar- og þjónustusviðs Opinna kerfa ehf.  Gunnar er rekstrarhagfræðingur frá Strathclyde University í Skotlandi.  Gunnar starfaði hjá Vífilfelli sem sölustjóri og kom síðan til Opinn kerfa árið 2000 sem markaðsstjóri og síðar sem þjónustustjóri.  Gunnar er í sambúð með Ingu Sigríði Harðardóttur og eiga þau börnin Ólöfu Rósu og Hörð Inga.
Breytingar urðu á hinum tekjusviðum félagsins í október síðastliðnum og gegna framkvæmdastjórastörfum þar þau Halldóra Matthíasdóttir (sölusvið) og Sverrir Jónsson (heildsölusvið). 
Opin kerfi ehf. hófu starfsemi árið 1985 og er félagið dreifingar-, þjónustu- og söluaðili á Íslandi fyrir Hewlett-Packard og fleiri tæknifyrirtæki.  Hjá félaginu vinna um 110 manns og árleg velta er um 3,5 milljarðar króna.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýtt! Windows Vista
			<description><![CDATA[Nýjasta stýrikerfi Microsoft, Windows Vista, sem margir hafa beðið eftir með óþreyju er nú komið á markaðinn. Heildsala Opinna kerfa, sem er dreifingaraðili fyrir Microsoft á Íslandi, hvetur tölvunotendur til að tryggja sér eintak af þessum frábæra hugbúnaði. Allar nánari upplýsingar má fá hjá söludeild og heildsölu Opinna kerfa í síma 570 1000.
Ákveðnar tölvur í fyrirtækjalínu HP sem seldar hafa verið frá 26. október 2006 eru með frírri uppfærslu í Windows Vista. Allar nánari upplýsingar um HP og Windows Vista uppfærsluna má finna hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Kröfur til kerfa - Decus ráðstefna á Hótel Örk 15. til 16. febrúar
			<description><![CDATA[15.-16. febrúar 2007 mun DECUS, alþjóðlegt félag tölvunotenda, standa fyrir ráðstefnu um grunnatriði í upplýsingatækni og rekstri upplýsingakerfa. Um er að ræða eina fjölbreyttustu ráðstefnu um upplýsingatækni sem haldin hefur verið á Íslandi um langa tíð.
Decus á Íslandi er elsti notendahópur upplýsingatækni á Íslandi. Eitt af höfuðmarkmiðum Decus er fræðsla og námskeiðahald þar sem reynslu notenda og sérfræðinga í upplýsingatækni er miðlað. 
Ráðstefnunni Kröfur til kerfa er ætlað að kynna nokkrar af þeim mýmörgu lausnum sem til staðar eru í dag og farið verður yfir hluta þess gríðarstóra lausnarmengis sem býðst í dag. Á ráðstefnunni verður þeim lausnum sem beitt er í dag velt upp og reynt verður að skyggnast inn í framtíðina. Ráðstefnan ætti að vera afar gagnleg jafnt tæknifólki sem stjórnendum. Hún ætti að veita öllu fólki sem að rekstri upplýsingatæknikerfa kemur nokkra innsýn í hvernig best er að standa að rekstri slíkra kerfa. 
Ráðstefnan verður haldin á Hótel Örk, Hveragerði og er skráning hafin. Fjölda áhugaverðra fyrirlestra má finna á dagskránni og að kvöldi fimmtudags verður sérstakur hátíðarkvöldverður. Nánari upplýsingar og dagskrá ráðstefnunnar má finna á www.ok.is/decus.
Látið þetta tækifæri ekki ganga ykkur úr greipum. Skráið ykkur á ráðstefnuna strax í dag með því að smella hér.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Sterk og vaxandi staða HP á heimsmarkaði fyrir netþjóna
			<description><![CDATA[HP hefur skotið keppinautum sínum ref fyrir rass á heimsmarkaði fyrir netþjóna átjánda ársfjórðunginn í röð samkvæmt alþjóðlega greiningafyrirtækinu IDC. Á þriðja ársfjórðungi 2006 fór HP fram úr markaðsvexti á heimsmarkaði fyrir blade stæður með 43,8% tekjuvöxt á milli ára. Markaðshlutdeild HP í blade stæðum er nú 35% af heimsmarkaði. 
HP var tekjuhæsta fyrirtækið á markaði fyrir háafkastatölvur með tæplega 35% markaðshlutdeild og vöxt umfram markaðsvöxt bæði hvað varðar tekjur og sendar einingar. 
Þessar tölur endurspegla sterka og vaxandi stöðu HP á heimsmarkaði fyrir netþjóna og segja sín sögu um ánægju viðskiptavina um allan heim. 
			<author>ok@ok.is</author>
Nýr hugbúnaður frá McAfee tryggir heimilin gegn svikum og áreiti á netinu
			<description><![CDATA[Í umræðunni í þjóðfélaginu að undanförnu hefur internetnotkun barna og ungmenna verið í sviðsljósinu í ljósi þeirra naýju leiða sem misyndismenn og tölvuþrjótar nota til að blekkja ungmenni og safna upplýsingum um persónulega og fjárhagslega hagi fjölskyldunnar.  Ný samskiptaforrit, svo sem myspace, þar sem vinsælt er fyrir ungmenni að skiptast á upplýsingum hafa aukið hættuna á netáreiti og að ungmenni gefi upp persónulegar upplýsingar til ókunnugra.  
Meira virðist bera á einelti á milli barna og ungmenna sem eru ekki nægjanlega upplýst um um hætturnar sem leynast á netinu og afleiðingarnar af því að t.d gefa upp netfang þriðja aðila sem svo fær send vafasöm skilaboð í gegnum tölvu sem er óvarin gegn slíkri vá.
Þeir dagar þar sem nóg var að vera með einfalda vírusvörn, eru liðnir undir lok.  Á markaðinn er komin lausn sem heitir Internet Security Suite 2007 frá hinu virta öryggisfyrirtæki McAfee.  Lausn þessi er heildar öryggislausn sem auk hefðbundinnar vírusvarnar verndar gögn heimilisins, kemur í veg fyrir að hægt sé að senda persónulegar upplýsingar án heimildar, hindrar svokallað ?phishing? sem byggist á að notandi opni óvart falsaða heimasíðu og gefi þar grandalaus upp  persónulegar upplýsingar sem tölvuþrjótar geta nýtt sér. Einnig er ruslpóstsía ásamt eldvegg sem stöðvar utanaðkomandi aðilar geti fengið aðgang að tölvunni.   
Forritið er einstaklega auðvelt í notkun og sér sjálfkrafa um að sækja nýjustu uppfærslur í eitt ár frá uppsetningu.  Hönnun og uppsetning forritsins er miðað við að allar valmyndir séu sem einfaldastar og að notandinn fái heildarmynd á fljótan og auðveldan hátt um hversu örugg tölvan er gagnvart umheiminum.
Verndar börnin
McAfee Internet Security Suite 2007 inniheldur margvíslegar varnir sem snúa að því að vernda börnin gegn óæskilegum vefsíðum með því að aldursflokka notendur á einfaldan hátt í uppsetningu forritsins.  Aldursflokkunum er síðan sett ákveðin tímaáætlun sem er fyrirfram skilgreind og þannig er t.d hægt að veita barni aðgang að internetinu á ákveðnum tíma dags en síðan slokknar sjálfkrafa á aðgangi þegar sá tími er útrunninn.  Ein helsta nýjungin er þó vörn gegn upplýsingagjöf í spjallforritum sem gerir kleift að hindra að barnið gefi upp ákveðin símanúmer, heimilissfang og jafnvel í hvaða skóla það gengur í.  McAfee Internet Security Suite 2007 hindrar einnig birtingu vefsíðna sem innihalda óæskileg orð eða myndir og er sú vörn tengd aðgangi barna og ungmenna í uppsetningu forritsins.
Nýjar fjársvikaleiðir á netinu með ?phishing?
Það nýjasta í vefsvikum er ?phishing? en það er sú leið tölvuþrjóta að hanna vefsíður sem líkjast vefsíðum bankanna nákvæmlega.  Notandanum er síðan sendur tölvupóstur þar sem boðið er upp á hagkvæm kjör á fjármögnun eða annað sem hefur fjárhagslegan ávinning fyrir hinn grunlausa notanda.  Með því að smella á vefsíðutengil sem gefinn er upp í tölvupóstinum færist notandinn yfir á hina fölsku heimasíðu þar sem útfylla þarf aðgangsorð ásamt leyniorði.  Með því eru tölvuþrjóta búnir að fá aðgang að bankareikningum fórnarlambsins og tæma hann hið snarasta.  Í McAfee Internet Security Suite 2007 er ?phishing? vörn þar sem forritið opnar eingöngu vefsíður sem standast áreiðanleikapróf vírusvarnarinnar.
Hægt er að nálgast McAfee Internet Security Suite á www.fartolvur.is 
Allar nánari upplýsingar veitir höfundur greinarinnar, Andrés Karl Sigurðsson, vörustjóri hugbúnaðar Heildsölusviði Opinna kerfa (andresk@ok.is).]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi óska eftir starfsmönnum
			<description><![CDATA[Hjá Opnum kerfum starfar fjöldi sérfræðinga í upplýsingatækni sem leiðbeina viðskiptavinum við val á vöru og þjónustu til að tryggja að hagkvæmasta lausnin sé valin hverju sinni.
Opin kerfi leita að metnaðarfullum og jákvæðum liðsmönnum með ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum.  Við leggjum áherslu á góða þjónustu og nauðsynlegt er að liðsmenn séu reiðubúnir að til að leggja mikið á sig við að uppfylla óskir viðskiptavina. Mikilvægt er að liðsmenn sýni góða framkomu, tryggð, stundvísi framsækni og öguð vinnubrögð. 
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft Dynamics CRM morgunfundur Opinna kerfa og Microsoft Ísland
			<description><![CDATA[Microsoft Dynamics CRM hefur hlotið mikla athygli og afar góðar viðtökur frá því það kom fyrst á markað árið 2003.  Í lok síðasta árs gaf Microsoft út nýja útgáfu af hugbúnaðnum, útgáfu 3.0 sem inniheldur verulegar endurbætur og stóraukna virkni frá fyrri útgáfu og gerir Dynamics CRM að einu öflugasta viðskiptatengslakerfi á markaðnum.  Um leið voru kynntar breytingar á leyfisuppbyggingu sem einfalda leyfismál verulega og gerir Microsoft Dynamics CRM að mjög aðgengilegri lausn fyrir lítil fyrirtæki á sama tíma og það mætir þörfum stórfyrirtækja.
Opin kerfi og Microsoft Ísland blésu nýlega til morgunfundar undir yfirskriftinni ?Þekktu þinn viðskiptavin? þar sem sérfræðingar Opinna kerfa og Microsoft fóru yfir virkni Microsoft Dynamics CRM frá ýmsum hliðum með hliðsjón af þeim breytingum sem komu í kjölfar nýrrar útgáfu.  Sigurjón Páll Kolbeins ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Opnum kerfum hóf morgunfundinn á því að fara yfir uppbyggingu, virkni og þá möguleika sem Microsoft Dynamics CRM býður upp á og sýndi jafnframt þátttakenndum nokkur lifandi dæmi um notkun kerfisins.  Árni Þór Jónsson forstöðumaður Microsoft lausna hjá Opnum kerfum fjallaði um reynslu Opinna kerfa af innleiðingu á Microsoft Dynamics CRM hjá KB banka, B&L, Húsasmiðjunni, Straum-Burðarás, Intrum Justitia og Opnum kerfum og fór yfir þá áhrifaþætti sem stuðla að árangursríkri innleiðingu.  Björn Eilertsen sölustjóri Microsoft Dynamics CRM fjallaði svo að lokum um framtíðarsýn Microsoft í þróun Microsoft Dynamics CRM og þá miklu áherslu sem Microsoft setur á þennan málaflokk.
Nánari upplýsingar um Microsoft Dynamics CRM veitir Árni Þór Jónsson, forstöðumaður Microsoft lausn hjá Opnum kerfum, arnithor@ok.is eða í s. 570-1000.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Tölvuvinna tengd Cisco skemmtileg
			<description><![CDATA[Opin kerfi fengu frábæran liðsauka í hóp Cisco sérfræðinga fyrr á árinu með Katarinu Sebic Coti. Katarina er ekki eingöngu með Cisco gráðurnar CCNP (Cisco Certified Network Professional) og CCNA (Cisco Certified Network Associated) heldur að auki kennsluréttindi Cisco CCAI (Academic Instructor) og er eftir því sem vitað er sú eina hérlendis. 
Rólegt á Íslandi og minna stress
Katarina hefur starfað sem Cisco ráðgjafi og kennari undanfarin fjögur ár. Hún kemur frá Króatíu og tók masterspróf í matvælaverkfræði í háskólanum í Zagreb. Fljótlega bætti hún við sig forritunarnámi og hóf kennslu.  ?Ég bjóst nú ekki við því að nokkuð tengt tölvum yrði starfssvið mitt en því betur sem ég kynnist þeim, og ég tala nú ekki um Cisco, þá var bara ekki aftur snúið. Þetta er svo skemmtilegt,? segir Katarina. Hún kom upphaflega til Íslands í heimsókn vegna starfs eiginmanns sins, en hann er útibússtjóri fyrir króatískt fyrirtæki sem starfar hérlendis vegna háspennulagna. ?Það er svo rólegt hérna, lítil bílaumferð og minna stress en ég er vön svo það getur vel verið að við verðum lengur en við áætluðum á Íslandi?.
Undirbúningsnámskeið fyrir CCNA og öryggisnámskeið
Katarina er ráðgjafi á Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa og kennir að auki nokkur námskeið. Í haust verður hún meðal annars með námskeið fyrir þá sem err að undirbúa sig undir að taka CCNA gráðu og Cisco security námkeið. ?Námskeiðin eru fyrir þá sem hyggjast taka CCNA prófið og alla aðra sem vilja kynnast eða læra meira um netkerfi. Oft koma starfsmenn viðskiptavina sem vilja auka við sig þekkingu eða háskólanemar sem vilja kynnast Cisco. Við ætlum að leggja meiri áherslu á að nota ?hands-on? kennsluaðferð sem ég tel vera bestu leið til að læra, en við verðum að sjálfsögðu einnig með bóklegt nám.?
Nánari upplýsingar um námskeið: www.ok.is/fyrirtaeki/namskeid
Katarina Sebic Coti, Cisco sérfræðingur hjá Opnum kerfum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Sparnaður með leigusamningum og Microsoft nýjungar
			<description><![CDATA[Íris Kristjánsdóttir er Microsoft sölusérfræðingur hjá Opnum kerfum, en Opin kerfi bjóða  viðskiptavinum upp á heildarleigusamninga frá Microsoft eða ?Open Value Subscription" sem er ódýrasta leiðin fyrir fyrirtæki til að tryggja sér aðgang að nýjasta hugbúnaði fyrir allar vélar fyrirtækisins. Hugbúnaðartrygging eða uppfærslutrygging er innifalin í samningnum.
Breytilegar þarfir 
Annar kostur við þessa leið að mati Írisar er að útgjöld dreifast yfir tímabil samningsins og verða því hluti af föstum kostnaði. ?Greiðslur eru árlegar og miðast við fjölda útstöðva sem fyrirtæki hefur í notkun og getur fyrirtæki fjölgað eða fækkað útstöðvum eftir þörfum en aðeins er talið einu sinni á ári. Þetta minnkar hættuna á að sitja uppi með leyfi sem ekki eru í notkun en fyrirtæki þurfa að lágmarki fimm útstöðvar til að geta gengið inn í slíkan samning,? segir Íris.  ?Einnig má nefna að Office heimaleyfi fyrir starfsmenn fylgja og getur umtalsverður sparnaður falist í því. Þessi leið er tvímælalaust sú leið sem er þægilegust og hagstæðust til að tryggja að fyrirtæki sé með öll sín leyfismál á hreinu.?
Small Business samningar - frábær lausn fyrir minni fyrirtæki
Íris segir þau fyrirtæki sem hafa á bilinu 5 - 50 útstöðvar geta nýtt sér Small Business Server (SBS) og velja þá Small Business samning sem inniheldur Microsoft Office Small Business útgáfu, Windows Small Business Server notendaleyfi og Windows XP Professional uppfærslu. ?SBS hjálpar minni fyrirtækjum að halda utan um netkerfi sín og gera þau öruggari, til dæmis með verndun viðkvæmra upplýsinga um viðskipti og viðskiptavini fyrirtækisins. Þetta auðveldar stjórnendum minni fyrirtækja daglegan rekstur þar sem þeir þurfa ekki að eyða tíma í tæknileg atriði heldur geta einbeitt sér að viðskiptalegum hliðum rekstursins,? segir Íris.
Öruggara Windows stýrikerfi
Windows Vista stýrikerfið mun þjóna þörfum fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum. ?Fyrir minni og millistór fyrirtæki inniheldur Windows Vista Business nýja tækni sem tryggir að tölvur fyrirtækisins gangi almennt snurðulaust,? segir Íris. ?Sem dæmi um þetta má nefna innbyggða vörn gegn fjandsamlegum hugbúnaði og viðvörun um yfirvofandi bilun í vélbúnaði sem mun berast fyrirtækinu löngu áður en hætta er á að mikilvæg gögn glatist. Auk þessa mun ný afritunartækni hjálpa fyrirtækjum að verja gögn sín, jafnvel í þeim tilvikum þar sem vélbúnaður gefur sig. Þetta kemur minni fyrirtækjum sem ekki eru með eigin upplýsingatæknideild vel þar sem erfiðara getur verið fyrir þau að koma auga á hætturnar og miklu álagi er oft hægt að létta af stjórnendum.  Miklir fjármunir geta sparast svo ekki sé talað um tíma starfsmanna.?
Office 2007 - gjörbreytt útlit og nýir eiginleikar
Íris segir Microsoft Office vera orðinn mun yfirgripsmeiri hugbúnaður en áður þó hann byggi alltaf á kjarnanum sem flestir þekkja. ?Útlitinu hefur verið gjörbreytt og hinar hefðbundnu flettivalmyndir sem fólk kannast við í Word, Excel, PowerPoint og Access hafa vikið fyrir flipum sem gera alla valmöguleika sýnilegri. Notkunin verður því mun einfaldari og fljótlegri en áður. Einnig má nefna að í Outlook er búið að betrumbæta síur gegn ruslpósti og Office Publisher gerir  fyrirtækjum kleift að  hanna allt sitt auglýsingaefni sem getur sparað þeim stórfé,? segir Íris að lokum.
Íris Kristjánsdóttir, Microsoft sölusérfræðingur hjá Opnum kerfum]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Uppitími á prenturum nánast 100%
			<description><![CDATA[Orkugarður við Grensásveginn í Reykjavík  hýsir nokkrar af helstu stofnunum í orku og umhverfisfræðum landsins. Í Orkugarði hafa Orkustofnun, Íslenskar orkurannsóknir (ÍSOR), Vatnamælingar , Jarðhitaskóli Sameinuðuþjóðanna auk Reiknistofu í veðurfræði höfuðstöðvar sínar og nýta sameiginlega þjónustu þ.m.t tölvukerfi.
Orkugarður er með alrekstrarsamning á prentumhverfi við Opin kerfi. Að sögn Jóhanns Kristjánssonar kerfisstjóra var skipt út gömlum prenturum, ljósritunarvélum og skönnum og í staðinn teknir inn ný fjölnotatæki sem voru settir í alrekstur.  ?Við erum með blandað umhverfi,? segir Jóhann. ?Við erum með um 20 prentara frá HP sem við erum með í almennum rekstri, en í alrekstri erum við með stærstu og ?þyngstu? prentarana.? 
Af hverju alrekstur?
Jóhann sagði alrekstur á prenturum minnka vinnu kerfisstjóra er varðar rekstur prentara auk þess sem umhverfið var einfaldað og notendur fá betri þjónustu. ?Þetta samstarf hefur gengið alveg frábærlega.  Okkar utanumhald í kringum prentara er orðið hverfandi lítið ,hefur dottið nánast niður í ekki neitt, sem er að sjálfsögðu mjög þægilegt,? segir Jóhann.
Stafrænn myndsendir
Eins og að framan greinir, þá skipti Orkustofnun út bæði ljósritunarvélum og skönnum fyrir fjölnotatæki. Orkustofnun, Vatnamælingar og ÍSOR gefa út mikið af efni s.s.umsagnir, skýrslur,,- jarðhitarannsóknir, jarðfræði, efnagreiningar o.s.frv. Jóhann segir notendur núna auk þess að prenta út skýrslur geta skannað gögn inn og sent þau síðan með tölvupósti annað hvort á pdf, jpg eða gif formi á einfaldan hátt beint frá fjölnotatækunum. ?Þá geta þeir sent rafræn skjöl hvert sem er. Einnig eru hér tæki með innbyggðu faxi til enn frekari þæginda.?
Hver er ávinningurinn?
Jóhann sagði ávinning af alrekstri margþættan. ?Hér eru starfsmenn oft að vinna um helgar og utan hefðbundins vinnutíma. Við gefum út mikið af skýrslum og öðru útprentuðu efni. Áður stoppuðu þessir prentarar oft vegna almenns viðhalds, bilana eða þá að það vantaði til dæmis tóner. Þá þurfti að leita að því út um allan bæ,? segir Jóhann.  ?Nú eru þessi tæki alltaf í lagi og tilbúin og samkvæmt alrekstrar-samningnum þá eru Opin kerfi með ákveðinn lager af tóner hjá okkur, sem við kaupum ekki inn, heldur er geymdur á staðnum. Síðan greiðum við fyrir hverja blaðsíðu sem við prentum út. Þannig að uppitíminn á prenturum er orðinn nánast 100% auk þess sem kostnaðarvitund eykst.?
www.os.is
Jóhann Kristjánsson kerfisstjóri Orkustofnunar við HP fjölnotatæki sem þeir eru með á alrekstrar-samningi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Símkerfi á alrekstri
			<description><![CDATA[DHL skrifaði nýlega undir samning við Opin kerfi um alrekstur á símkerfi með þjónustuveri. Þegar kom að því að uppfæra símkerfið ákvað DHL að velja alrekstur hjá Opnum kerfum. Haukur Óskarsson, þjónustustjóri hjá DHL, sagði alrekstur hafa orðið fyrir valinu, þar sem DHL er alþjóðlegt fyrirtæki sem gerir miklar kröfur um uppitíma og góða þjónustu. ?Við þurfum að standa undir ströngum kröfum sem gerðar eru til okkar varðandi þjónustu í síma og því varð Cisco búnaður og sú þjónusta sem er í boði í alrekstri Opinna kerfa fyrir valinu.   
Innifalið í samningum er uppsetning, leiga á búnaði og almennur rekstur. 
Sjá www.dhl.is
Hafþór Hilmarsson og Margrét Ólafsdóttir frá Opnum kerfum og Haukur Óskarsson (lengst til hægri) frá DHL.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Alrekstur hjá Alfesca hf.
			<description><![CDATA[Alfesca er leiðandi fyrirtæki í sölu og markaðssetningu á tilbúnum réttum og hátíðarmat. Alfesca hf. rekur verksmiðjur í Frakklandi, Bretlandi og á Spáni. Alfesca hf. rak eigin tölvudeild þar til fyrir tæpum tveim árum þegar hluti af fyrirtækinu var seldur, þar á meðal tölvudeildin.  Samkomulag var um að tölvudeildin héldi þó áfram að þjónusta Alfesca þar sem þeir voru í sama húsnæði og fyrirtækin gátu samnýtt marga hluti.  
Völdum fyrirtæki sem sérhæfir sig í þessu
Að sögn Brynju Guðmundsdóttur forstöðumanns hagdeildar var farið á stúfana að leita að þjónustuaðila til að sjá um tölvumál Alfesca þegar þetta fyrirtæki flutti í annað húsnæði.  ?Það var aldrei inn í myndinni að ráða okkar eigin starfsmann.  Okkur fannst ekki annað koma til greina en að fá fyrirtæki sem sérhæfir sig í þessum málum,? segir Brynja.  ?Við völdum það að hafa allan búnað hjá okkur, þótt við hefðum getað úthýst netþjónum okkar til þjónustuaðila.  Við skoðuðum nokkur fyrirtæki og fyrir valinu varð Opin kerfi.?
Þjónustuaðili með breiðan hóp sérfræðinga
Brynja segir öll samskipti við Opin kerfi hafa verið til fyrirmyndar.  ?Við erum mjög ánægð með þjónustuna og okkar tengiliður hefur verið ótrúlega þjónustulipur.  Auðvitað hafa komið upp vandamál við það að koma starfandi fyrirtæki í nýtt tölvuumhverfi en ekki meiri en hefðu komið þótt við hefðum haft okkar eigin tölvudeild.  Sennilega minni þar sem okkar þjónustuaðili hefur breiðan hóp af sérfræðingum á bak við sig,? sagði Brynja að lokum.
Sjá: www.alfesca.is
Brynja Guðmundsdóttir, forstöðumaður hagdeildar Alfesca.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Technology Forum Houston 
			<description><![CDATA[HP Technology Forum ráðstefnan verður haldin í Houston, Texas, 18. - 21. september 2006 og verðum við að sjálfsögðu á staðnum.
HP Tecnology Forum er stærsta tækniráðstefna sem HP heldur fyrir viðskiptavini og samstarfsfyrirtæki. Hægt verður að skoða lausnir og sækja námskeið, auk þess að sitja fjölda fyrirlestra og kynnast hvernig fjárfesting í HP lausnum getur borgað sig. 
Um er að ræða stærstu HP tækniráðstefnu ársins með um 200 ,,hands-on-labs", yfir 400 ,,break-out sessions" og pallborðsumræðum. Að auki gefst frábært tækifæri til að kynnast þúsundum annarra starfsmanna í upplýsingatæknigeiranum. Kynntar verða ýmsar tækninýjungar. Sjá nánar á netslóðinni www.hptechnologyforum.com ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hvað er HP Total Care?
			<description><![CDATA[HP Total Care dregur saman alla þá þjónustu sem eigendum HP tölva er veitt, allt frá því að þeir eru að velja tölvuna og byrja að nota hana, út ábyrgðartíman og þangað til að þeir hætta að nota hana ? s.s. út líftíma tölvunnar.
Það má skipta þessu í 5 hluta:
1. Val á tölvum
a. Viðurkenndir HP söluaðilar auglýsa aðeins þá vöru sem er til og þá aðeins ?current? vörur, þ.e. eru ekki að reyna að koma út lager frá á fyrri arum. 
b. Vörulína HP er það breið að viðurkenndir HP söluaðilar geta auðveldlega aðstoðað við val á tölvu sem hentar þörfum hvers og eins. 
c. HP tölvur er auðvelt að fjármagna. Þú ert ekki bundinn við að skipta við einn banka frekar en annan, það er val hvers og eins hvernig hann/hún hyggst fjármagna tölvuna. 
d. HP tölvur fást um allt land. 
2. Notkun tölvunnar
a. Það er auðvelt að nálgast upplýsingar og leiðbeiningar varðandi uppsetningu og uppfærslur og stillingar tölvunni. Á þessum vef er mikið af handhægum upplýsingum og á þesssum vef geta HP notendur fengið frekari upplýsingar.
b. Með Öllum HP fartölvum fylgir HP Info Center hugbúnaður sem gefur upplýsingar um vél- og hugbúnað tölvunnar, inniheldur leiðbeiningar um notkun ýmissa tóla svo sem fingrafaralesara (þar sem það á við), Drive lock (einnig þar sem það á við) auk þess að veita auðveldan aðgang að hugbúnaðinum sem fylgir tölvunni.
c. HP notendur geta gerst áskrifendur að hugbúnaðar- og reklauppfærslum á þessum vef. Þá þarf ekki að vera alltaf að leita að reklum. Notendur geta skráð ÖLL HP tækin sín þarna og fengið sendar tilkynningar um uppfærslur.
d. Hægt að spjalla ?live? við HP tæknimann í gegnum heimasíðu HP.
3. Ábyrgðarmál
a. HP nx og nc fartölvur eru í þriggja ára ábyrgð (nx í evrópu og nc um allan heim). Einfalt mál ? þriggja ára ábyrgð. Þegar ábyrgðin er við það að renna út getur viðkomandi fartölvueigandi framlengt um eitt ár?..og eitt ár í viðbót (fimm ára hámarksábyrgð frá kaupdegi.)
4. Ábyrgðarþjónusta
a. Engar áhyggjur ábyrgð er óviðjafnanleg á íslenskum markaði (nc fartölvur). Tölvan tilbúin innan sólarhrings eftir að hún kemur á verkstæði ? annars lánum við tölvu. Tölvu skipt út komi upp vélbúnaðarbilun oftar en tvisvar.
b. Góð samskipti við HP, stór varahlutalager, Hraðsendingar á varahlutum frá HP, vottaðir og færir tæknimenn ? allt þetta leiðir til þess að ábyrgðarþjónusta fer fram á skjótan hátt.
c. Það er ekki tekið sérstakt þjónustugjald fyrir símtöl.
5. Out-of-warranty þjónusta
a.  Auðvelt að sækja þjónustu, bæði tæknilega þjónustu og notendaþjónustu, ýmist á heimasíðu HP eða hjá þjónustuaðila HP.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Skólarnir velja HP dx5150 borðtölvu
			<description><![CDATA[HP dx5150 borðtölvan hefur verið valin í fjölmarga skóla hér á landi. Við ákváðum að heyra í kerfisstjórum skólanna og kanna af hverju þessi tölva varð fyrir valinu.
Grundaskóli á Akranesi
Elís Þór Sigurðsson er kerfisstjóri  Grundaskóla á Akranesi, en þeir völdu HP dx5150 borðtölvur þegar þeir endurnýjuðu um þriðjung tölva skólans á dögunum. ?Við buðum út tölvurnar og fengum fjögur formleg tilboð og tókum hagkvæmasta tilboðinu,? segir Elís. ?Hagstæðasta tilboðið var ekki endilega það lægsta, en við mat er tekið tillit til verðs og gæða.?  ?Við erum með í skólanum um 140 tölvur og skiptum út þriðjungi á hverju ári,? segir Elís en skólinn er með búnaðinn á fjármögnunarsamningi. Hann segir það koma mun betur út, auk þess að geta skipt búnaðinum út eða keypt hann á hrakvirði í lok tímabilsins. Hann segir dx5150 borðtölvuna koma mjög vel út. ?Miðað við verð býður hún upp á marga möguleika, er létt og virkar mjög vel.? 
Borgarhólsskóli á Húsavík
Borgarhólsskóli á Húsavík var einnig að endurnýja borðtölvur skólans. Óskar Birgisson, kerfisstjóri skólans segir ástæðu þess að þeir völdu HP dx5150 vera þá að þeir hefðu mjög góða reynslu af HP tölvum. ?Við leituðum víða, en höfum áður verið með HP tölvur og höfðum góða reynslu af þeim,? segir Óskar. ?Við vildum auk þess vera áfram í fjármögnun. Við ákváðum því að halda okkur við búnað sem við þekkjum,? segir Óskar.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
Nemendur í Flensborgarskólanum í Hafnarfriði munu einnig sjá nýjar HP dx5150 borðtölvur í haust. Axel P. Gylfason kerfisstjóri í Flensborg, segir aðalkost HP vera þjónustan. ?Það er gott að skipta við fyrirtæki sem er nógu stórt til að bregðast við ef eitthvað kemur upp.  Þessi stærðarhagkvæmni og breitt vöruúrval skiptir mjög miklu máli, auk þess sem ég vil helst hafa sem einleitasta umhverfi,? segir Axel. ?Þessi borðtölva smellpassar í umhverfið og að sjálfsögðu skipta vörugæðin miklu máli.? 
Um HP dx5150
HP dx5150 er öflugur valkostur fyrir flest fyrirtæki og stofnanir enda um afkastamikla og hljóðláta tölvu að ræða sem tekur lítið pláss vegna hönnunar sinnar. Tölvan er búin öflugum AMD Athlon 64bit örgjörva og er því búin undir næstu næstu kynslóðar 64bit hugbúnað. Með tölvunni fylgir einnig HP Protect Tools sem er blanda af vélbúnaðar og hugbúnaðarlausn sem eykur öryggi tölvu og gagna.
			<author>ok@ok.is</author>
Ný fartölvulína frá HP Compaq
			<description><![CDATA[Ný fartölvulína frá HP Compaq kom á markað nú í ágúst. Um er að ræða níu mismunandi gerðir fartölva. HP Compaq nx línan hentar vel fyrir minni fyrirtæki og heimili, og HP Compaq nc og nw fartölvulínan, fyrir stærri fyrirtæki og kröfuharða notendur.
Ýmsar nýjungar er að finna í nýju línunni og má þar helst nefna nýja örgjörvatækni en nánast allar vélarnar eru nú búnar Intel Core Duo örgjörvum ásamt því að allar vélarnar hafa nú SATA diskstýringu fyrir hörðu diskana.
Öryggi hefur verið aukið til muna, sér í lagi í nc línunni. Nánast allar nc fartölvurnar hafa nú TMP öryggiskubb ásamt tengingu við harða diskin, fingrafaralesara og Smart Card lesara. Hægt að að læsa nc fartölvunum á allt að fimm mismunandi vegu samtímis.
Nú er fáanleg í HP Compaq nx línunni glæsileg fartölva með 17? skjá og lyklaborð í fullri stærð og með talnaborði. Frábær fartölva hvort sem er í fyrirtækjavinnslu sem arftaki borðvélar eða sem heimilis-, skóla- og fartölva til að spila tölvuleiki á.
Öll nýja fartölvulínan ber að sjálfsögðu þriggja ára ábyrgð, nx línan með þriggja ára Evrópuábyrgð og nc/nw með þriggja ára alþjóðlegri HP ábyrgð.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Tölvuvæðing skóla á Seychelleseyjum í Afríku
			<description><![CDATA[Opin kerfi tóku þátt í samstarfi íslenskra fyrirtækja, Námsgagnastofnunar og UNESCO um að gera börnum og kennurum á Seychelleseyjum í Indlandshafi kleift að nota tölvur í námi. Verkefnið hófst síðasliðinn vetur og nú þegar hafa verið settar upp tölvur í fimm skólum eða alls tæplega 100 tölvur af þeim 230 sem sendar voru. Tölvurnar eru gjöf hafnfirskra barna til seychelleskra barna.
Aðdragandi þessa verkefnis er sá að Guðmundur Hólmsteinsson starfsmaður Íslenskra aðalverktaka fór til Seychelleseyja með eiginkonu sinni fyrir tveimur árum og varð mjög hrifinn af staðnum. ?Við fórum aftur ásamt 13 ára dóttur okkar sl. nóvember og þar sem hún hafði fengið frí í skólanum heima og fékk hún leyfi til að sitja í tvo daga í skóla á eyjunni. Ég bað um að fá að skoða tölvuverið í skólanum en þetta er 800 manna skóli. Í tölvuverinu voru sex gamlar tölvur og aðeins ein virkaði,? segir Guðmundur en hann vinnur í tölvudeild Íslenskra aðalverktaka. ?Ég frétti að vegna gjaldeyrisskorts væri ekki áætlað að skipta út tölvunum eða kaupa nýjar. Þá fór ég að velta því fyrir mér hvort ekki væri hægt að senda notaðar tölvur frá Íslandi til eyjanna, því ég veit að oft þarf ekki að uppfæra mikið  eldri tölvur til að koma þeim aftur í gott horf.? Guðmundur fundaði síðan með fulltrúa menntamálaráðherra Seychelleseyja sem leist vel á hugmyndina og bað um að formlegu sambandi milli ráðuneyta yrði komið á, sem var gert og var utanríkisráðuneytið hér heima Guðmundi innan handar. 
Börn í Hafnarfirði gefa börnum í Seychellseyjum tölvurnar sínar
Þegar Guðmundur kom heim hafði hann samband við Opin kerfi og þá vildi svo vel til að Hafnarfjarðarbær var að endurnýja allar tölvur í skólum og á skrifstofum. ?Við fengum frá þeim um 350 tölvur og af þeim voru um 200 mjög góðar og nothæfar,? segir Guðmundur. ?Hugmyndin er sú að börnin í Hafnarfirði eru að gefa börnunum á Seychellseyjum tölvurnar sínar, við erum bara milliliðir.? 
Tæknimenn frá Íslandi sáu um uppsetningar
Að sögn Guðmundar voru tveir gámar með um 230 tölvum voru komnir til Seychelleseyja þegar tæknimennirnir mættu þann 29. maí sl. ?Búið var að koma tölvunum fyrir í húsnæði menntamálaráðuneytis eyjanna og hófst vinna við uppsetningu í fimm fyrstu skólana strax daginn eftir.? Auk Guðmundar voru í uppsetningarhópnum Örn Svavarsson tæknimaður frá Opnum kerfum, Margeir Reynisson frá Hafnarfjarðabæ, Halldór Guðmundsson frá Skýrr, Valgeir Ólafsson frá Microsoft og Erik Ágústsson frá ÍAV.  Hópnum til aðstoðar voru starfsmenn ráðuneytisins og gengu uppsetningar og tengingar vonum framar. ?Á fjórum dögum náðum við að klára 4 skóla með 16-18 tölvur í hvern skóla. Sá fimmti er á eyjunni Praslin, um klukkustundarlöng sigling frá Mahe sem er stærsta eyjan og var þeirri vinnu lokið 6. júní. Seinni vikan fór síðan í að þjálfa innlenda tæknimenn í að viðhalda tölvunum og sjá um áframhaldandi uppsetningu í skólum.?
Athöfn á degi barnanna
Á degi barnanna, ?Children?s day? 1. júní, var athöfn í grunnskólanum í Port Glaud sem er sá skóli sem er lengst frá höfðuborginni Victoria og því valinn til að vera sá fyrsti til að fá tölvur.  Menntamálaráðherra Mr. Danny Faure sagði við þá athöfn að þetta væri sögulegur dagur fyrir þjóðina og þakkaði stuðningsaðilum sérstaklega fyrir aðstoðina. Guðmundur afhenti ráðherra tölvurnar formlega ásamt bók um Hafnarfjörð áritaðri af bæjarstjóra Hafnarfjarðar, Lúðvík Geirssyni.
Frá lítilli eyju í norðri
?Þessi aðstoð okkar við þessa litlu þjóð er þeim mjög mikilvæg. Ekki bara það að fá þennan búnað fyrir börnin sem ekki stóð til að fengju tölvur í sína skóla á næstu árum heldur líka vegna þess að þessi sending kemur frá lítilli eyju í norðri sem þeir varla vissu að væri til.  Stofnuð hafa verið samtök til að sinna þessu verkefni áfram og kallast þau Þróunarsamvinnufélag Íslands og Seychelles eða ?Iceland Seychelles Development Group,? segir Guðmundur.  Menntamálaráðherra Seychelles, Mr. Danny Faure og hann undirrituðu viljayfirlýsingu um áframhaldandi stuðning okkar við tölvuvæðingu grunnskóla eyjanna. 
Síðar á þessu ári fer næsti hópur til að þjálfa þarlenda kennara í notkun tölva við gerð kennsluefnis. Hildigunnur Halldórsdóttir frá Námsgagnastofnun mun leiða þá vinnu og fær til liðs við sig valda kennara frá Hafnarfirði og Reykjavík. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP lækkar rekstrarkostnað
			<description><![CDATA[Hægt er að ná fram verulegum sparnaði með nýrri kynslóð HP BladeSystem. Með kerfinu má spara pláss, kæli- og rekstrarkostnað. Þannig fæst mun betri nýting vinnslutíma, 
minni viðhaldskostnaður og öll umsýsla verður einfaldari. Það er fróðlegt að hugsa til þess að menn eyða iðulega 80% af fjárhagsáætluninni fyrir tölvukerfi, í rekstur þeirra, en ekki nema 20% í tölvukaup. Rekstrarkostnaðinn, sem er talinn í vinnustundum og beinhörðum peningum, má m.a. rekja til allra þeirra viðbóta, breytinga, uppfærslna, lagfæringa, viðhalds og nýbreytni innan upplýsingatæknigeirans, sem stöðugt verður vart. Nú má með óverulegum upphafskostnaði kaupa HP BladeSystem og lækka rekstrarkostnað verulega.
Hagræðing, skilvirkni, einföldun
?Þegar litið er til þess hvað það þarf að verja miklum tíma og fé í grundvallarþætti kerfa, svo sem endurbætur, eftirlit og uppsetningu, sjá menn í hendi sér að það er enginn tími aflögu til að innleiða nýjan hugbúnað og þjónustu til að efla fyrirtækið. Þar kemur HP til sögunnar. Með blade-tækni HP, sem felst í skynsamlegri einingahönnun, snýst dæmið við? segir Gunnar Þór Friðleifsson, viðskiptastjóri hjá Opnum kerfum. 
Fyrir fyrirtæki sem leitast í sífellu við að veita skilvirkari þjónustu, með minni tilkostnaði og hagræðingu í huga, er hin nýja kynslóð HP BladeSystem svarið. HP er leiðandi í þróun og framleiðslu blade-kerfa. Með tilkomu þess hefur tækni- og tölvuumhverfi jafnt stórra sem lítilla fyrirtækja einfaldast og skilvirkni aukist fyrir tæknimenn, viðskiptavini og stjórnendur. 
Endalausir möguleikar í einingum
BladeSystem er uppbyggt af einingum sem auðvelt er að bæta við. Í BladeSystem má finna netþjóninn (server-blade), gagnageymsluna (storage-blade, sem er nýjung), afl og kælieiningar, tengibúnað á borð við LAN, SAN og Infiniband og innbyggðan stjórnbúnað sem býður  umsjónarmanni uppá fjarræna stjórnun (virtual KVM og iLO2) sem gerir kleift að breyta einingum og uppfæra þær t.d. í gegnum vafra og þarf ekki lengur að vera staðnum.
?HP BladeSystem er uppbyggt af einingum sem auðvelt er að bæta við. Það mætti líkja því við skjalaskáp sem hægt er að bæta í gagnamöppum eða jafnvel sjálfskeiðung með ýmiss konar hagnýtum áhöldum og verkfærum. Ekki þarf að kalla á utanaðkomandi sérfræðinga til verksins þegar búið er að setja kerfið upp,? segir Gunnar.
HP BladeSystem stæðan inniheldur tengingar fyrir LAN og SAN á sama stað sem sparar mikinn tíma og umstang þegar nýjum netþjónum er bætt við kerfisumhverfið. Einnig getur hún séð um að hýsa öll gögnin og ef álag eykst er auðvelt fyrir kerfisstjóra að bæta við minni, úthluta geymslurými og auka pláss eftir þörfum í miðlæga stýrihugbúnaðinum. 
Allt á einum stað
?Forsvarsmenn HP gera sér grein fyrir því að allir þættir kerfisins, eins og LAN og SAN, verði að vinna vel saman. Þættir kerfa eru oft samofnir og geta því verið viðkvæmir fyrir breytingum hvers annars. Þess vegna hefur HP einfaldað tengingar inn í BladeSystem þannig, að hægt er að úthluta sýndartengingum til einstakra blaða innan hennar. Höfuðverkir kerfisstjóra vegna snúra heyra því sögunni til, þar sem BladeSystem gerir allar tengingar miðlægar. Það má bæta því við að hönnun kerfisins hefur tilfinnanlega leitt til lægri kostnaðar en hefðbundnar rekkalausnir,? segir Gunnar og bætir því við að ekki þarf lengur að tengja hvern netþjón fyrir sig við Ethernet, SAN, eða önnur tengikerfi, heldur úthluta kerfisstjórar sýndartengingum úr stýrihugbúnaði. BladeSystem notar líka hina nýju HP Thermal Logic tækni sem þarfnast minna rafmagns en áður. Þá er rétt að benda á að með HP Active Cool og PARSEC tækninni eykst kæligeta á sama tíma og útgjöld vegna kælikostnaðs minnka. Þessi samþjöppun er ný af nálinni því BladeSystem sameinar á einum stað netþjón, gagnageymslu, netbúnað, afl/kælingu og stjórnbúnað.
Vissir þú?
*Fyrir hver 2 vött af orku búnaðar þarf 1 vatt af kælingu
*Hvert blað á HP BladeSystem er að nota u.þ.b. 100 vött minna enn sambærilegur rekka netþjónn
*HP býður StorageBlade fyrir BladeSystem
Hluti af Blade teymi Opinna kerfa, frá vinstri: Hjalti Ævarsson, Arnar Þór Kjærnested og Gunnar Þór Friðleifsson. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ný útgáfa á Rekstrarhandbók OR kynnt
			<description><![CDATA[Rekstrarhandbók OR, sem Opin kerfi selja í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, hefur fengið verðskuldaða athygli á þessu ári. Notendum hefur fjölgað ört og sífelt fleiri leyta til Opinna kerfa eftir lausnum til að halda utan gæðaskjöl og gæðamál. Í apríl kom út uppfærsla á Rekstrarhandbókinni og af því tilefni bauð Opin kerfi notendum Rekstrarhandbókarinnar til veislu þar sem nýjungarnar voru kynntar og vorkomu fagnað. 
Ein af nýjungunum er auknin sveigjanleiki í framsetningu gæðahandbóka. Hægt er sem dæmi, að skipta handbókinni niður á svið fyrirtækis eða verkefni, allt eftir óskum hvers fyrirtækis. Lausnin er því orðin mjög sveigjanleg og uppfyllir samt sem áður þær krörfur sem gæðastaðlar gera til slíkra kerfa. 
Flestar nýjungarnar, sem eru í uppfærslunni, eiga upphaf sitt hjá viðskiptavinum. Auðvelt er að bæta við virkni handbókarinnar og hafa mörg fyrirtæki nýtt sem þann sveiganleika til þess að aðlaga lausnina betur að rekstri sínum. Opin kefi eru mjög þákklát góðum viðbrögðum markaðarins og mun halda áfram að þróa Rekstarhandbók OR í samvinnu við Orkuveitu Reykjavíkur og bjóða Íslenskum fyrirtækjum lausnir til gæðastjórnunnar.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Góð þjónusta vegur þungt
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. var valið besti ?Premier? samstarfsaðili Cisco Systems í Norður-Evrópu. Ánægja viðskiptavina vegur þungt í valinu, ásamt færni og þekkingu starfsmanna. Um 80% alls netbúnaðar á Internetinu er frá Cisco.
Opin kerfi ehf. hafa verið útnefnd ?Premier Partner of the Year?, eða besti samstarfsaðili Cisco Systems í Norður-Evrópu. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnu sem haldin var í San Diego fyrir alla samstarfsaðila fyrirtækisins. 
Árlega velur Cisco Systems þá samstarfsaðila sína í hverju landi sem þótt hafa skarað fram úr að einu eða öðru leiti og tilnefnir þá til þessarar viðurkenningar, sem síðan er veitt í hverjum heimshluta. Ánægja og tryggð viðskiptavina er einn veigamesti þátturinn í valinu, en margir aðrir þættir koma þó einnig til, þar á meðal eru söluaukning og þekking og færni starfsmanna. Opin kerfi eiga stóran hóp tryggra viðskiptavina sem þeir þakka samstarfið og vonast eftir áframhaldandi ánægjulegri samvinnu. 
80% netbúnaðar á Internetinu frá Cisco
Netkerfi eru í dag mikilvægur hluti af viðskiptalífi, námi, stjórnsýslu og nánast öllum þáttum hversdagslífsins. Þau tengja saman land við land, hús við hús, og tölvu við tölvu. Netlausnir Cisco tengja fólk, tölvur og tölvunet svo aðgangur fáist að upplýsingum og hægt sé að miðla þeim óháð stund, stað og tölvukerfum. Internetið er dæmi um slíkt netkerfi sem allir þekkja og nota.
Cisco Systems hafa frá því fyrsta varan var sett á markað fyrir 20 árum verið leiðandi í hönnun og framleiðslu netbúnaðar fyrir Internetið og eru Cisco Internet Protocol (IP) netkerfin grunnur að uppbyggingu slíkra kerfa. Nú er svo komið að 80% alls netbúnaðar á Internetinu er frá Cisco. 
Netbúnaður, hugbúnaður og þjónustuleiðir Cisco miða að því að auka framleiðni, bæta þjónustu og auka samkeppnishæfni viðskiptavinarins. Hvort sem byggja á upp eigið heildarkerfi upplýsinga eða tengjast netum annarra, býður Cisco Systems lausnina. Með áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavinarins býður Cisco Systems sérsniðin kerfi fyrir jafnt einstaklinga, fyrirtæki og ríkisstjórnir. Cisco nafnið er í dag lagt til jafns við Internetið sem og þá framleiðni aukningu sem Internet lausnir leiða af sér.
Áhersla á Cisco lausnir skilar sér í góðum árangri
?Cisco og Opin kerfi eiga langt samstarf að baki. Á þessu ári hafa Opin kerfi lagt mikla áherslu á Cisco lausnir og er það að skila sér í góðum árangri. Með þessari viðurkenningu viljum við þakka Opnum kerfum fyrir að hafa lagt aukna áherslu á Cisco,? sagði Andy Lockhart, aðstoðarforstjóri Cisco í Norður-Evrópu við veitingu verðlaunanna.
Hluti af samskiptalausnahópi Opinna kerfa: 
Neðst f.v.: Benedikt Gröndal, Þorsteinn Einarsson, Hans Pétur Jónsson, Katarina Sebic Coti, Einar Ólafur Birgisson og Einar Gylfason. Miðröð f.v.: Hafþór Hilmarsson, Áki Rúnar Sigurðsson og Kristján Þórðarson. Efst f.v.: Guðbjarni Guðmundsson,  Markús E. Pétursson og Jóhann Þór Guðnason.
Frá vinstri: Hans Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri Sölusviðs, Agnar Már Jónsson, forstjóri, og Benedikt Gröndal, forstöðumaður Samskiptalausna, frá Opnum kerfum ehf.
			<author>ok@ok.is</author>
Betri nýting með VMware sýndarþjónum
			<description><![CDATA[Fyrirtæki landsins eru alltaf að leita leiða til að hagræða í rekstri tölvukerfa sinna. Tilgangur VMware hugbúnaðarins er að nýta þann tölvubúnað sem til staðar er í fyrirtækjum enn betur og gera alla umsýslu auðveldari.
Margir reka sig á það að vera með fjöldann allan af netþjónum í notkun en í raun nýta einungis um fjórðung af reiknigetu, minni eða diskplássi þeirra. Með VMware tækninni er hægt að setja saman sýndarþjóna til að hámarka notkun hvers netþjóns.
Sparar vinnu og tækjabúnað
Staðlað umhverfi er almennt talið eftirsóknarvert og því er umhverfi sýndarþjónanna mjög áþekkt, hvað varðar tegund vélbúnaðar. Þess vegna geta kerfisstjórar auðveldlega fært sýndarþjóna yfir á öflugri eða veikari þjóna, allt eftir þörf, án þess að þurfa að enduruppsetja stýrikerfi eða þjónustur. Með þessu má spara mikla vinnu og tíma.
Klösunarkostir
Klösunarkostir VMware eru mjög háþróaðir og gera kerfisstjórum kleyft að færa keyrandi sýndarþjóna á milli VMware þjóna án þess að notendur verði yfir höfuð varir við það. Þessi tækni er kölluð VMotion og tekur hver flutningur innan við 10 sekúndur. Þetta getur nýst mjög vel ef til þess kemur að þurfi að uppfæra einn af VMware þjónunum eða upp kemur vélbúnaðarbilun.
Snapshot tækni
VMware getur hraðað uppsetningu nýs kerfis umtalsvert eftir hamfarir og eða gagnatap. Þetta er gert með svokallaðri snapshot tækni þar sem tekið er afrit af keyrandi sýndarþjóni. Afritið má svo setja í gang á hvaða vélbúnaði sem er með VMware ESX þjóni. Þetta kemur í veg fyrir þörfina á að útvega þurfi nákvæmlega samskonar vélbúnað.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Straumur-Burðarás velur Microsoft Dynamics CRM
			<description><![CDATA[Straumur-Burðarás fjárfestingarbanki hefur tekið í notkun Microsoft CRM fyrir starfsmenn fjárstýringar en því sviði stýrir Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir. Microsoft CRM mun auðvelda alla umsýslu viðskiptatengsla og má þar nefna tölvupóst og símtöl. Þau völdu einnig CardScan for Microsoft CRM en sú lausn flýtir fyrir innslætti á nýjum viðskiptavinum þar sem aðeins þarf að skanna inn nafnspjald viðskiptamanns og upplýsingarnar flæða beint í Microsoft CRM.
Innleiðingin tók skamman tíma og þurfti lágmarks þjálfun þar sem Microsoft CRM birtist í þeirra Outlook og það kunnulega umhverfi notað við t.d. tölvupóst.
Ráðgjafi Opinna kerfa við innleiðingu hjá Straum-Burðarás var Sigurjón P. Kolbeins.
Svanhildur Nanna Vigfúsdóttir, Fjárstýringarsviði Straums- Burðarás og Sigurjón P. Kolbeins ráðgjafi á Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Heildsölusvið Opinna kerfa 10 ára 
			<description><![CDATA[Heildsölusvið Opinna kerfa kynnti starfsemi sína og nýundirritaðan samning við Microsoft á dögunum.   Pétur Bauer framkvæmdastjóri heildsölusviðs kynnti þær breytingar sem hafa orðið á sviðinu síðustu misseri.  
Tveir nýir starfsmenn voru kynntir, þeir Kristinn Helgason sem sér um innkaup og vörustjórnun á samskiptabúnaði og Andrés Karl Sigurðsson, sem er vörustjóri á viðskiptalausnum Opinna kerfa. Arnar Þór Kjærnested sem var vörustjóri viðskiptalausna flyst yfir á Sölusvið Opinna kerfa.
Mikill vöxtur á 10 árum
Árið 1996 stofnaði Agnar Már Jónsson, nú forstjóri Opinna kerfa ehf. heildsölusviðið og tók Pétur Bauer við þeim rekstri vorið 1997.  Heildsölusvið Opinna kerfa er 10 ára á þessu ári og hefur það dafnað verulega á þessum tíma. 
Umboðsaðilar heiðraðir
Fjórir umboðsaðilar sem hafa verið traustir viðskiptavinir heildsölunnar frá upphafi voru heiðraðir við þetta tækifæri, þeir Björn Ingi Pálsson, Samhæfni ? tæknilausnir, Gunnar Björn Þorteinsson, Tölvu- og rafeindaþjónustu Suðurlands (TRS), Magnús Már Kristinsson, Tölvu- og tækniþjónustan og Einar Jónsson, Tölvuþjónustu Akraness.  Samstarf þeirra við Opin kerfi hefur verið á mjög breiðum grunni og hafa þeir innleitt margar nýjungar frá Hewlett-Packard á þessu tímabili. Starfsfólk Opinna kerfa þakkar þeim fyrir yfir 10 ára farsælt samstarf.
HP Carepack
Einnig kynnti Mette Simmini frá Hewlett-Packard Danmörku þjónustulausnir HP CarePack.  Það hefur færst í aukana að viðskiptavinir HP vilja tryggja sér lengri uppitíma og áreiðanleika og með CarePack tryggir HP viðskiptavinum okkar betri arðsemi og nýtingu á þeim vörum sem þeir eru að kaupa eða hafa keypt.
Samstarf við Microsoft
Í lokin fóru Guðmundur Aðalsteinsson, Small Business Manager, og Elvar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri, frá Microsoft á Íslandi yfir þær breytingar sem urðu á dreifingu Microsoft hugbúnaðarleyfa á Íslandi í apríl sl. og samstarfið í gegnum umboðs- og endursöluaðila Opinna kerfa.
Umboðsaðilar heiðraðir, frá vinstri Einar Jónsson, Tölvuþjónustu Akraness, Pétur Bauer framkvæmdastjóri Heildsölusviðs OK, Björn Ingi Pálsson, Samhæfni ? tæknilausnir, Gunnar Björn Þorteinsson, Tölvu- og rafeindaþjónustu Suðurlands (TRS) og  Magnús Már Kristinsson, Tölvu- og tækniþjónustan.
Mette Simmini frá HP, kynnti HP Carepack. 
Guðmundur Aðalsteinsson og Elvar Þorsteinsson frá Microsoft á Íslandi og Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Allt fyrir heimilið undir einu þaki
			<description><![CDATA[Hagnýt og falleg hönnun á lágu verði er helsta markmið þegar kemur að framleiðslu IKEA húsbúnaðar.  Meginmarkmið IKEA er að gera daglegt líf fólks þægilegra.  Hjá IKEA er að finna margvíslegar lausnir á mismunandi þörfum. 
IKEA endurnýjaði nýlega prentlausnir fyrirtækisins og urðu HP prentarar fyrir valinu. Að sögn Guðna Más Þorkelssonar, yfirmanns tölvudeildar IKEA var meginástæða fyrir kaupunum uppbygging á nýrri verslun IKEA sem nú rís við Urriðaholt í Garðabæ.
?HP DesignJet 5500PS plotterinn ætlum við að nota í útprentun á öllum stærri skiltum fyrir verslunina, bæði ljósmyndir, grafík og texta.  Þetta er aðallega til þess að koma til skila vöruupplýsingum til viðskiptavina okkar, myndaskilti fyrir veitingastaðinn en einnig skilti varðandi hugmyndafræði IKEA og fleira í þeim dúr,? segir Guðni.
Guðni sagði þau ætla að nota HP Color LaserJet 9500N prentarann til að prenta út alla uppsetningu á nýju versluninni þar sem hver einasti sentimetri hefur nú þegar verið skipulagður.  ?Þetta eru meðal annars teikningar settar upp í AutoCad og tengdum forritum sem þarf að prenta út og nota við uppsetningu verslunarinnar.  Einnig komum við til með að nota þennan prentara til útprentunar á öllu innanhússefni fyrir verslunina svo sem vöruupplýsingar, uppsetningaleiðbeiningar og fleira í stærðinni A3 og minna.?
www.ikea.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP StorageWorks Data Protector Express ProLiant Edition 
			<description><![CDATA[? fylgir með HP ProLiant netþjónum
HP StorageWorks Data Protector Express Single Server Edition er hluti af HP StorageWorks afritunarlausnunum.  Data Protector Express Single Server Edition er öflugur hugbúnaður sem er auðveldur í notkun og tryggir örugga afritun á HP afritunarstöðvar.  Fyrir notendur með einn netþjón og útstöðvar skilar Data Protector Express Single Server Edition öruggri afritun á auðveldan hátt.  
Hugbúnaðurinn kemur með Data Protector Express Bare Metal Disaster Recovery sem er með fullan stuðning við HP Tape One Button Disaster Recovery (OBDR).  OBDR er fljótlegasta leiðin til að endurheimta rekstarumhverfið í rétt horf, stýrikerfi og forrit, og þarf einungis afritun af spólunni til að fara í enduruppsetningu.  Fyrir notendur með stærra umhverfi býður HP hagkvæmar uppfærsluleiðir til þess að tryggja að umhverfið sé öruggt og endurheimtanlegt á auðveldan og öruggan hátt.
HP StorageWorks Data Protector Express ProLiant Edition er  hluti af HP ProLiant lausnum sem nú býðst nýjum og núverandi HP ProLiant eigendum án endurgjalds. Hugbúnaðurinn sem byggir á Data Protector Express og inniheldur marga möguleika þess, skilar afritum á disk eða DVD/CD. Með þessu er ProLiant notendum gefinn möguleiki á að skila á auðveldan hátt afritum af stýrikerfi og gögnum með nýrri Virtual Tape Library tækni. Notendur sem þurfa afrit á spólu geta nýtt sér uppfærslu í Data Protector Express Single Server Edition sem er auðveld og fylgir sú uppfærsla frítt með HP afritunarlausnum
Nánari upplýsingar veitir Arnar Þór Kjærnested á sölusviði Opinna kerfa í s: 570-1000 eða arnar@ok.is ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
EVA til Þekkingar
			<description><![CDATA[Þekking á Akureyri tók nýlega í notkun nýja EVA samstæðu fyrir starfsemina á Akureyri. Að sögn Karls Ingimarssonar, sviðsstjóra rekstrarsviðs Þekkingar varð EVA fyrir valinu, þar sem hún hentar mjög við við HP-UX umhverfi fyrirtækisins og diskahögun í EVA stæðunni hentar vel fyrir Oracle grunnana hjá þeim.
Keyra Concorde/Oracle á stæðunni
Um er að ræða EVA 6000 með 4 diskahillum og diskahögun miðast við að hámarka hraða og öryggi viðskiptavina þekkingar. ?Gamli búnaðurinn samanstóð af eldri HP diskalausn, mun hægari diskaboxum og minni hægvirkari diskum,? segir Karl en Þekking er að keyra Concorde / Oracle á EVA stæðunni.
Uppsetning gekk vel
Að sögn Karls gekk uppsetningin mjög vel.  ?Við vorum að taka í notkun nýjan fullkominn tölvusal hér hjá Þekkingu Akureyri og var nýja diskastæðan fyrsti vélbúnaðurinn sem fór inn í salinn.  Tæknimenn frá Opnum Kerfum settu stæðuna upp yfir nótt og viðskiptavinir urðu ekki varir við neinn niðri tíma,? segir Karl.
www.thekking.is
Mynd: Myndrún ehf.
Karl Ingimarsson, sviðsstjóri rekstrarsviðs Þekkingar við HP EVA stæðuna.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Þráðlaus höfuðheyrnartól í þjónustuveri Glitnis
			<description><![CDATA[Á dögunum endurnýjaði þjónustuver Glitnis höfðuðheyrnartól fyrir starfsmenn sína eða samtals um 55 stk.. Fyrir valinu urðu þráðlaus höfuðheyrnartól af gerðinni GN9120. Þessi höfuðtól þykja einkar þægileg og meðfærileg og eru auk þess með míkrófón sem eyðir umhverfishávaða þannig að viðmælandinn verður lítið var við það þó að erlinn sé í kringum þann sem er að tala í höfuðtólið. 
GN9120 höfuðheyrnartólin eru næsta kynslóð af þráðlausum höfuðtólum frá GN. Þau styðjast við DECT þráðlausa staðalinn og eru með 50-300 metra drægni sem fer eftir aðstæðum. GN9120 bjóða upp á allt að 8 klst. rafhlöðuendingu. 
Höfuðtólin þykja einkar létt og meðfærileg og hægt er að velja um þrjár gerðir af þeim. Flex-Boom gerðin kemur með hljóðnema sem eyðir umhverfishljóði og hentar vel aðstæðum þar sem er t.d opið vinnurými starfsmanna, Midi-boom er með einfaldari gerð af umhverfishljóðnema og Micro-boom er með stefnuvirkum hljóðnema sem hentar best í minni skrifstofur og svæði þar sem er ekki mikill umgangur. 
Helstu eiginleikar:
Hægt er að hlaða rafhlöðuna í geymslustandinum
Gaumljós fyrir rafhlöðuhleðslu
Gaumljós ef verið er að tala í höfuðtólið
Hægt skipta á milli símtóls og höfuðtóls með einum hnappi
Passar á eyra eða yfir höfuð
Drægni 50m - 300m
Hægt er að hækka eða lækka í höfuðtóli með einum hnappi
8 tíma taltími
Hægt að fá hljóðnema sem eyðir umhverfishávaða]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
MEST tekur í notkun HP -Blade netþjóna
			<description><![CDATA[MEST er framsækið framleiðslu- og þjónustufyrirtæki á byggingamarkaði sem hefur það markmið að bjóða viðskiptavinum sínum verðmætar heildarlausnir. Hjá MEST starfa um 160 manns á 6 starfsstöðvum.
?Vegna aukinna umsvifa MEST síðustu misseri var nauðsynlegt að fara yfir tölvukerfi fyrirtækisins og leita að lausn sem myndi tryggja aukin afköst, áreiðanleika og sveiganleika til framtíðar,? segir Kristján Þór Ingvarsson, deildarstjóri upplýsingatækni hjá MEST.
MEST leitaði til Opinna kerfa um slíka lausn enda hefur fyrri reynsla af búnaði og þjónustu frá Opnum kerfum verið til fyrirmyndar.
Fyrir valinu urðu HP BL25p BLADE netþjónar og MSA diskabox. Búið er að taka fjóra netþjóna í notkun en hægt er að stækka kerfið um fjóra netþjóna til viðbótar í sama (blaða)boxi. Kerfið er einnig byggt upp tvöfalt til að auka rekstraröryggi. MEST hefur einnig gert þjónustusamning við Opin kerfi til að tryggja öruggan aðgang að tæknimönnum þegar á þarf að halda.
Frá vinstri: Oddur Ragnar Þórðarson Sölusviði Opinna kerfa og Kristján Þór Ingvarsson, deildarstjóri upplýsingatækni hjá MEST.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Betri þjónusta og aukinn valkostur
			<description><![CDATA[Heildsala Opinna kerfa dreifir Microsoft hugbúnaði:
Heildsala Opinna kerfa hefur fengið leyfi Microsoft Íslandi til að dreifa Microsoft hugbúnaði hér á landi með nýju fyrirkomulagi sem ekki hefur verið í boði á Íslandi áður. Fyrirkomulagið hefur verið kallað ?sub-distribution? á ensku og mætti kalla undirdreifikerfi á íslensku. 
Þetta fyrirkomulag gengur út á að Heildsala Opinna kerfa getur keypt hugbúnað og hugbúnaðarleyfi af bæði íslenskum og erlendum dreifingaraðilum sem eru með beinan samning við Microsoft og dreift til endursölufyrirtækja hér á landi. Hingað til hefur öll dreifing Microsoft hugbúnaðar á Íslandi farið í gegnum einn íslenskan dreifingaraðila sem er með beinan samning við Microsoft. Endursölufyrirtækin sem geta nú nýtt sér þessa auknu þjónustu Heildsölu Opinna kerfa eru öll smásölufyrirtæki, auk skráðra samstarfsaðila Microsoft sem bjóða sölu og þjónustu á Microsoft hugbúnaði og svokallaðra sérfræðinga á smáfyrirtækjamarkaði (Microsoft Small Business Specialists).
Auðveldara aðgengi að sérfræðiþekkingu
Með undirdreifikerfinu fá því þessir aðilar fleiri valkosti en áður við kaup á Microsoft-hugbúnaði í heildsölu. Sér í lagi er þetta kerfi hugsað til þess að veita smærri aðilum betri möguleika á að sækja ýmsa sérfræðiþekkingu til undirdreifiaðilans. Þessi þekking getur snúið að öllu sem tengist hugbúnaðarleyfum, notkun á hugbúnaðinum og sölu, auk samskipta við Microsoft, svo eitthvað sé nefnt. 
Þannig mun Heildsala Opinna kerfa í raun ekki bara vinna sem dreifingaraðili á hugbúnaði frá Microsoft, heldur líka veita ýmsa sérfræðiþjónustu sem hjálpar endursöluaðilum við sölu og þjónustu á Microsoft hugbúnaði. Jafnframt þýðir aukin samkeppni í dreifingu án efa hagstæðara verð til endursöluaðila og neytenda og aukna þjónustu, sem er öllum notendum Microsoft hugbúnaðar á Íslandi til hagsbóta.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP í Gettu betur
			<description><![CDATA[Gettu betur er spurningakeppni framhaldsskólanna á Íslandi, sem Ríkisútvarpið, RÚV, stendur fyrir árlega. Hver framhaldsskóli á Íslandi getur sent eitt lið í keppnina, sem hvert er skipað þremur nemendum við skólann. Undankeppni fer fram í útvarpi, og að henni lokinni halda átta lið áfram í útsláttarkeppni í Sjónvarpinu. Gettu betur, hefur um árabil verið með vinsælasta sjónvarpsefni á landinu, enda fer þar saman létt skemmtun og æsispennandi keppni. Til úrslita kepptu lið Menntaskólans á Akureyri og lið Verslunarskóla Íslands, 6. apríl síðastliðinn. Menntaskólinn á Akureyri sigraði lið Verslunarskólans með 34 stigum gegn 22. Í úrslitakeppninni var fullltrúum nemendafélaga þeirra átta skóla sem komust í úrslit afhent HP Pavilion fartölva frá Office1 og Opnum kerfum. Allir einstklingarnir sex sem komust í úrslit fengu auk þess HP Photosmart stafræna myndavél. Við óskum liði Menntaskólans á Akureyri til hamingju með sigurinn og öllum skólunum átta til hamingju með að komast í úrslit.
Fulltrúar nemendafélaganna átta sem komust í úrslit í Gettu betur með HP Pavilion fartölvu sem þeir fengu í boði Office1 og Opinna kerfa.
Fulltrúar nemendafélaganna átta sem komust í úrslit í Gettu betur með HP Pavilion fartölvu sem þeir fengu í boði Office1 og Opinna kerfi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Information Lifecycle Management - ILM
			<description><![CDATA[Morgunverðarfundur um ILM (Information Lifecycle Management) var haldinn fimmtudaginn 6. apríl á Grand hótel. Tom Christensen frá HP kynnti ILM hugmyndafræðina og tækni en hún gengur út á það hvernig nýta megi betur þær upplýsingar sem fyrirtæki safna saman, og hvernig við getum betur yfirfært gögn og gert þau að þekkingu sem nýtist okkur vel í samkeppnihörðu umhverfi.
Tom Christensen, HP Storage Solutions Architect]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Belgingur - veðurspáin í þéttu neti
			<description><![CDATA[Í tæp tvö ár hefur Reiknistofa í veðurfræði (RV) reiknað veðurspár í þéttu neti fyrir landið og miðin, landi og þjóð til hagsældar. Spárnar eru birtar á www.belgingur.is og uppfærast fjórum sinnum á sólarhring. Ólafur Rögnvaldsson, veðurfræðingur, er einn starfsmanna RV sem ásamt Linux sérfræðingum Opinna kerfa, hefur hannað veðurspárkerfi sem er margfalt hraðara en það sem áður hefur verið notað. 
Snjólfur lítur dagsins ljós
?Í upphafi var eingöngu reiknað með 9 km láréttri upplausn fyrir landið en að auki var veður yfir SV-landi reiknað með 3 km upplausn. Þessir reikningar fóru fram á tölvueykinu Sleggjunni,? segir Ólafur. ?Í kjölfar hitabylgjunnar miklu er gekk yfir landið síðsumars 2004, tók sú mæta vél sótt mikla og hefur ekki borið sitt barr síðar. Í framhaldi krankleika þessa voru reikningar tímabundið skornir niður við neglur. Með tilkomu eykisins Snjólfs á vormánuðum 2005 upphófust þó bjartari tímar á ný. Naut þá landslýður aftur afurða 3 km netsins og nú fyrir landið allt. Voru veður reiknuð 24 klukkustundir fram í tímann einu sinni á dag. Þessir reikningar vor þó það þungir að vélin var hátt í fjórar klukkustundir að stauta sig fram úr þeim.? 
Svarkur afkvæmi nýrra samninga
Í kjölfar samninga milli RV og Veðurstofu Íslands var ráðist í uppsetningu tölvueykisins Svarks. ?Helstu nýmæli í þessari vél er að nú er reiknað á 64 bita Opteron graðjálkum, samantengdum yfir Infiniband net. Það net er þeim eiginleika gætt að eftir því skjótast gagnabitar hraðar en hönd á festir, jafnt núll og einir!? segir Ólafur. Þessi vél skilar 36 klukkustunda spám á 3 km neti á um klukkustund. Spárnar eru núna uppfærðar fjórum sinnum á sólarhring, í stað einu sinni áður. 
Ný tækni og hraðamet
Svarkur samanstendur af tólf HP ProLiant DL145G netþjónum með tveggja 64 bita Opteron örgjörvum, sem þykja afburðargóðir. Það sem gerir eykið enn öflugra er að samtengibúnaðurinn milli vélanna er svokallað Infiniband, þannig að hver þjónn hefur tvöfalt Infiniband tengi (10Gb) sem tengist í 20 porta Infiniband beini. Þessi aðferð er mun hraðvirkari en klassískt Gigabyte net sérstaklega hvað biðtíma (e. Latency) varðar. Biðtími á dæmigerðu GB neti er um 70-90 míkrósekúndur, en Infiniband er undir 5 míkrósekúndur. 
Glæst framtíðarsýn
?Þær framtíðarsýnir sem birtast á www.belgingur.is eru eins og þær gerast bestar í gervöllum heiminum, og þótt víðar verði leitað,? segir Ólafur. ?Sýnirnar eru svo kyngimagnaðar að hinum almenna borgara gefst nú loks kostur á að verða spámaður í eigin föðurlandi.? 
Hjá RV starfa ásamt Ólafi veðurfræðingarnir Haraldur Ólafsson og Hálfdán Ágústsson. Stefnt er á enn frekari landvinninga í framtíðinni með 500 m reiknineti og eru vonir bundnar við að fá enn betri spár, einkum fyrir vind og vindhviður. Við getum nú þegar farið að hlakka til en Ólafur vill þó fyrra sig allri lögfræði-ábyrgð: ?Ef spárnar verða ykkar að aldurtila þá þýðir sko ekkert að koma grenjandi til okkar, þær eru settar fram af fullkomnu ábyrgðarleysi og hananú. Ekki svo að skilja að núverandi spár séu lakar, sei sei nei?, segir Ólafur að lokum.
Frá vinstri: Ólafur Rögnvaldsson, Hálfdán Ágústsson og Haraldur Ólafsson frá Reiknistofu í veðurfræði.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi valin besti ?Premier? samstarfsaðili Cisco í Norður Evrópu
			<description><![CDATA[Opin kerfi fengu viðurkenninguna ?Premier Partner? í norður-Evrópu, eða besti samstarfsaðili Cisco á ráðstefnu fyrir samstarfsaðila sem haldin var í San Diego í Bandaríkjunum á dögunum.
Mikil áhersla á Cisco lausnir
Andy Lockhart, aðstoðar-forstjóri Cisco í norður-Evrópu sagði við þetta tilefni:?Cisco og Opin kerfi eiga langt samstarf að baki. Á þessu ári hafa Opin kerfi lagt mikla áherslu á Cisco lausnir og það er að skila sér í góðum árangri. Opin kerfi skrifuðu m.a. undir stefnumótandi stórsamning við fjarskiptafyrirtæki sem leiddi af sér að Cisco fékk þjónustusamning við sama fyrirtæki. Opin kerfi eru með góðan og stóran viðskiptavinahóp, sem gefa Cisco mikil tækifæri. Við væntum góðs árangri bæði í öryggislausnum sem og afritunarlausnum á þessu fjárhagsári. Með þessari viðurkenningu viljum við þakka Opnum kerfum fyrir að hafa lagt aukna áherslu á Cisco. Til hamingju með viðurkenningu og við hlökkum til áframhaldandi samstarfs á árinu 2006.?
Besti þjónustu-samstarfsaðili á Noregs og Íslandsmarkaði
Starfsmenn Opinna kerfa eru mjög stolt af því að hafa fengið þessa viðurkenningu, en Opin kerfi fengu einnig viðurkenningu fyrir að vera besti samstarfsaðili Cisco í þjónustumálum á Noregs og Íslandsmarkaði. Það er mat starfsmanna Opinna kerfa að við hefðum aldrei náð þessum árangri nema í nánu samstarfi við kröfuharða viðskiptavini. Þessi viðurkenning mun hvetja starfsmenn Opinna kerfa til frekari dáða.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Gartner/BorderWare fyrirlestur (webcast)
			<description><![CDATA[Hægt er að horfa á fyrirlestur á netinu sem BorderWare og Gartner greiningarfyrirtækið gerðu á dögunum þar sem öryggismál á netinu eru rædd. Um er að ræða 30 mínútna fyrirlestur. 
Vinsamlegast sjá netslóð:
http://www.accelacast.com/webcasts/gartner_borderware/
Fréttatilkynning frá BorderWare :
Messaging Threats
Are You Ready? 
Business Communication is Converging. It?s not just email. We now have instant messaging, voice over IP, collaborative interaction and blogs. Organizations must take a holistic approach to content and application security using a unified security platform that prevents attacks, blocks unwanted content, controls confidential and private information, and manages the IT infrastructure centrally and securely across all forms of Internet communications.
The World?s First Unified Security Platform
BorderWare has combined the power of its market leading Email, SIP and Perimeter security solutions to provide customers with the world?s first and only Unified Security Platform. No other security vendor has the full range of content and application security offerings to secure all application types nor can they provide a common secure operating system and management infrastructure to facilitate common, centralized administration, analysis, reporting and policy management. 
Live Q&A
In addition, on February 28th at 1:00 p.m. EST there will be a live Q&A session with John Pescatore, VP Gartner Inc. and Andrew Graydon. Anyone who registers to view the webcast (available now) will be sent reminders to attend the Live Q&A - where we will be having a draw for an iPod nano. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Netsímatækni
			<description><![CDATA[Með tilkomu netsímatækni (e.Voice over Internet Protocol) mun talsímaþjónusta hér á landi verða fjölbreyttari. Með netsímatækni eru merkjasendingar tals að hluta eða öllu leyti byggðar á Internet samskiptareglum (IP). Í netsíma eru upphafsstaður og endastaður ekki skilgreindir fyrirfram sem heimilisfang heldur sem vistfang (IP tala) á Internetinu. Í þessu fyrirkomulagi getur notandinn efnt til uppkalls nánast hvar sem er í heiminum þar sem tenging við Internetið er fyrir hendi. 
Til samanburðar er símtal í hefðbundnum símkerfum að berast frá A til B í ákveðnu formi sem ræðst m.a. af símanúmeri og eru upphafstaður og endastaður bundnir ákveðinni staðsetningu.
Flökkuþjónusta
Flökkuþjónusta er netsímaþjónusta sem flytja má milli nettengipunkta og er þar af leiðandi ekki með fasta staðsetningu. Sérstök númeraröð sem byrjar á 49x xxxx verður fyrir netsíma í flökkuþjónustu. Póst- og fjarskiptastofnun lítur svo á að ekki eigi að gera greinamun á því hvaða tækni er notuð við veitingu hefðbundinnar talsímaþjónustu. PFS heimilaði fyrr í dag að heimilt sé að flytja númer úr fastaneti í símaþjónustu með netsímatækni, ef hún er skráð á ákveðna staðsetningu og ekki markaðssett sem flökkuþjónusta.
Upplýsingar til neytenda
Afar mikilvægt er að fjarskiptafyrirtæki sem bjóða netsímaþjónustu geri viðskiptavinum sínum skilmerkilega grein fyrir þeirri hættu sem kann að fylgja því að tengja númerin annarsstaðar en þar sem númerið er skráð. Sá möguleiki er fyrir hendi að Neyðarlínan finni ekki hvar viðkomandi er staddur og getur það valdið því að tafir verði á að aðstoð björgunaraðila.
Unnið upp úr ?Yfirlýsingu Póst- og fjarskiptastofnun um netsímaþjónustu?.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema í HÍ
			<description><![CDATA[Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema var haldin síðastliðinn föstudag, 3. febrúar í fimmtánda sinn. 
Brautin var krefjandi eins og venjulega, en nýjungin í ár var að brautin var í vatni og þurfu þátttakendur bæði að sækja golfkúlur sem lágu á botni brautarinnar sem og borðtenniskúlur sem flutu ofan á vatninu, og því þurfti tækið að sækja kúlur bæði á botni sem og á yfirborði og ná að taka kúlurnar og koma þeim í ákveðið hólf.
Einn þátttakandi náði að klára brautina með fullu húsi stiga eða 29 stig, Baldur Bjarnason nemi í Rafmagns- og tölvuverkfræði við HÍ.Hann kláraði fyrri umferðina með 25 stigum, en með smá leiðréttingum á tækinu náði hann að bæta við sig 4 stigum í síðari umferð. 
Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa afhendir Baldri Bjarnasyni sigurvegara verðlaunin. 
Haraldur Hrannar Haraldsson [HHH]
Ljósmyndari Vélarinnar, félag Véla- og Iðnaðarverkfræðinema. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Aðgengi að Internetinu alltaf alls staðar
			<description><![CDATA[Íslendingar gera vaxandi kröfur um aðgengi að Internetinu hvar og hvenær sem er. Fartölvueign er orðin nokkuð almenn og þráðlaus samskipti eru sívaxandi og hafa verið möguleg síðastliðin ár. 
Handskrifað á fartölvuna
Helsta nýjungin á fartölvumarkaðinum er Tablet-fartölva sem sameinar bæði notkun, kosti og afl venjulegrar fartölvu ásamt möguleikum á handskrift, beint á skjáinn með meðfylgjandi rafeindarpenna, og er mjög meðfærileg. Að skrifa niður minnisatriði í tölvuna heima, í skóla, á fundum eða við skrifborðið er leikur einn. Tablet-fartölvan er mjög hentug í vöruhúsum og lagerum, auk þess sem mennta- og heilbrigðisstéttirnar hafa tekið henni fagnandi. 
Allar samskiptaleiðir í einu tæki
Það sem er vinsælast á markaðinum í dag er lófatölvan, sem er framlenging á fartölvunni eða borðtölvunni. Lófatölvan og farsíminn hafa runnið saman í eitt tæki sem gerir þér kleift að vera í stöðugu Internetsambandi. Meðal nýjunga er GPS staðsetningartæki, vafri fyrir Internetið og margar skilaboðaleiðir, eins og tölvupóstur, SMS og MMS, auk þess að hafa aðgang að MSN.
Samskipti við umheiminn eru mjög mikilvægur þáttur í nútíma samfélagi, hvort sem er með fartölvu eða lófatölvu. Fólk stundar bankaviðskipti á Internetinu, sækir upplýsingar í gegnum leitarvélar, fær fréttir, verslar og notar margs konar samskiptaleiðir, eins og með síma, tölvupósti, SMS, MSN og MMS. Auk þess er hægt að hafa aðgang að öllum gögnum textum, myndum og hljóði, sem eru vistuð á öruggum miðlægum svæðum. 
Samstilling og miðlun gagna
HP iPAQ lófatölvan, sem hægt er að samstilla við borð- eða fartölvu, gerir þér kleift að vera með öll persónuleg gögn og samskiptasögu sem þú þarft á að halda í einu litlu tæki, svo og tölvupóstinn, dagbókina, tengiliði o.s.frv., auk þess að vera með innbyggða myndavél, GPS tæki og innbyggðan Microsoft media spilara.
iPAQ lófatölvan hentar því mjög vel hvort sem er í vinnu, á ferðalagi, á fundum, í námi, í fríi, eða með vinum.
Tengingar án kostnaðarsamrar viðbótarþjónustu
iPAQ lófatölvan tengist Internetinu í gegnum gervihnött með GPRS eða EDGE tækni, auk þess að vera með 4-banda GSM tengingu og SD og SDIO rauf fyrir 802.11b WiFi þráðlaust netkort. Því er hægt að nota lófatölvuna hvar og hvenær sem er í heiminum án kostnaðarsamrar viðbótarþjónustu.
Allt í einu tæki
Svipuð þróun hefur átt sér stað með prentara. Markaður fyrir fjölnotatæki fer ört vaxandi, en HP framleiðir svokölluð ?all-in-one? eða ?allt-í-einu? tæki, sem prenta, skanna, ljósrita og faxa. Auk þess eru raufar fyrir helstu gerðir minniskorta og er því hægt að prenta hágæða ljósmyndir beint af minniskortunum. 
Heildarlína í tölvubúnaði
Hewlett-Packard er eini framleiðandinn í heiminum sem býður upp á heildarlínu í tölvubúnaði, til að mynda fartölvur, borðtölvur, lófatölvur, netþjóna, prentara og stafrænar myndavélar. HP hafa verið mest seldu tölvur í heimi undanfarin ár og HP prentararnir eru einu prentararnir sem hafa fengið hæstu einkunn hjá PC magazine ? 14 ár í röð.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Alcatel á Akureyri
			<description><![CDATA[Alcatel er leiðandi í framleiðslu og þróun samskiptalausna ýmisskonar. Hjá fyrirtækinu starfa um 65.000 manns og eru starfsstöðvar Alcatel í um 130 löndum. Opin kerfi er vottað sem ,,Business Premium Partner" á Íslandi sem er æðsta vottun sem samstarfsaðili getur fengið. Þetta gerir meðal annars kröfu á Opin kerfi að vera með best menntaða tækni- og sölufólkið hverju sinni. 
Undanfarin misseri hafa Opin kerfi í samstarfi við samstarfsaðila sína á Akureyri selt og sett upp öflug Alcatel kerfi. Má þar nefna: 
Dvalarheimilið Hlíð/Kjarnalundur
Í samvinnu Ljósgjafann á Akureyri er fyrirhuguð uppsetning á öflugu Alcatel OmniPCX Enterprise kerfi. Kerfið verður sett upp í þremur áföngum og lýkur árið 2007. Í heildina verða um 360 símar tengdir kerfinu og tveimur stöðum sem tengjast saman á IP. 
Fjórðungssjúkrahúsið
Í janúar/febrúar 2006 er fyrirhugað að setja upp nýtt Alcatel kerfi af gerðinni OmniPCX Enterprise hjá FSA á Akureyri. Verkið er unnið í samvinnu við Ljósgjafann á Akureyri sem mun verða þjónustuaðili kerfisins. Í heildina verða um 350 símar tengdir kerfinu á tveimur stöðum sem tengjast saman á IP. Eins verða í upphafi um 10 IP símtæki tengd kerfinu. Mikið er lagt uppúr öryggi kerfisins og má nefna að bæði örgjörvi (CPU) og straumfæðing eru spegluð. Um 100 GSM leyfi fylgja kerfinu sem gerir FSA kleift að tengja GSM símtæki með borðsímum, þannig að GSM símtæki virki einnig sem innanhússsími. 
Gúmmivinnslan Akureyri
Í samvinnu við Þekkingu á Akureyri þá hefur verið sett upp Alcatel kerfi af gerðinni Alcatel OmniPCX office. Um er að ræða IP símkerfi sem tengir saman 5 starfsstöðvar Gúmmivinnslunnar með það að markmiði að auka hagræði og þjónustu símsvörunar.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Samstarf er ekki einstefna
			<description><![CDATA[,,Samstarf er ekki einstefna," segir Mark Hurd forstjóri HP, en HP leggur nú mikla áherslu á að vinna með samstarfsaðilum sem líta á samstarf sem ávinning beggja aðila.
Starfsmenn og viðskiptavinir Opinna kerfa fjölmenntu á HP Technology Forum ráðstefnuna sem haldin var í Orlando í Flórída í október síðastliðnum. Mark Hurd, forstjóri HP fór yfir helstu áherslubreytingar hjá HP en hann tók við sem forstjóri fyrr á þessu ári.
Fjárfest í R&Þ fyrir 210 milljarða króna árlega
Mark segir að HP muni vera áfram leiðandi fyrirtæki á upplýsingatæknimarkaðinum og eitt af stærstu fyrirtækjunum á Fortune 500 listanum. Hann fjallaði sérstaklega um fjárfestingar í rannsóknar- og þróunarstarf (R&D), en HP fjárfestir árlega um 3,5 milljörðum dollara (210 milljarðar íslenskra króna) í rannsóknar- og þróunarstarf. Mark segir HP mjög góða í að skapa lausnir, eftirspurn og þjónustu. ,,Á rannsóknarstofum HP höfum við lagt áherslu á samþættingu lausna, stýrikerfi fyrir stafræna miðla, stjórnun afritunarlausna og lausnir sem auka afköst búnaðar fyrir enterprise fyrirtæki," segir Mark og bætir við: ,,Við þurfum að halda áfram að skera niður kostnað, auka áreiðanleika og finna samkeppnisyfirburði, þ.e. að vera leiðandi og keyra tæknina áfram. Því munum við halda áfram að fjárfesta í rannsóknar- og þróunarstarfi á árangursríkan og skilvirkan hátt." 
Hlutverk samstarfsaðila
Mark segir HP ætla vera virkari samstarfsaðili, en hingað til. ,,Við ætlum að hluta markaðinn og sækja á tækifærin með okkar samstarfsaðilum. Við ætlum að einblína á viðskiptavini sem eru að vinna af heilum hug með okkur. Við viljum ekki vinna með fyrirtækjum, sem eru að misnota vörumerki, til dæmis með því að nota íhluti frá þriðja aðila í vörurnar okkar. Upplifun viðskiptavina á okkur og vörum okkar eyðilegst með slíkri misnotkun og við tökum ekki þátt í því. Samstarf er ekki einhliða og því munum við leggja áherslu á samstarf við aðila sem vilja ganga með okkur og vera augu og eyru HP. Því munum við leggja aukna áherslu á samstarf við hágæða samstarfsaðila sem hjálpa okkur að ná árangri."]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
MXtreme kemur best út í samanburðarprófi
			<description><![CDATA[Nätverk& Kommunikation, leiðandi sænskt tímarit um upplýsingatækni, gerði nýverið samanburðarkönnun á nokkrum lausnum á ruslpóstsíun. MXtreme kom út sem sigurvegari og skákaði þar þremur keppinautum. Greinin er hér birt á ensku: 
Greinin um könnunina á ensku]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Flugmálastjórn ánægður Mxtreme notandi - reynslusaga um póstöryggisgátt
			<description><![CDATA[Flugmálastjórn hefur notað Mxtreme lausnina í rúmlega ár og hefur góða reynslu af því.
Reynslusaga Flugmálastjórnar á ensku]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Jólalottó Ok Beint - fyrsti útdráttur
			<description><![CDATA[Í tilefni jólanna er viðskiptavinum sölusviðs Opinna kerfa þessa dagana boðið upp á sérstök jólapakkatilboð og lottó á Ok Beint, netverslun Opinna kerfa fyrir fyrirtæki og stofnanir. 
Eiður Eiðsson, deildarstjóri tölvudeildar Flugfélags Íslands, vann fyrsta jólalottóvinninginn og fékk glæsilegan KiSS DP-1500 DVD margmiðlunarspilara að gjöf. Þessi tegund DVD margmiðlunarspilara fæst nú loksins á Íslandi og eru Opin kerfi umboðsaðilar KiSS á Íslandi. 
DP-1500 er nettengdur DVD spilari sem getur spilað afþreyingarefni yfir net úr heimilistölvunni eða beint af Internetinu: 
- spilar meðal annars allar gerðir DivX skráa, MPEG-4 og XviD auk MP3, Ogg Vorbis, Jpeg og margt fleira 
- innbyggt netkort og möguleiki á þráðlausu netkorti 
- uppfæranlegt Firmware, ekki úreltur þegar það kemur ný útgáfa af t.d. DivX 
- mikið af tengjum sem öll eru gullhúðuð til að tryggja bestu gæði 
KiSS er danskt fyrirtæki í eigu Cisco Systems (Linksys) og er leiðandi í þróun á nettengdum afþreyingartækjum eins og DVD spilurum og upptökutækjum. 
Eiður Eiðssson, deildarstjóri tölvudeildar Flugfélags Íslands, tekur á móti KiSS DVD spilaranum frá Örnu Maríu Gunnarsdóttur, viðskiptastjóra rafrænna viðskipta, Opnum kerfum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Krabbameinslækningadeild Landspítala fær jólakortastyrk Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Legudeild krabbameinslækningadeildar Landspítala Hringbraut fær jólakortastyrk Opinna kerfa í ár, en Opin kerfa hafa árlega styrkt gott málefni í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina. 
Ákveðið var að færa legudeild krabbameinslækningadeildar, 11E, við Hringbraut, HP fartölvu sem notuð verður í einangrunarherbergi legudeildarinnar. Að sögn Steinunnar Ingvarsdóttur deildarstjóra eru sjúklingar sem þurfa að dvelja í einangunarherberginu, nánast lokaðir af og hafa takmörkuð samskipti við aðra. ,,Fartölvan mun því hafa mikið afþreyingagildi fyrir þessa sjúklinga, sem geta horft á kvikmyndir að hlustað á tónlist. Fartölvan mun einnig vera nettengd og þannig getur sjúklingurinn haft samskipti við vini og ættingja í gegnum Netið." 
Legudeild krabbameinslækningadeildar Landspítala Hringbraut hefur verið starfrækt í 16 ár. Hún er fyrir sjúklinga með krabbamein sem fá meðferð gegn sjúkdómnum, til dæmis krabbameinslyfjameðferð, geislameðferð og einkennameðferð. 
Starfsmenn Opinna kerfa óska viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. 
Við afhendingu jólakortastyrks Opinna kerfa, frá vinstri: Agnar Már Jónsson, forstjóri Opinna kerfa, Steinunn Ingvarsdóttir deildarstjóri og Friðbjörn Sigurðsson læknir. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Styrkur til nemenda í verkfræðideild HÍ
			<description><![CDATA[Við opnun útibús Hewlett-Packard á Íslandi fyrir 20 árum, gaf félagið Háskóla Íslands öfluga tölvu. Því þótti við hæfi að gefa Háskólanum aðra gjöf í tilefni afmælisins og afhenti Henrik Sinnbek, framkvæmdastjóri tölvusviðs HP í Danmörku, Sigurði Byrnjólfssyni, deildarforseta Verkfræðideildar HÍ, tvær milljónir króna. Ákveðið var að styrkja framhaldsnemendur við deildina. Það voru fjórir framúrskarandi nemendur sem stunda framhaldsnám við verkfræðideild Háskóla Íslands sem fengu afhentan styrkinn fyrir skemmstu, þeir eru: Gísla Herjólfsson sem er í doktorsnámi í stýritækni, verkefni hans fjallar um Hagnýt stýrikerfi byggð á tímasvörunum kerfa á lokuðu formi. Yayoi Shimamura, MS nemi í tölvunarfræði, verkefni hennar ber heitið; Hönnun marghátta notendaviðmóta ? aukið aðgengi blindra nemenda að stærðfræðiefni, Eggert Þröstur Þórarinsson, MS nemi í vélaverkfræði, verkefni hans er: Bestun á rafsegulflæði í tregðubremsu og Margrét Aðalsteinsdóttir, MS nemi í byggingarverkfræði, verkefni hennar heitir: Virkni hljóðdeyfigólfa, samanburður mældra og reiknaðra gilda. Við óskum nemendunum góðs gengis með verkefnin. 
Nemendur við styrkveitinguna, frá vinstri: Margrét Aðalsteinsdóttir , Yayoi Shimomura , Eggert Þröstur Þórarinsson, Gísli Herjólfsson og Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa ehf.
			<author>ok@ok.is</author>
Stafræn hjálparhella
			<description><![CDATA[Eftir því sem tækjunum fjölgar á heimilinu verða handtökin fleiri við að halda utan um allt saman, lesa af myndavélum og skönnum. Það er lítið mál að taka jólamyndirnar á nýju stafrænu myndavélina, en vandast málið þegar á að skoða þær, sýna öðrum eða prenta þær út. Til er grúi af hugbúnaði sem auka á mönnum leti þegar stafrænar myndri eru annars vegar, en bæði er að slíkur hugbúnaður er dýr og svo hitt að hann er oftar en ekki snúinn viðureignar, svo snúin jafnvel að notandinn er engu nær. Hewlett Packard, HP, hefur farið þá leið að láta sama hugbúnaðinn fylgja öllum myndtengdum vélbúnaði, stafrænum myndavélum, skönnum og prenturum og nú í seinni tíð líka tölvum. Hugbúnaðurinn heitir Image Zone og er ætlaður til að auðvelda fólki að fást við myndir hvort sem þær eru fengnar yfir Netið, í stafrænu myndavélinni eða skannanum. Þegar hugbúnaðurinn er ræstur á tölvu viðkomandi í fyrsta sinn les hann upplýsingar um allar myndir á tölvunni og flokkar þær sjálfkrafa eftir dagsetningum. Möppurnar, sem eru sýndarmöppur, þ.e. aðeins sýnilegar inni í forritinu, getur notandi nefnt að vild og einnig sýslað með dagsetningar á myndunum ef vill. Með Image Zone má þannig lesa inn myndir úr stafrænni myndavél, lagfæra þær á einfaldan hátt, til að mynda með því að lýsa þær eða lagfæra rauð augu. Það síðastnefnda er gert þannig að myndin er lesin inn, valið að eiga eigi við rauð augu og þá er nóg að fara með bendilinn yfir augað og smella til að það sé lagað. Eins má breyta birtustillingum, litamettun og þar fram eftir götunum, en Image Zone gerir nokkra tillögur um hverja breytingu og síðan velur notandinn þá þeirra sem hann kýs að nota. Hægt er að raða myndum saman í syrpu sem síðan er sýnd við tónlistarundirleik, hægt er að tengja ákveðin lykilorð við myndir. Einfalt er líka að deila myndum með öðrum, til að mynda senda myndir til ættingja eða vina, en hægt er að senda mynd í gegnum kerfi HP sem vistar myndina á vefsíðu í mánuð. Geta þá allir sem fengu sendan tengil á síðuna farið þar inn og skoðað myndina eða myndirnar, því senda má margar myndir í einu, sótt þær eða prentað út að vild. Hægt er að senda myndir á milli í fullri upplausn, en sá sem fer inn á síðuna sér bara þær myndir stórar sem hann kýs sjálfur, ekkert vesen með fylgjur eða mismunandi hugbúnað á tölvu sendanda og viðtakanda. Með Image Zone hugbúnaðinum fylgja ýmis sniðmát til að gera bæklinga, myndaalbúm, dagatöl, dreifibréf og svo má telja - notandinn velur þá mynd eða myndir sem á að nota, en síðan leiðir hugbúnaðurinn hann áfram í verkefninu. Einnig er hægt að lesa myndir inn í vefalbúm sem Snapfish.com, sem er í eigu HP, en þar má geyma ótakmarkað af myndum í ár í senn. Image Zone hjálpar líka til við að brenna myndir á geisladiska. Eins og getið er fylgir Image Zone myndavélum, skönnum og prenturum frá HP, en það er einnig hægt að kaupa búnaðinn á vefsetri HP. Einnig er til einfaldari ókeypis útgáfa af hugbúnaðinum sem heitir HP Photosmart Essential. 
Heimild: Morgunblaðið - Jólablað 2005]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Gott uppgjör Hewlett-Packard
			<description><![CDATA[Hagnaður af reglulegri starfsemi Hewlett-Packard, næst stærsta tölvuframleiðanda í heiminum, nam 1,5 mö.USD á fjórða ársfjórðungi í rekstrarári félagsins, samanborið við 1,2 ma.USD á sama tíma í fyrra. Tekjur HP jukust um 7,1% á tímabilinu og námu alls 22,9 mö.USD, en á sama tíma síðasta árs námu tekjur 21,4 mö.USD. Bæði hagnaður af reglulegri starfsemi og tekjur voru að meðaltali yfir spám greiningaraðila Bloomberg. 
Góð sala á prenturum og myndavélum
Rúmlega þriðjungur tekna HP kemur frá sölu prentara og stafrænna myndavéla. Á fjórðungnum sem leið jukust tekjur þeirrar starfsemi um ríflega 4%. Sala borð- og fartölva jókst að sama skapi umtalsvert á fjórða ársfjórðungi og jók HP nokkuð við markaðshlutdeild sína á því sviði. Þá gerði félagið einnig stóran samning við örgjörvaframleiðandann AMD og að mati sérfræðinga er sá samningur afar heppilegur fyrir HP. Í apríl síðastliðnum var gerður starfslokasamningur við þáverandi forstjóra HP og Mark Hurd ráðinn í hennar stað. Nýi forstjórinn hefur að undanförnu ráðist í róttækar aðgerðir sem miða fyrst og fremst að því að skera niður kostnað. Á síðastliðnu hálfu ári hefur til að mynda starfsfólki fyrirtækisins verið fækkað um rúmlega 15.000. Sérfræðingar vestanhafs binda miklar vonir við aðgerðir forstjórans.
Markaðurinn tekur vel í uppgjörið 
Gengi bréfa í HP hækkaði um tæp 3% í Kauphöllinni í New York í gær eftir að félagið birti uppgjörið. Gengið hækkaði svo enn frekar, eða um tæp 6% í viðskiptum á eftirmarkaði í gærkvöldi. Það stendur nú í um 30 USD á hlut og hefur alls hækkað um 39,8% frá áramótum. 
Heimild: Landsbanki ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Rekstrarhandbók á Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar
			<description><![CDATA[Framkvæmdasvið Reykjavíkurborgar gekk í dag frá samningi við Opin kerfi ehf. um uppsetningu á Rekstrarhandbók. Samkvæmt samningnum munu Opin kerfi sinna uppsetningu, aðstoða við innleiðingu og veita ráðgjöf, auk þess sem gerður var þriggja ára viðhaldssamningur. 
Rekstrarhandbók Framkvæmdasviðs mun auðvelda starfsmönnum að vinna samkvæmt skýrum og skráðum verkferlum og þarf vart að fjölyrða um ávinninginn af skipulögðum og öguðum vinnubrögðum fyrir starfssemi Framkvæmdasviðs. Viðskiptavinir sviðsins fá þannig samræmda og skýra þjónustu. Rekstrarhandbókin er veflausn, þannig að starfsmenn og ráðgjafar geta sótt gögn óbundnir staðsetningu. Kerfið er þægilegt í notkun og nýtist vel fyrir allar handbækur sem tilheyra rekstri Framkvæmdasviðs Reykjavíkurborgar. 
Ákvörðun fyrir vali á þessari lausn er tvíþætt. Annars vegar reynsla og þróunarstarf Orkuveitu Reykjavíkur, sem Framkvæmdasvið fær að njóta í ríkum mæli og hins vegar eiginleikar rekstrarhandbókar til gæðastjórnunar, en hún uppfyllir kröfur ISO 9001:2000 staðalsins. Framkvæmdasvið mun þó ekki leita eftir vottun fyrst um sinn, en kröfum staðalsins verður framfylgt eftir því sem kostur er. 
Frá vinstri: Hrólfur Jónsson , sviðsstjóri, Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa, næst Guðmundur P. Kristinsson framkvæmdastjóri Gæða, þróun og greiningar hjá Reykjavíkurborg. Fyrir aftan er Anna Kristinsdóttir, formaður Framkvæmdaráðs, Karl Jóhann Jóhannsson ráðgjafi Opinna kerfa.
			<author>ok@ok.is</author>
Sigurvegari í Formúlu 1 leik á mbl.is
			<description><![CDATA[Undanfarin sumur hafa gestir á mbl.is tekið þátt í tippleik á mbl.is þar sem getspakir giska á úrslit móta í Formúlu 1 kappakstrinum.Í sumar var spennan í hámarki sem endranær og þátttakan góð. 
Í mótslok stóð þó aðeins einn þátttakandi uppi sem sigurvegari og var það Ásta Guðjónsdóttir sem réttast spáði fyrir um úrslit í ár. Fékk hún í verðlaun gjafabréf að verðmæti 150.000 kr. frá Opnum kerfum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vel heppnað málþing um Rekstrarhandbók
			<description><![CDATA[Opin kerfi, í samstarfi við Orkuveitu Reykjavíkur, héldu málþing um rekstrarhandbók í glæsilegu húsnæði Orkuveitu Reykjavíkur föstudaginn 21. október s.l. Alls mættu um 50 manns og hlýddu á góða fyrirlesara fjalla um Rekstrarhandbók og notkunarmöguleika hennar. Málþingið stóð yfir frá 14:00 - 16:15, og var gestum boðið upp á léttar veitingar að þingi loknu. 
			<author>ok@ok.is</author>
Verðlaun veitt fyrir HP auglýsingar
			<author>ok@ok.is</author>
Þau veita framúrskarandi þjónustu!
			<description><![CDATA[Fyrirtæki sem skara framúr hafa starfsfólk sem veit hvernig á að stjórna samskiptum að skilgreindu marki. Þessi orð voru helsta umfjöllunarefni námskeiðs sem Mia S. Melanson, ráðgjafi hjá Performance Consulting, hélt á vegum Opinna kerfa nú í vikunni. 
Á þessu tveggja daga námskeiði voru þátttakendur þjálfaðir í því að bregaðst við mismunandi óskum viðskiptavina á þann veg að hagur viðskiptavinar og fyrirtækis væri hámarkaður. Þátttakendur starfa innan þjónustu- og söludeilda fyrirtækja sinna. Fyrirtæki sem vilja auka samskiptahæfni sína þurfa að huga að þrem megin þáttum; tækni, ferlum og hæfni starfsmanna. Markmið Opinna kerfa er að aðstoða íslensk fyrirtæki við að ná árangri í þessum þáttum.
Á myndinni er Mia S. Melanson, fremst fyrir miðju, ásamt þátttakendum úr íslensku viðskiptalífi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP innkallar rafhlöður í ferðatölvur
			<author>ok@ok.is</author>
Tölvukerfi Grunnskóla Sandgerðis endurnýjað
			<description><![CDATA[Samhæfni og Opin kerfi hafa gert samning við Sandgerðisbæ um alrekstur á upplýsingakerfum Sandgerðisbæjar. 
Með samningi þessum opna Opin kerfi fyrir þann möguleika að Sandgerðisbær leigi tölvubúnað í stað þess að kaupa. Slíkt fyrirkomulag kemur í veg fyrir sveiflur í útgjöldum og í stað fjárfestinga kemur mánaðarlegur rekstrarkostnaður. 
Við upphaf samnings leggja Opin kerfi fram 29 ferðavélar, 25 borðvélar, nokkra skjávarpa, myndavélar og prentara. Verður búnaðurinn notaður í grunnskólanum auk þess sem Opin kerfi munu sjá Sandgerðisbæ fyrir búnaði á skrifstofu stjórnsýsluhúsið Vörðuna sem nú er að taka á sig mynd. 
Sérfræðingar Opinna kerfa á Suðurnesjum, Hannes H Gilbert, munu ábyrgjast rekstur umhverfisins og hafa þar fasta viðveru vikulega. 
Pétur Brynjarsson skólastjóri Grunnskóla Sandgerðis segir að kennarar skólans séu ánægðir með þennan búnað sem nú er tekin í notkun 
Mynd/Reynir Sveinsson Frá vinstri: Pétur Brynjarsson, skólastjóri, Sigurður Valur Ásbjarnarson, bæjarstjóri, og Gunnar Guðjónsson, þjónustustjóri Opinna kerfa, við undirritun samningsins.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Mikill vöxtur á markaði fyrir Geislaprentarafjölnotatæki
			<description><![CDATA[Hið virta markaðsrannsóknarfyrirtæki Lyra Research, hefur spáð miklum vexti á markaði geislaprentarafjölnotatækja. Fyrirtækið telur að markaður fyrir lausnir sem uppfylla þarfir fyrirtækja hvað varðar prentun, ljósritun, skönnun, auk sendingu símbréfa og tölvupósts muni vaxa um 220% árlega allt til ársins 2009. 
?Á þessu ár mun sala geislaprentarafjölnotatækja í Norður Ameríku taka stökk í 78.000 einingar, úr 1.700 einingum í fyrra,? segir Larry Jamieson, höfundur skýrslunnar. ?Árið 2009 munu seljast fleiri en 595.000 geislaprentarafjölnotatæki. Íhaldssömustu spár benda til þess að markaðsvirði nái $600 milljónum innan fjögurra ára,? segir hann. 
?Þegar fólk áttar sig á því hvað það getur gert með geislaprentarafjölnotatækjum, mun markaðurinn vaxa gríðarlega ört,? heldur hann áfram. 
Bleksprautuprentarafjölnotatæki hafa verið til um nokkurt skeið. Geislaprentarafjölnotatæki eru aftur á móti mun meira aðlaðandi fyrir fyrirtæki þar sem að þeir vinna hraðar og þurfa minna viðhald og eftirlit tæknilega séð. Tóner hylki í geislaprentara endist til að mynda mun lengur en prenthylki í bleksprautuprenturum. 
Jamieson segir að vöxtur á markaði fyrir geislaprentarafjölnotatæki muni koma niður á bleksprautuprentarafjölnotatækja markaðnum en stakir að prentarar muni halda velli. 
Heimild: www.forbes.com
HP Color Laserjet 9500MFP ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Mikill áhugi fyrir stjórnun síma og þjónustuvera
			<description><![CDATA[Opin kerfi stóðu fyrir námstefnu um stjórnun síma- og þjónustuvera. Hinn mikilsmetni Martin A. Prunty, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Contact Center Professionals.Dagskrá námstefnunnar varr yfirgripsmikil en farið var yfrir mikilvægustu þætti í stjórnun á símsvörun og þjónustuverum, þ.a.m: 
1. Skilgreining á þjónustumarkmiðum (SL)
2. Áætlanagerð um símaálag
3. Skilgreining krafna til starfsmanna
4. Gerð mannaflaáætlana
5. Stjónun gæða
6. Stefna um sjálfsafgreiðsluferla 
Námstefnan heppnaðist mjög vel og fékk Martin A. Prunty afbragðs dóma frá námstefnugestum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vel heppnuð Blade og Vmware ráðstefna
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. Stóðu fyrir Blade og Vmware ráðstefnu á dögunum. Um 60 stjórnendur og sérfræðingar komu saman á Grand Hótel Reykjavík til þess að hlýða á sérfræðinga HP, VMware og Opinna kerfa kynna og sýna sérstöðu HP Blade netþjóna og VMware. 
Eftirfarandi sérfræðingar fluttu erindi og svöruðu fyrirspurnum: 
Karl Hansen, HP Blade Product Manager
Rasmus Thomsen, VMware, System Engineer
Ronny Tovgaard, VMware, Corporate Account Manager 
Hjalti Ævarsson, Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa 
Ráðstefnan þótti takast einkar vel.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi gefa verðlaun á Skjálfta móti
			<description><![CDATA[Opin kerfi hafa um árabil verið í samstarfi við Símann við að standa að Skjálfta, tölvuleikjamóti sem haldið er á þriggja mánaðar fresti. 
Daganna 2.- 4. september s.l. Fór Skjálfti 3|2005 fram í Íþróttahúsinu við Digranesveg. Um 300 keppendur voru skráðir á mótið, flestir í Counter-strike liðakepnni. 
Counter-strike liðið SeveN sigruðu diG í úrslitaleiknum og þóttu hafa mikla yfirburði í keppninni allri. Þeir hlutu að launum HP PSC 1510 fjölnotaprentara. 
Liðsmenn SeveN með sigurlaunin
			<author>ok@ok.is</author>
Vinningshafar í Formúlu1 leik HP og Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Fimm verðlaunahafar voru dregnir út í Formúlu 1 spurningleik Opinna kerfa sem var í samvinnu við HP og ruv.is/f1. Verðlaunin voru m.a. HP myndavél merkt BMW Williams liðinu sem liðsmenn nota m.a. að tjaldabaki í Formúlu 1 mótum ársins. Opin kerfi hafa haft samband við alla verðlaunahafanna, en þeir voru dregnir út um leið og tyrkneska kappakstrinum lauk. 
Verðlaunahafar, frá vinstri: Sigurjón Guðmundsson sem tók við 2. verðlaunum fyrir Þórdísi Guðmundsdóttur, Rúnar Geir Þorsteinsson sem fékk 1. verðlaun, ásamt börnum sínum, Þórdísi Evu og Þorsteini Atla, Gunnlaugur Rögnvaldsson umsjónarmaður F1 útsendinga hjá Ríkisútvarpinu og Halldóra Matthíasdóttir markaðsstjóri hjá Opnum kerfum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Lucasfilm kaupir yfir 1000 HP tölvur
			<description><![CDATA[Kvikmyndafyrirtækið Lucasfilm, sem þekktast er fyrir framleiðslu Star Wars og Indiana Jones kvikmyndanna, tilkynnti á miðvikudag þriggja ára samstarf við Hewlett - Packard. Dótturfyrirtæki Lucasfilm, Industrial Lights and Magic hafa annast gerð tæknibrellna í kvikmyndunum um Harry Potter, Jurassic Park og nýjustu mynd Stevens Speilberg, War of the Worlds.Fyrirtækið mun næstu þrjú árin nota HP tækni við gerð tölvuleikja, teiknimynda og tæknibrellna í kvikmyndum. Skrifstofur HP í Kaliforníu hafa gefið upp að virði samningsins telji í milljónum bandaríkjadollara, en hafa ekki greint nánar frá samningsatriðum."Með þessum samningi höldum við áfram að auka gæði afþreyingarefnisins sem við sendum frá okkur og mætum þannig auknum væntingum viðskiptavina okkar til kvikmynda og tölvuleikja," sagði Cliff Plumer, framkvæmdastjóri tæknisviðs hjá Lucasfilm.Samkvæmt HP verða fleiri en 1000 tölvur settar upp í nýri miðstöð Lucasarts í San Fransisco, sem ber heitið Letterman Digital Arts Center, og í Singapore. "Lucasfilm hafa skipað sér í fremstu röð í stæfrænu byltingunni í afþreyingarefni með því að skilja hvernig tækninotkun getur teygt mörk þess sem er framkvæmanlegt í kvikmyndagerð," sagði Shane Robison, framkvæmdastjóri stefnu- og tæknisviðs HP.Letterman miðstöðinni er ætlað að hýsa fullkomnustu tækni- og þróunnarverum stafrænnar tækni sem þekkist í skemmtanaiðnaðinum. Aðalskrifstofur LucasFilm, Industrial Light and Magic og LucasArts, sem framleiða tölvuleiki, hafa flutt starfsemi sína í Letterma miðstöðina.Auk kaupa á tölvubúnaði felur samningurinn í sér samstarf HP og Lucasfilm við flokkun og geymslu á viðskiptagögnum Lucasfilm.
Heimild: www.usatoday.com/tech/news/2005-08-24-lucasfilm-hp_x.htm  ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fartölvuhaustið 2005
			<description><![CDATA[Nýja fartölvulínan frá Hewlett-Packard hefur verið kynnt víða síðustu daga og vikur og fengið góðar viðtökur.Mjög góð þátttaka var á fartölvukynningunni á Hallarmúlahátíð Pennanns þann 11.ágúst og á skóladögum Kringlunnar daganna 18. - 21. ágúst.Nýja fartölvulínan hefur vakið mikla athygli og fengið mjög góða dóma. Nánari upplýsingar um fartölvur frá Hewlett-Packard má nálgast á www.fartolvur.is. 
Hallarmúlahátíð Pennanns]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Auglýsingasamkeppni HP og Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Þessa dagana stendur yfir auglýsingasamkeppni Opinna Kerfa og HP, í tilefni af 20 ára afmælis HP á Íslandi. 
Þátttakendur eiga hanna og framleiða sína eigin sjónvarpsauglýsingu fyrir HP fartölvur. Auglýsingarnar verða lagðar fyrir sérstaka dómnefnd sem velur þrjár bestu auglýsingarnar, munu þær birtast á Skjá Einum í fartölvuherferð Opinna kerfa í haust. 
Lokafrestur til að skila inn auglýsingu er mánudagurinn 12.september 2005. 
Sjá nánar á www.fartolvur.is/keppni.asp  ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Technology Forum í New Orleans
			<description><![CDATA[Opin kerfi standa fyrir hópferð til New Orleans í Bandaríkjunum í tilefni af HP Technology Forum 9.-17. september næstkomandi 
Ráðstefnan í ár lítur einstaklega vel út og stefnir í að verða þekkingarbrunnur strauma og stefna framtíðarinnar í upplýsingatækni. 
Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér: http://www.hptechnologyforum.com 
Flogið verður til Orlando með Flugleiðum föstudaginn 9. september, og gist í eina nótt áður en haldið er til New Orleans að kvöldi 10. september. Gist verður á Best Western Plaza á International Drive.
Boðið verður upp á sérstakt makaprógramm í ferðinni.
Í New Orleans verður gist á einu af glæsilegum hótelum ráðstefnunnar, sjá: http://www.hptechnologyforum.com/registration/hotels.html
Á ráðstefnunni eru yfir 400 fyrirlestrar og um 200 "hands on labs". Ráðstefnan er því mjög góð fyrir þá sem reka stór tölvukerfi frá HP, en hentar einnig vel þeim sem stjórna upplýsingatæknideildum, sjá lýsingu frá HP:
"Whether you're an IT executive, data center manager, programmer, administrator, or technician, HP Technology Forum 2005 provides insight and practical know-how for professionals with managerial and hands-on responsibilities. You'll find the training, labs, collaboration, and networking opportunities you need to achieve your organizational and professional goals?and to make the most of HP technologies and solutions." 
Áætlaður kostnaður er 250 þúsund krónur miðað við gengi USD á 66 krónur. Innifalið eru flug, gisting og ráðstefnugjöld. 
Fararstjóri er Agnar Már Jónsson, forstjóri Opinna kerfa ehf.
Ef þú hefur áhuga að koma með eða þarft frekari upplýsingar þá hafðu endilega samband við Halldóru Matthíasdóttir (hallmatt@ok.is).]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ný tækni frá HP
			<description><![CDATA[Lightscribe 
Fram að þessu hefur ekki verið mikið val þegar kemur að merkingum á geisladiskum. Klessulegir tússpennar, ljótir límmiðar eða rándýr prentun sem oft tekur langan tíma. Lightscribe er ný tækni sem gerir kleift að merkja geisladiska með einu og sama tækinu og notað er til að brenna á þá gögn. Þessa frábæru nýjung er nú hægt að fá í HP fartölvum, fyrst allra fartölva á Íslandi.
Sjá nánar á www.lightscribe.com    
Biometrískir fingrafaralesarar
- ný og öflug öryggisvörn í fartölvum. 
Kröfur um gagnaöryggi verða æ háværari hvort sem er vegna tölvuinnbrota eða þjófnaðar. Til að svara þessum kröfum hefur HP sett á markaðinn nx6125 fartölvulínuna með bíometrískum fingrafaralesurum. Þessir fingrafaralesarar eru umtalvert öruggari og öflugri en áður hefur þekkst. Eldri gerðir voru ófullkomnar og lásu fingraför illa og stundum alls ekki. Þá var oft hægt að finna leið framhjá þeim og öryggið því ekki mikið þegar á reyndi. Nýju biometrísku fingrafaralesararnir eru hins vegar mun öflugri og öruggari í lestri. Þeir geta t.d. aukið líkurnar á lesið sé rétt þó óhreinindi séu á fingrum eða ör hefur myndast. Fyrstu fartölvurnar frá HP sem koma með þessum nýju lesurum er nx6125 línan.
Lyklaborð HP fartölva 
- íslenskt lyklaborð fyrir Íslendinga. 
Fátt er eins hvimleitt og að vinna á erlendu lyklaborði sem ekki hefur alla þá takka sem íslenskt lyklaborð hefur. Ekki er skárra að vera með límmiða á lyklaborðinu sem mást, verða ólæsilegir eða detta jafnvel af. Þetta er vandamál sem ekki finnst á HP fartölvum frá Opnum kerfum því þær koma allar með alíslensku lyklaborði með innbrendum stöfum. 
Aukinn tími - aukinn afköst 
Oft hefur stutt rafhlöðuending valdið vandræðum hjá fartölvueigendum. Þessu hefur HP nú ráðið bót á með auka rafhlöðu sem eykur notkunartíma fartölvunnar um allt að 5 klukkustundir. Rafhlaðan tekur afskaplega lítið pláss og er einfaldlega smellt undir fartölvuna. Þó aukarafhlaðan sé tengd er samt hægt að smella fartölvunni í tengikví og á meðan fartölvan er í sambandi hleðst aukarafhlaðan. Með þessari einföldu viðbót má ná fram allt að 11 klukkustunda rafhlöðuendingu á HP fartölvum.  ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ný prenttækni frá HP
			<description><![CDATA[HP hefur kynnt nýja byltingarkennda blekspraututækni sem er afrakstur fimm ára og rúmlega 92 milljarða króna þróunarvinnu. Fyrirtækið telur að þessi tækni muni skjóta fyrirtækinu langt fram yfir samkeppnisaðilana á prentaramarkaði. 
HP afhjúpaði á blaðamannafundi fyrstu vörurnar sem framleiddar eru með þessari nýju prenttækni, sem er sérstaklega hönnuð til að skila hágæða prentun fyrir notendur sem prenta út í miklu magni. Á meðal varanna sem voru kynntar er hraðvirkasti ljósmyndaprentari í heimi, sem prentar út 10 x 15 cm ljósmynd á 14 sekúndum og hraðvirkasta fyrirtækja-bleksprautuprentara í heimi sem gerir litlum og meðalstórum fyrirtækjum kleift að prenta í lit á allt að tvöfalt meiri hraða og með 30% lægri kostnaði á blaðsíðu en áður. 
?Dagurinn í dag markar tímamót í 21 árs prentara-sögu HP?, sagði Vyomesh Joshi, framkvæmdastjóri, mynd- og prentlausna HP (Imaging and Printing Group). ?Þessi tækni er næsta skref í þróun fyrirtækisins ?lykillinn að nýjum markaðstækifærum og frekari vexti í prentaraviðskiptum okkar. Þessi viðburður dagsins í dag mun móta nýja sýn og nýja reynslu hvað varðar prentun á heimilum, á skrifstofum og þörfum stafræns prentmarkaðs.? 
HP kynnti að auki mikið úrval stafrænna ljósmyndalausna, þeirra á meðal ljósmyndaprentara sem getur prentað út 13 x 18 cm ljósmyndir og varðveitt yfir 1.000 myndir. Þessi sambyggði og prentari og geymslumiðill er sá fyrsti sinnar tegundar og aðeins ein af mörgum nýjum lausnum sem HP hyggst framleiða til þess að mæta breyttum og mismunandi þörfum viðskiptavina. 
Nýsköpun ýtir undir vöxt 
Nýja HP tæknin felur í sér byltingu í hönnun og framleiðslu prenthausa. Tæknin hraðar þróunn, lækkar framleiðslukostnað um 50% og skapar umtalsverða stærðarhagkvæmni í allri rannsóknar- og þróunarvinnu í prenttækni hjá HP. 
Prenthausarnir eru ekki samsettir úr mörgum einingum, heldur steyptir í mót og framleiddir sem eining með sérstakri tækni (Photolithography). Niðurstaðan er sú að blekhólfin, spíssarnir og hita-elementið í prenthausunum eru nákvæmlega samræmd sem eykur nákvæmni við staðsetningu hvers blekdropa. Þessi einstaka hönnun gefur möguleika á auknum þéttleika spíssana, en a.m.k. 3900 spíssar eru á hverjum prenthaus. Fleiri spíssar og aukin nákvæmni í staðsetningu bleksins leiðir aftur af sér hraðari prentun í betri gæðum. Að auki tryggir nýja prentkerfið að blekið klárast ekki í miðri útprentun, sem kemur í veg fyrir óþarfa eyðslu á bleki og pappír. 
Með nýju tækninni er HP gert kleift að uppfylla mismunandi þarfir prentmarkaðarins, frá heimilismarkaði, litlum og meðalstórum fyrirtækjum upp í stærri fyrirtæki. Þrjár tæknilegar útfærslur á nýju prenttækninni gera þetta mögulegt.
Í fyrsta lagi getur HP stillt svæðið sem prenthausinn þekur í hvert sinn sem hann fer yfir síðurnar ? þannig er auðveldlega hægt að stjórna prenthraða og gæði útprentunarinnar. Í öðru lagi getur HP aukið fjölda spíssa á hverjum prenthaus til að auka stærð og gæði útprentunnar. Í þriðja lagi má auka eða draga úr blekmagni sem pretnhausarnir úða út við prentun og þannig aðlaga litadýpt og gæði eftir þörfum notandans. 
Kynntu þér kosti HP hjá næsta söluaðila!]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hewlett-Packard kynnir nýja tækni í bleksprautuprenturum
			<description><![CDATA[Tölvuframleiðandinn Hewlett-Packard svipti í dag hulunni af nýrri tækni sem mun auka hraða bleksprautuprentara og lækka rekstrarkostnað þeirra. Tæknin hefur verið í þróun síðastliðin 5 ár og kostaði þróunarvinnan um 1,4 milljarða dollara. Forsvarsmenn fyrirtækisins segja þetta byltingu sem muni skjóta HP langt fram úr keppinautunum. 
Í tilkynningu frá HP kemur fram að prentarar til heimilis og einkanota sem styðja nýju tæknina prenti myndir á 14 sekúndum. Þá munu prentarar fyrir fyrirtæki prenta á tvöfalt meiri hraða en nú þekkist og að rekstrarkostnaður muni verða allt að 30% minni en kostar að reka núverandi prentara. 
Vyomesh Joshy, aðstoðarforstjóri myndvinnslu- og prentdeildar HP, sagði þegar tæknin var kynnt í dag að þetta væru einu merkilegustu tímar í 21 árs sögu fyrirtækisins. Að hans sögn felst hluti nýjunganna í því að prenthylki bleksprautuprentara er ein heild en ekki samansett úr tveimur hlutum. Munu arkitektar, tækniteiknarar og þeir sem prenta nákvæmar teikningar sjá stóran mun á núverandi tækni í prentun og þeirri sem HP mun innleiða í næstu kynslóð prentara. 
Næsta kynslóð prentara HP, sem munu styðja þessa nýjustu tækni, mun kosta tæpa 200 dollara þegar þeir koma á markað. 
Heimild: Morgunblaðið -Tækni & vísindi | mbl.is | ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Compaq fær andlitslyftingu
			<description><![CDATA[Skammt er síðan Compaq-fartölvur frá Hewlett-Packard fengu andlitslyftingu, skrokkurinn á þeim nú orðinn allur svartur með sérstakri rispuvörn á skjá og skrokki, aukinheldur sem kramið er mikið endurnýjað. Lyklaborð í þeim eru líka með þeim bestu sem fáanleg eru. 
Ein skemmtilegasta vélin er HP Compaq NC4200 sem fæst með Intel Pentium M740 eða 750 örgjörva. Hægt er að fá í vélina minni upp í 2 GB, harðir diskar er upp undir 80GB, en auðvelt er fyrir eiganda að skipta sjálfur. Skjárinn er 12,1" TFT, enda er vélin sjálf lítil og fislétt - ekki nema tæð tvö kíló að þyngd. Lyklaborðið er sérstaklega gott með músarreit neðst á lyklaborðinu og einnig músarhnappi í lyklaborðinu sjálfu eins og margir þekkja af ThinkPad fartölvunum. Á vélinni er nóg af tengimöguleikum, þrjú USB tengi, rauf fyrri SD-minniskort, PC-kort, Blátannarbúnaður, Ethernet-tengi og VGA og S-Video úttak. Innbyggt er 802.11b/g netkort. Rafhlöðuending mjög góð, fjórir til fimm tímar eftir vinnslu. 
Hægt er að fá ferðarafhlöðu sem smellt er undir og eykur endinguna um fimm tíma til viðbótar. Geri aðrir betur. Fæst hjá Opnum kerfum. 
Heimild: Tímarit Morgunblaðsins, 10. júlí 2005, Tækni: Árni Matthíasson ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Borgar sig að allar tölvur séu frá sama framleiðanda - segir Andri Örn Víðisson, vörustjóri hjá Opnum kerfum
			<description><![CDATA[Upplýsingatækni hefur gjörbreyst síðan Opin kerfi tóku til starfa. Internetið var ekki til nema í mýflugumynd og tölvur til heimilis- og einkanota þekktust varla. Nú tuttugu árum síðar hafa langflestir landsmenn aðgang að einni tölvu, ef ekki fleiri. 
Opin kerfi eru dreifingaraðili Hewlett-Packard hérlendis. ,,HP er rótgróið fyrirtæki og þolir sveiflur á markaði og áföll sem því fylgja," segir Andri Örn Víðisson, hjá heildsölu Opinna kerfa. ,,Því taka viðskiptavinir ekki þá áhættu að fjárfesta í búnaði frá fyrirtæki sem hverfur af markaði innan skamms tíma. Eins leggur HP áherslu á að vélbúnaður standist hraða þróun í geiranum þannig að búnaðurinn á ekki að úreldast á skömmum tíma þegar nýjungar koma á markað. HP framleiðir breiða vörulínu, allt frá prenturum til netþjóna og samkvæmt upplýsingum Bernard Meric, forstjóra HP í Evrópu, sem var hjá okkur í vor stendur ekki til að breyta því," bætir Andri við. 
,,HP hefur nýverið sett á markað fartölvulínu með nokkuð breyttum áherslum frá því sem áður var," segir Hákon Davíð Halldórsson í markaðsdeild Opinna kerfa. ,,Útlit tölvanna hefur verið samræmt og þær gerðar notendavænni. Til dæmis eru þau tengi sem voru aftan á nú á hliðinni notendum til hægðarauka. Samræmingin á ekki aðeins við um útlit heldur er allur aukabúnaður samræmdur yfir línuna. Til að mynda má nota sömu tegund tengikvía fyrir allar vélarnar," segir Hákon og bendir á að með tengikvínni aukist möguleikar á uppsetningu vinnuaðstöðu til muna. ,,Fartölvunni er smellt í kvína sem tekur rafmagn, en við hana má fasttengja skjá, lyklaborð auk annarra jaðartækja." 
,,Ein hugsunin sem liggur að baki þróun tengikvía er sú að fyrirtæki geti samnýtt vinnuaðsöðu. Þá er mögulegt að haga vinnusvæðum á þann hátt að margir starfsmenn séu um tiltölulega fáar vinnustöðvar," segir Hákon. ,,Starfsmenn, sem hafa yfir að ráða fartölvum geta þannig smellt tölvunni úr kvínni þegar þeir yfirgefa vinnustaðinn og næsti starfsmaður nýtt sömu kvína. Þetta eitt getur sparað fyrirtækjum mikinn aðstöðu- og aðbúnaðarkostnað." 
Lítil ending á rafhlöðum hefur valdið mörgum fartölvueigandandum óþægindum. Hákon segir HP hafa unnið að því að bæta úr þeim vandkvæðum og nú hafi endingartíminn lengst töluvert. ,,Að auki hefur HP þróað aukarafhlöðu sem hægt er að festa undir tölvuna en hún bætir fimm stundum við endingartíma rafhlöðunnar í tölvunni sjálfri. Af þessu skapast engin óþægindi, tölvan reisist örlítið upp en í raun er þægilegra að vinna á hana þannig. Á meðan tölvan er í sambandi hleðst aukarafhlaðan." 
Fartölvulínan skiptist í nx- einstaklingsvélar og nc- fyrirtækjavélar. Nx tölvur eru í tveggja ára neytendaábyrgð, en mögulegt er að kaupa þriggja ára framleiðandaábyrgð til viðbótar. Þriggja ára ábyrgð fylgir hins vegar nc fartölvulínunni. ,,Við erum með mjög góða ábyrgðarþjónustu á nc fartölvulínunni," segir Hákon. ,,Komi upp bilun bjóðum við upp á að vélin verði sótt og ef ekki er hægt að gera við hana innan sólarhrings fær viðskiptavinur okkar aðra tölvu að láni. Hins vegar miðum við að því að allir varahlutir séu til á lager hjá okkur og því á sú staða ekki að koma upp. Sé varahlutur einhverra hluta ekki til, er hann pantaður með hraðsendingu og því á að vera hægt að leysa öll vandamál á mjög skömmum tíma. Komi vélbúnaðargalli upp oftar en tvisvar á fyrsta ábyrgðarárinu er tölvunni skipt út fyrir sambærilega vél." 
Mismundandi áherslur eru innan nc og nx línanna. ,,Verðið hækkar að sjálfsögðu með auknum gæðum og aukabúnaði, en engu að síður eru ódýrustu einstaklingstölvurnar mjög vandaðar," segir Andri. ,,Hins vegar bjóðum við upp á tölvur í öllum verðflokkum en þá bætast við breiðskjáir, dvd skrifarar og "smartkortlesarar" sem auka öryggi upplýsinga á tölvunni. Í blönduðu fyrirtækjaumhverfi eru oft margar mismunandi tölvur enda hafa starfsmenn ólíkar þarfir eftir eðli starfa. Það getur sparað fyrirtækjum umtalsverðar fjárhæðir að vera með eitt vörumerki, eina línu og jafnvel eina kynslóð tölva," segir Andri og bendir á að kostnaður við tækniþjónustu sé mjög mikill. ,,Geti tæknimaður unnið með samskonar tölvur sparast mikill tími og viðgerðarkostnaður, sem hefur verið mörgum fyrirtækjum þungur baggi. Þannig borgar sig fyrir fyrirtæki að fjárfesta í tölvum frá sama framleiðanda." 
Eins og gefur að skilja eru meiri líkur á að fartölvur verði fyrir hnjaski en borðtölvur. Hjá HP var rannsakað hvers konar högg sköðuðu helst harða diskinn í tölvum. Í ljós kom að minniháttar hnjask hefur verst áhrif á fartölvudiska. Því var komið fyrir sérstökum búnaði sem verndar hörðu diskana gegn slíku hnjaski. Fartölvum er ósjaldan stolið og því er mikilvægt að koma í veg fyrir að gögn sem eru á vélinni komist í hendur rangra aðila. ,,Í haust kemur ný kynslóð í línunni á markað en í þeim tölvum eru mjög nákvæmir fingrafaralesarar," segir Hákon. ,,Hingað til hafa fingrafaralesarar átt það til að gefa mjög mörg fölsk já og mörg fölsk nei auk þess sem auðveldlega hefur verið hægt að komast fram hjá lesaranum. Þessi nýji fingrafaralesari eykur líkurnar á að fingraför séu lesin rétt þar sem óhreinindi á fingrum, hafa ekki áhrif á hann. Þá eru tölvurnar útbúnar með og öflugum afritunar- og gagnaverndarhugbúnaði." 
,,Að auki eru nýju vélarnar með mjög þróuðum skjám sem mæla birtustig með skynjurum og koma þannig í veg fyrir leiðinlega glampa á skjám og stilla skjáinn svo rafhlöðu sé ekki eytt að óþörfu," bendir Andir á. ,,Þá hefur HP fundið upp tækni sem gerir notendum kleift að merkja geisladiska í drifinu annað hvort með mynd eða texta. Nýja kynslóðin í línunni mun búa yfir þeirri tækni," segir Andri og bætir við að von sé á mörgum fleiri nýjungum frá HP á komandi misserum. 
Viðtalið við Andra Örn Víðisson og Hákon Davíð Halldórsson, starfsmenn Opinna kerfa, birtist í Viðskiptablaðinu 29. júní. 
Ljósmynd: Erling Aðalsteinsson
Hákon Davíð Halldórsson starfar í markaðsdeild Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP slær met með afhendingu 10 milljónasta HP ProLiant netþjóninum og kynnir ,,dual-core"
			<author>ok@ok.is</author>
Fjölmenn SQL Server 2005 ráðstefna
			<description><![CDATA[Fjölmenn ráðstefna um SQL Server 2005 gagnagrunnskerfið var haldin á Nordica hótel 15. júní sl. Ráðstefnuna hélt Microsoft Íslandi í samstarfi við m.a. Opin kerfi, HP, Intel, og SQL Server Magazine. Yfirskrift ráðstefnunnar var Get Ready for SQL Server 2005 Roadshow og var að miklu leiti byggð á vinnubúðum. 
Topp fyrirlesarar frá SQL deild Microsoft og helstu samstarfsaðilum þeirra fjölluðu um SQL Server 2005 en mikil áhugi er fyrir honum því hátt í 400 manns sóttu ráðstefnuna.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Tvöfalt öryggi í tölvukerfum
			<description><![CDATA[Kaupþing banki hf. (KB banki) er stærsti banki landsins og veitir alhliða viðskipta- og fjárfestingarbankaþjónustu til einstaklinga, fyrirtækja og fagfjárfesta. Bankinn er leiðandi aðili á öllum helstu sviðum íslensks fjármálamarkaðar. KB banki leggur áherslu á vöxt og þróun alþjóðlegrar starfsemi sinnar og stefnir að því að vera í hópi 8 stærstu banka á Norðurlöndum. KB banki er með starfsemi í tíu löndum og eru höfuðstöðvar bankans í Reykjavík. Í lok árs 2004 voru 1.606 stöðugildi hjá KB banka og dótturfélögum.
Í tölvudeild KB banka starfa um 60 starfsmenn. Tölvudeildin skiptist í hugbúnaðarþróun, netdeild, tæknideild og þjónustuborð. Heiðar Þór Guðnason er kerfisstjóri í tæknideild bankans og hefur meðal annars yfirumsjón með vélasölum og diskageymslum bankans. Hann er með MCP, MCP+I, MCSE og HPCP gráður. 
Tvöfalt kerfi, tvöfalt öryggi 
Bankar eru fyrirtæki sem reiða sig mikið á hin ýmsu tölvukerfi í rekstrinum. Gríðarleg áhersla er lögð á uppitíma kröfu í tölvukerfum hjá KB banka og er stefnt að 99,8% uppitíma á lykilkerfum bankans. ,,Tvöfalt tölvukerfi í tveim aðskildum vélasölum er grunn högunin við að viðhalda uppitíma lykilkerfa hjá okkur,´´ segir Heiðar Þór. ,,Allir mikilvægustu þættir kerfisins eru tvöfaldir: 
- Tveir vélasalir á tveim stöðum í bænum, 
- Tvær EVA diskageymslur, ein í hvorum vélasal, 
- Tveir serverar í Microsoft klasa, einn í hvorum vélasal,
- Tvöfaldur netbúnaður í báðum vélasölum, 
- Tvöfaldur SAN tengibúnaður í báðum vélasölum,
- Tvöfaldar net- og SAN-tengingar á milli vélasalanna, 
- Tvöfalt rafmagn, frá veitu og varaaflgjafa 
Í hverjum server eru tveir speglaðir diskar, tveir straumgjafar, tvö SAN spjöld og allavega
tvö netkort,'' segir Heiðar.
,,Til að tryggja rafmagnið, þá erum við bæði með vara-aflgjafa (Ups-a) og dísel-rafstöðvar. Vara-aflgjafarnir taka við ef rafmagnið
fer skyndilega af, en dísel-rafstöðin sem fer í gang á 11 sekúndum, tekur við ef straumrof er varanlegt,'' segir Heiðar. Öryggi gagna á lykilkerfum bankans er tryggt með því að vera með allan búnað tvöfaldan á tveim stöðum í bænum og spegla gögnin í rauntíma á milli vélasalanna.
,,Þetta allt saman ásamt öflugu afritunarferli tryggir uppitíma grunnkerfa bankans eins og best verður á kosið, og til gamans má geta þess að afritunarþjarkinn er í sérstöku herbergi sem byggt var sem peningageymsla með 40 cm steyptum veggjum og eldvarðri stálhurð,'' segir Heiðar. ,,Auk þess eru ljósleiðaratengingar fyrir bæði SAN og NET tvöfaldar og liggja um tvær aðskildar leiðir á milli vélasalanna.
Haft var að leiðarljósi við hönnun tölvuumhverfi að enginn einstök bilun geti haft áhrif á rekstur lykilkerfa bankans.''
Mikið vill meira 
KB banki stækkaði nýlega SAN (Storage Area Network) diskastæður sínar verulega til að mæta aukinni þörf um meira diskapláss. Það er um ár síðan HP Storage Works EVA 5000 stæðurnar voru teknar í notkun. ,,Við vorum þá að uppfæra úr eldri kynslóðum HP/Compaq Storage Works, ESA 12000 og EMA 12000 stæðum,'' segir Heiðar. 
Með EVA 5000 kemur öflugur eftirlits- og stjórnhugbúnaður sem gerir alla stjórnun og utanumhald með EVA diskastæðunum einfaldara.
,,Núna um helgina bilaði einn diskur í annarri diskastæðunni, eftirlitshugbúnaðurinn ISEE (svona ET phone home búnaður) sendi boð til þjónustuborðs HP í Danmörku ásamt því að senda tölvupóst til okkar sem hafa með þessi mál að gera, þarna var ég að spóka mig í Heiðmörk þegar ég fékk upphringingu frá tæknimanni HP í Danmörku þar sem mér var tjáð að diskabilun hefði orðið og búið væri að koma boðum til tæknimanna Opinna kerfa sem mundu koma eftir helgina og skipta disknum út. Þarna var aldrei nein hætta á ferðum þar sem innbyggð verndun á gögnum í viðkomandi diskastæðu sá til þess að öll gögn sem höfðu verið á þessum bilaða diski voru aðgengileg.'' 
Grunnurinn á því að geta speglað gögn vélasala á milli er Continuous Access (CA) speglunarhugbúnaður  en þessi hugbúnaður keyrir innan diskastæðunnar sjálfrar.
,,Gagnaúrvinnsla KB banka hefur samfara miklum vexti aukist verulega, því höfum við orðið að stækka diskamagn okkar til að halda í við aukið gagnamagn og þar sem öll högun HP Enterprise Virtual Array (EVA) diskastæðanna er virtual þá er auðvelt að stækka diska eftir því sem þörfin á auknu diskaplássi eykst,'' segir Heiðar.
EVA: Enterprise Virtual Array 
EVA er diska-stæða fyrir tölvukerfi þar sem kröfur um mikinn hraða, mikið gagnamagn og mikinn áreiðanleika
eru til staðar. EVA er uppbygð með ,,virtual'', tækni sem lækkar kostnað miðað við hefðbundna uppbyggingu. Öll vinna vegna aukinna þarfa á gagnamagni er einföld og nýtist stax í auknum hraða og gagnamagni til netþjóna.
CA: Continuous Access er hugbúnaður sem keyrir á stýrieiningum (controller) EVA diskastæðunnar og sér til þess að gögn séu spegluð á milli tveggja diskastæðna í rauntíma. Tvær diskastæður hjá KB banka, aðskildar með margra kílómetra fjarlægð, innihalda þannig nákvæmlega sömu gögn á sama tíma. Þar sem hugbúnaðurinn keyrir á stýrieiningum diskastæðanna óháð netþjónum nást hámarks-afköst.
BC: Business Copy (snapshot og snapclone) gerir mögulegt að taka augnabliks (instant) disk-afrit af gögnum KB banka. Með því að taka slík afrit er hægt að endurheimta tugi GB af gögnum sem hafa skemmst vegna t.d. hugbúnaðarvillu á nokkrum mínútum. Nýtist þessi tækni einnig til að búa til afrit af raungögnum bankans sem nýta má sem vöruhús gagna og keyra þar ýmsar þungar keyrslur sem ekki hafa áhrif á raunkerfi bankans.
ESL9322 er 322 spólu ,,library'' sem staðsett er í sérstöku brunahólfi og er lykilbúnaður í afritatöku bankans. ESL9322 er notað til að afrita gögn frá báðum vélasölunum og er ekki staðsett í vélasal með öðrum vélbúnaði. ESL library er tengt á SAN (Storage Area Network) og er búið 6 LTO-2 drifum sem eru með þeim hraðvirkustu á markaðnum í dag.
DP: Data Protector 5.50 hugbúnaðurinn er nýttur til miðlægs utanumhalds afritatöku og endurheimtingu gagna. Data Protector nýtir alla afritunarmöguleikana í EVA diskastæðunum og getur stýrt diska-afritum í EVA stæðu. Með þessu er hægt að taka afrit út á spólur, án þess að skapa álag á mikilvægustu gagnagrunns-kerfi KB banka. Með því að nýta DP og SAN tengingu ESL9322
til afritunar, er mögulegt að skilgreina öll drif sem ,,local''-drif á öllum vélum tengdum SAN netinu. Með þessu er hægt að ná hámarks afritunarhraða frá öllum mikilvægustu netþjónum KB banka.
Tölvukerfi KB banka er til fyrirmyndar, bæði hvað varðar rekstur og öryggi að mati Rúnars Grétarssonar sérfræðings á Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa. Heiðar Þór Guðnason, kerfisstjóri hjá KB banka við EVA diskastæðuna.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Í sumarbústaðinn eða fjósið með eMax og Linksys - þráðlaust samband um landið
			<description><![CDATA[Krafa samfélagsins um aðgengi að háhraða Internet sambandi hvar og hvenær sem er, er alltaf að verða háværari. Fólk vill fylgjast með tölvupóstinum í veiðinni og fjölskyldan verður að hafa aðgang að Netinu í sumarbústaðinum til dæmis til að sækja afþreyingu. Frá 2001 hefur eMax byggt upp þráðlaust kerfi fyrir tölvufjarskipti með örbylgjusambandi. Nú þegar er komið upp þráðlaust samband í helstu sumarhúsabyggðum landsins, það er að segja uppsveitum Árnessýslu og Borgarfirði. 
Opin kerfi eru dreifingaraðilar fyrir Cisco Linksys og eMax eru samstarfsaðilar Opinna kerfa. Flestar fartölvur og lófatölvur í dag eru með innbyggðum loftnetum fyrir þráðlaust net, en einnig er til öflugari móttökubúnaður frá framleiðendum eins og Linksys. Með búnaði frá Linksys er hægt að dreifa Internetsambandinu til fleiri en einnar tölvu. Til dæmis gæti öll fjölskyldan í sumarbústaðinum verið með sína tölvu og fengið Internet samband.
Viðskiptavinir eMax geta tengst kerfinu í allt að 25 km radíus frá sendi. Bændur á þessum svæðum sem vilja háhraða Internet tengingu geta því notfært sér sambandið. Nútíma mjólkurbú eru sem dæmi orðin mjög tölvuvædd og því er það að verða æ algengara að bændur vilji hafa yfirsýn yfir mjólkurbúið frá íbúðinni sinni. Með búnaði frá Linksys er hægt að gera mjólkurbúið þráðlaust og tengjast því úr íbúðinni. 
Fleiri möguleikar frá Linksys eru til dæmis þráðlaus Internet myndavél sem hægt er að tengja við Netið án þess að tölva komi við sögu, og margir nýta sem öryggismyndavélar fyrir sumarhúsin sín. Hægt er að stilla myndavélina á sérstaka öryggisstillingu sem lætur vélina senda tölvupóst með stuttu myndskeiði ef hún skynjar óeðlilega hreyfingu. Einnig er hægt að tengjast inná myndavélina hvaðan sem er úr heiminum til að sjá rauntíma myndstreymi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Alcatel IP símkerfi hjá ecSoft - tengir Indland og Ísland
			<description><![CDATA[Opin kerfi og ecSoft undirrituðu nýlega samning um kaup þess síðarnefnda á símkerfi.  Lausnin felst í nýjustu gerð Alcatel IP talmiðlara af gerðinni Alcatel OmniPCX office.
Símstöðin getur tengst allt að 236 innanhússnúmerum og það er möguleiki að tengja allt að 172 IP síma sem staðsetja má í raun hvar sem er.  
Í þeirri lausn sem ecSoft valdi er gert ráð fyrir 40 sérbyggðum símtækjum á skrifstofu fyrirtækisins hér í Reykjavík en þess til viðbótar er útibú á Indlandi þar sem staðsettir eru tveir IP borðsímar og tveir IP tölvusímar (e. softphone).  Á milli landanna er 512 kbit DSL tenging og yfir þá tengingu eru innanhúss símtöl flutt á milli skrifstofunnar í Reykjavík og útibúsins á Indlandi. 
Guðjón Örn Þorsteinsson, forritari hjá ecSoft fullyrðir að talgæði hafi stórlega batnað og séu í raun mun betri en ef hringt er yfir landlínu á milli landanna. Með þessu er búið að sameina skrifstofunnar tvær í eina heild og þannig getur t.d. skiptiborðið í Reykjavík haft heildaryfirsýn yfir stöðu símtækja, sama hvort þau eru staðsett í Reykjavík eða á Indlandi.
ecSoft er þekkingarfyrirtæki sem kappkostar að innleiða traustar veflausnir fyrir stór og smá fyrirtæki. ecSoft býður vefumsjónarkerfið ecWeb sem er notað af um þrjúhundruð fyrirtækjum á Íslandi, í Evrópu og Asíu. Hjá ecSoft sjá menn mikil tækifæri í því að byggja enn frekar á Alcatel IP samskiptalausnum í þeirri útrás sem fyrirhuguð er hjá fyrirtækinu.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
 Landspítali Háskólasjúkrahús innleiðir Microsoft Project Server 2003
			<description><![CDATA[Innleiðingu á Microsoft Project Server 2003 hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi (LSH) lauk formlega um miðjan maí. Kerfið var sett upp samkvæmt niðurstöðum greiningarvinnu sem unnin var í samvinnu LSH, Opinna kerfa og Microsoft. Að verkefninu unnu Jón Ingi Hilmarsson, verkefnisstjóri hjá LSH, Sveinn Ólafsson, ráðgjafi á Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa og Stig Cristiansen hjá Microsoft Danmörku, ásamt starfsmönnum ýmissa deilda LSH.
Skipurit og starfsumhverfi LSH endurspeglast í uppsetningunni en upplýsingar frá Active Directory eru nýttar til að stýra réttindum notenda, þ.e hvaða verkefni þeir sjá og hvað þeir mega gera í kerfinu. Hvert verkefni sem stofnað er hefur sitt vefsvæði sem keyrir í Sharepoint Services þar sem hýst eru skjöl og aðrar upplýsingar varðandi verkefnið. Flestir notendur kerfisins munu hafa aðgang í gegnum vefrænt viðmót en stjórnendur nota jafnframt Microsoft Project Professional. Vefviðmótið er einfalt í notkun og er jafnframt aðgengilegra fyrir mun fleiri starfsmenn og hópa en áður. Reiknað er með að hugbúnaðurinn spari fjármuni í formi lægri leyfisgjalda og bættri verkefnastjórn innan LSH. 
Microsoft Project er sérhæfður hugbúnaður til verkefnastjórnunar sem keyrður er á einmenningstölvum. Með tilkomu Microsoft Project Server 2003 eru Microsoft Project skjölin vistuð miðlægt sem og allar upplýsingar sem tengjast verkefnum svo sem tímaskráningar, skjöl, umræður, tenglar og fleira. Aðgengi almennra notenda er í gegnum vefrænt viðmót og er aðgengi stýrt í gegnum Active Directory.Frá vinstri: Sveinn Ólafsson, ráðgjafi á Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa og Jón Ingi Hilmarsson, verkefnisstjóri hjá Landspítala Háskólasjúkrahúsi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi styrkja verkfræðideild Háskóla Íslands
			<description><![CDATA[Opin kerfi, í samvinnu við Hewlett-Packard, afhentu Verkfræðideild Háskóla Íslands styrk að fjárhæð 2 milljónum króna í tilefni af því að 20 ár eru liðin síðan Hewlett-Packard opnaði útibú hér á landi, nú Opin kerfi. Styrkurinn var afhentur formlega á afmælisráðstefnu félagsins sem haldin var í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands, fimmtudaginn 12. maí síðastliðinn.
Styrkurinn verður notaður til að gera nokkrum nemendum sem eru að ljúka framhaldsnámi í Verkfræðideildinni kleift að hrinda verkefnum sínum í framkvæmd. Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa ehf. segir það mjög ánægjulegt að afhenda Háskóla Íslands þennan styrk núna á þessum tímamótum. ,,Það hefur verið leiðarljós fyrirtækisins frá upphafi að vera virkur þátttakandi í samfélaginu og þegar Hewlett-Packard opnuðu skrifstofuna fyrir 20 árum, þá var Háskóla Íslands gefin öflug tölva frá Hewlett-Packard af því tilefni.? 
Sigurður Brynjólfsson, forseti verkfræðideildar veitt styrknum viðtöku og sagði hann koma sér mjög vel. ,,Það er mjög gaman að geta gert nemendum kleift, eftir að hafa lagt mikið á sig við lokaverkefnið, að hrinda því í framkvæmd.  Meistaranemar Verkfræðideildar vinna að margvíslegum rannsóknarverkefnum í tengslum við og til hagsbóta fyrir atvinnulífið.  Þeir koma oft með nýja sýn á hlutina, hafa frumkvöðlahugsun og leiða verkefni þeirra oft til nýsköpunar og nýrra sprota.?Frá vinstri: Sigurður Brynjólfsson deildarforseti Verkfræðideildar Háskóla Íslands, Henrik Sinnbeck framkvæmdastjóri hjá Hewlett-Packard í Danmörku og Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa ehf.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vilt þú slást í hópinn?
			<description><![CDATA[Í 20 ára hafa Opin kerfi þjónað fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi. Leiðarljós Opinna kerfa er að samvinna skilar árangri. Hjá Opnum kerfum starfar fjöldi sérfræðinga sem leiðbeina viðskiptavinum við val á vöru og þjónustu, til að tryggja að hagkvæmasta og besta lausnin sé valin hverju sinni. 
Opin kerfi leggja ríka áherslu á á ánægju starfsmanna og er starfsmannavelta hjá fyrirtækinu mjög lág. Ánægja starfsmanna er mæld reglulega með vinnustaðagreiningu Gallup. Starfsánægja mælist með því allra hæsta sem gerist á landinu og er greinilegt að starfsmenn leggja höfuðáherslu á þjónustu, þjónustulund og þjónustuþekkingu. 
Opin kefi eru fjölskylduvænt fyrirtæki. Lögð er rík áhersla á gott félagslíf með þátttöku allrar fjölskyldunnar þegar það á við.
Opin kerfi byggja á grunni sem lagður var fyrir 20 árum síðan með opnun Hewlett-Packard á Íslandi. Starfsmenn Opinna kerfa vinna allir í opnu vinnuumhverfi sem er arfleifð frá HP. Almennt er mikil ánægja með opna vinnuumhverfið þar sem starfsmenn hafa betra aðgengi að stjórnendum og upplýsingastreymi er meira.
Starfsmenn Opinna kerfa ætla að móta framtíðina, vera í forystu, setja viðmiðin, skapa eftirspurnina og hafa áhrif á samtíðina.
Opin kerfi auglýsa eftir viðskiptastjóra á sölusviði, vörustjóra á HP tölvubúnaði og sölufulltrúa á heildsölusviði og sérfræðing á sviði Microsoft lausna, hugbúnaðarsérfræðing og netsérfræðing í rágjafar- og þjónustusvið, sjá starfslýsingar í meðfylgjandi pdf skjali.Auglýsing sem birtist í Morgunblaðinu 15. maí 2005]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Afmælisráðstefna Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Opin kerfi efndu í gær, fimmtudag 12. maí, til ráðstefnu í tilefni af 20 ára afmæli félagsins. Afmælisráðstefnan fór fram í Öskju, Náttúrufræðahúsi Háskóla Íslands.
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra ávarpaði ráðstefnugesti en við stofnun félagsins fyrir 20 árum ávarpaði þáverandi forsætisráðherra, Steingrímur Hermannsson gesti. Forsætisráðherra fjallaði um mikilvægi upplýsingatækni á Íslandi og stuðning ríkisstjórnarinnar við atvinnu- og viðskiptalíf og tækniþróun.
Fyrir 20 árum gaf Hewlett-Packard (HP) Háskóla Íslands öfluga tölvu í tilefni opnunar  útibús Hewlett-Packard á Íslandi. Því þótti við hæfi að gefa Háskólanum aðra gjöf í tilefni afmælisins og afhenti Henrik Sinnbek, framkvæmdastjóri tölvusviðs HP í Danmörku, Sigurði Brynjólfssyni, deildarforseta Verkfræðideildar H.Í., tvær milljónir króna. Ákveðið hefur verið að gera framhaldsnemum við deildina kleift að hrinda lokaverkefnum sínum í framkvæmd. 
Frosti Bergsson fjáfestir og einn af stofnendum félagsins, fór yfir sögu félagsins. Frá því að vera lítið útibú Hewlett-Packard í eitt framsæknasta fyrirtæki í upplýsinga- og tæknigeiranum á Íslandi, sem er leiðandi í sölu og ráðgjöf á tölvubúnaði og með mikla áherslu á fjárfestingar í upplýsingatækni jafn á Íslenskum markaði sem erlendum. 
Forstjóri HP í Evrópu, mið-Austurlöndum og Afríku, Bernard Meric kynnti stefnu HP í dag og nánustu framtíð. HP ætlar að halda áfram að leggja áherslu á fjölbreytt framboð vörutegunda og áhramhaldandi samstarf við framsækna aðila í tækniþróun og ?lausnum. Fram kom að HP eru leiðandi í sölu og þjónustu á tölvubúnaði og nefndi til stuðnings að öll fyrirtæki á Fortune 100 listanum eru í samstarfi við HP.
Eftir kaffihlé hlýddu ráðstefnugestir á Andy Lockhart, framkvæmdastjóra Cisco í Norður-Evrópu, fjalla um helstu áherslur Cisco sem hafa verið að skerpa stefnu fyrirtækisins undanfarið í kjölfar hins mikla vaxtar sem fyrirtækið hefur notið á síðustu árum. Lausnir Cisco munu í auknum mæli snúa að lausnum í innviði tölvukerfa með áherslur á aukið öryggi og virkni á öllum endum tölvukerfanna. 
Að lokum  kynnri Andrew Butler, ráðgjafi Gartner, framtíðarsýn í Enterprise lausnum á næstu árum. Hann fjallaði um þróun í vélbúnaði, sérstaklega örgjörva, þar sem helst ber að nefna framsókn x86 og Itanium örgjörva. Þá lagði hann áherslu á mikilvægi þess að fyrirtæki vinni markvisst með birgjum og þjónustuaðilum að skipulagi, hönnun og innleiðingu tölvukerfa.
Ráðstefnugestum var að lokinni dagskrá boðið upp á léttar veitingar í glæsilegu húsi Öskju. Óvænta gesti bar að garði sem tóku nokkur létt lög og stigu tokkur létt spor við mikla ánægju ráðstefnugesta.Fyrirlesarar á afmælisráðstefnu Opinna kerfa ásamt fundarstjóra. Frá vinstri: Gylfi Árnason forstjóri Opin Kerfi Group og fundarstjóri, Bernard Meric forstjóri HP í Evrópu, mið-Austurlöndum og Afríku, Frosti Bergsson, fjárfestir og einn stofnenda félagsins, Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa ehf., Andy Lockhart, framkvæmdastjóri Cisco í Norður-Evrópu, Henrik Sinnbeck, framkvæmdastjóri HP í Danmörku og Andrew Butler, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Gartner Group.Fyrirlesarar á afmælisráðstefnu Opinna kerfa ásamt fundarstjóra. Frá vinstri: Gylfi Árnason forstjóri Opin Kerfi Group og fundarstjóri, Bernard Meric forstjóri HP í Evrópu, mið-Austurlöndum og Afríku, Frosti Bergsson, fjárfestir og einn stofnenda félagsins, Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa ehf., Andy Lockhart, framkvæmdastjóri Cisco í Norður-Evrópu, Henrik Sinnbeck, framkvæmdastjóri HP í Danmörku og Andrew Butler, framkvæmdastjóri rannsóknarsviðs Gartner Group.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Áframhaldandi þróun Atlas kefisins tryggð
			<description><![CDATA[Nú í vikunni voru undirritaðir uppfærslusamningar við Opin kerfi vegna Atlas skráningarkerfisins en það voru 14 stofur sjúkraþjálfara sem réðust í þetta mikilvæga verkefni á sínum tíma. Kerfið hefur verið í notkun í rúma 10 mánuði og er því komin töluverð reynsla af því. Óhætt er að segja að aðstandendur kerfisins er stoltir af skráningarkefinu sem inniheldur sjúkraskráningarhluta, tímabókunarhluta, greiðslukvittanahluta og yfirlit. Hins vegar verður að viðhalda og þróa svona kerfi áfram svo ekki komi til stöðnunar.
Markmiðið með uppfærslusamningunum er fyrst og fremst að tryggja eðlilegt viðhald á kerfinu ásamt því að breyta útfærslum og bæta við nýrri virkni. Samningurinn við Opin kerfi felur í sér fríar uppfærslur og útgáfur af Atlas gegn ákveðnu mánaðagjaldi og er samningstíminn tvö ár. 
Með þessu móti er verið að tryggja fjármagn til frekari þróunar og tryggja að Atlas verði áfram öflugt skráningartól sjúkraþjálfara sem nýst getur flestum sjúkraþjálfurum. Við viljum hvetja þá sem áhuga hafa á að kynna sé notkunarmöguleika kerfisins að setja sig í samband við stýrihóp sjúkraþjálfara en hann skipa þau: Auður Ólafsdóttir, Oddný Sigsteinsdóttir, Kristján Ragnarsson, Haraldur Sæmundsson, Kristín Guðmundsdóttir, Sólveig Steinþórsdóttir og Veigur Sveinsson. 
Heimild: www.physio.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Rafskoðun velur Rekstrarhandbók
			<description><![CDATA[Rafskoðun ehf. hefur valið Rekstrarhandbók Orkuveitu Reykjavíkur til að halda utan um gæðakerfi fyrirtækisins.  Ástæður fyrir valinu eru hversu einfalt kerfið er og öll umsýsla auðveld.  Rekstrarhandbókin er veflausn og auðveldar það starfsmönnum Rafskoðunar að komast í handbókina hvar sem er, sem er kostur þar sem störf þeirra krefjast mikilla ferðalaga.  Það sem samningurinn felur í sér er:  
-          Kaup á notkunarleyfi Rekstrarhandbókar OR
-          Uppsetning
-          Kennsla
-          Ráðgjöf við uppsetningu á handbókinni
-          Innleiðing
Hluti af starfsemi Rafskoðunar ehf. er skoðun á lögbundnum öryggisstjórnunarkerfum (gæðakerfum) stórra og smárra rafveitna. Skoðanirnar fara fram í húsakynnum veitnanna. Við framkvæmd þeirra þarf að hafa gæðakerfi viðkomandi veitu uppi við og eru þau á rafrænu formi hjá öllum stærri veitunum. Gæðakerfin eru vistuð í ýmsum hugbúnaðarkerfum. Þannig hafa skoðunarmenn Rafskoðunar fengið reynslusögur starfsmanna veitnanna beint í æð og einnig kynnst af eigin raun hvernig kerfin reynast í notkun en ekki bara af sölumennsku hugbúnaðarfyrirtækjanna. Okkar niðurstaða er sú, að Rekstrarhandbók Orkuveitu Reykjavíkur sé afar notendavæn og sveigjanleg í allri notkun, enda sérstaklega sniðin að rekstri gæðakerfa. Hún henti því vel við utanumhald gæðakerfis Rafskoðunar ehf.  
Rafskoðun ehf. er faggilt, óháð skoðunarstofa á rafmagnssviði, stofnuð í september 1993.  Starfssvið stofunnar spannar skoðanir á há- og lágspennusviði, skoðun á öryggisstjórnunarkerfum (gæðakerfum) rafveitna ásamt skoðun á öryggisstjórnunarkerfum rafverktaka, skv. staðlinum ÍST EN 45004:1995. 
Opin kerfi eru aðal hugbúnaðarráðgjafar Orkuveitunnar og er því Rekstrarhandbókin þróuð í samstarfi við Opin kerfi.  Sala á handbókinni fer í gegnum Opin kerfi en í nánu samstarfi Orkuveitu Reykjavíkur.Björn E. Baldursson, framkvæmdastjóri Rafskoðunar, og Karl Jóhann Jóhannsson, ráðgjafi og verkefnastjóri hjá Opnum kerfum, við undirritun samnings.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
MyMarketingMachine - viðskiptahugbúnaður sem gerir markaðssókn markvissari
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. eru í samstarfi við Zoomio Holding A/S í Danmörku vegna ráðgjafar, sölu og þjónustu á viðskiptahugbúnaðinum ,,MyMarketingMachine" en það er sérsniðin hugbúnaðarlausn fyrir markaðsferla.  Sem dæmi má nefna er að markaðsherferðir eru settar upp samkvæmt skilgreindu vinnuflæði og eru rekjanlegar, en það þýðir að hægt er vinna upp ýmsar markvissar upplýsingar um framvindu hverrar markaðsherferðar.  Möguleikarnir eru í formi vefforma, s.s. taka við ýmsum skráningum beint af vef, senda tölvupóst á markhópa, símsala (Telemarketing) og nota SMS í herferðum.  
Markaðsmál og CRM samhæfð 
,,MyMarketingMachine" er hannað í .net umhverfi Microsoft og er notendaviðmótið Microsoft vafrinn.  Það er mjög auðvelt að læra á lausnina. ,,MyMarketingMachine" er með tengingu við Microsoft CRM viðskiptalausnina en hún er einnig byggð á .net arkitektúr Microsoft.
Þessar tvær lausnir saman einfalda alla vinnu við gerð söluherferða, eftirfylgni og stuðla að markvissari árangri sölu- og markaðsmála.  Þeir viðskiptavinir Opinna kerfa sem hafa valið Microsoft CRM (Customer Relationship Management) og MyMarketingMachine sjá aukin viðskiptafæri þar sem þessar lausnir styðja sölu- og markaðsferla þeirra.
Opin kerfi hafa mikla reynslu í Microsoft CRM verkefnum. Átta ráðgjafar og sérfræðingar vinna að þeim og hafa þeir fjölda Microsoft vottanir. Má þar nefna ráðgjafarvottunina Microsoft CRM Software Advisor. Einnig hafa ráðgjafar próf í CRM uppsetningu, aðlögun og innleiðingu. 
Nánari upplýsingar um MMM og CRM veita Sigurjón Páll Kolbeins og Árni Þór Jónsson,  ráðgjafar og verkefnastjórar í Microsoft-lausnum á Ráðgjafar- og þjónustusviði, eða Ragnar Bjartmarz, forstöðumaður Microsoft-lausna Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ráðstefna Microsoft og Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Microsoft á Íslandi og Opin kerfi héldu ráðstefnu um umsjón tölvukerfa 30. mars sl.  Þar kynntu nokkrir af Microsoft sérfræðingum nýja strauma og stefnur. 
Gísli Rafn Ólafsson hélt erindi um Sýn Microsoft á umsjón tölvukerfa. Björgvin Arnar Björgvinsson hélt erindi um Microsoft System Management Server (SMS) og Vífill Sigurðson frá Tölvumiðstöð sparisjóðanna sagði frá reynslu sinni af þeirri lausn. Að lokum kynnti Hjörleifur Kristinsson Microsoft Operations Manager (MOM). 
Fjöldi manns mætti og boðið var upp á veitingar og happdrætti. Nokkrir heppnir gestir unnu workgroup-útgáfu af Microsoft Operations Manager og aðrir HP psc 1315 fjölnotatæki og HP LaserJet 1020.Gísli Rafn Ólafsson, Microsoft, flytur erindi á ráðstefnunni.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Kynning hjá Opnum kerfum á vegum Stjórnvísis og Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Haldin var kynning á vegum Stjórnvísis og Opinna kerfa fyrir skemmstu, þar sem fjallað var um ,,mælingar á bakvið góðan árangur hjá Opnum kerfum ehf."  Mætingin var góð.  Megin boðskapurinn var hvað Opin kerfi gera til að ná þeim góða árangri sem það hefur náð og hvort fyrirtækið sé að fylgja Balanced Scorecard (BSC) fræðunum til að ná þeim árangri.  Í byrjun voru lagðar fram þrjár spurningar til fundargesta sem voru svo ræddar í lokin:
- Er BSC nauðsynlegt ?
- Hvað skiptir máli í rekstri fyrirtækja svo þau nái tilsettum árangri ?
- BSC eða árangursstjórnun - Er þetta það sama, hver er munurinn ?
Á kynningunni sjálfri var farið yfir kennitölur Opinna kerfa, starfsemina, helstu áherslur og mælingar á bak við góðan árangur hjá Opnum kerfum.  Fundargestir virtust áhugasamir um starfssemi fyrirtækisins enda var mikið spurt meðan á kynningunni stóð.  Í lokin var umræða um þær þrjár spurningar sem voru lagðar fram í byrjun fundarins bæði á almennum nótum og einnig tengdar starfssemi Opinna kerfa.  ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vídd ehf með réttan fókus
			<description><![CDATA[- einbeitirsér að eigin fagmennsku en lætur aðra um tölvukerfið
Samningur við flísabúðina Vídd ehf, Bæjarlind 4 í Kópavogi, var undirritaður nýlega um að Opin kerfi reki og eigi tölvukerfi fyrirtækisins. Samningurinn var gerður til þriggja ára og tryggir Vídd aðgang að sérþekkingu og viðhaldi vegna tölvukerfisins. 
Fastar greiðslur með alrekstrarsamningi  
Um er að ræða svokallaðan alrekstrarsamning þar sem ákveðið er fyrirfram greiðsla og vinnustundafjöldi á mánuði. Að sögn Hjalta Ævarssonar, ráðgjafa og tæknimanns Opinna kerfa sem þjónustar Vídd, var ákveðið að fjárfesta í hluta af búnaði í upphafi samningsins. Fest voru kaup á HP ProLiant ML350 netþjóni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki með Microsoft SBS 2003 stýrikerfi, fyrir TOK fjárhags- og birgðakerfið. Annar netþjónn, HP ProLiant ML110, var keyptur fyrir ,,terminal server" sem er fyrir útbú fyrirtækisins á Akureyri, lager og heimatengingar starfsmanna. Hluti af borðtölvum var endurnýjaður. Búnaðurinn er innifalinn í samningnum, ásamt uppsetningu.  
Sérþekking borgar sig  
,,Við hjá Vídd leggjum mikið upp úr sérþekkingu á flísum, utan sem innan húss, einnig sérhæfum við okkur í ál gluggum og utanhúsklæðningum fyrir allar stærðir og gerðir af byggingum.  Á liðnum árum höfum við séð alfarið um okkar tölvumál sjálf og gengið ágætlega", segir Sigríður H. Sigurðardóttir, fjármálastjóri Víddar. ,,Þarfir og kröfur nútímans krefjast þess að stöðugt sé verið að afla þekkingar og fylgjast með breytingum. Þar sem okkar sérþekking liggur augljóslega ekki á sviði tölvumála er okkar tíma mun betur varið í þekkingaröflun á okkar sviði. Við tókum þá ákvörðun að fela Opnum kerfum að sjá um allan rekstur tölvubúnaðar og einbeita okkur á eigin sérsviðum," segir Sigríður að lokum.Starfsmenn Víddar ehf., Guðjón Egilsson, Sigríður H. Sigurðardóttir, Unnur Melsted, Vignir J. Jónsson, Þóra B. Valdimarsdóttir ásamt Hjalta Ævarssyni Opnum kerfum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Stærsta einkasímkerfi á landinu
Stjórnarráðið uppfærir í fullkomið IP símkerfi  
Á síðasta ári var símkerfi Stjórnarráðs Íslands uppfært í IP símkerfi og er því orðið fullkomið símkerfi með alla þá kosti sem IP tæknin  hefur upp á að bjóða. Kerfið sem fyrir var og er  stærsta einkasímkerfi á landinu, er áfram í fullri notkun sem stafrænt kerfi og ekki er þörf á að skipta út símum í IP nema mönnum sýnist svo af hagkvæmnis eða öðrum ástæðum. Símstöðvarnar, sem eru á þremur stöðum, eru samtengdar yfir IP netið. 
   IP lausnin sem notuð var byggist á Nortel Succession símkerfinu frá  stærsta framleiðanda stafrænna símkerfa í heiminum, Nortel Networks. 
Lausn til framtíðar  
Nortel símkerfin byggja á svokallaðri ,,Evergreen" framtíðarsýn Nortel um að hvert kerfi skuli vera öruggt til framtíðar, þ.e.a.s.  uppfæranlegt með hugbúnaði eða kortum til að vera með allt það nýjasta sem er í boði í samskiptatækni á hverjum tíma. Lausn Nortel Networks er  þannig unnin að allir  þeir möguleikar sem símar í stafræna kerfinu höfðu eru  einnig til staðar og  mögulegir í IP kerfinu.
Geta tengst hvaða stöð sem er  
Uppfærslan sjálf byggðist á því að símstöðvarnar þrjár voru uppfærðar og IP samhæfðar, þannig er hver stöð nú  miðlari (e. call manager) og gátt (e. Gateway) fyrir IP stafræna og analog umferð. Kerfið er byggt upp þannig að IP símar geta tengst hvaða miðlara sem er. Það hefur þann kost að ef netleið til einnar stöðvar bilar tengist síminn  annarri án þess að notandi verði þess var.
Öll samskipti, tal eða póstur frá sama kerfinu  
Samhliða IP væðingu símkerfisins var sett upp lausn frá Nortel sem býður upp á að senda talskilaboð, fax og tölvupóst yfir Internetið frá einu og sama sama kerfinu.  Kerfið byggir á Windows stýrikerfinu og er hægt að nota með  Outlook, Lotus  Notes eða Groupwise. Öll talskilaboð sem koma inn og fara út frá síma eða tölvu, föx og tölvupóstur eru listuð á tölvuskjánum, í sama pósthólfi og hægt er að vinna með þau öll frá borðtölvunni. 
   Í framhaldi er gert ráð fyrir að farið verði í útgáfu 4.0 af Succession kerfinu sem býður upp á ýmsar nýjar lausnir, s.s þráðlausa IP síma og fleira.Starfsmenn Stjórnarráðs Íslands: Að ofan frá vinstri, Oddur Magnússon, umsjónarmaður fasteigna, Guðmundur H. Kjærnested, forstöðumaður Tölvudeildar Rekstrarfélags ráðuneyta og að neðan, Tómas Ragnarsson, umsjónarmaður símkerfis.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Netvarpsþjónusta Kauphallarinnar
			<description><![CDATA[Kauphöll Íslands hefur undirritað samning við ráðgjafar- og þjónustusvið Opinna kerfa um netvarpsþjónustu fyrir skráð félög. Í kjölfar uppgjöra hafa skráð fyrirtæki í Kauphöll Íslands í auknum mæli haldið kynningarfundi þar sem greiningaraðilar og fjárfestar hafa fengið tækifæri til að koma á framfæri spurningum til forsvarsmanna fyrirtækja. Einnig hefur færst í vöxt að skráð fyrirtæki haldi kynningarfundi af öðru tilefni en í tengslum við birtingu uppgjörs.
Kauphöllin mælir þess vegna með því að skráð félög noti netvarp í kynningum sínum þannig að þeir sem komast ekki á fundi geti fylgst með á Netinu. Þannig geta allir séð kynningarglærur á sama tíma og þeir sem eru fjarstaddir geta varpað fram spurningum annað hvort í síma eða með tölvupóst á fundinum. Meginmarkmið fyrirtækja sem kjósa að nota netvarp er að: 
- 	Jafna aðgengi fjárfesta að upplýsingum. 
- 	Bæta aðgengi fjárfesta að upplýsingum. 
Jafnræði óháð landfræðilegri legu
Með netvarpi verða afkomukynningar aðgengilegar fjárfestum óháð landfræðilegri legu. Kauphöllin mælist til að afkomukynningar séu í beinni útsendingu. Miðað er við að á eftir kynningum sé fjárfestum boðið að varpa fram spurningum.  Til að stuðla að jafnræði óháð tækjakosti, gæðum nettenginga o.þ.h. er mælst til þess að kynningar séu eins léttar í útsendingu og framast er unnt án þess að upplýsingagildi þeirra rýrni fyrir vikið. Því er einungis boðið upp á glærur og hljóð í Netvarspþjónustu Kauphallarinnar. 
Hægt er að panta netvarpsþjónustuna á heimasíðu Kauphallarinnar  undir Vörur og þjónusta  > Panta vöru.Frá vinstri: Agnar Már Jónsson, forstjóri Opinna kerfa ehf., og Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi einn af fjórum kostendum Formúlu 1 útsendingar hjá RÚV
			<description><![CDATA[Sjónvarpið skrifaði formlega undir samning við fjóra kostendur vegna Formúlu 1 útsendinga í dag. Skeljungur, Opin kerfi og Glitnir framlengdu fyrri kostunarsamning og nýr aðili bættist í hópinn. Það er Íslandspóstur sem mun kynna TNT hraðflutninga af miklu kappi í kringum Formúlu 1 útsendingarnar.
Markús Örn Antonsson skrifað undir samninga fyrir hönd Sjónvarpsins, Gunnar Karl Guðmundsson frá Skeljungi, Pétur Bauer frá Opnum Kerfum, Ingimundur Sigurpálsson frá Íslandspósti og Bjarney Harðardóttir frá Glitni skrifuðu undir fyrir hönd kostenda..
Á fundi með fréttamönnum tjáði Samúel Örn Erlingsson að Formúla 1 hefði haldið velli þrátt fyrir aukna samkeppni á fjölmiðlamarkaðnum. Vegur hennar yrði meiri í dagskrá Sjónvarpsins og hlúð yrði að efninu á ýmsan hátt. Sérstakur upphitunarþáttur er í Sjónvarpinu í kvöld þar sem skyggnst er að tjaldabaki hjá keppnisliðum og spjallað um nýjungar. 
57 beinar útsendingar verða í Sjónvarpinu frá Formúlu 1. Tvær tímatökur eru sýndar í beinni útsendingu um hverja mótshelgi og er tekið meðaltal úr tímatökunum tveimur til að ákvarða rásröð. Auk beinna útsendinga umfjöllun í sérstökum kappakstursþætti á undan hverju Formúlu 1 móti..Við undirritun samningsins, frá vinstri: Gunnar Karl Guðmundsson frá Skeljungi, Pétur Bauer frá Opnum kerfum, Markús Örn Antonsson frá Sjónvarpinu, Ingimundur Sigurpálsson frá Íslandspósti og Bjarney Harðardóttir frá Glitni.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Bylting í aðgengi að íslensku táknmáli -http://www.taknmal.is
			<description><![CDATA[Ytri aðstæður skipta miklu máli þegar einhver er greindur heyrnarlaus innan fjölskyldu og er oft það sem krefst mestrar athygli í upphafi. Til lengri tíma litið er þó mun mikilvægar að búa honum eðlilegt félagslegt umhverfi og aðstæður til þroska, ekki síst ef um barn er að ræða. Forsenda slíks er að viðkomandi einstaklingur geti átt samskipti við sína nánustu á þægilegan og merkingabæran hátt, en í því sambandi er tungumálið, þ.e. táknmálið, lykilatriði. Samskiptin standa í raun og falla með því að aðrir í fjölskyldunni nái að tileinka sér það mikið í táknmáli að það standi samskiptum ekki fyrir þrifum.
Aðstæður til þess að læra táknmál eru afar ólíkar aðstæðum við annað tungumálanám. Námsframboð er takmarkað, afar lítið er til af efni á táknmáli almennt og um íslenskt táknmál og til skamms tíma hefur ekki verið til nein nothæf orðabók um táknmál. Táknmál er enda myndrænt mál, þar sem látbragð og hreyfing fer saman og því ómögulegt að koma því til skila nema á myndrænan hátt. Erfitt aðgengi að táknmáli, bæði til að nema og viðhalda kunnáttu, hefur verið foreldrum heyrnarlausra og heyrnarskertra barna áhyggjuefni um langt skeið, en félagsleg einangrun barnanna innan stórfjölskyldunnar, í skóla, leikskóla og öðru félagsstarfi, er einmitt eitt helsta vandamálið sem þeir glíma við.
Foreldra- og styrktarfélag heyrnardaufra hóf því snemma árs 2002 að kanna möguleikana á því að hrinda af stað verkefni um gerð táknmálsorðabókar, sem myndi byggja á myndböndum og væri aðgengileg öllum á netinu.  Orðabók sem myndi gagnast öllum þeim sem vilja læra og viðhalda táknmáli og eiga samskipti við heyrnarlausa.  Orðabók sem gæti einnig orðið mikilvægt tæki til varðveislu og þróun táknmálsins og undirstaða undir framtíðar rannsóknir á því.  Sumarið 2002 vann Foreldrafélagið að því að skilgreina verkefnið og kanna stöðu mála erlendis.  Þetta var gert í samstarfi við Félag heyrnarlausra og Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra, en í framhaldi af þeirri vinnu var hafist handa við fjáröflun.  Skriður komst fyrir alvöru á verkefnið þegar Velferðarsjóður barna styrkti það með myndarlegu framlagi og fljótlega eftir það var hafist handa í samstarfi við hugbúnaðarfyrirtækið IM ehf. (nú Opin kerfi ehf.). Hönnun kerfisins og vinnu við undirliggjandi gagnagrunn og notendaviðmót lauk vorið 2003 og þá var strax hafist handa við næsta áfanga sem var gerð umsjónarhluta kerfisins, þ.e. þess hluta sem notaður er til að setja inn og viðhalda efni í því. Þessari vinnu lauk veturinn 2003-2004.
Hugbúnaðarsérfræðingar IM ehf. (nú Opinna kerfa) hafa undanfarin ár verið í fremstu röð við hönnun og forritun á kerfum í tækniumhverfinu sem kallast Microsoft .NET sem tryggir að auðvelt verður að þróa kerfið áfram og tengja það öðrum hlutum eins og farsímanotkun. Vel var staðið að verkefninu og það unnið í samræmi við kostnaðar- og tímaáætlun.
Síðasta sumar var síðan unnið að því, meðal annars með styrk úr Nýsköpunarsjóði stúdenta, að setja inn efni. Þegar Táknabankinn var síðan formlega opnaður laugardaginn 4. desember síðastliðinn voru um 1000 orð og setningar til staðar í kerfinu og ef allt gengur samkvæmt áætlun verður þessi fjöldi farinn að nálgast 3000 á vormánuðum.
Táknabankinn er fyrsta aðgengilega og nothæfa orðasafnið sem til er um íslenskt táknmál. Hann mun gjörbreyta aðstöðu til táknmálsnáms og er mikilvægur þáttur í að rjúfa félagslega einangrun heyrnarlausra og heyrnarskertra.  Táknabankinn verður einnig mikilvægt tæki til að varðveita íslenskt táknmál, tungumál sem tekið hefur afar hröðum breytingum í gegnum tíðina, ekki síst vegna þess að það hefur borist mann fram af manni án þess að til hafi verið neinn varðveittur staðall. 
Táknabankinn er hinsvegar einungis fyrsta skrefið á þessari leið, en tæknin ber í skauti sér nánast ótakmarkaða möguleika.  Þar má til dæmis nefna möguleikann á að fá tákn send í farsíma.  Mikið er þó ógert áður en slík framtíðarsýn getur orðið að veruleika og brýnt að hefjast handa þar sem frá var horfið við frekari þróun og betrumbætur.
Hjörtur H. Jónsson
Fom. Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufraVið opnun Táknabankans, frú Vigdís Finnbogadóttir og Hjörtur H. Jónsson form. Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Engar áhyggjur, ný þriggja ára ábyrgðarþjónusta á HP fartölvum í nc og nw fyrirtækjalínunum
			<description><![CDATA[Opin kerfi kynntu nú í janúar nýjung á Íslandi. Um er að ræða hraðþjónustu á HP fartölvum í nc og nw fyrirtækjalínunum. Ef fartölva bilar er hún sótt strax til viðgerðar og keyrð til baka af Íslandspósti, innan höfuðborgarsvæðisins eða til flutningsaðila fyrir landsbyggðina. 
Á fyrsta ábyrgðarárinu er ábyrgst að viðgerð sé lokið innan 24 klukkustunda frá því að fartölvan kemur til Opinna kerfa. Á öðru og þriðja ábyrgðarári, er lofað að viðgerð sé lokið innan 3-5 daga frá því fartölva kemur til Opinna kerfa. Ef ekki er hægt að ljúka viðgerð á tilsettum tíma fær viðkomandi fartölvu að láni. Komi upp vélbúnaðargalli oftar en tvisvar á fyrsta ábyrgðarárinu, er vélinni skipt út fyrir sambærilega fartölvu.
Þessi nýja ábyrgðarþjónusta fylgir öllum nýjum HP nc og nw fartölvum.  Þeir sem eiga eldri nc eða nw fartölvur frá HP geta keypt þessa þjónustu af Ráðgjafar- og þjónustusviði Opinna kerfa, sjá nánari upplýsingar á vefslóðinni, www.ok.is/engarahyggjur. 
HP framleiðir fartölvur fyrir mismunandi markhópa. Nc og nw fartölvu-línurnar er framleiddar undir ströngustu gæðakröfum með það að markmiði að halda niðri rekstrarkostnaði millistórra og stærri fyrirtækja. Má þar helst nefna:
?	Þrátt fyrir breytingar á íhlutum og hönnun ábyrgist HP stöðugleika á hugbúnaðarbreytingum á líftíma tölvunnar, sem þýðir að kerfisstjóri þarf bara einn hugbúnaðardisk fyrir allar tölvurnar 
?	Ábyrgð er lengd úr einu ári í 3 ár til fyrirtækja og er það í samræmi við kröfur þeirra um lágan rekstrarkostnað 
?	Ofurlitlar og léttar fartölvur eru hluti af línunni 
?	Allar HP fartölvur bjóða upp á tengingu við annan skjá, svo notandi geti unnið með tvo skjái í hárri upplausn 
?	Hleðslutæki eru minni og léttari sem gerir þau meðferðilegri fyrir fólk að vera með á ferð og flugi 
?	Skjákort í nc og nw fartölvum bjóða upp á hærri skjáupplausn 
?	?Multi-bay? gefur möguleika á að vera með auka rafhlöðu í fartölvunum. Einnig er hægt að skipta út einingum fyrir til dæmis DVD skrifara eða disklingadrif
?	Tölvurnar eru framleiddar úr sterkum og endingargóðum magnesíum málmi 
?	Þær nota allar sömu tegund af tengikví 
?	Microsoft Windows XP Professional stýrikerfi er í öllum nc og nw fartölvum frá HPDagný Guðmundsdóttir, vörustjóri HP fartölva hjá Opnum kerfum ehf.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fleiri sendifulltrúar Rauða krossins á leið til Indónesíu
			<author>ok@ok.is</author>
Málþing Orkuveitu Reykjavíkur og Opinna kerfa um Rekstarhandbók
			<description><![CDATA[Málþing verður haldið um Rekstrarhandbók 14. janúar næstkomandi. Rekstrarhandbók er hugbúnaður sem reynst hefur vel við uppfærslu og utanumhald skjala, sérstaklega í tengslum við gæðakerfi fyrirtækja. Hugbúnaðurinn var þróaður af Opnum kerfum fyrir Orkuveitu Reykjavíkur til að halda utanum rekstrarhandbók fyrirtækisins. 
Rekstrarhandbók auðveldar til muna utanumhald allra skjala auk þess sem ákveðið öryggi fæst með notkun hugbúnaðarins. Hugbúnaðurinn geymir eldri útfærslur af skjölum sem sett eru inn, sem gerir það að verkum að auðvelt er að skoða framvindu mála. Hugbúnaðurinn er aðgangsstýrður og mögulegt er að hafa samþykktaferli á skjölum sem send eru inn, auk þess sem leitarmöguleikar eru verulegir.
Hugbúnaðurinn hentar fyrirtækjum sem þurfa á einhvern hátt að halda utanum skjöl, hvort sem um er að ræða gæðaskjöl tengd rekstrarhandbók fyrirtækisins eða önnur skjöl sem þarf að rýna og uppfæra reglulega.
Málþingið verður haldið í húsakynnum Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1, kl. 14-17. 
Aðgangur er ókeypis.
Dagskrá
14.00 Setning
Loftur Reimar Gissurarson, gæðastjóri Orkuveitu Reykjavíkur
Efni: Rekstrarhandbókin í hnotskurn
Gunnar H. Guðmundsson, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins 7.is
Efni: Rafræn Rekstrarhandbók ? horft með augum ráðgjafa
Kristín Halldórsdóttir, gæðastjóri Norðurmjólkur
Efni: Rekstrarhandbók ? frá sjónarhóli notanda
Kaffihlé 
NN Efni: Rekstrarhandbók ? frá sjónarhóli notanda
Karl Jóhann Jóhannsson, ráðgjafi og verkefnastjóri og Grétar Árnason, ráðgjafi Opnum kerfum
Efni: Aðkoma Opinna kerfa í uppsetningu og innleiðingu á Rekstrarhandbók 
Sigþór U. Hallfreðsson, ráðgjafi, IMG
Efni: Rekstrarhandbók ? sem utanaðkomandi notandi
17.00 Léttar veitingar
Fundarstjóri: 
Einar Ragnar Sigurðsson, gæða- og öryggsstjóri Skýrr og formaður Stjórnvísis]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Heppnir þátttakendur í jólaleik Iceland Express
			<description><![CDATA[Þeir sem keyptu  jólagjafabréf á netinu hjá Iceland Express áttu möguleika á að vinna vegleg HP verðlaun, iPAQ Pocket PC h6340  lófatölva, iPAQ rx3715 lófatölva, PSC 2355 fjölnotatæki og PSC1315 fjölnotatæki. Dregið var á Þorláksmessu. Við óskum vinningshöfum innilega til hamingju með vinningana. 
  Verðlaunahafar, frá vinstri: Jóhannes Stefán Ólafsson, Sigurður. F. Þorvaldsson, Axel Snorrason og Helga Pálsdóttir ásamt Arnari Þór Hafþórssyni frá Iceland Epress.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Búinn að fá nýja prentarann
			<description><![CDATA[Fjöldi manns tók þátt í leitinni að elsta HP geislaprentaranum sem enn er í notkun sem Opin kerfi efndu til ásamt Hewlett-Packard í tilefni þess að nú eru liðin 20 ár síðan fyrsti HP LaserJet geislaprentarinn kom á markað. Bjarni Jónsson sigraði í keppninni og fékk í verðlaun nýjan HP LaserJet 4250. 
Í ljós kom að prentarinn er frá 1988 og hefur verið viðhaldsfrír alla tíð. Bjarni segir að prentarinn hafi mikið verið notaður vegna útgáfu Varðturnsins, tímarits Votta Jehóva. Starfsmenn Opinna kerfa óska Bjarna til hamingu með nýja prentarann og vona að hann reynist vel. Bjarni Jónsson, sigurvegarinn í leitinni að elsta HP geislaprentaranum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Táknabankinn opnaður á netinu
			<description><![CDATA[Frú Vigdís Finnbogadóttir opnaði formlega ?Táknabankann?, táknmálsorðasafn á netinu, 4. desember sl. Táknabankinn, sem er samstarfsverkefni Félags heyrnarlausra, Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra og Samskipta-miðstöðvar heyrnarlausra og heyrnarskertra, markar tímamót í aðgengi að íslensku táknmáli, þar sem það verður nú í fyrsta skipti aðgengilegt öllum á veraldarvefnum.
Hugbúnaðurinn var þróaður af Information Management sem er nú í eigu Opinna kerfa ehf.Við opnun Táknabankans, frú Vigdís Finnbogadóttir og Hjörtur H. Jónsson form. Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufraVið opnun Táknabankans, frú Vigdís Finnbogadóttir og Hjörtur H. Jónsson form. Foreldra- og styrktarfélags heyrnardaufra]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi fyrsta fyrirtækið í Evrópu sem fær Cisco CRM Express Solutions vottun.
			<description><![CDATA[Cisco útnefndi Opin kerfi ehf. nýlega sem fyrsta samstarfsaðila sinn í Evrópu, Mið-austurlöndum og Afríku (EMEA) til að hljóta CRM Express Solutions vottunina. 
Vottunin staðfestir að Opin kerfi hafa bætt við sig enn frekari þekkingu og lokið ströngu ferli CRM prófana og uppsetninga samkvæmt kröfuhörðum stöðlum og mælikvörðum Cisco. Vottunin staðfestir mikla sérþekkingu og reynslu starfsmanna í að hanna, selja og þjónusta Cisco CRM lausnir. 
Í árnaðaróskum frá Cisco segir meðal annars: ,,Þetta er einstakur árangur hjá Opnum kerfum og sýnir fram á hæfni ykkar í að bjóða sérfræðiþekkingu í sífellt kröfuharðari og flóknari netkerfum nútímans. Þið eruð fyrsti samstarfsaðilinn í EMEA sem fær þessa vottun. Cisco metur mikils þá einurð og sérfræðiþekkingu sem Opin kerfi sýna og hlakka til að halda samstarfinu áfram." 
Nýlega fengu Opin kerfi IP Communication Express vottun frá Cisco. Aðrar Cisco vottanir eru: Premier Certified Partner, VPN Security Specialization, Registered Partner og Wireless Specialization.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Rétta myndin af HP netþjónum (6 staðreyndir)
			<description><![CDATA[Staðreynd 1:HP afhendir meira af netjónum en nokkur annar framleiðandi. Einn af hverjum þremur netþjónum sem afhentir eru í heiminum eru frá HP.
Heimild: IDC Worldwide Quarterly Server Tracker, Q2 2004. 
Worldwide server factory unit shipments by vendors all OS ? HP with 30.9% (Dell 22.5%; IBM ? 15.7%; Sun ? 6.1%)
Staðreynd 2:
HP er leiðandi í meðalstórum og stórum UNIX® kerfum ? kjarna viðskiptatækninar í heiminum.
Worldwide server factory revenue by vendor Unix midrange ? HP with 36.1% (IBM ? 26.1%; Sun ? 30.1%)
Worldwide server factory revenue by vendor Unix high-end ? HP with 32.5% (IBM ? 25.3%; Sun ? 26.1%) 
Staðreynd 3:
Í ört vaxandi viðskiptaheimi er HP leiðandi í Windows® netþjónum.
Worldwide server factory revenue by vendor Windows ? HP with 35.7% (Dell ? 22.2%; IBM ? 18.6%; Sun ? 0%)
Staðreynd 4:
HP er fyrsta val fyrir netþjóna sem keyra Linux.
Heilmild: IDC Worldwide Quarterly Server Tracker, Q2 2004. 
Worldwide server factory revenue by vendor Linux ? HP with 30.8% (Dell ? 17.3%; IBM ? 17.2%; Sun ? 2.3%)
Staðreynd 5:
HP leggur mikið upp úr samstarfi við viðskiptavini. Á síðasta ári valdi stærsta fyrirtæki heims, Wal-Mart, HP ,,Tækni byrgja ársins?? (e. Technology Supplier of the Year).
Heimild: http://www.hp.com/hpinfo/newsroom/press/2004/040517a.html
Staðreynd 6:
Viðskiptavinir kunna að meta HP vörur. HP Integrity og HP ProLiant netþjónarnir unnu til verðlauna sem ,,uppáhalds netþjónninn?? (e. Favorite Server) árið 2004.
Heimild: 2004 Readers? Choice Awards, Linux Journal. 
HP?s Integrity rx4640 Server finished in first place. 
The ProLiant DL585 Server finished second.  http://pr.linuxjournal.com/article.php?sid=1076&mode=thread&order=0HP ProLiant netþjónar]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fullkomnar tölvur sem passa í lófa
			<description><![CDATA[Töluvert er síðan HP kynnti til sögunnar fyrstu lófatölvuna, mikil þróun hefur átt sér stað síðan sem leitt hefur að nýjustu vélarinni iPAQ Pocet PC h6340. Lófatölvurnar koma í ýmstum stærðum og gerðum, allt frá einfaldri lófatölvu sem inniheldur einfaldan hugbúnað til að halda dagbók og taka minnispunkta upp í það að hafa innbyggða myndavél, farsíma og þráðlaust netkort (IEEE 802.11b). Allar lófatölvurnar er hægt að tengja við borð eða fartölvu og samkeyra tölvupóst í Outlook, þannig eru allar upplýsingarnar þær nýjustu þegar þörf er á þeim. Með nýjustu lófatölvunni, h6340, er mögulegt að tengjast beint við póstþjón (Exchange Server) yfir einn af þremur kostum þráðlausum kostum þráðlaust net, GPRS eða blátannarbúnaði auk þess að nota hefðbunda kapla.
Hugbúnaður fyrir öll tækifæri
Lófatölvurnar keyra Microsoft Windows mobile stýrikerfið sem hefur auðvelt og aðgengilegt viðmót auk þess sem til eru sérstök útgáfa af Office hugbúnaðnum fylgir með þeim flestum. Mikið hefur verið þróað af hugbúnaði fyrir lófatölvurnar bæði til afþreyingar og hagnýtari nota, t.d. er til hugbúnaður sem ætlað er að leysa af hendi allan þann fjölda af fjarstýringum sem fólk hefur á heimilinu í dag. Einnig er til hugbúnaður sem pakkar heilum DVD myndum niður í 128mb stærð þannig að hægt sé að horfa á þær í iPAQ lófatölvunni. Auk þess sem til eru fjöldinn allur af leikjum fyrir lófatölvurnar, þannig að manni ætti ekki að leiðast á löngum ferðalögum með iPAQ við höndina.
Á ferð og flugi
Lófatölvur eru orðnar mjög spennandi kostur, sérstaklega miðað við hversu öflugur vélbúnaður er komin í lófatölvurnar. Nú þegar komnar eru lófatölvur með sambyggðum farsíma er komin heildarlausn fyrir þá sem mikið eru á ferðinni. Í sumum tilfellum geta fartölvurnar vikið fyrir lófatölvunni þegar farið er í viðskiptaferðir þar sem hægt er að nálgast allar mikilvægustu upplýsingarnar nánast hvar sem er hvenær sem er. Notagildi lófatölvanna er orðið gríðarlegt og ljóst er að lófatölvur eru komnar til að vera.HP Ipaq h6340HP Ipaq h6340]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Compaq Business Desktop DC7100
			<description><![CDATA[Um er að ræða nýja línu í borðtölvum fyrir fyrirtækjamarkað. Nokkur áherslumunur er í því hvernig tölvur fyrir fyrirtæki og heimilismarkað eru uppbyggðar, t.d. er ekki gert ráð fyrir að fyrirtækjanotendur þurfi á að halda öflugu skjákorti til þess að spila leiki, en á móti kemur að meira er einblínt á öryggismál og stöðugleika og aðgengi fyrir tæknimenn. HP hefur lagt ríka áherslu á þetta í þessari línu, til að nálgast innviði tölvurnar þarf t.d. ekki að losa neinar skrúfur heldur er allt smellt, tölvan hefur aukið öryggi, hægt að læsa kassa tölvunnar yfir netið, einnig er tölvan með pre-failure warranty sem gerir þér kleift að skipta harða disknum út ef upp koma villur á honum. Auk þess sem uppfærslumöguleikar yfir net eru auknir.
Þessi lína bíður upp á ýmsar útfærslur, hægt er að velja milli þriggja misstórra kassa, Ultra-slim, Small form factor og Convertible minitower. Einnig er hægt að velja stýrikerfi fyrir vélina (Windows eða Linux), línan er fáanleg með Pentinum 4 (með hyper threading) örgjörfa eða Celeron örgjörfa. Ttölvan er með nýja 915 express kubbasetinnu frá Intel. Hún hefur fleiri USB 2.0 tengi en aðrar sambærilegar tölvur, allur frágangur tengja er eins og best verður á kosið, tengi fyrir heyrnartól og hljóðnema eru framan á tölvunni, einnig eru þar tvö USB 2.0 tengi. Til að nálgast gögn á harða disk tölvunnar hratt og örugglega er Serial-ATA harður diskur í vélinni sem sameinar bæði hraða og áreiðanleika.
Línan hefur hlotið frábæra dóma tölvutímarita, hún er talin vera frábær fyrirtækjatölva enda er tölvan sniðin fyrir það hlutverk. Línan hefur komið út mjög framarlega í öllum hraðaprófum sem hún hún hefur verið sett í, það er samdóma álit tímaritanna að tölva dugi meira en vel í það hlutverk sem henni er ætlað.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Samhæfni hélt kynningu á HP iPAQ
			<description><![CDATA[Haldin var kynning á iPAQ lófatölvum frá HP í verslun Samhæfni tæknilausna í Reykjanesbæ fyrr í þessum mánuði. Megin áhersla var lögð á HP iPAQ h6340, sem er að vekja gríðarlega athygli fyrir það að vera fyrsta lófatölvan með þremur þráðlausum samskiptamöguleikum, Bluetooth, WiFi þráðlausu neti og GSM/GPRS. Um leið byggir hún á Microsoft stýrikerfi sem gerir hana einstaklega einfalda í notkun og býður upp á mjög mikla möguleika. 
Einnig voru til sýnis aðrar gerðir iPAQ, eins og til dæmis iPAQ rx3715 sem er með innbyggða myndavél og þar til gerða ,,heimilisstýringu? sem gefur manni kost á að forrita allar fjarstýringar á heimilinu inn í lófatölvuna og þannig stýra öllum tækjum heimilisins með einu tæki. Gestum gafst kostur á að prufa tölvurnar og fulltrúar frá HP voru á staðnum til að svara fyrirspurnum.Á HP iPaq kynningu hjá Samhæfni]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
MS félagið fær jólakortastyrk Opinna kerfa
			<description><![CDATA[MS félagið fær jólakortastyrk Opinna kerfa í ár, en Opin kerfa hafa árlega styrkt gott málefni í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina.
MS-félagið er með umfangsmikla starfsemi og í húsnæði félagsins er rekin sjúkradagvist fyrir fólk með MS og aðra taugasjúkdóma. Það er mikið áfall fyrir ungt fólk að greinast með alvarlegan sjúkdóm, sem getur breytt líf þess og framtíðaáformum.  Þess vegna leggur félagið mikla áherslu á fræðslu og námskeiðarhald til þess að hjálpa fólki að aðlagast breyttum aðstæðum.  Nánari upplýsingar um starfsemi MS félagsins er að finna á heimasíðu félagsins, www.msfelag.is og í síma 568-8620.Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa afhendir Sigurbjörgu Ármannsdóttur formanni MS félagsins, jólakortastyrk Opinna kerfa 2004Agnar Már Jónsson forstjóri Opinna kerfa afhendir Sigurbjörgu Ármannsdóttur formanni MS félagsins, jólakortastyrk Opinna kerfa 2004]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi öðlast Cisco IP Communication Express vottun
			<description><![CDATA[Opin kerfi hafa uppfyllt þær ströngu kröfur sem þarf til að öðlast IP Communication Express vottun Cisco. Þeir sem hafa öðlast þessa vottun hafa sýnt fram á hæfileika og þekkingu á sölu, hönnun, uppsetningu og þjónustu IP samskiptalausna frá Cisco. 
Með vottuninni þykir sýnt að fyrirtækið ræður við uppsetningu flókinna síma- og fjarskiptakerfa sem nota IP tækni sem flutningsmáta. Vottunin gerir það mögulegt að Opin kerfi geta sett upp og þjónustað stærri og skalanlegri kerfi en áður og viðhalda flóknari þjónustum. 
Þetta er ekki fyrsta vottunin sem Opin kerfi öðlast frá Cisco fyrirtækið er einnig vottað sem: Premier Certified Partner, VPN Security Specialization, Registered Partner og nú síðast IP Communication Express Specialization.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Leitin að elsta HP prentaranum
			<description><![CDATA[Nú eru liðin 20 ár síðan HP kynnti fyrst til sögunnar HP LaserJet geislaprentarann. Þessi prentari markaði tímamót hvað varðar hraða, sveigjanleika, hágæða prentun, umfang og verð. Prentarinn var HP LaserJet Classic. Þrátt fyrir að hann þyki ekki öflugur miðað við þá prentara sem eru á markaðinum í dag gat hann skilað 8 bls./mín. og var fyrsti prentarinn með útskiptanleg prentduftshylki. Mikið hefur gerst síðan hann var kynntur til sögunnar.
Í  tilefni af afmælinu efndu Opin kerfi til leiks sem fólst í því að finna elsta HP LaserJet prentarann sem er ennþá í notkun á Íslandi. Leikurinn var framkvæmdur í samstarfi við Viðskiptablaðið.  Auglýsingum sem kynntu leikinn var ætlað að fanga tíðarandann fyrir 20 árum síðan. Útgangspunkturinn var Wham eða Duran Duran? Spurningin sem brann á margra vörum á þeim tíma. 
Öllum var heimil þátttaka og voru viðbrögð mjög skemmtileg, enda er vinningurinn mjög veglegur HP LaserJet 4250 prentari með netkorti, tvíhliða prentun, standi undir prentarann, heftara, þremur 500 blaða bökkum og einum 1500 blaða bakka. Verðmæti verðlaunanna er 500.000,- kr með vsk. Baráttan var hörð því fjöldi manns er ennþá að nota HP prentara sem eru í góðu lagi þrátt 16 ára aldur, en nokkrir prentaranna höfðu þjónað eigendum sínum í þann tíma.  
16 ára gamlall og viðhaldsfrír HP LaserJet 
Í ljós kom að að elsti HP LaserJet geislaprentarinn sem fréttist af í notkun er í eigu Bjarna Jónssonar og er notaður við útgáfu Varðturnsins. Prentarinn var framleiddur í febrúar 1988. Bjarni hefur notað prentarann í þau 16 ár sem hann hefur verið í þeirra eigu og segir hann hafa verið viðhaldsfrían allan þann tíma. ?Prentarinn hefur reynst mjög vel, en hann hefur mikið verið notaður í tengslum við útgáfuna, bæði í almenna prentun og einnig í prentum prófarka,?? segir Bjarni. Hann segir að ekki hafi verið laust við að sú hugsun hafi verið farin að læðast að honum að skipta prentaranum út en þess hafi ekki þurft. Ljóst er að nýi prentarinn kemur til með að koma að góðum notum.Bjarni Jónsson, sigurvegarinn í leitinni að elsta geislaprentaranum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Agnar Már ráðinn forstjóri Opinna kerfa ehf.
			<description><![CDATA[Agnar Már Jónsson hefur verið ráðinn forstjóri Opinna kerfa ehf. og mun hann hefja störf 16. nóvember.  Agnar Már kemur í stað Gylfa Árnasonar sem tók við starfi forstjóra Opin Kerfi Group hf. í október .
Agnar er fæddur 3. janúar 1964.  Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1987 og lokaprófi í Tölvunarfræði frá Háskóla Íslands 1991.  Agnar var starfsmaður hjá Opnum kerfum hf. 1990 ? 1997, varð markaðsstjóri Hugvits 1997, sölustjóri hópvinnulausna hjá IBM EMEA 1997 ? 1999, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs hjá Símanum 1999 ? 2002, þegar hann réðst sem framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs Samskipa.  Agnar er giftur Soffíu Dóru Sigurðardóttur og eiga þau þrjú börn á aldrinum 4 til 11 ára. Agnar Már Jónsson, nýráðinn forstjóri Opinna kerfa ehf.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Framtíðin í netþjónum: HP BladeSystem
			<description><![CDATA[HP hefur til margra ára verið leiðandi fyrirtæki í þróun og sölu á Intel netþjónum. HP ProLiant hefur til margra ára verið mest seldu netþjónar í heimi og fyrir nokkrum árum kynnti HP Blade netþjónatækni. HP BladeSystem er næsta skref í þróun HP ProLiant netþjóna. BladeSystem uppbyggingin skilar lægri kostnaði tengdum plássleysi og rafmagnseyðslu, fækkun net og rafmagnssnúra, engin fjöltengi (PDU) færri hitavandamálum, einfaldari stjórnun og lægri rekstrarkostnaði.  Jafnframt býður lausnin upp á meiri sveigjanleika og einfaldleika en áður hefur þekkst. 
Sömu hugmyndir, nýjar áherslur 
BladeSystem er að grunni til eins og hefðbundin netþjóna-lausn, þ.e. hvert blað (e. blade) er netþjónn, en til að einfalda aðgengi, uppsetningu og útskiptingu eru blöðin látin renna inn í tiltekin hólf í hillu (e. enclosure). Hver hilla getur tekið allt að 16 blöð. Hvert blað hefur sína staðsetningu en það býður upp á mun betra utanumhald og einfaldari stjórnun. Allt rafmagn er sótt í sérstökum rafmagnsskáp sem er settur neðst í rekka. Þar sem hiti frá nýjum örgjörvum fer stig-vaxandi skilar aðskilnaður rafmagnseiningar og þjónanna sjálfra mun meiri afköstum í kælingu sem veldur því að HP getur kynnt á markað ný ,,blöð? með nýjustu örgjörvum fyrr en ella. Rafmagnsskápur og Bladeskápur eru svo tengdir saman með svokölluðum mænustreng (e. mini bus bar eða scalable bus bar). Fækkun netkapla fæst með notkun netskipta-eininga sem eru til í nokkrum gerðum og fara í báðar hliðar Bladeskápsins. BladeSystem netþjónarnir eru með öflugri tengimöguleikum en áður hefur þekkst, bæði milli tveggja blaða svo og við netkerfi og diskastæður. Vírun fer fram einu sinni í upphafi en síðan eru breytingar framkvæmdar með VLAN hugbúnaði. Þetta skilar sér svo í færri köplum, auðveldara viðhaldi og minni rafmagnsnotkun, og þar með auknu hagræði í rekstri. 
Aukinn áreiðanleiki 
HP BladeSystem lausnin fer lengra í áreiðanleika en hefðbundin netþjónalausn. Flest kerfin hafa tvöfalt öryggi, þannig er t.d öll straumfæðing tvöföld, fjögur netkort, tvö HBA fiberkortatengi og margar viftur. Komi upp einhver vandræði hefur búnaðurinn sjálfur samband við kerfisstjóra. Alla hluti í BladeSystem er hægt að skipta um án þess að þurfa að stoppa netþjónana sjálfa en það veitir aukið rekstraröryggi. Með HP BladeSystem fylgir sérstakur hugbúnaður sem getur séð fyrir hugsanleg vandamál  tengd örgjörvum, minni og diskum  (e. predictive failure system). Auk þess sem hægt er að skipta þessum búnaði út áður en til vandamáls kemur. Með þessu móti næst meiri uppitími netþjóna. 
Auðveld stjórnun 
Hvað varðar stjórnun á HP Blade þá er hún framkvæmd með hugbúnaði á borð við Rapid Deployment Pack (RDP) sem gerir t.d. kleift að setja upp marga netþjóna samtímis. System Insight Manager sem fylgist með útgáfum á hvers konar fastbúnaði,  Performance og Workload management. Rip and Replace er einnig stutt en það leyfir útskiptingu á netþjónablaði  (spjaldi) við bilun og sjálfvirka uppsetningu á því nýja. Einnig er hægt að hafa ,,global? varablað. Þá má nefna að HP er í samvinnu við ýmis fyrirtæki við að búa til lausnir á BladeSystem, sem dæmi má nefna WMWare og  MS með Windows virtual server , F5 með BigIP.
Svokallað iLO er til staðar á hverju blaði en það er stjórnunarkerfi sem er notað í öllum HP ProLiant rekkaþjónum. Þetta kerfi samanstendur af örrás á móðurborði og hugbúnaði sem veitir ,,remote? aðgang að hverjum netþjóni, hægt er að tala við marga netþjóna í einu og margir stjórnendur geta talað við marga netþjóna samtímis. Eins leyfir þetta kerfi vitual CD og virtual disklingadrif þannig að ekki þarf geisladrif eða disklingadrif að vera til staðar í Bladeskáp.
Af hverju HP BladeSystem 
- 	HP voru fyrstir að ná að selja 100.000 blöð skv. IDC 
- 	HP er leiðandi í þéttleika (fjölda örgjörva per 42U rekka), 280 Pentium örgjörvar (BL10p),  96 Xeon örgjörvar ( BL20p með 2xSCSI diskum), 192 Xeon örgjörvar  (BL30p)  16 blöð mest per hillu sem er 6U að hæð
- 	HP er leiðandi í nýjungum, fyrstir með 4 x Xeon CPU netþjónablað, fyrstir með 3.6GHz netþjónablöð,  800Mhz FSB, 400Mhz minni 1MB L2 cache
- 	HP notar Smart Array RAID SCSI controller á netþjónablað, sama og er í ProLiant rekka netþjónum, sami hugbúnaður, einfaldar lærdómsferli og minnkar kostnað
- 	HP er leiðandi í hraðaprófunum á Blade framkvæmdar af óháðum aðilum
- 	HP býður sértakan einfaldleika hvað varðar kapla, þurfa t.d. ekki KVM kapla og fáa power kapla og ekki þarf PDU per enclosure, skiptar í Blade boxi fækkar netköplum niður í að lágmarki 1 per hillu
- 	HP Netþjónablað keyrir á 48 voltum eða 220 voltum, eins eða þriggja fasa 
- 	HP kæling og straumfæðing er einstaklega áreiðanleg, sérhvert netþjónablað nýtur sérkælingar og biluð vifta veldur ekki vandamáli, þeir nota N+N aflgjafa
- 	HP Blade lausnin mun ekki úreldast sökum orkuþurftar framtíðarörgjörva, HP staðsetur aflgjafana í sér enclosure
- 	HP notar Advanced ECC minnistækni sem gefur meiri áreiðanleika, sama og í Proliant rekkaþjónum 
- 	HP notar passive backplane í Bladeskáp sem er laus við Single point of failure og inniheldur mjög fáa íhluti, hvert netþjónablað er með redundant power, networking og storage tengi 
- 	HP er með fjögur/fimm netkort á hverju BL20/40 netþjónablaði
- 	HP býður upp á battery backed write cache til að hindra gagnatap
- 	HP býður upp á eitt fullkomnasta ,,stjórnunarkerfi? (e. management) í iðnaðinum t.d. að setja upp mörg netþjónablöð samtímis, margir stjórnendur geta verið að vinna samtímis  og margt fleira
- 	HP virtual CD og virtual floppy gerir geisla- og diskilingadrif óþörf í Bladeskápnm 
- 	HP netþjónablöð eru án trade-offs,  hægt er að hafa 4-netkort, SAN HBA dual fiber, tvo 15K SCSI diska, RAID 0, 1, 5 controller, battery backup allt á sama netþjónablaði 
Möguleikar HP BladeSystems eru rétt að byrja og á næstu sex mánuðum munum við sjá mikið af nýjungum fyrir HP BladeSystem sem auka fjölbreytni við hönnun á heildarlausnum. Það er því mikils virði fyrir fyrirtæki af öllum gerðum og stærðum að fylgjast vel með BladeSystem frá HP.
Greinin birtist í Viðskiptablaðinu 27. október 2004. 
Höfundur er Gunnar Þór Friðleifsson, viðskiptastjóri á Sölusviði Opinna kerfa ehf. og HP Blade sérfræðingur.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Designjet 130 valin besti plotterinn í Evrópu 2004
			<description><![CDATA[HP Designjet 130 var valinn besti prentarinn í Evrópu 2004 í hópi stærri prentara. Í dómnefnd sitja  ritstjórar og tæknisérfræðingar 30 leiðandi tímarita á sviði prentunar og ljósmynda frá 12 löndum. Meðlimir eru allir í TIPA (Technical Image Press Association).
			<author>ok@ok.is</author>
Kajakleiðangur blindra við Grænland nýtir sér tæknina
			<description><![CDATA[Friðgeir Jóhannesson, kajakfari, og kona hans Ragna Kjartansdóttir, afhentu nýlega Opnum kerfum þakkarskjal fyrir veittan stuðning vegna kajakferðar blindra um Grænland 2004. Leiðangursmenn réru 935 km við erfiðar aðstæður. Alls voru fjórir menn í leiðangrinum og tveir þeirra blindir. 
Leiðangursmenn notuðu HP fartölvu og lófatölvu og skráðu ferðasöguna í málin og myndum. Dagbók var send reglulega í gegnum þráðlausum gervihnattasíma.  Á slóðinni hér að neðan má sjá allar nánari upplýsingar um þetta merkilega afrek. Friðgeir Jóhannesson, kajakfari, og Ragna Kjartansdóttir afhenda Opnum kerfum þakkarskjal.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP inn á heimilin
			<description><![CDATA[Tölvu- og hátæknifyrirtækið Hewlett Packard, HP, hefur sótt verulega í sig veðrið á undanförnum árum og þá ekki bara í framleiðslu á tölvum og búnaði þeim tengdum, heldur hefur það kynnt ýmsan búnað sem beinlínis er ætlaður til heimilisbrúks, til að mynda myndvarpa, stafrænar myndavélar, stafræn upptökutæki og sjónvarpstæki.
Henrik Sinnbeck, framkvæmdastjóri Personal Systems Group hjá HP í Danmörku, og Sten Mortensen, framkvæmdastjóri Imaging & Printing Group hjá HP í Danmörku, komu hingað til lands fyrir skemmstu til skrafs og ráðagerða með Opnum kerfum og líka til að hitta helstu viðskiptavini fyrirtækisins. Í stuttu spjalli sögðust þeir vera hingað komnir til að treysta sambandið við Opin kerfi þótt það samband hafi ævinlega verið traust. 
Þeir Sinnbeck og Mortensen segja að langt sé síðan HP tók að sækja inn á heimamarkað þótt það beri kannski meira á því í dag. "Þróunin hefur líka verið þannig í upplýsingatækni að hún hefur færst inn á heimilið. Við getum nefnt sem dæmi myndir sem fólk er að taka á stafrænar myndavélar, það nýtir síðan tölvu til að skoða eða breyta myndunum, prentara til að prenta þær út, sjónvarpsskjá til að skoða þær eða sýna og flatskjá eða myndvarpa til að sýna þær á vegg. Á öllum þessum sviðum stendur HP traustum fótum, hefur þróað tæknilegar lausnir í fremstu röð og eðlilegt framhald að bjóða þær fyrir heimili."
Lófatölva sem fjarstýring
HP leggur mikið fé í tækniþróun og er í hópi þriggja fyrirtækja sem skrá flest einkaleyfi í heimi á hverju ári. Þeir segja að fyrir vikið sé fyrirtækið leiðandi á flestum sviðum og vel í stakk búið til að bregðast við nýjum markaðskröfum. Gott dæmi um það hvernig tækni sem HP hefur þróað og markaðssett getur nýst á nýjan hátt á heimili nefna þeir Ipaq-lófatölvur, sem hafa aðallega verið markaðssettar fyrir starfsfólk í viðskiptalífinu. "Í stofunni á venjulegu heimili er fjöldi fjarstýringa, ein fyrir sjónvarpið, önnur fyrir DVD-spilarann, enn ein fyrir myndlykilinn eða gervihnattaboxið og svo má áfram telja. Til eru forrit fyrir lófatölvur sem gera mönnum kleift að nota þær sem fjarstýringu fyrir öll þessi tæki og þá eru menn aðeins með eina fjarstýringu og sú fjarstýring getur líka gert fleira, lesið tölvupóst, skoðað myndir, spilað leiki, lesið vefsíður og svo framvegis."
Aðspurðir hvort HP hafi velt því fyrir sér að framleiða tæki með minni virkni, til að mynda einfaldari myndavélar, lófatölvur, sjónvörp eða MP3-spilara, sem væri þá hægt að selja á lægra verði segja þeir að það standi ekki til, enda ekki vænlegt að þeirra mati. "Það er ekki markaður sem við viljum keppa á, enda er það reynsla okkar að fólk vill fá meira fyrir peningana, það vill fá meiri möguleika, eins og sést ekki síst á því að þær tölvur sem eru best útbúnar, öflugastar, með besta skjáinn og mesta minnið, eru þær tölvur sem seljast jafnan best."
Fallegri myndavélar
Meðal þess sem HP hefur kynnt eða hyggst kynna á árinu er MP3-spilari sem fyrirtækið framleiðir í samvinnu við Apple, iPod sem merktur er HP, einnig kynnir fyrirtækið myndvarpa fyrir heimili, sjónvörp, bæði rafgastæki og LCD-tæki, nýjar gerðir af prenturum sem eru sérsniðnir til að prenta út ljósmyndir, margir með sérskjá og því þarf ekki að tengja þá tölvu, stafræn upptökutæki fyrir sjónvarpsútsendingar, og nýjar myndavélar. Myndavélarnar segja þeir Sinnbeck og Mortensen einmitt gott dæmi um það hvernig HP hyggst sækja inn á neytendamarkað því þótt fyrirtækið hafi lengi framleitt og selt stafrænar myndavélar hafi þær ekki verið mikið fyrir augað. "Menn hafa lofað vélarnar fyrir tæknilega útfærslu og trausta framleiðslu, en líka kvartað yfir því að þær væru sumar líkari múrsteinum en myndavélum. Á nýjum vélum frá HP, til að mynda r707 vélinni, er hönnunin aftur á móti orðin með því besta sem gerist á því sviði og tæknileg útfærsla jafngóð og hingað til."
Heimild: Viðskiptablað Morgunblaðsins 7.október 2004]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Dr. Gylfi ráðinn forstjóri Opin Kerfi Group
			<description><![CDATA[Dr. Gylfi Árnason (sjá innfellda mynd) hefur verið ráðinn forstjóri Opin Kerfi Group hf. frá 1. október 2004.
Gylfi var framkvæmdastjóri félagsins til ársloka 2002, en þá var daglegur rekstur þess á sviði sölu og þjónustu á tölvu- og upplýsingatæknibúnaði á Íslandi settur í sérstakt félag, Opin kerfi ehf. Gylfi varð framkvæmdastjóri þess félags og mun gegna þeirri stöðu áfram þar til eftirmaður hans þar hefur verið ráðinn.
Gylfi er með doktorspróf í verkfræði frá Washington State University og starfaði um árabil sem háskólakennari í BNA og hjá Háskóla Íslands áður en hann gekk til liðs við Hewlett-Packard á Íslandi árið 1986.
Hann gegndi frá 1989 markaðs- og sölustörfum hjá Hewlett-Packard í Evrópu, meðal annars sem markaðsstjóri fyrir Austur-Evrópu, Mið-Austurlönd og Afríku með aðsetur í Vínarborg.
Opin Kerfi Group hf. fjárfestir í og rekur fyrirtæki á sviði upplýsingatækni og skyldra greina á Norðurlöndum. Helstu félög samstæðunnar eru Kerfi AB með starfsemi í Svíþjóð og Noregi, Kerfi A/S í Danmörku og Opin kerfi ehf., Skýrr hf. og Teymi ehf. á Íslandi. Áætlað er að alls muni velta samstæðunnar á árinu 2004 verða um 15 milljarðar króna]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hagkvæmni í rekstri - ástæða þess að B&L gerðu alrekstrarsamning
			<description><![CDATA[B&L hafa verið með alrekstrarsamning við Opin kerfi frá því í júlí 2003. Samningurinn nær yfir miðbúnað, afritunarbúnað, útstöðvar og ýmis jaðartæki. Að sögn Stefáns Rafns Stefánssonar, forstöðumanns upplýsingadeildar B&L hefur samstarfið gengið vel. ,,Í samningnum er kveðið á um hálfsdags viðveru eins starfsmanns frá Opnum kerfum, en Guðni Birgisson, Microsoft sérfræðingur hefur sinnt því og hefur það fyrirkomulag hentað okkur mjög vel. Við erum með um 100 starfsmenn og um 80 útstöðvar,'' segir Stefán. 
Einsleitt umhverfi  
Við undirritun samningsins síðastliðið sumar var öllum tölvubúnaði skipt út. ,,Eitthvað af gamla búnaðinum var í fjármögnunarleigu, sem við skiluðum og annar búnaður var seldur,'' segir Stefán. ,,Ákveðið var að byggja upp einsleitt og öflugt umhverfi, þannig að allir starfsmenn væru með sama tölvubúnað og sama hugbúnað. Það tryggir einfaldleika í rekstri, þ.e. viðhaldi og þjónustu,'' segir Stefán.  Allir starfsmenn eru með HP Compaq D510 turntölvur með 2.8 GHz örgjörva, 512 MB minni og HP L1721, 17'' LCD flata skjái og í vélarsal sem er hýstur hjá B&L eru níu öflugir HP ProLiant tveggja örgjörva netþjónar með góðu diskaplássi. Opin kerfa eiga þennan tölvubúnað, en víðnetsbúnaður er í eigu B&L.
Útskiptin gerð á vinnutíma  
Stefán sagði uppsetningu á búnaði hafa gengið mjög vel.  ,,Við skiptum fyrst út netþjónunum og síðan tölvunum. Við gerðum þetta í vinnutíma og það gekk mjög vel.  Menn trúðu ekki að hægt væri að gera þetta á vinnutíma, en með góðum undirbúningi og prófunum gekk þetta alveg eins og í sögu. Af þeim níu netþjónum sem við erum með eru sjö netþjónar að keyra á Microsoft Windows 2003 Server og tveir á MS Windows 2000 út af sérhæfðum hugbúnaði.'' B&L eru með Microsoft samning við Opin kerfi. Stefán segir sömu lögmálin gilda um hugbúnað og tölvubúnað hvað varðar einsleitt umhverfi. ,,Við erum að keyra Microsoft Office 2003 og erum með MS SQL 2000, MS Exchange 2003 og ISA server sem fylgist með netumferð hjá starfsmönnum. Það fá allir starfsmenn nýjustu uppfærslur t.d af Office um leið og þær koma út. Við erum einnig með McAffee vírusvarnir frá Opnum kerfum sem hafa virkað mjög vel,? segir Stefán.  
Hagkvæmni í rekstri  
,,Við framkvæmdum mikla útreikninga áður en við tókum ákvörðun um að skrifa undir alrekstrarsamning við Opin kerfi,'' segir Stefán. ,,Þetta var hagstæðasta niðurstaðan, þar sem við fengum góð verð og vorum búin að taka ákvörðun um að skipta út öllum búnaði út. Með þessu erum við einnig að tryggja okkur nýjan búnað til 3 ára og getum því leyft okkur að skipta þá aftur að þeim tíma liðnum.''  Stefán segir alrekstrarfyrirkomulagið mjög hentugt fyrir bæði stór fyrirtæki sem smá. ,,Segja má að við séum búin að taka þetta fyrirkomulag upp að ákveðnu stigi, þar sem við erum til dæmis ekki með netþjónana utanhúss, heldur í okkar eigin tækjasal og með einn tölvumann innan fyrirtækisins, sem ég held að sé alveg nauðsynlegt til að halda þróun áfram og verkstýra. Auk þess byrjuðum við á að ráða starfsmann tímabundið  í fullt starf, en komust að því að við höfðum ekki næg verkefni fyrir fullan starfsmann. Því er fyrirkomulagið að fá sérfræðing frá Opnum kefum mjög þægilegt. Við erum með því til dæmis að spara okkur menntunarkostnað og höfum aðgang að sérfræðiþekkingu Opinna kerfa mun betur. Þar sem Guðni getur til dæmis haft samráð við sína samstarfsmenn,'' sagði Stefán að lokum.Stefán Rafn Stefánsson, forstöðumðaur upplýsingadeildar B&L.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Úrslit í súperstjörnuleik Odda
			<description><![CDATA[Mjög góð þátttaka var í súperstjörnuleik Odda og tók á annað hundrað keppenda þátt í leiknum. Margar tilvonandi söngstjörnur komu fram á sjónarsviðið í fyrsta sinn og örugglega ekki í það síðasta því margir keppendur voru mjög frambærilegir söngvarar. 
Sigurvegari í súperstjörnuleik Odda hlaut 8.590 stig og hlýtur 1. verðlaun.
Hún heitir Þórdís Birna Borgarsdóttir úr Reykjanesbæ. 
1. verðlaun:
HP Compaq nx9005 A2500+ fartölva 
Singstar leikur fyrir PlayStation 
Endurgreiddar skólavörur keyptar í Odda fyrir allt að 50.000 kr. 
Fimm keppendur voru dregnir af handahófi úr hópi allra þátttakenda og var notað sérstakt forrit til þess. Þeir hljóta 2. ? 6. verðlaun og eru: 
Margrét Lóa Ágústsdóttir úr Hafnarfirði 
Regína Jónsdóttir úr Kópavogi 
Ágústa Sif Aðalsteinsdóttir úr Reykjavík 
Vigdís Elín Björnsdóttir úr Borgarnesi 
Elísabet Ormslev úr Reykjavík 
2. - 6. verðlaun: 
Singstar leikur fyrir PlayStation 
Endurgreiddar skólavörur keyptar í Odda fyrir allt að 10.000 kr. 
Nánari upplýsingar um verðlaunahafa er að finna á heimasíðu Odda.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vottun tryggir gæði - Opin kerfi verða Premium Business Partner fyrir Alcatel á Íslandi
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. fengu nýlega vottun frá Alcatel sem Premium Business Partner og er þá eina fyrirtækið á Íslandi með slíka vottun. Til að fá vottun þarf að uppfylla mörg skilyrði um innra skipulag og þekkingu starfsmanna. 
Það liggur mikil vinna í þekkingaröflun og hafa tæknimenn sem og sölumenn sótt fjölda námskeiða í Alcatel lausnum. Viðskiptavinir Opinna kerfa geta því verið fullvissir um að sölu- og tæknimenn hafi góða og víðtæka þekkingu á símkerfum og lausnum þeim tengdum. Auk þess sem sölu- og tæknimenn Opinna kerfa hafa beinan aðgang að starfsfólki Alcatel varðandi kaup á vöru og tæknilegar upplýsingar. 
Alcatel er eitt fremsta fyrirtækið á heimsvísu í samskiptatækni og býður kerfi fyrir allar stærðir af fyrirtækjum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hátæknihné stjórnað með HP iPAQ
			<description><![CDATA[Össur framleiðir og hannar stoð- og stuðningstæki og er leiðandi á því sviði.  Össur er annar stærsti stoðtækjaframleiðandinn í heiminum og hjá fyrirtækinu starfa yfir 620 starfsmenn á níu stöðum víðs vegar um heim. 
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru á Íslandi. Össur hefur starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Kanada, mið-Evrópu og á Norðurlöndunum og er með umfangsmikið net dreifingaraðila á öðrum alþjóðlegum mörkuðum. 
Að sögn Kristbjargar Jóhannsdóttur, verkefnisstjóra er stefna Össurar að hjálpa fólki að njóta sín til fulls.  ,,Össur reynir að ryðja úr vegi líkamlegum hindrunum af völdum aflimunar með því að framleiða bestu gervilimi sem völ er á og líkja eins og kostur er eftir virkni og útliti þess útlims sem tapaðist.  Sú þekking sem skapast hefur innan fyrirtækisins er grunnurinn að auknum vexti og nýsköpun í rannsóknar- og þróunarstarfi fyrirtækisins,´´ segir Kristbjörg.  
Hátæknihnéð vekur verðskuldaða athygli
,,Össur kynnti hátæknihnéð, Rheo Knee?, á Orthopädie & Reha Technik sýningunni í Leipzig í Þýskalandi fyrr á þessu ári og vakti hátæknihnéð mikla athygli,'' segir Kristbjörg. Rheo Knee hátæknihnéð er afrakstur af samstarfi Össurar og Massachusett Institue of Technology (MIT).  Tæknin er byggð á rafsegulvökva sem er býður upp á sérstaklega mikið viðbragð og hentar því afar vel til þess að líkja eftir virkni vöðva. 
Að sögn Kristbjargar er frummarkaðssetning á  Rheo Knee  og forsala á 60 hnjám hafin. Í þessum fasa eru viðskiptavinir útvaldir og fylgst sérstaklega með notendum.  En áætlað er að hnéð fari í almenna sölu í október.
Rheo Knee - sjálfsagður kostur
Ólafur Josua Baldursson starfar í framleiðsludeild Össurar og hefur unnið með Rheo Knee,  hátæknihnéð í rúmt ár. Ólafur segir hátæknihnéð einstakt, þar sem það lærir að þekkja hreyfingar notandans og aðlagar á einfaldan hátt viðeigandi snúningsátak eða mótstöðu til að framkalla eðlilega og áreynslulausa göngu. ,,Rafsegulvökvi er kjarninn í Rheo Knee´´,  gervihnésins  og innbyggður örgjörvi gerir því kleift að læra á hegðun notandans, auk þess sem hann finnur strax mun á þessu hné og gervihné sem byggt er á hefðbundnu vökvakerfi, því með Rheo Knee þarf ekki að vinna á móti vökvanum og því fer mun minni orka í gönguna,'' segir Ólafur.
Háþróuð tækni, hönnuð til að gera þér lífið auðveldara 
Með Rheo Knee fylgir HP iPAQ H2210 lófatölva og hugbúnaðurinn RheoLogicTM sem var þróaður af hjá þróunardeild Össurar hf.  ,,Með lófatölvunni getur notandinn með ýmsum flettimyndum stillt hátæknihnéð og vistað eigin stillingar, hann getur til dæmis breytt sveifluhraða, stífleika, eða hversu mikið það bremsar.  Hægt er að breyta öllum stillingum með lófatölvunni, eða nota ,,Auto'' eða sjálfkrafa stillingu. ,,Auk þess sem hægt er að sjá rafhlöðustöðuna á hnénu, upplýsingar um skrefafjölda o.s.frv.. Með því að nota lófatölvuna verður uppsetning og allt viðhald Rheo Knee mun auðveldari,'' segir Ólafur.Ólafur Josua Baldursson, framleiðsludeild Össurar og Kristbjörg Jóhannsdóttir, verkefnisstjóri í Þróunardeild Össurar.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Súperstjörnuleikur Odda stendur sem hæst
			<description><![CDATA[Nú stendur Súperstjörnuleikur Odda sem hæst og spennan orðin mikil.  Á mánudaginn var það Ragnheiður Eyjólfsdóttir sem hafði náð hæsta skori eða 8330 stigum en ekki var búið að setja inn skor þeirra sem sungu í gær þegar þessi frétt er skrifuð en þá var metþátttaka í leiknum.  
Mikil stemning var í verslun Odda í gær enda var skólasetning í flestum grunnskólum landsins.  Seinnipartinn hafði myndast biðröð við Singstar kerfið í versluninni og börn á öllum aldri tóku lagið við mikinn fögnuð viðskiptavina. Það er til mikils að vinna því að sigurvegarinn í leiknum fær í verðlaun glæsilega fartölvu frá HP Compaq, Singstar leikinn fyrir PlayStation og endurgreiddar skólavörur keyptar í Odda, fyrir allt að 50 þúsund krónum. Úr hópi allra þátttakenda verða dregnir fimm heppnir sem fá í verðlaun Singstar leikinn fyrir PlayStation og endurgreiddar skólavörur, keyptar í Odda, fyrir allt að 10 þúsund krónum.  
Úrslit leiksins verða kynnt á heimasíðu Odda þann 10. september 2004]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fartölvuhátíð framhaldsskólanna í Pennanum
			<description><![CDATA[Penninn í Hallarmúla hélt fartölvuhátíð framhaldsskólanna í síðustu viku og þrátt fyrir blíðviðri var góð mæting.  Á hátíðinni var haustlína HP fartölva kynnt. Tölvurnar  vöktu mikla athygli framhaldsskólanemanna.
Allir sem keyptu fartölvu á fartölvuhátíðinni bauðst að kaupa veglegan fylgihlutapakka á aðeins 9.900 kr. en fullt verð er 29.900 kr.  Auk þess var glæsilegt happdrætti sem allir sem mættu gátu tekið þátt í.  Aðalvinningurinn var vegleg HP Compaq nx9105 fartölva að verðmæti 159.900 kr.
Það var Guðrún Lilja Númadóttir sem fékk aðalvinninginn og var hún að vonum sérlega lukkuleg með gripinn.Ingveldur Sæmundsdóttir vörustjóri afhendir Guðrúnu Lilju Númadóttur stærsta vinning Fartölvuhátíðar Pennans í ár, HP Compaq nx9105 fartölvu.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft Windows XP og Microsoft Office 2003 á íslensku
			<description><![CDATA[Rökrétt þróun og skilningur á mikilvægi og gildi menningar sérhverrar þjóðar, til að mynda okkar Íslendinga, birtist meðal annars í þýðingum Microsoft á útbreiddustu forritum fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur tekið þá ákvörðun að axla í enn ríkari mæli samfélagslega ábyrgð gagnvart ólíkum menningum heimsins og er þýðing Office 2003 og Windows XP á íslensku eitt birtingarform þessarar ákvörðunar.
Aukinn skilningur - aukin geta - aukin skilvirkni
Öll höfum við þá sannfæringu að betra sé fyrir tölvunotendur, bæði byrjendur og lengra komna, að vinna í tölvuviðmóti sem er á móðurmáli notandans. Við trúum því að íslensk útgáfa þessara forrita leiði til aukins skilnings og þar með aukinnar getu og skilvirkni við notkun þeirra. Þetta á við um æsku landsins, heima við og í námi, hvort sem er við notkun forrita á borð við Word, Excel, PowerPoint eða póstkerfið Outlook. Við höfum líka þá sannfæringu að notkun íslensku útgáfanna muni auka sjálfstraust þeirra sem hafa hingað til veigrað sér við að tileinka sér notkun tölva þrátt fyrir aukna kröfu upplýsingaþjóðfélagsins. Við teljum að notkun þeirra á móðurmálinu skili sér í aukinni skilvirkni meðal stjórnenda og starfsmanna fyrirtækja og stofnana sem þurfa á þeim forritum að halda sem ítarleg útgáfa Office 2003 inniheldur. 
Hér er að verða breyting á!
Íslensk útgáfa Microsoft Office 2003 og Windows XP verður að teljast kærkomin nýjung fyrir tölvunotendur sem til þessa hafa átt að venjast tölvuviðmóti á erlendum tungumálum. Útgáfurnar hljóta ennfremur að teljast fagnaðarefni fyrir fræðsluyfirvöld sem markað hafa þá pólitísku stefnu að helstu forrit skóla landsins verði á okkar ástkæra ylhýra móðurmáli.
Heimild: Microsoft á Íslandi.
Hafðu samband við viðskiptastjóra á sölusviði Opinna kerfa til að fá frekari upplýsingar.Íslenska notendaviðmótið fyrir Windows XP Professional eða Windows XP Home Edition gerir þér kleift að nota íslensku fyrir allar algengustu aðgerðir í Windows XP.Íslenska notendaviðmótið fyrir Windows XP Professional eða Windows XP Home Edition gerir þér kleift að nota íslensku fyrir allar algengustu aðgerðir í Windows XP.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hrókurinn heimsækir Opin kerfi á Opnu húsi
			<description><![CDATA[Opin kerfi stóðu fyrir opnu húsi fyrir fjölskyldur starfsmanna síðastliðinn fimmtudag, 12. ágúst,  þar sem gestum var boðið að skoða aðstöðu fyrirtækisins að Höfðabakka 9.
Hrókurinn mætti með einn af sínum bestu mönnum, danska stórmeistarann Henrik Danielsen, sem verið hefur lykilmaður í sókn Hróksins síðustu árin. Henrik varð Íslandsmeistari með Hróknum 2002, 2003 og 2004. Hann sigraði í Áskorendaflokki Mjólkurskákmótsins á Hótel Selfossi 2003, og varð í 1. til 3. sæti á Stórmóti Hróksins og Fjölnis 2004. Hann er skólastjóri í Skákskóla Hróksins.
Henrik tefldi fjöltefli við börn og fullorðna. Hann tefldi 20 skákir í einu og voru skörð fyllt jafnóðum, svo allir sem vildu gátu verið með. 
Hrókurinn þakkaði Opnum kerfum fyrir ómetanlegan stuðning á liðnum árum en Opin kerfi hafa gegnt mjög mikilvægu hlutverki í sókn Hróksins og hefur m.a. komið að eftirtöldum viðburðum á vegum félagsins: Mjólkurskákmótinu á Hótel Selfossi 2002 og 2003, KB einvígi Friðriks og Larsens á Loftleiðum 2003, Grænlandsmótinu, Stórmóti Hróksins og Fjölnis 2004, Skákhátíð Hróksins og UMFÍ á Vestfjörðum 2004.Áhugasamir skákmennÁhugasamir skákmenn]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Lófatölva + GSM = HP iPAQ
			<description><![CDATA[Hver hefði trúað því fyrir 20 árum að maður gæti ekki verið án síma í meira en nokkrar mínútur í senn? - Hver hefði trúað því fyrir 5 árum að allir þyrftu að hafa aðgang að Internetinu hvar sem er -  hvenær sem er? Í dag gerir samfélagið þá kröfu að alltaf sé hægt að ná sambandi við þig, hvort sem um er að ræða símleiðis eða með tölvupósti.
GSM símar nútímans þurf a að leysa öll helstu verkefni borðtölvunnar. Fyrir utan að geta hringt í og úr þeim hvar sem er í heiminum þarf maður að geta haldið utan um tengiliði, lesið og skrifað tölvupóst, sótt upplýsingar af Internetinu, skoðað dagbók og minnislista. Þessu til viðbótar erum við líka farin að gera kröfu um að síminn sé afþreyingartæki. Við viljum geta tekið myndir, horft á myndbönd og hlustað á tónlist. En hvernig eigum við að geta gert allt þetta með einu tæki sem verður að passa í buxnavasa?!
Segja má að hátækniiðnaðurinn hafi haft um tvær leiðir að velja. Annað hvort að taka GSM síma og troða öllum þessum tækjum í hann. Eða taka lófatölvu sem byggir á Microsoft stýrikerfi og bæta í hana síma. En það var einmitt það sem HP gerði. HP hefur nú sett á markað nýja lófatölvu með innbyggðum GSM síma. Tölvan er bæði lítil og nett og hefur fjöldan allan af möguleikum. Þetta er HP iPAQ h6340.
Þrír tengimöguleikar
HP iPAQ h6340 býður uppá þrjá tengimöguleika til að tengjast Internetinu. Fyrst er að nefna Bluetooth tæknina, svo WLAN 802.11b (Wi-Fi) þráðlaust net; tækni sem mörg heimili, fyrirtæki og stofnanir búa nú yfir. Síðast en ekki síst er einnig hægt að tengjast með GSM í gegnum GPRS beint úr tölvunni. GPRS er þráðlaus sítenging í GSM kerfinu við Internetið.
Bluetooth tæknin er mjög hentug í ýmis verkefni. Þú getur tengt eitt Bluetooth tæki við annað í 10 metra fjarlægð. Sem dæmi um tengimöguleika geturðu prentað út úr HP iPAQ 6340 þráðlaust í HP Deskjet 450wbt ferðaprentara: Hvar sem er - hvenær sem er! 
Með WLAN, þráðlausu neti, geturðu tengst Internetinu þráðlaust á háhraðatengingu innan þráðlausra netsvæða. Þráðlaus net er nú að finna á fjölmörgum heimilum, fyrirtækjum og stofnunum. Einnig í flest öllum skólum landsins. Síma- og Internetfyrirtæki víðsvegar um heiminn vinna nú hörðum höndum að því að setja upp þráðlaus netsvæði, eða  ?Hot-Spots?,  á mörgum almenningsstöðum. Eins og til dæmis í verslunarmiðsöðvum og flughöfnum, þar sem hægt er á einfaldan hátt að kaupa aðgang að Interneti - þráðlaust.
Nýjasti tengimöguleikinn frá HP er svo að hafa GSM símakort í lófatölvunni. Það er að segja, þú getur notað lófatölvuna sem GSM síma en getur einnig notað símakortið til að tengjast Internetinu með GPRS. GSM síminn í HP iPAQ 6340 tryggir að þú getir tengst Internetinu hvar sem er - hvenær sem er, þar sem hann hefur öll fjögur GSM bönd heimsins: 850/900/1800/1900. 
Afþreying
GSM símar og lófatölvur eru meðal annars notaðar sem afþreyingartæki. Í HP iPAQ geturðu spilað tölvuleiki, lesið bækur eða látið iPAQ lesa fyrir þig bók, horft á kvikmyndir eða myndbönd, hlustað á tónlist, skoðað ljósmyndir ? tekið ljósmyndir og ýmislegt fleira. 
Kostir og gallar
Bæði lófatölvur og GSM símar hafa sína kosti og galla. Helsti kostur GSM síma fram yfir lófatölvur er að þeir eru minni og nettari - og því er ekki að leyna. Á móti kemur að það eru mun fleiri möguleikar með lófatölvum en GSM símum. Meiri möguleikar á auka hug- og vélbúnaði. 
Eitt af því fyrsta sem margir lenda í með GSM síma er að þeir verða fljótt minnislausir. Hvort sem því er um að kenna að menn eru með nokkur hundruð tengiliði, dágóðan slatta af SMS skilaboðum, mikið af myndum og slatta af auka hringitónum ? það er ómögulegt að segja. Eina sem er vitað er að þetta er ekki vandamál í HP iPAQ. Þar ertu með 75MB af minni fyrir gögnin þín og þú getur einnig aukið minnið umtalsvert með því að setja SD minniskort í tölvuna.
Niðurstaðan er sem sagt sú, að ef þú þarft að hafa aðgang að upplýsingum og gögnum hvar sem er ? hvenær sem er, er iPAQ 6340 betri kostur en hefðbundinn GSM sími. Með því að komast í allar upplýsingarnar sem maður þarf - þegar maður þarf. Getur maður betur sinnt þörfum viðskiptavina, auðveldar tekist á við hraðar breytingar á markaði og óvæntar aðstæður og þannig tryggt ánægju viðskiptavina.
Áreiðanleiki og samvirkni tölvubúnaðar
HP eru mest seldu tölvur í heimi. Gott verð, lipur og traust þjónusta Opinna kerfa gerir HP að besta kostinum. HP er eini framleiðandinn í heiminum sem býður upp á heildarlínu í tölvubúnaði. HP vinnur náið með framleiðendum eins og Intel og Microsoft í þróun á lausnum sem skilar sér í bættri og skilvirkari samvirkni tækjabúnaðar. 
Á skrifstofunni getur þú verið með HP borðtölvu með HP skjá og HP geislaprentara sem allt er tengt við áreiðanlegan HP netþjón. Þú getur verið með HP fartölvu eða lófatölvu á ferðinni með HP ferðaskjávarpa og ferðaprentara með rafhlöðu meðferðis. HP faxtæki og stafrænn myndsendir eru ómissandi tæki á skrifstofuna. Heima við geturðu verið með HP stafræna myndavél og HP ljósmyndaprentara og til dæmis prentað út myndir án þess að eiga tölvu. Svona mætti lengi telja. Með HP er allt framkvæmanlegt! 
Greinin birtist í Viðskiptablaðinu 28. júlí 2004. 
Höfundur er HP leiðbeinandi hjá Opnum kerfum,  Andri Örn Víðisson.HP iPAQ 6340 lófatölvan er væntanleg í október/nóvember]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Verðlaunahafar í SHREK2 litasamkeppni
			<description><![CDATA[Opin kerfi og Sambíóin stóðu fyrir skemmtilegri HP litasamkeppni á vefsíðunni, www.prentarar.is, þar sem börn gátu litað þekktar sögupersónur úr Shrek2 myndinni, eins og Shrek, Fíónu, Asnann, mömmu Fíonu og Álfadrottningunni. Myndirnar voru litaðar með litabók á netinu og prentaðar út. Þátttakan var mjög góð.
Hewlett-Packard (HP) og Dreamworks hafa í góðri samvinnu teiknað SHREK teiknimyndapersónurnar með aðstoð HP tölva. HP og Dreamworks hafa einnig unnið saman að Hákarlasögu (e. Shark Tale) sem frumsynd verður í október.
Fyrstu verðlaun fékk Margrét Eiríksdóttir að Leiðhömrum 13, en hún fékk HP Photosmart 735 stafræna myndavél. Önnur verðlaun fékk Gunnhildur Einarsdóttir, Háagerði 61 og fékk hún HP Photosmart 7260 ljósmyndaprentara. Aukaverðlaun voru Shrek2 bíómiðar sem gilda fyrir tvo, Shrek bolir og Shrek eyru.
Upplýsingar um vinningshafa er að finna á www.prentarar.is. Vinningar verða sendir til þeirra sem búa á landsbyggðinni, en vinningshafar á höfuðborgarsvæðinu er bent á að nálgast vinninga hjá Opnum kerfum að Höfðabakka 9 í móttöku á annarri hæð.Á myndinni eru vinningshafarnir, frá vinstri Margrét Eiríksdóttir og Gunnhildur Einarsdóttir.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
IP símtækni sífellt vinsælli
			<description><![CDATA[Á síðustu árum hefur átt sér stað mikil þróun í svokallaðri  IP síma- og samskiptatækni og hafa þegar fjöldi íslenskra fyrirtækja tekið tæknina í þjónustu sína. IP símtækni gengur í meginatriðum út á það að senda bæði símaumferð og tölvugögn eftir sama gagnaneti og getur þessi tækni sparað töluverða fjármuni þar sem við á, þegar ekki þarf lengur að reka aðskildar tengingar þegar t.d. fyrirtæki hafa áhuga á að samtengja símstöðvar sínar.  
Ávinningur af IP símtækni 
Einn af ávinningunum með því að taka IP símtæknina í þjónustu sína er sá að hægt er að tengja saman símstöðvar fyrirtækja yfir hefðundnar gagnatengingar, hringja á milli þeirra eins og um innanhússsímtöl væri að ræða og gefa símann á milli starfsmanna, hægt er að láta alla símsvörun fyrirtækisins fara í gegnum eitt skiptiborð o.s.frv. Fyrir þau fyrirtæki sem reka margar starfsstöðvar gæti ávinningur af því að innleiða IP símtækni því byrjað að skila sér tilbaka strax á fyrsta árinu í beinum sparnaði. Fyrirtæki sem eru með lítil útibú, t.d. á landsbyggðinni, geta tengt einstaka starfsmenn aðalstöðvunum með því að nota eingöngu IP síma og njóta þessir starfsmenn allrar sömu þjónustu og starfsmennirnir í aðalstöðvunum og öll umsýsla kerfisins fer fram frá einum stað sem minnkar kostnað og utanumhald mjög mikið. IP símtæknin einfaldar til muna það ferli að flytja síma á milli starfsstöðva í fyrirtæki. Eingöngu þarf að taka IP símann úr sambandi og setja hann í samband við nýjan tengil og þá flyst símanúmerið sjálfkrafa með tækinu. 
Nýjungar í IP símtækni eru líka þær að hægt er að nálgast símtæki sitt hvar sem viðkomandi er staddur á staðar- eða víðneti fyrirtækis og njóta allra þjónusta sem símstöðin býður uppá eins og talhólfakerfi, sameinað skilaboðakerfi (Unified Messaging) og fleiri lausnir. Fyrirtæki sem hafa tekið IP símtæknina í sína þjónustu hafa líka sparað mikið þegar starfsmenn eru t.d. á ferðalögum erlendis og hringja þá í gegnum IP tölvusíma sem er settur upp á ferðatölvu viðkomandi starfsmanns. Símtalið fer á í gegnum Internetið í gegnum öruggar sýndartengingar (VPN) og er þá ekki borgað sérstaklega fyrir símtalið. Dæmi eru um að fyrirtæki hafi sparað mikið í GSM kostnaði eftir að hafa tekið þessa tækni í notkun. 
GSM síminn sem hluti af einkasímstöð fyrirtækis
Ný tækni frá símstöðvaframleiðendum, t.d Alcatel, gerir mögulegt að samþætta GSM síma starfsmanns og borðsíma, þ.e. GSM síminn fær númer í símstöðinni og nýtur sömu þjónustu og borðsíminn. Þetta gerir að verkum að hægt er að láta borðsímann og GSM símann hringja á sama tíma, hægt er að láta GSM símann og borðsímann nota sama talhólf. Skiptiborð sér hvort starfsmaðurinn sé á tali, hvort sem hann er að tala í borð- eða GSM síma og hægt er að áframsenda símtöl úr GSM símanum í hvaða síma innan símstöðvar o.s.frv.
Fyrirtæki hafa einnig í auknum mæli verið að taka í notkun svokallaðar GSM gáttir sem getur lækkað kostnað fyrirtækja við hringingar í GSM síma mjög mikið. Gáttirnar virka þannig að í þeim er SIM kort frá fjarskiptafyrirtækjum sem bjóða uppá GSM þjónustu. Þegar hringt er úr fyrirtækinu í GSM númer, t.d hjá Símanum, þá veit gáttin að það er ódýrast að fara í gegnum gáttina sem er með SIM kort frá Símanum og þannig verður símtalið að GSM-GSM símtali í staðinn fyrir borðsími-GSM símtal sem þýðir umtalsverðan sparnað.
Aukin skilvirkni í þjónustuverum
Nokkuð hefur verið um það að fyrirtæki sem starfrækja þjónustuver hafi tekið IP símtæknina í sínar hendur og þar opnast eins miklir möguleikar á að nýta mun betur umboðsmenn og aðra starfskrafta um landið sem eina heild í öflugri símsvörun. Hægt er að fá hugbúnað fyrir þjónustuver sen veitir aukið upplýsingaflæði um stöðu símsvörunar, gæði svörunar, og opnar starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis aukinn aðgang að miðlægum síma og upplýsingaskrám. Með þessu er hægt að nýta starfskrafta mun betur, færa störf út á land og jafnframt auka gæði og virkni þjónustuversins til muna. 
Hægt er að taka í notkun hugbúnað sem sýnir fyrirtækjum sem reka þjónustuver upplýsingar um hvernig þjónustu fyrirtækið er að veita miðað við þann mannafla og tækni sem það býr yfir. Hægt er að reikna út hversu mikinn mannafla þarf til að svara tilteknum fjölda símtala miðað við þau markmið sem fyrirtækið hefur sett sér að svara á tilteknum tíma. 
Símtækni og tölvutækni eiga góða samleið
Fyrirtæki gera flest kröfu um lausnir sem bæta rekstur þeirra og gera hann skilvirkari. Í mörgum tilvikum er ekki nægjanlegt að vera með einfaldan símabúnað heldur eru fyrirtæki farin að gera kröfur um lausnir sem auka samskipta- og þjónustuhæfni þeirra. Sú tækni sem hefur þróast hvað hraðast undanfarið er IP samskiptatæknin og eru skilin milli tölvukerfa, símkerfa og gagnaneta stöðugt að verða óljósari. Nýlega styrktu Opin kerfi lausnaframboð sitt með kaupum á samskiptasviði Grunns-Gagnalausna. Með þessum kaupum eru Opin kerfi orðin helsti samstarfsaðili Alcatel á Íslandi og eini vottaði Alcatel Premium Business Partner á Íslandi. Opin kerfi eru einnig endursölu- og vottaður þjónustuaðili á Nortel símkerfum frá Tele Danmark. Opin kerfi hafa lagt miklar áherslur á IP símalausnir frá Cisco Systems og hafa nokkrir stórir viðskiptavinir Opinna kerfa þegar hafið innleiðingu á slíkum lausnum. 
Greinin birtist í Viðskiptablaðinu 14. júlí 2004. 
Höfundur er viðskiptastjóri á Samskiptasviði Opinna kerfa,  Einar Gylfason.Hluti af hóp sérfræðinga Opinna kerfa í samskiptalausnum]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Compaq nc6000 fartölvan fær fjölda viðurkenninga
			<description><![CDATA[Óhætt er að segja að HP Compaq nc6000 fartölvan njóti mikilla vinsælda. Hún hefur fengið fjölda verðlauna hjá tölvutímaritum og framúrskarandi dóma. Sem dæmi má nefna: 
Editors' Choice - PC World - fyrsta einkunn í maí, júni og júlí 2004 
Editors' Choice - CNET 
Best Buy - LAPTOP - júní 2004
Mobility Choice - Mobile PC Magazine - febrúar 2004
Editors' Choice - Computer Shopper - apríl 2004
Editors´Choice - PC Magazine - júlí 2004 
HP Compaq nc6000 er svokölluð ,,Business Notebook" eða ein af fyrirtækjafartölvum HP.  Hún þykir einstaklega vel hönnuð fyrir þá sem vilja góða blöndu af krafti, öryggi og hreyfanleika, ásamt endingargóðri rafhlöðu.  Hún hentar bæði fyrirtækjum og einstaklingum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Framleiðslugalli finnst í einni tegund af minni
			<description><![CDATA[Þegar verið var að gera venjubundnar tæknirannsóknir fann HP framleiðslugalla í einni tegund minni sem notað var í nokkrar tegundir fartölva. Minnið var notuð almennt í fartölvur og ekki eingöngu frá HP. Um er að ræða minni sem eingöngu var notað í ákveðnar fartölvur á tímabilinu mars 2002 til júlí 2003. HP telur mjög litlar líkur á því að viðskiptavinir verði fyrir óþægindum en telur sér skylt að skýra frá hugsanlegum atvikum.  
Vegna þessa er viðskiptavinum boðið að fara inn á heimasíðu HP og gera einfalda prufu til að kanna hvort galli gæti verið í minni. Ef um galla er að ræða verður minninu skipt út viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Hugsanleg vandamál sem upp geta komið eru blár skjár, fartölvan læsist og truflun verður í minni. Athugið að eingöngu er um að ræða ákveðnar fartölvur frá ofangreindu tímabili.  
Eftirfarandi fartölvur seldar hérlendis gætu haft minni þessi:
       Compaq Evo Notebook N610c / N620c / N800c / N800v / N800w
Nánari upplýsingar veitir María Edwaldsdóttir í þjónustudeild Opinna kerfa.
Sjá einnig heimasíðu HP þar sem hægt er að kanna hvort minni geti haft galla. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
CleverBoard - snilldar tafla
			<description><![CDATA[CleverBoard er margnota tafla úr mjög endingargóðu og sterku efni. Taflan verður gagnvirk með Mimio og Linx hugbúnaði og glósurnar flytjast frá töflunni sjálfri í tölvu.
Allt sem þú skrifar eða teiknar í hvað lit sem er flæðir í tölvuna áreynslulaust. Læsanlegar hirslur eru fyrir penna og aðra aukahluti sem fylgja töflunni. Að lokinni notkun eru fylgihlutir settir í sín hólf, taflan aftengd og allir hlutir læstir í öruggri geymlsu þar til nota á töfluna aftur. Ef skjávarpi er einnig settur upp þá verður taflan gagnvirk og hægt að stýra öllum aðgerðum beint af töflunni og vinna í hvaða hugbúnaði sem er á tölvunni sem tengd er við töfluna. Taflan er til í nokkrum stærðum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi setja upp eina af öflugustu tölvum á Norðurlöndum
			<description><![CDATA[Sérfræðingar Opinna kerfa hafa unnið að uppsettningu á annarri  af tveimur klasa ofurtölvum sem settar eru upp sem hluti af verkefni sem Háskóli Íslands, Raunvísindastofnun, Íslenskar orkurannsóknir, Orkustofnun, Hafrannsóknarstofnu, Reiknistofa í veðurfræðum og Veðurstofan standa að ásamt því að RANNÍS styrkir verkefnið.
Unnið er að uppsettningu á klasa sem inniheldur 60 HP vélar með tveimur örgjörvum hver.  Áður hefur verið settur upp klasi með 130 HP vélum sem eru með einum örgjörva hver.  Allar vélarnar nýta RedHat Linux stýrikerfi.  Þegar klasarnir tveir verða tengdir saman verður fimmtánda öflugasta tölva á Norðurlöndum að veruleika.  Aðferðarfræðin gengur út á að setja saman fjölda borðtölva í klasa og ná þannig reiknigetu sem næst ofurtölvu fyrir brot af kostnaði við slíkar tölvur. 
Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér klasa af þessu tagi er bent á að hafa samband við Ófeig Fanndal Birkisson hjá Opnum kerfum í s: 570-1000]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Belkin - góð viðbót við núverandi vöruúrval
			<description><![CDATA[Opin kerfi hófu nýlega umboðssölu á Belkin vörum á Íslandi. Belkin er leiðandi á heimsmarkaði í aukahlutum fyrir tölvur og tölvubúnað. 
Um er að ræða fjölbreytt vöruúrval, meðal annars skjáskiptar, varaaflgjafar og mikið úrval af USB og FireWire búnaði, ásamt miklu úrvali af kapla- og lagnaefni. Einnig eru í boði ýmsir aukahlutir eins og þráðlaus Bluetooth höfuðtól fyrir farsíma og GPS staðsetningartæki sem tengjast lófa- og fartölvum þráðlaust. 
Belkin fyrirtækið, ekki ólíkt HP, var stofnað í bílskúr í Hawthorne í Kaliforníu árið 1983 með aðeins einum starfsmanni. Í dag er Belkin eitt af öflugustu fyrirtækjunum í Bandaríkjunum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP lófatölvur sækja í sig veðrið
			<description><![CDATA[Fjöldi seldra HP iPAQ lófatölva á fyrsta ársfjórðungi jókst um 24,5% á milli ára, samkvæmt IDC greiningarfyrirtækinu, á meðan sala á lófatölvum annarra helstu framleiðenda dróst saman. 
Markaðshlutdeild PalmOne lófatölva féll úr 39,4 í 36,1% en markaðshlutdeild HP iPAQ er núna 25,7%. Markaðshlutdeild lófatölva frá Sony Electronics minnkaði 9,3%,  Dell minnkaði 7% og Toshiba minnkaði 2,2%.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Intel Pentium 4 Prescott (P4E) - Nýjasta kynslóð Intel örgjörva og arftaki Intel Pentium 4 Northwood
			<description><![CDATA[Allt frá því Intel Pentium 4 Northwood var settur á markað hafa verið gerðar svo mikla breytingar á örgjörvum frá Intel að sumir hefðu kosið að kalla þann nýjasta Intel Pentium 5 frekar en Pentium 4 Prescott. 
Intel hefur fundið leið til að fjöldaframleiða þynnri þræði í örgjörva sem gerir þeim kleift að fjölga boðleiðum í 125 milljónir þráða á meðan Northwood hafði aðeins 55 milljónir. Þessi fjölgun boðleiða er það sem mun gefa okkur hvað mesta hraðaaukningu í P4E, eins og hann verður almennt kallaður, en það er þó ekki það eina heldur hefur flýtiminni (L2 cache) örgjörvans einnig verið aukið úr 512KB í 1MB (1024KB). 
Það merkilega við Prescott er að með fleiri boðleiðum lengjast þær einnig og um leið þá breytist klukkuhraðinn lítið sem ekkert frá Northwood þannig að í sumum forritum mun Northwood jafnvel hafa betur í mælingum sekúndu fyrir sekúndu.
Hewlett-Packard hefur þegar sent frá sér HP Compaq D530 borðtölvur með Prescott örgjörvanum og verða fyrstu tölvurnar með þeim tilbúnar til afhendingar af lager Opinnna kerfa á allra næstu dögum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft ráðstefna um aukna skilvirkni í stjórnun fyrirtækja
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. héldu ráðstefnu á Grand Hótel 14. maí sl. með yfirskriftinni ,,Aukin skilvirkni í stjórnun með Microsoft lausnum". Kynntar voru þær nýjungar sem orðið hafa í MS lausnum með tilliti til aukinnar skilvirkni í stjórnun og rekstri fyrirtækja. 
Jesper Aberg, virtur ráðgjafi frá Microsoft Corporation, hélt framsögu um stefnu og áherslur á þessu sviði. Einnig voru áherslur og lausnir Opinna kerfa kynntar en fyrirtækið keypti nýlega ráðandi hlut í IM (Information Management) og hefur myndað sterkan hóp ráðgjafa og sérfræðiinga í þjónustu, samþáttun, ráðgjöf og hugbúnaðargerð. Fjöldi manns sótti ráðstefnuna og álit manna var að hún hafi verið áhugaverð.Séð yfir ráðstefnusalinn]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin Kerfi Group hf. tilnefnd til fjárfestatengslaverðlauna "IR Nordic Awards 2004"
			<description><![CDATA[Opin Kerfi Group hf. hafa verð tilnefnd til fjárfestatengslaverðlauna, en þetta er í þriðja sinn sem Kauphöll Íslands  í samstarfi við hinar NOREX-kauphallirnar í Kaupmannahöfn, Helsinki, Ósló og Stokkhólmi, mun styrkja aðalviðurkenningu Investor Relations Magazine fyrir fjárfestatengsl á síðasta ári: ?Grand Prix for best Overall Investor Relations.? Um 200 fagfjárfestar og greiningaraðilar hafa tilnefnt norræn félög á þessari árlegu hátíð þar sem viðurkenningar fyrir fjárfestatengsl skráðra félaga á Norðurlöndunum (e. IR Magazine Nordic Awards 2004) eru veittar. Í þetta sinn verður hátíðin haldin í Helsinki 26. maí.
Veitt eru verðlaun í þrem flokkum, fremst í flokki smárra félaga (utan Úrvalsvísitölu), fremst í flokki meðalstórra og stórra félaga (félög í Úrvalsvísitölunni) auk þess sem veitt er viðurkenning til forstjóra eða fjármálastjóra fyrir samskipti við markaðsaðila (e. best investor relations by a CEO/CFO)
Í ár eru auk Opin Kerfi Group, Marel og Nýherji tilnefnd í flokki smærri félaga, Bakkavör Group, Pharmaco og Össur tilnefnd í flokki stærri félaga og Bjarni Ármannsson, forstjóri Íslandsbanka, Hörður Arnarson, forstjóri Marel og Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar hafa verði tilnefndir fyrir bestu samskipti forstjóra/fjármálastjóra við markaðsaðila.
Opin Kerfi Group hafa verið tilnefnd öll skiptin og hlaut félagið verðlaunin í flokki smærra fyrirtækja bæði árið 2002 og 2003.
Félag um fjárfestatengsl í Finnlandi (e. Finnish Investor Relations Society, FIRS) hefur veg og vanda að árlegri
ráðstefnu sem haldin verður sama dag. Yfirskrift ráðstefnunnar að þessu sinni er: ?IR in a changing world? og gefur
starfsmönnum íslenskra félaga tækifæri til að hlusta á reynslumikla fyrirlesara og hitta norræna kollega sem einnig
fást við fjárfestatengsl. Nánari upplýsingar og skráningarform á ráðstefnuna er að finna á vef FIRS, www.firs.fi.
Félagar í Félagi um fjárfestatengsl munu fá afslátt frá fullu verði.Chris Jansen þáverandi forstjóri OKG tók við verðlaununum frá Helgu Björk Eiríksdóttur, kynningarstjóra Kauphallar Íslands í Danmörku árið 2003.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Bestu kaupin - HP Color LaserJet 5500n
			<description><![CDATA[HP Color LaserJet 5500n var valinn ,,bestu kaupin" í PC world tímaritinu.  Hér er að finna beina þýðingu á umsögn PC World á prentaranum. ,,Þessi lita geislaprentari prentar mjög þéttan  texta, með skýrum útlínum með bæði litlum og stórum leturtegundum. Lita-útprentair eru mjög skýrar, fín áferð, fallegri áferð og líflegum litum. HP Color LaserJet  5500n prentaði næstum því fullkomna mjóar samhliða línur, með engum klessum eða rákum. Prentarinn getur prentað bæði á A4 og A3 pappír.  
			<author>ok@ok.is</author>
HP borðtölvur algengastar í íslenskum fyrirtækjum
			<description><![CDATA[HP eru algengustu tölvurnar í íslenskum fyrirtækjum en tæplega 30% fyrirtækja er með tölvur frá því vörumerki. Í öðru sæti kemur Dell með 23%. Compaq kemur þar á eftir með 12% og IBM með 10%.
Framleiðslufyrirtækin HP og Compaq hafa þó verið sameinuð erlendis sem þýðir það að sameiginlegt fyrirtæki er í rauninni með
markaðshlutdeild upp á 42%. Langalgengustu merkin hjá íslenskum fyrirtækjum eru þannig  HP, Compaq, IBM og Dell. Aðrir virðast eiga litla sem enga möguleika á að velta þessum merkjum úr sessi. Þetta eru niðurstöður nýlegrar könnunar sem að Viðskiptablaðið lét gera meðal 250 íslenskra fyrirtækja. Þeir sem urðu fyrir svörum voru umsjónarmenn tölvu- og tæknimála í viðkomandi fyrirtækjum.
Heimild: Viðskiptablaðið, 31. mars 2004]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Háhraða internetsamband tengt inná þráðlaust innanhúsnet í Hótelinu Staðarskála í Hrútafirði
			<description><![CDATA[Háhraða internetsamband eMax ehf. hefur verið tengt inná þráðlaust innanhúsnet í Hótelinu Staðarskála í Hrútafirði.
Innanhúsnetið samanstendur af Linksys WRT54G og Linksys WAP54G Internetið er tengt við WRT54G sem er DHCP Server og WAP54G notaður  í ?repeater mode?. Tengist þráðlaust við WRT54G og endurvarpar.
Að sögn Tölvubóndans Sverris Guðmundssonar sem sá um uppsetninguna er þetta einungist hægt með því að uppfæra firmware í WAP54G í  ?Firmware  v2.06? og WRT54G í ?Firmware 2.02.2? og þá virkar þetta mjög vel.
?Ég hef prófað þetta nokkuð vel og tel þetta henta mjög vel í skólum, hótelum og ýmsum minni stöðum. Hægt er að nota þetta í bland með lögnum og framlengja netkerfi. Hægt er að tengja WAP54G við kerfi sem er fyrir og síðan að endurvarpa með öðrum WAP54G, segir Sverrir.
Þessir möguleikar spara lagnir, veita sveigjanleika og gefa ýmsa möguleika.
Ummæli notenda:
Sævar Skaptason framkvæmdastjóri Ferðaþjónustu bænda var tengdur á aðalfundi Ferðaþjónustu bænda á Hótelinu Staðarskála 22. ? 23. mars tengdur með WPC54G netkorti. 
?Reynslan af þráðlausa netkerfinu á Hótelinu Staðarskála var frábær,  ég gat alltaf þegar færi gafst á fundinum svarað öllum tölvupósti hvaðanæva úr heiminum jafnóðum og hann barst - netið virkaði hratt og hvenær sem var?Hótel StaðarskáliHótel Staðarskáli]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hver er ávinningur af fjárfestingu í upplýsingatækni?
			<description><![CDATA[Opin kerfi í samstarfi við Háskólann í Reykjavík og IMG Deloitte stóðu fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Hver er ávinningur af fjárfestingu í upplýsingatækni í Háskólanum í Reykjavík, fimmtudaginn 25. mars 2004.
Roger Fulton, yfirmaður greiningardeildar hjá Gartner var aðalfyrirlesari og fjallaði hann almennt um mælingar á fjárhagslegum ávinningi fjárfestinga í upplýsingatækni. Ragnhildur Geirsdóttir framkvæmdastjóri Rekstrarstýringasviðs Icelandair, fjallaði um hvernig Icelandair hafa notað upplýsingatækni í ákvörðunartöku og til þess að auka skilvirkni í rekstri. Haukur Oddsson framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs Íslandsbanka fjallaði um hvernig Íslandsbanki ákveður hvað, hvernig og hvenær eigi að ráðast í næsta upplýsingatækniverkefni.
Reynir Jónsson stjórnunarráðgjafi hjá IMG Deloitte kynnti niðurstöður rannsóknar sem IMG í samstarfi við Gallup framkvæmdu um það hvor íslensk fyrirtæki séu að mæla árangur af þessum fjárfestingum og hvort þeir séu ánægðir með fjárfestinguna. Ingimar Þór Friðriksson, framkvæmdastjóri Tölvu- og upplýsingatæknisviðs HR og stundakennari við viðskiptadeild HR, fjallaði um hvað stjórnendur þurfa að vita og hvaða hæfni þeir þurfa að bera til að geta tekið farsælar ákvarðanir varðandi upplýsingatækni.
Gylfi Árnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa opnaði ráðstefnuna og Þór Sigfússon, framkvæmdastjóri Verslunarráðs var fundarstjóri.
Þátttaka á ráðstefnuna var mjög góð og voru fundargestir almennt mjög ánægðir með ráðstefnuna.
Hér að neðan eru glærusett fyrirlesara, sem og niðurstaða rannsóknar IMG Gallup. Því miður má ekki birta glærusett Roger Fulton.Roger Fulton, yfirmaður greiningardeildar Gartner á ráðstefnu um fjárfestingu í upplýsingatækni sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík, 25.03.04.Roger Fulton, yfirmaður greiningardeildar Gartner á ráðstefnu um fjárfestingu í upplýsingatækni sem haldin var í Háskólanum í Reykjavík, 25.03.04.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP netþjónar í 1. sæti
			<description><![CDATA[HP netþjónar halda stöðu sinni sem mest seldu netþjónar á alheimsvísu samkvæmt febrúarskýrslu IDC greiningarfyrirtækisins. Þessi góði árangur er ekki síst að þakka þeim góðu viðtökum sem HP Proliant netþjónar hafa fengið.
Í ört vaxandi sölu á Windows og Linux netþjónum hélt HP stöðu sinni sem mest seldu netþjónar, bæði varðandi tekjur og fjölda, fyrir síðasta ársfjórðung og allt árið 2003. Á Unix markaði eru HP netþjónar ennþá vinsælastir. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Aðalstyrktaraðili Skjálftamóta Símans
			<description><![CDATA[Opin kerfi og Síminn hafa skrifað undir samning þess efnis að Opin kerfi verði aðalstyrktaraðili Skjálftamóta Símans næstu þrjú árin. Skjálftmót Símans hafa verið haldin í nokkur ár og um 500 manns taka nú orðið þátt í hverju móti. Skjálfti er mót þar sem keppt er í ?stafrænum" íþróttum eða tölvuleikjum sem spilaðir eru yfir net. Nánari upplýsingar um Skjálftmót Símans er að finna á http://www.hugi.is/skjalfti
Tólf mjög öflugir HP Proliant DL360 netþjónar sjá um leikina og tuttugu HP Procurve 100MB svissar tengja vélarnar við HP Procurve miðju sem er með ?gígabita" tengingum við netþjónana. Um er að ræða mjög öflugt net sem er rekið á HP búnaði alla leið.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP aftur mest seldu tölvur í heimi
			<description><![CDATA[Hewlett-Packard varð aftur stærsti framleiðandi í heimi á PC tölvum á síðasta ársfjórðungi 2003. Vöxtur í PC tölvum var um 3%, úr 12% í 15% á fjórða ársfjórðungi þegar litið er til eininga og um 11% fyrir árið 2003 í heild, samkvæmt Gartner og IDC greiningarfyrirtækjunum.
			<author>ok@ok.is</author>
HP og Apple í samstarf
			<description><![CDATA[HP ætlar að hefja sölu á spilara sem byggir á þróun Apple iPod spilaranum. Gert er ráð fyrir að dreifing á spilaranum hefjist í sumar. Apple ætlar að framleiða tækið fyrir HP, sem hyggst annast markaðssetningu þess.
			<author>ok@ok.is</author>
Vann lófatölvu
			<description><![CDATA[Þeir sem tóku þátt í skoðanakönnun vegna Ok Beint, netverslunar Opinna kerfa fyrir fyrirtæki, og svöruðu innan ákveðins tíma höfðu möguleika á að vinna HP iPAQ H1940 lófatölvu. Hinn heppni var Morten Lange, kerfisforritari og verkefnastjóri hjá Skýrr.  Við óskum Morten til hamingju og vonum að lófatölvan nýtist honum vel.  
Við þökkum enn fremur öllum sem tóku þátt í könnuninni og þannig aðstoða okkur við að bæta þjónustu Opinna kerfa við viðskiptavini enn frekar.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi einn af fjórum kostendum F1 útsendinga á RÚV
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. undirritaði í dag samning við Ríkisútvarpið Sjónvarp um kostun á Formúlu 1 í Sjónvarpinu. Auk Opinna kerfa eru Skeljungur, Glitnir og Húsasmiðjan kostendur þeirra 18 beinu útsendinga sem verða í Sjónvarpinu í ár. Sýnt verður beint frá tímatökum á laugardögum og kappakstri á sunnudögum. Myndverið hefur verið endurbætt með nýjum tölvubúnaði frá Opnum kerfum og Varmás til notkunar í upphitunarþáttum á undan útsendingum á sunnudögum.
Sjónvarpið sýnir 18 Formúlu 1 mót í beinni útsendingu í ár. Kappaksturinn í Belgíu verður að nýju á Spa brautinni og þá bætast við mót í Barein og Shanghai í Kína. Nýjar reglur um vélanotkun munu örugglega jafna leikinn og auka spennuna í mótum ársins. Þá verða tvær tilraunir í tímatökum í stað einnar í fyrra. 
Bryddað verður upp ýmsum nýjungum í útsendingum og ruv.is/formula mun bjóða upp á nýjungar. Umsjónarmaður Formúlu 1 í Sjónvarpinu er Gunnlaugur Rögnvaldsson, aðstoðarlýsendur verða Rúnar Jónsson, margfaldur rallmeistari og Ágúst Ásgeirsson blaðamaður. Margir góðir gestir munu koma í sjónvarpssal á árinu. Útsendingastjórar eru Gunnlaugur Þór Pálsson og Óskar Þór Nikulásson. Á þriðja tug starfsmanna Sjónvarpsins kemur að útsendingunum á einn eða annan hátt í ár. 
Rás 2 verður með öflugan fréttaflutning af Formúlunni. Auk íþróttafrétta verður fjallað um Formúluna í þáttum í Popplandi kl. 14.30 á föstudögum og í þætti Guðrúnar Gunnarsdóttur á laugardögum. 
Nánari upplýsingar á F1 síðu á www.ruvi.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi kaupa samskiptasvið Grunns ehf.
			<description><![CDATA[Opin kerfi ehf. hafa keypt samskiptasvið Grunns ehf., sem lagt hefur áherslu á Alcatel og Nortel símabúnað auk annars samskiptabúnaðar. Opin kerfi hafa nú þegar tekið við rekstrinum og munu sameina samskiptasvið fyrirtækjanna. Hjá Opnum kerfum verður því mikill fjöldi tæknimanna með sérþekkingu í tölvukerfum og samskiptabúnaði. Með þessum kaupum ná Opin kerfi að útvíkka þekkingu fyrirtækisins og geta þannig veitt viðskiptavinum meiri þjónustu en fyrr. 
Mikil þróun hefur verið í upplýsingatækni og er nú svo komið að skil á milli tölvukerfa og símkerfa eru orðin óljós. Þessi þróun hefur leitt til þess að tölvudeildir hafa í auknum mæli tekið við rekstri símkerfa enda er tæknin meira og minna tölvudrifin. Því er nauðsynlegt að bregðast við þessari þróun til að tryggja að viðskiptavinurinn fái  á einum stað aðgang að sem mestri þekkingu og ráðgjöf varðandi lausnir á sviði samskiptabúnaðar. 
Grunnur mun áfram starfa sem hugbúnaðarfyrirtæki með sérhæfingu í símtölvun. Náið samstarf mun vera á milli Grunns og Opinna kerfa en með þeim hætti vilja fyrirtækin tryggja að viðskiptavinurinn hafi aðgang að góðum símtölvunarlausnum.
Við hjá Opnum kerfum ehf viljum tryggja að þessar breytingar valdi sem minnstu raski hjá viðskiptavinum okkar eða Grunns. Næstu vikurnar geta viðskiptavinir sótt sína þjónustu hjá báðum fyrirtækjunum eins og hingað til, en smá saman ættu öll símtöl og þjónustubeiðnir að berast beint til Opinna kerfa samkvæmt ferlum sem við munum lýsa nánar á næstu vikum. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Bókastyrkir Sparisjóðanna og HP prentari
			<description><![CDATA[Sparisjóðurinn veitti 25 félögum í námsmannaþjónustu Sparisjóðsins 25 þúsund króna bókastyrk nú í lok janúar. Opin kerfi hafa í samstarfi við Sparisjóðina, boðið nemendum í námsmannaþjónustu Sparisjóðanna sérstök tilboð á HP tölvum sl. ár. 
Við afhendingu bókastyrkjanna, var einn heppinn aðili dregin út sem fékk veglegan HP prentara frá Opnum kerfum, að þessu sinni var það Salóme Rúnarsdóttir sem var sú heppna.Frá afhendingu bókastyrkja til nemenda í námsmannaþjónustu Sparisjóðsins.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Verðlaunahafar í Last Samurai leik Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Opin kerfi stóðu fyrir skemmtilegum Last Samurai leik á vefnum, www.prentarar.is í janúar. Þátttakendur svöruðu nokkrum laufléttum spurningum. Þátttakan var mjög góð. Í fyrstu verðlaun var HP Photosmart 435 stafræn myndavél og HP DeskJet 5150 bleksprautuprentari í önnur verðlaun.
Aukaverðlaun voru Last Samurai, sushi diskasett og skálar, auk Last Samurai bola og bíómiða fyrir tvo. Alls voru veitt 174 verðlaun. Búið er að afhenda fyrstu og önnur verðlaunin, en aðrir vinnignshafar eru beðnir um að nálgast vinningana hjá Opnum kerfum að Höfðbakka 9, 2.hæð. 
Upplýsingar um verðlaunahafa er að finna með því að smella á "Upplýsingar um verðlaunahafa" hér að neðan.Verðlaunahafar í Last Samurai leik Opinna kerfa, frá vinstri, Særún Kristinsdóttir og Róbert Beck sem fengu HP Photosmart 435 stafræna myndavél og Jónatan Helgi Rafnsson sem fékk HP DeskJet 5150 bleksprautuprentara.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
PC Mapper - pantaðu hér...
			<description><![CDATA[Flestir fartölvueigendur kannast við að lifa í stöðugri hræðslu við að óvandaðir menn steli tölvum þeirra. Beinhörð verðmæti tölvanna eru óhikað mæld í hundruðum þúsunda og gjarnan eru gögnin sem vélarnar geyma því sem næst ómetanleg. Fartölvum er stolið hvarvetna, af heimilum, vinnustöðum, í skólum, flugstöðvum og hvergi á almannafæri geta menn í raun verið óhultir gegn þjófum. 
Gegnum tíðina hafa menn reynt að nota ýmsar aðferðir til að bregðast við þessum vanda. Auk sérstakra trygginga hafa menn reynt að vera almennt varkárir, passa upp á gripina og jafnvel setja keðjur og lása á þá. Disklingar og laus jaðartæki hafa sömuleiðis verið geymd í læstum hirslum. Að ógleymdum afritum, sem menn þurfa sífellt að hafa til reiðu. 
FARTÖLVUÞJÓFNAÐUR ER FARALDUR 
Þetta tiltölulega háa stig vænisýki eða "paranoju" er fjarri því ástæðulaust. Þjófnaður á fartölvum fer nefnilega afskaplega hratt vaxandi. Árið 2000 var 88 fartölvum stolið. Árið eftir stökk þessi tala upp í 200 fartölvum og má ætla að það tengist aukinni fartölvuvæðingu skólakerfisins. Árið 2002 var 249 fartölvum stolið á Íslandi og það sem af er liðið þessu ári hefur 163 fartölvum verið stolið. 
Ef við gefum okkur það að meðalverðmæti hverrar glataðar fartölvu sé um 200 þúsund og verðmæti gagnanna sé um 100 þúsund, þá þýðir þjófnaður á 250 tölvum tap fyrir upphæð sem nemur um 75 milljónum króna. Undirritaður er reyndar þeirrar skoðunar að sú upphæð sé nokkuð hófleg og gera megi ráð fyrir að þessi tala liggi nær 100 milljónum króna. Fartölvuþjófnaður er því sem næst faraldur. 
GIRNILEG SÖLUVARA GERÐ ÓGIRNILEG... 
Vandinn við fartölvuþjófnað felst ekki síst í því að illmögulegt hefur reynst að endurheimta stolnar vélar. Þannig sýnir tölfræði frá Bandaríkjunum til dæmis að eingöngu um 3 prósent stolinna tölva koma aftur í leitirnar. 
Höfum einnig í huga þá sorglegu staðreynd að einhvers staðar er til fólk sem er tilbúið til að kaupa stolnar fartölvur, því annars væri jú ekkert verðmæti fólgið í að stela þeim. 
Lengi vel stóðu menn ráðþrota gagnvart þessu vandamáli eða þar til árið 2000 að menn fóru af stað með staðsetningarþjónustu fyrir tölvur. Hugmyndin að baki staðsetningarþjónustunni er að gera stolnar tölvur að ógirnilegri söluvöru, þar sem hægt er að staðsetja stolnar tölvur og láta lögregluna vita. 
ÖFLUG STAÐSETNINGARÞJÓNUSTA 
Þessi staðsetningarþjónusta kallast PcMapper?. PcMapper-þjónustan byggir á því að í tölvunni er komið fyrir ósýnilegum hugbúnaði, sem illmögulegt er að ná aftur af vélinni nema með leynikóða sem eigandinn einn veit.  Þessi búnaður kemur í veg fyrir að hægt sé að forsníða harðdisk tölvunnar jafnvel þó notandinn reyni að nota fdisk-skipanir. 
Búnaðurinn sendir jafnframt í bakgrunni skeyti til staðsetningarþjónustunnar, án þess að notandinn verði var við það í hvert skipti sem tölvan tengist Internetinu. Þessi tölvupóstur inniheldur nákvæma staðsetningu tölvunnar. 
Ef tilkynnt er um stolna tölvu, sem er með PcMapper-búnaðinn uppsettan, þá þarf ekki annað en að bíða eftir því að tölvan tengist einhvern tímann Internetinu á ný og þá geta laganna verðir gengið að tölvunni vísri hvort sem tölvan er ennþá stödd á Íslandi eða komin í umferð erlendis.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Business Inkjet 1100d - bestu kaupin að mati PC World
			<description><![CDATA[Business Inkjet 1100 prentararnir eru hannaðir fyri mikla notkun, auk þess sem hægt er að tengja þá einfaldlega á netkerfi. PC World prófaði 1100d módelið og gaf því einkunnina, bestu kaupin.
HP Business Inkjet 1100d er með innbyggðum "duplex" sem gerir þér kleift að prenta út beggja vegna blaðsins og með mjög stór blekhylki.  Hvert blekhylki prentar um 1.750 bls. en hver blaðsíða kostar u.þ.b.  1,80 kr í svörtu.  
Að mati PC World er textinn mjög þéttur og skarpur í heild sinni í svörtu.  ,,1100d prentar gráskala myndir ótrúlega vel, með mikilli nákvæmni og aðlaðandi áferð; ljósmyndir í lit á ,,glossy" glanspappír, komu vel út. 1100d prentar litagrafík mjög hratt."
Heimild: PC World ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP ferðaskjávarpar
- fyrir þá sem vilja ná árangri
			<description><![CDATA[HP skjávarpar eru hannaðir fyrir þá sem þurfa að varpa fram kynningu í hágæða upplausn á einfaldan hátt. Þessir hljóðlátu og léttu skjávarpar tryggja á áhyggjulausan hátt, fullkomna kynningu með HP áreiðanleika, samhæfni og fjölhæfni.
Hágæða  mynd
HP ferðaskjávarparnir tryggja hámarks birtustig og góða upplausn fyrir kynningar, sem vekur hrifningu vegna smæðar tækisins og hversu létt og fyrirferðalítið það er og gerir kleift að færa það auðveldalega á milli staða. Skerpa, skýrleiki og nákvæmni eru þeir eiginleikar sem kynning þín fær með HP skjávarpa sem nálgast skýrleika tölvuskjás.
Hreyfanleiki
HP ferðaskjávarparnir eru léttari en flestar fartölur, eða rúmlega 1 kg og 14x5 cm að stærð og eru ferðaskjávarparnir hannaðir fyrir þá sem eru mikið á ferðinni og íþyngja þér ekki. Þú tapar ekki gæðum þó að skjávarpinn sé smár, en hægt er að koma HP ferðaskjávörpunum fyrir í tösku eða skjalatösku. HP ferðaskjávarparnir og HP fartölvurnar eru fullkomnir félagar. Saman aðstoðar HP þig við að vera afkastamikill, sveigjanlegur og árangursríkur og HP er þekkt fyrir áreiðanleika og samhæfni. 
Auðvelt í notkun
Þráðlaus fjarstýring með virkni USB músar og geislabendir færir þér sveigjanleika og frelsi til að vera hreyfanlegur og þannig tengjast betur hlustendum þínum.
Nánari upplýsingar um HP skjávarpa eru á heimasíðu Opinna kerfa, www.ok.is eða Guðmundur Bender í heildsölu Opinna kerfa í s: 570-1000.HP ferðaskjávarpi]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP ScanJet 4670 - umsögn Inspector Gadget í Telegraph
			<description><![CDATA[Sumir gætu haldið að HP ScanJet 4670 væri nýr flottur skjalastandur vegna framúrskarandi hönnunar. En þessi framúrskarandi hönnun felur í sér að hægt er að sjá auðveldlega í gegnum skannann, sem gerir það að verkum að þú getur tryggt að það sem þú ert að skanna sé á sínum stað. Þetta getur sparað tíma, því oft gerist það að þegar skannalokinu er lokað verður hreyfing á skjalinu og þú þarft að byrja aftur. 
Hægt er að taka skannann af standinum, og nota hann til að skanna inn málverk eða ljósmyndir sem eru á vegg eða aðra fasta hluti, allt að  2,400 DPI (dots per inch) upplausn.
Þú getur skannað stóra hluti eins og plaköt og myndir og sett saman með hugbúnaði sem fylgir sem setur þau saman þannig að skjalið verður eins og upprunalega útgáfan. Hægt er að sjá skannaða hluti á innan við sex sekúndum, þó að það taki um 27 sek. að skanna 10*15 cm litamynd. í Microsoft Word.
ScanJet 4670 gerir þér einnig kleift að skanna 35 mm filmur og "slides" og þú getur notað OCR hugbúnað (optical recognition software) til að gera breytingar á texta í skjölum. Hægt er að vista skannaðar myndir á margs konar formi þar með talið JPG og TIFF - sem eru mest notuðu formin fyrir netið.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Stafrænn myndsendir frá HP
- ný leið til að senda skjöl með tölvupósti
			<description><![CDATA[HP Digital Sender 9100C er nýr hagstæður valmöguleiki til að senda útprentuð gögn eða myndir í tölvupósti. Lita- og svart/hvít skjöl eru send beint úr tækinu með því að styðja aðeins á einn hnapp.
1.	Þú setur skjölin í arkamatarann eða á glerplötuna.
2.	Slærð inn netfang eða velur úr innbyggðum póst-dreifingarlista.
3.	Styður á græna ,,Send? hnappinn.
Þessi lausn er frábær viðbót við hefðbundinn tölvupóst sem eykur framleiðni og afköst starfsmanna, bæði hjá sendanda og móttakanda, sem fær gögnin strax í hágæða upplausn.
HP Digital Sender 9100C tengist beint netkerfi fyrirtækisins og auðveldar því sendingu pappírsgagna án þess að vera með sérstaka tölvu og skanna til þess. HP Smart Compression tæknin þjappar gögnunum saman og tryggir að þau séu ekki plássfrek á netkerfinu og við sendingu.
Eiginleikar:
?	vinnur með öllum ?e-mail? hugbúnaði
?	Pappírsgögn send á pdf eða tif formi
?	50 blaðsíðna arkamatari
?	Innbyggður LCD skjár og lyklaborð
?	Ekki þörf á sérstakri símalínu eða breytingu á netkerfinu
?	Innbyggður póstlisti er í tækinu.
Að sögn Guðmundar Benders vörustjóra prentlausna í heildsölu Opinna kerfa eru dæmi um að fyrirtæki hafi sparað heilmikla fjármuni með kaupum á stafrænum myndsendi: ?Sérstaklega þau fyrirtæki sem eru í miklum erlendum samskiptum, með því að senda skjöl með myndsendinum í stað þess að senda fax. Auk öryggisins, þar sem skjölin fara beint í innhólf viðkomandi í stað þess að liggja einhvers staðar í faxtæki. Gögnin fara í gegnum internetið í stað hefðbundinnar símalínu. Ennfremur hafa margir sem hafa fjárfest í HP Digital Sender ekki skilið hvernig þeir komust af án þess.?Hp Digital Sender 9100C]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP aftur mest seldu PC tölvur í heimi
			<description><![CDATA[Hewlett-Packard varð aftur stærsti framleiðandi í heimi á PC tölvum  á síðasta ársfjórðungi 2003 eins og fram kemur í frétt CNET news.com. 
Vöxtur í PC tölvum var um 3%, úr 12% í 15% á fjórða ársfjórðungi þegar litið er til eininga, og um 11% fyrir árið 2003 í heild, samkvæmt rannsóknaraðilunum Gartner og IDC. Þessi vöxtur er mun meiri en gert var ráð fyrir.
Á þessu ári, er gert ráð fyrir að aukning verði í alheims framleiðslu á PC tölvum, um 10.9%, skv. Gartner og 11.4% samkvæmt IDC. (Bæði fyrirtækin telja bæði fartölvur, borðtölvur og netþjóna með x86 örgjörva, en smávegis munur er á aðferðafræði fyrirtækjanna við rannsóknirnar.)
Nánari upplýsingar er að finna á frétt CNET news.com, sjá hér að neðan. Heimild: CNET news.com]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Hewlett-Packard að hefja sölu á tæki sem svipar til iPod
			<description><![CDATA[Hewlett-Packard ætlar að hefja sölu á spilara, sem byggir á þróun Apple á iPod spilaranum. Gert er ráð fyrir að dreifing á spilaranum hefjist í sumar. Apple ætlar að framleiða tækið fyrir HP, sem hyggst annast markaðssetningu þess, að sögn BBC. Ekki liggur fyrir hvernig HP-spilarinn á að líta út eða hvað hann á að kosta.
IPod er líklega vinsælasti tónlistarspilari sem komið hefur á markað, en Apple hefur selt um tvær milljónir iPod tækja. Fyrirtækið ætlar senda frá sér litla útgáfu tækisins, sem getur geymt um eitt þúsund lög. Sala á slíku tæki hefst í febrúar.
Heimild: Tölvur og tækni, mbl.is, 12.01.2004]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
VHS breytt í DVD
			<description><![CDATA[Þó DVD-spilarar séu brátt komnir inn á öll heimili eru víða til bunkar af VHS-spólum sem ekki má henda en illt að horfa á, VHS-tækið lélegt eða komið inn í skáp og svo má telja.
Þó DVD-spilarar séu brátt komnir inn á öll heimili eru víða til bunkar af VHS-spólum sem ekki má henda en illt að horfa á, VHS-tækið lélegt eða komið inn í skáp og svo má telja. Myndirnar af þeim má þó setja á DVD-diska með aðstoð tölvunnar, ýmist með því að tengja sjálfur VHS-tækið í gegnum sérstakt kort í tölvunni eða fá sér græju eins og þá sem hér er til umfjöllunar, HP DVD Movie Writer DC3000. 
Þessi græja frá HP er býsna sniðug, sáraauðvelt er að setja hana upp, tengja við tölvu og svo myndbandstæki við brennarann og byrja flutninginn á milli. Hann notar tölvuna til að breyta gögnunum, þ.e. rennir þeim yfir í tölvuna þar sem hægt er að vinna frekar með þau áður en brennt er á diska ef vill, en einnig er hægt að láta þetta allt ganga án þess að mannshöndin komi þar nærri, bara að setja í gang. Til þess að verkið gangi hratt fyrir sig þarf helst að vera USB 2.0 tengi á tölvunni, því þó hægt sé að nota venjulegt USB 1.0 tengi þá tekur það mjög langan tíma, enda gagnaflutningshraði á USB 1.0 sáralítill. 
Hugbúnaðurinn sem sér um að varpa VHS yfir á DVD er sáraeinfaldur í notkun og leiðir notandann í gegnum ferlið, en meira að segja er hægt að nota hann til að hanna umslag á DVD-boxið. 
DC3000-brennarinn tekur inn hliðræn gögn og breytir í MPEG2. Á honum eru S-Video og Composite Video-tengi og víðóms-hljóðinntak. Ekki er á tækinu DV-inntak sem er galli að mínu mati, því þá er ekki hægt að tengja DV-vídeóvélar beint við tækið þó hægt sé að tengja við það venjulegar vídeóvélar. 
Með í kassanum fylgir hugbúnaður til að vinna með myndbandið, hægt er að safna myndskeiðum af VHS-spólu og brenna á einn DVD-disk til að mynda. Hugbúnaðurinn heitir ShowBiz frá Arcsoft og ekki ýkja öflugur en dugir til síns brúks. Þegar menn eru svo komnir lengra á myndvinnslubrautinni geta þeir notað DC3000 til að breyta VHS-mynd í stafræn gögn, síðan unnið þau í hvaða hugbúnaði sem er og brennt með DVD-brennsluhugbúnaði, til að mynda Nero, enda er DC3000 ekki bara til að breyta myndum, hann er líka utanáliggjandi brennari. 
Getur nærri að talsvert diskapláss þarf til að vinna með DVD-myndir, upp undir 10 GB ef vel á að vera, en það stendur varla í nokkrum manni þegar 120 GB-diskar kosta í kringum 15.000 kr. 
Myndirnar sem fluttar voru á milli komu prýðilega út þó þær standi eðlilega venjulegri DVD-mynd nokkuð að baki í gæðum; VHS-tæknin býður líka einfaldlega ekki upp á meira. 
DC3000 brennir diska á DVD+R staðlinum sem ganga því í allar gerðir DVD-spilara, sem skiptir kannski ekki svo miklu máli núorðið eftir því sem algengara verður að DVD-spilarar lesi alla staðla, en með DVD+R er öruggt að allir spilara geti lesið diskana. 
Hann brennir CD-R á allt að 16x, CD-RW að 10x, DVD+R að 4x og DVD+RW að 2,4x. Hann les svo CD-ROM á að 40x og DVD-ROM að 8x. 
Kostar um 41.900 kr.
Heimild: Morgunblaðið, 19.12.2003HP DVD Movie Writer]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Stolnar tölvur endurheimtar með PcMapper!
FARTÖLVUÞJÓFNAÐUR ER FARALDUR 
GIRNILEG SÖLUVARA GERÐ ÓGIRNILEG... 
ÖFLUG STAÐSETNINGARÞJÓNUSTA 
			<author>ok@ok.is</author>
HP mest seldu prentarar í heimi
- hafa fengið A+ í einkunn PC Magazine síðustu tólf ár í röð.
			<description><![CDATA[HP DeskJet 5150 var valinn besti bleksprautuprentarinn á markaðinum í flokki heimilisprentara og HP PhotoSmart 7960 besti prentarinn í flokki ljósmyndaprentara, í nóvemberhefti hins virta tímarits PC Magazine. HP bleksprautuprentarar hafa síðustu tólf ár í röð fengið hæstu einkunn tímaritsins eða A+. Í markaðsrannsókn sem IMG Gallup gerði í september sl. voru viðhorf ungmenna 12-23 ára könnuð og kom þar fram að 52% þeirra myndu velja HP við kaup á prentara.
PhotoRet ? einstök tækni
Að sögn Elfu Hannesdóttur sem er vörustjóri HP bleksprautuprentara í heildsölu Opinna kerfa, þá er HP bleksprautuprentarar með sérstakri PhotoRet litatækni sem hefur verið þróuð á síðastliðnum árum. ?Þessi tækni er sú eina sem blandar litunum í prenthylkinu í dropa um leið og þeir prentast á blaðið og því um mjög fína prentun og einstök gæði að ræða. Þannig er t.d. hægt að ná mjög eðlilegum andlitslit, sem er jafnan erfitt að blanda.? Að mati PC Magazine er þessi tækni einn af þeim mikilvægu þáttum, sem aðgreinir HP prentara frá öðrum vörumerkjum.  Elfa segir það einnig skipta miklu máli hvað varðar hagkvæmni í rekstri, að HP bleksprautuprentarar hreinsa prenthausinn við upphaf hverrar prentunar, með lofti. ?Það er mikill sparnaður á bleki, því flestir aðrir framleiðendur nota blek til að hreinsa prenthausinn við upphaf hverrar prentunar.?
Endurfyllanleg blekhylki
Mikil umræða hefur verið um endurfyllanleg blekhylki á markaðinum í dag. Að sögn Elfu er HP eini framleiðandinn sem er með innbyggðan prenthaus í blekhylkinu. Í hvert skipti sem skipt er um blekhylki, er því verið að endurnýja prenthausinn sem tryggir þér stöðug gæði. ?Segja má því að þú sért í raun að endurnýja prentarann í hvert skipti sem þú endurnýjar blekhylki. Þegar þú ert búinn að prenta út 2000 bls. og skiptir um HP blekhylki sem er með innbyggðum prenthaus, gerir það að verkum að þú ert að fá sömu gæðin og þegar þú prentaðir út fyrstu blaðsíðuna.? segir Elfa og bæti við: ?Aftur á móti ef þú fyllir á blekhylkið, ertu ekki að tryggja þér hámarksgæði.? HP ábyrgist 73 ára endingu á útprentaðri mynd úr HP prentara, á HP ljósmyndapappír, með HP blekhylkjum, samkvæmt könnun Wilhelm Imaging Research Inc, útprentun með no. 58 ljósmyndahylki prentað á HP Premium Plus ljósmyndapappír.
Nýting á bleki í prentara
Á markaðinum hefur einnig verð mikil umræða um nýtingu á blekhylkjum í prentara og sú ranga fullyrðing hefur komið fram að aðgreind litahylki séu ódýrari í rekstri en eitt blekhylki með þrem litum í, þar sem svo mikið magn á að vera eftir þegar fyrsti litur klárast. Að sögn Elfu hafa rannsóknir verið gerðar af óháðum aðilum, eins og Eurobench þar sem niðurstöður leiddu í ljós að við hefðbundna heimilisnotkun, er innan við 5% eftir af hylkinu þegar fyrsti litur klárast og því ekki dýrara að vera með eitt blekhylki, þar sem auk þess aðrir framleiðendur nota blek til að hreinsa prenthausinn. Elfa segir það einnig mikil þægindi fyrir neytendur að þurfa ekki stöðugt að vera að skipta um blekhylki þar sem það hefur einnig aukinn kostnað í för með sér.
HP 5150 ? fullt hús stiga
HP 5150 er með USB tengi og mjög einfaldur í uppsetningu. Prentarinn er með 1200*1200 punkta upplausn í svörtu og 4800 *1200 punkta upplausn í lit.  HP DeskJet 5150 er með hólf fyrir eitt svart blekhylki og annað hylki fyrir lit (cyan/magenta/yellow). Hægt er að skipta út svarta hylkinu fyrir sérstakt ljósmyndahylki til að fá enn betri gæði þegar prentaðar eru út ljósmyndir. Prentarinn er að mati PC Magazine með mjög góðan rekil (e. driver) sem nær á einstakan hátt, góðri útprentun, auk þess fylgir prentaranum HP Photo and Imaging hugbúnaður sem gerir þér kleift að vinna með myndirnar á mjög einfaldan hátt. Hægt er að fá tvíhliðaprentun (duplex) sem aukahlut þar sem hægt er að prenta beggja vegna blaðsíðunnar á sjálfvirkan hátt. Auk þess sem hægt er að prenta út á jaðar pappírs (boarderless). Að mati PC Magazine voru gæði prentarans óaðfinnanleg. Texti í fjögurra punkta letri var læsilegur í öllum leturgerðum, sem er mjög einstakt. 
HP Photosmart 7960  - fullt hús stiga
HP photosmart 7960 ljósmyndaprentarinn er mjög einfaldur í uppsetningu, hann er með USB tengingu og kemur með HP Photo and Imaging hugbúnaði sem einfaldar vinnslu og varðveislu mynda. HP Photosmart 7960 er fyrsti prentarinn frá HP, sem kemur með þrem hólfum fyrir blekhylki, þ.e. eitt þriggja litahylki, sérstöku mynda-litahylki og ljósmyndagráu hylki. Síðan er hægt að skipta út ljósmyndagráa hylkinu fyrir svart. Því er um sjö lita útprentun að ræða. Að mati PC Magazine, nóvember útgáfu, þá eru þessi þrjú hólf mikill kostur, auk þess sem þau skila einstökum gæðum í útprentun. Því er núna í fyrsta sinn verið að ná gæðum ljósmyndaútprentunar í svart-hvítu sem ekki hefur verið til staðar áður. Á HP Photosmart 7960 ljósmyndaprentaranum er 2,5? LCD litaskjár sem gerir notanda kleift að skoða myndirnar á honum, og þannig prenta út án þess að vera með prentarann tengdann við tölvu, því á honum eru raufar fyrir öll helstu myndavélakort eins og Compact Flash, Memory Stick, Multi Media Card, Secure Digital, Smart Media Card og xD-Picture Card og fleiri. Á þennan hátt er einnig hægt að nota prentarann til að hlaða myndum inná tölvuna frá minniskortunum. Einnig er hægt að vinna með myndirnar beint á skjánum á prentaranum, þ.e. eins og fjarlægja rauðan lit úr augum, kroppa og breyta stærð mynda.
Að mati PC Magazine býður prentarinn upp á hágæða útprentun, með hreinum litum, góðri litablöndun, skýrum línum og góðri grafískri og textaútprentun sem er mjög einfalt að lesa í minna en 5 punkta letri.  
PC Magazine segir HP framleiða mjög góða prentara ? fullt af góðum prenturum. Á meðan sumir framleiðendur nota hefðbundin sniðmát ?cookie-cutter? til að framleiða mismunandi tegundir er HP að framleiða hvern og einn prentara með sinn sérstaka eiginleika. HP DeskJet 5150 og 5650 eru mjög sambærilegir prentarar, en bestu kaupin eru í þeim fyrrnefnda og því verðskuldar hann ?Editors Choice? verðlaunin. 
Sjá www.pcmagzine.comHP DeskJet 5150HP DeskJet 5150]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýjar fartölvur frá HP
			<description><![CDATA[HP kynnti nýja vörulínu af fartölvum nú fyrir stuttu. Þessi nýja vörulína mætir þörfum mismunandi notendahópa. Vörulínan samanstendur af þremur tegundum fartölva, HP Compaq nc4000, nc6000 og nc8000. Hér verður fjallað um nc4000 og nc8000, ólíkar vélar ætlaðar ólíkum notendahópum.
nc4000
Þeir sem þurfa að nota fartölvu á mismunandi stöðum við síbreytilegar aðstæður, þurfa umfram allt áreiðanlega, fyrirferðarlitla og létta fartölvu sem afkastar miklu og býður upp á tengingu við Internetið við flestar aðstæður. 
HP Compaq nc4000 hentar þessu markhóp mjög vel. Ummál fartölvunnar er aðeins 2,8 x 28 x 23.4 cm og hún vegur aðeins 1,58 kg. Fartölvan er öflug með 1,5 Ghz Pentium M örgjörva. Vélin kemur með 512 MB DDR vinnsluminni sem er stækkanlegt í 1GB. Fartölvan er með 12,1? XGA skjár sem gefur 1024x748 bita upplausn. Í fartölvunni er 40 GB harður diskur og ATI Radeon IGP 350M skjákort með allt að 64 MB DDR minni. Tölvan sér sjálf um að úthluta minni eftir þörfum. Í tölvunni er þráðlaust netkort sem styður 11Mb og 54Mb, 10/100/1000 Mb netkort, 56k mótald, Bluetooth kort og innrautt tengi. 
Rafhlaðan í fartölvunni endist í 3,5 klst. Hægt er að fá auka rafhlöðu sem eykur rafhlöðuendinguna í 6 klst. Hvorki geisla- né disklingadrif er innbyggt í fartölvuna en hægt er að tengja utanáliggjandi USB geisladrif við nc4000 fartölvuna eða með því að nota Multibay ýmist utanáliggjandi eða í tengikví. Á fartölvunni eru einnig 1 PCMCIA rauf og Secure data kortalesari. Fartölvuna má tengja við skjá, skjávarpa eða sjónvarp með S-Video tengi. Á fartölvunni eru auk þess tengi fyrir  hljóðnema og heyrnatól.
nc4000 vélin fer létt með alla staðlaða skrifstofuvinnslu, myndvinnslu t.a.m. í photoshop, vefsíðuhönnun og aðra margmiðlunarvinnslu, hvort sem um er að ræða afspilun eða framleiðslu. Þrívíddarvinnslan er almennt góð enda er skjákortið sambærilegt ATI Radeon 9100 skjákortunum.  
Fartölvan er kröftug, létt og fyrirferðarlítil. Umfram allt er hún þægileg í notkun því þrátt fyrir stærðina, eða öllu heldur smæðina, er engu fórnað í notendaviðmótinu. Allt sem notendur HP hafa vanist, flýtihnappar, snertimús, músapinni og gott íslenskt lyklaborð eru enn til staðar.
nc8000
Þeir sem þurfa hraðskreiða og öfluga fartölvu sem ræður við þunga grafíska vinnslu t.a.m. í þrívíddarteikningu, tækniteiknun, mynd- og myndbandavinnslu eða í tölvuleikjum ættu að fjárfesta í HP Compaq nc8000. 
Fartölvan er með 1,6 Ghz Intel Pentium M örgjörva með Centrino tækni. Hún kemur með 512 MB DDR vinnsluminni sem er stækkanlegt í 2GB. Í fartölvunni er ATI Radeon 9600 með 64 MB DDR minni. Tölvan er með 15,1? SXGA skjá sem styður 1400x1050 bita upplausn.  40 GB harður diskur er í tölvunni og DVD drif sem skrifar á venjulega og endurskrifanlega geisladiska. Fartölvan er með Multibay sem býður upp á að setja annað geisladrif t.a.m. DVD skrifara, annan harðan disk eða auka rafhlöðu í fartölvuna. Þetta eykur notkunarmöguleika tölvunnar talsvert þar sem að notendur geta nú haft fartölvu í gangi á rafhlöðu í allt að 8 klst. Gagnaöryggi er aukið með því að geyma gögn eða stýrikerfi á aðskildum diskum eða skrifað út DVD diska án þess að nota utanáliggjandi drif.
Samskiptamöguleikar fartölvunnar eru margvíslegir. Í tölvunni er þráðlaust netkort sem styður 11Mb og 54Mb auk 10/100/1000Mb netkorts. Einnig eru 56k mótald, Bluetooth kort og innrautt tengi í tölvunni. Á fartölvunni eru 2 USB og eitt Firewire tengi auk drifs fyrir Secure Data gagnaspjald. Í vélinni er lithium-ion rafhlaða sem gefur endingu í allt að 5 klst.
Vinna á fartölvunni er mjög skemmtileg, hvort sem um er að ræða þunga grafíska vinnslu, þrívíddarvinnslu eða tækniteiknun. Tölvan á ekki í neinum erfiðleikum með að keyra þungar grafískar vinnslu og hentar því vel í slíka vinnu. Mikið er lagt upp úr hljómgæðum í nc8000 fartölvunni. Hljóðið er mjög skýrt, bæði tal, tónlist og umhverfishljóð. Á fartölvunni eru stillanlegir flýtihnappar, snertimús og músapinni.  Útlit fartölvunnar er áþekkt og nc4000 nema hvað að hún er öllu stærri. Vélin er 3,25 x 27,4 x 40cm að ummáli og vegur 2,9 kg. nc8000 er lausnin fyrir þá sem velja hreyfanleika án þess að fórna þeim miklu möguleikum sem borðtölvur bjóða.nc4000 fartölvan frá HP, sem er mjög fyrirferðalítil og létt.nc4000 fartölvan frá HP, sem er mjög fyrirferðalítil og létt.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýr HP skjástandur
			<description><![CDATA[Á markað er kominn nýr HP skjástandur, sem framleiddur er sérstaklega fyrir HP flata skjái og HP D530 Ultra Slim Desktop tölvuna. Um er að ræða frábæra lausn fyrir þá aðila sem eru með lítið borðpláss. 
Flati skjárinn er festur á skjástandinn og tölvan sett í þar til gert hólf fyrir aftan skjáinn.  Sérstakt lok er sett aftan á tölvuna sem felur rafmagnssnúrur. Kynntu þér þennan frábæra HP skjástand hjá söludeild Opinna kerfa eða næsta HP söluaðila. HP Ultra Slim Desktop tölva í nýja HP skjástandinum.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Gott málefni í stað jólakorta
			<description><![CDATA[Styrktarfélag vangefinna fékk jólakortastyrk Opinna kerfa, en sú hefð hefur skapast að styrkja gott málefni í stað þess að senda jólakort til viðskiptavina.
Við óskum viðskiptavinum okkar gleðilegra jóla og þökkum farsælt samstarf á árinu sem er að líða.Opin kerfi veita Styrktarfélagi vangefinna styrk í stað þess að senda jókakort í ár til viðskiptavina, frá vinstri: Jónína Sigurðardóttir, skrifstofustjóri Styktarfélags vangefinna, Þóra Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Styrktarfélags vangefinna, Gylfi Árnason, framkvæmdastjóri Opinna kerfa og Halldóra Matthíasdóttir, markaðsstjóri Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ný dreifileið fyrir sjónvarpsefni
- segir Stefán Hjörleifsson framkvæmdastjóri um vefsvæðið tonlist.is.
			<description><![CDATA[Tónlist.is er vefsvæði í eigu MúsikNets ehf. þar sem er að finna flest öll íslensk lög sem hafa verið gefin út í stafrænu formi, alls um 30.000 lög.  MúsikNet ehf. hefur gert samninga við helstu hagsmunaaðila íslensks tónlistariðnaðar og með samningi við Samtón, regnhlífarsamtök tónlistariðnaðarins, er unnið markvisst að rafrænni skráningu íslenskrar tónlistar, allar götur frá 1910 í öllum tónlistarstefnum.  Stefán Hjörleifsson er  framkvæmdastjóri og frumkvöðullinn að baki hugmyndinni.  Friðþjófur Sigurðsson sér um efnistök,  Bárður Örn Bárðarson sér um skráningu og Helgi Pjetur Jóhannsson annast tæknilegan stuðning og sér ennfremur um beinar útsendingar sem eru streymaðar (e.stream) á vefsíðunni.  Hugbúnaðarfyrirtækið Eskill sá um hönnun og smíði vefsvæðisins sem er byggt á Microsoft .Net lausnum.
?Markmið okkar er að vera ávallt helsti dreifingar- og smásöluaðili íslenskrar tónlistar á Internetinu og við munum kappkosta að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu sem ekki aðeins byggist á stafrænni tónlist heldur einnig tónlistartengdum fréttum, upplýsingum, myndböndum og tónleikum á netinu,? segir Stefán. ?Við munum markvisst bæta við tónlist og nýrri þjónustu og leggjum áherslu á að koma nýjum listamönnum á framfæri.?
Áskriftarþjónusta
Að sögn Stefáns öðlast sá sem skráir sig á tonlist.is ótakmarkaðan aðgang að stærsta safni íslenskrar tónlistar sem völ er á, á einum stað.  ?Notendur hafa um tvær meginleiðir að velja; áskrift eða skráningu án áskriftar.  Við bjóðum öllum þriggja daga tilraunaáskrift, án endurgjalds. Með því að gerast áskrifandi er hægt að hlusta og hlaða niður á tölvu allri tónlist sem vefsvæðið hefur að geyma. .  Þá er hægt að sækja lög, vista þau og hlusta á þau án þess að vera tengdur við Internetið.?   
Á tonlist.is er einnig hægt að kaupa tónlist hvort sem fólk kýs að vera í áskrift eða ekki. ?Þannig er unnt að kaupa stök lög og búa til geisladiska, annað hvort með stökum lögum eða heilum plötum ?
Iceland airwaves
Tonlist.is var opnaður formlega 30. apríl sl. og þann 27. september sl. opnaði ensk útgáfa af vefnum í beinni útsendingu frá Joes pub í New York að viðstöddum um 200 manns. Heiðursgestur var Halldór Ásgrímsson en auk þess mætti Björk og hópur fjölmiðlafólks. Opnuninni var streymt um netið en að sögn Stefáns hefur ýmsum tónleikum verið streymt beint á vefnum. ,,Á vefsetri tonlist.is, voru tónleikar Iceland Airwaves sendir beint út, en til þess notuðum við HP tölvubúnað frá Opnum kerfum. Búnaðurinn var sérstaklega settur upp til að geta sent New York opnunina beint,? segir Stefán.  ,,Við erum með tvo ,,streaming? netþjóna frá OK, sem við keyrum Windows 2003 server stýrikerfið á auk sex netþjóna en allur búnaður er hýstur hjá Landssímanum sem er tæknilegur samstarfsaðili MúsikNets.  Við geymum allar upplýsingar á stórri vél í ?lossless? gæðum og einnig á hinum vélunum í öðrum gæðum.? Einnig er að sögn Stefáns allir tónleikar teknir upp og við leggjum mikla áherslu á hljóðgæði.  Á þeim tónleikum sem við höfum streymt hafa frá 400 upp í allt að 1000manns horft á útsendingarnar heima. Segja má að við séum komin með nýja dreifileið fyrir sjónvarpsefni sem er netið?.
Upphafið
Stefán segir hugmyndina um tonlist.is hafa kviknað fyrir um tveim árum og fór hann með hana í MBA námið sem hann lauk fyrr á þessu ári. Þegar hann fór í fyrstu námsferðina til Atlanta var hann búin að ganga með hugmyndina í rúmt ár og var hún notuð í hópavinnu með Bandaríkjamönnunum og Grikkjum í gegnum allt námið. Stefán skrifaði síðan lokaverkefnið sitt um stefnumótum tonlist.is sem hann ákvað síðan að láta verða að veruleika.  Menntun og reynsla Stefáns hefur nýst honum vel. ,,Ég er menntaður tónlistarmaður og starfaði sem slíkur í fimmtán ár, rak síðan hljóðsetningarfyrirtæki í fimm ár og var framkvæmdastjóri Japis áður en ég ákvað að söðla um og fara í nám. 
Mikil aðsókn og vefverðlaun
Að sögn Stefáns hafa móttökur verið mjög góðar.  ?Við erum að fá að meðaltali um eða yfir 10.000 gesti á viku og erum með um 4000 skráða notendur. Þar af eru um 1000 manns nokkuð virkir notendur sem er í samræmi við okkar áætlanir. Um 15% áskrifenda eru útlendingar en auk þess nota Íslendingar búsettir erlendis vefsvæðið töluvert. Tonlist.is var á dögunum valinn besti íslenski vefurinn af vefakademíu Íslensku vefverðlaunanna. Stefán Hjörleifsson, framkvæmdastjóri tonlist.is.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ofurtölva frá HP til Íslands ? 130 tölvur í einum klasa
			<description><![CDATA[Háskóli Íslands, Orkustofnun, Hafrannsóknastofnun, Rannsóknarstofa í Veðurfræði og Veðurstofan hafa gert með sér samning um kaup og uppsetningu á ofurtölvu.. Tölvuna á að nota m.a. til reikninga á stofnstærð fiskistofna, þrívíðrar túlkunar á viðnámsmælingum, forðafræðireikninga, haf- og lofthjúps reikninga og rannsónkir á eiginleikum efna svo sem líkanagerð af nanókerfum og við rannsóknir tengdar notkun vetnis sem orkugjafa. RANNÍS hefur veitt styrk til verkefnisins og búið er að panta HP tölvur fyrir helming upphæðarinnar til að setja upp tölvuklasa sem staðsettur verður við Háskóla Íslands. 
Að sögn Hannesar Jónssonar prófessors í efnafræði við Háskóla Íslands gerir nýja tölvusamstæðan þátttakendum kleift að stunda þunga reikninga á Íslandi og að þjálfa framhaldsnema í að gera þunga reikninga. ?Þetta er ákaflega mikilvægt fyrir nútímaþjóðfélag. Svona rannsóknir eru í raun sérstakt svið eða sérfag, oft nefnt tölvuhermingar (þ.e. computer simulations), og leikur sífellt stærra hlutverk í rannsóknum á mörgum sviðum? segir Hannes.
130 tölvur vinna saman
Ofurtölvan er í raun 130 tölvur settar saman í rekka sem ásamt móðurtölvu mynda eina ofurtölvu. Tölvurnar sem verða notaðar í þetta verkefni eru HP Compaq Ultra Slim borðtölvur. ,,Þetta eru ósköp venjulegar tölvur með Intel Pentium 4 örgjörva, en hver tölva er með  miklu vinnsluminni, eða 1GB?? segir Hannes. ,,Þessi uppsetning gefur okkur langmesta reiknigetu á hverja krónu.?.
Ofurtölvan kemur til með að framkvæma marga samhliða útreikninga. Það er móðurtölvan sem sér um að deila álaginu niður á hinar vélarnar. Í þungum reikningum hentar það vel að láta margar vélar vinna saman í klösum. ,,Þá fær hver og ein vél í klasanum tiltekið verkefni og skilar síðan niðurstöðum sínum til móðurtölvunar, þannig er hægt að dreifa tímafrekum verkefnum niður á margar vélar. Mögulegt er að láta allar vélarnar vinna saman í einum stórum klasa, en oftast verða nokkrir óháðir útreikingar gerðir samtímis?? að sögn Hannesar. 
Biðraðakerfi tryggir góða nýtingu
Sett verður upp biðraðarkerfi á tölvunni sem tryggir jafna og stöðuga vinnslu á tölvunni en þar með næst mesta hagræðið í samnotkun ovurtölvunnar.?Orkustofnun þarf til dæmis að reikna mikið eina vikuna og við aðra vikuna. Á meðan við erum að skoða okkar útkomu geta aðrir verið að keyra sína reikninga þannig að sveiflurnar jafnast út. Þannig verða tölvurnar því sem næst aldrei ónotaðar.??  Átta rannsóknarhópar munu nota ofurtölvuna, fimm þeirra eru við Háskóla Íslands eða tengjast Háskóla Íslands. Ekki verður um almenna reikniþjónustu að ræða heldur einungis þjónustu fyrir þennan afmarkaða hóp, segir Hannes. Hér að neðan er stutt lýsing á þeim verkefnum sem þessir hópar eru að vinna að. 
Fjölstofnalíkan fiskistofna
Á Hafrannsóknarstofnun og Raunvísindastofnun Háskólans hefur á allmörgum undanförnum árum verið unnið að þróun fjölstofnalíkans til að lýsa þróun og samspili fiskistofnana innbyrðis og við umhverfi sitt. Þessi líkön eru orðin það stór að illmögulegt er að keyra þau nema með notkun margra tölva  samtímis, því er nýja ofurtölvan kærkomin viðbót við fyrra reikniafl stofnanna.
Viðnámsmælingar
Á Rannsóknarsviði Orkustofnunar erviðnámsmælingum  mikið beitt í jarðhitarannsóknum, einkum við að kortleggja stærð og innviði háhitakerfa. Viðnámsmælingar hafa hingað til einkum verið túlkaðar með líkönum þar sem gert er ráð fyrir að jörðin undir mælistað sé lárétt lagskipt (einvíð líkön). Þrívíð líkön eru síðan búin til með því að raða saman einvíðum líkönum einstakra mælinga. Unnið verður með svörun viðnámsmælinga fyrir þrívíð líkön á tölvunni.
Veður og veðurfarsfræði
Á tölvubúnaðinum verða framkvæmdir reikningar með lofthjúpslíkani  í tengslum við rannsóknarverkefni sem lúta bæði að veðri og veðurfræði. Veðurverkefnin lúta einkum að samspili landslags og veðurs á ýmsum stærðarkvörðum, allt frá áhrifum Grænlands á veðrakerfi yfir N-Atlantshafi niður í staðbundna vindstrengi við stök fjöll. Veðurfarsverkefni beinist annars vegar að kortlagningu núverandi veðurfars og hins vegar að spá um staðbundið veðurfar miðað við líklega hnattrænar breytingar í framtíðinni. 
Hafhringarásarlíkön
Verkefnið ?Líkanareikningar á breytileika í hafi umhverfis Ísland?, er unnið í samstarfi við Hafrannsóknarstofnun. Nýlega hefur svokallað MOM-4 líkan verið sett upp fyrir íslenskt hafsvæði. Þessi uppsetning gerir mögulegar kannanir á breytileika hafhringrásar umhverfis Ísland og verða niðurstöður bornar saman við gögn frá Hafrannsóknarstofnun. 
Nanókerfi
Rannsóknarhópur Viðar Guðmundssonar við Eðlisfræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans  vinnur að líkanagerð af nanókerfum.Ætlunin er að byggja líkön af og rannsaka eiginleika slíkra kerfa. Viðar hefur þegar hafið tilraunir með líkan af tímaháðum fyrirbærum í nanókerfum og ljóst er að þörf er á verulegri aukningu reikniafls til þess að geta ráðið við stór kerfi.
Notkun vetnis sem orkugjafa
Rannsóknarhópur Hannesar Jónssonar við Efnafræðistofu Raunvísindastofnunar Háskólans vinnur m.a. að verkefni sem nefnist ?Kennilegar grunnrannsóknir tengdar notkun vetnis sem orkugjafa.? Verkefnið felur í sér útreikninga til að spá fyrir um það hvaða málmar og málmblendi hafi heppilega eiginleika annars vegar til geymslu á vetni og hins vegar sem rafskaut í efnarafölum. Þetta eru þungir útreikningar sem notast ekki við mæliniðurstöður heldur byggjast eingöngu á vel skilgreindum nálgunum. á grundvallarjöfnum eðlisfræðinnar. Með slíkum útreikningum er hægt að spá fyrir um eiginleika efna og þannig auðvelda leit að nýjum efnum og efnablöndum, svo og að hjálpa til við að útskýra mæliniðurstöður sem koma frá öðrum rannsóknahópum.
Rafskautalíkön og sjúkrahús
Magnús Þór Jónsson er verkefnisstjóri að tveimur óskyldum verkefnum sem keyrð verða á nýju ofurtölvunni en þau eru á vegum Verkfræðideildar HÍ. Fyrra verkefnið ?Tenging rafskautalíkans við ljósbogalíkan?, felur í sér líkanagerð til að bæta hönnun og rekstur rafskauta og ljósboga í járnblendiframleiðslu. Seinna verkefnið er á sviði hönnunar og bestunar með þróunaraðferðum og nefnist ?Aðlögunarhæft skipulagskerfi ? studdur lærdómur?, þar sem verið er að þróa vaktakerfi og verkniðurröðun fyrir sjúkrahús. 
Ofurtölvan kemur til með að keyra á Linux stýrikerfi, sem er lang algengast í rannsóknaumhverfinu  í dag. Fyrirhugað er að gangsetja vélina 1. desember n.k.Hannes Jónsson prófessir í efnafræði við  Háskóla Íslands.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Dreifmenntun í grunnskólum Vestur-Barðastrandarsýslu
Haraldur A. Haraldsson, verkefnisstjóri gerir grein fyrir verkefninu.
			<description><![CDATA[Dreifmenntun er hugtak sem lýsir blöndu af menntun sem er sótt með aðferðum fjarnáms/kennslu og staðbundins náms/kennslu.  Dreifmenntun jafnar möguleika nemenda til náms og nýtir betur sérþekkingu kennara óháð búsetu.  Þannig geta nemendur sem eru búsettir í dreifbýli sótt dreifnám, sem er sniðið að þeirra þörfum, án þess að flytjast búferlum.  Kennarar geta stundað starf sitt í fjarvinnu óháð búsetu.
Samningur um dreifmenntun í grunnskólum VesturBarðastrandarsýslu var undirritaður í Þjóðmenningarhúsinu 20. ágúst 2003. Samninginn undirrituðu Tómas Ingi Olrich menntamálaráðherra og sveitarstjórarnir Brynjólfur Gíslason frá Vesturbyggð og Ólafur M. Birgisson frá Tálknafirði. Samningurinn gildir frá undirritun til 31. janúar 2006.  Framlag menntamálaráðuneytisins á tímabilinu er 45 milljónir króna en gert er ráð fyrir að verkefnið kosti í heild um 55 milljónir.Leggja sveitarfélögin Tálknafjarðarhreppur og Vesturbyggð fram mismuninn.Verkefnið hefur hlotið heitið:  Dreifmenntun V-Barð.
Markmið
Meginmarkmið verkefnisins er að nýta upplýsingatækni í þágu fræðslustarfs í grunnskólum á svæðinu og leitast þannig við að efla það og bæta og jafnframt styrkja stöðu byggðanna.  Helstu áhersluatriðin eru eftirfarandi.:
*Að leggja grunn að skólasamfélagi sem svari breyttum aðstæðum.
*Að breyta ríkjandi hugmyndum um tilhögun náms og fræðslu.
*Að þróa samkennslu og efla samstarf milli skóla á svæðinu.
*Að auka og bæta gæði og fjölbreytni námsins.
*Að þjálfa kennara í nýjum og viðeigandi vinnubrögðum.
Til að ná fram markmiðunum er bæði þörf á því að auka tölvufærni kennara skólasamfélagsins og þjálfa þá í notkun ýmiss konar hugbúnaðar í tengslum við kennsluna. Ennfremur þarf að  koma upp viðeigandi hug-, samskipta- og tölvubúnaði. 
Starfsumhverfi
Á milli skólanna liggja erfiðir fjallvegir og/eða þverhníptir sjávarmúlar og skriður. Vegalengdir á milli skóla eru miklar.  Hagræðing með stækkun bekkjadeilda og akstri nemenda á milli skólahverfa er því nánast útilokuð vegna varasamra og mikilla vegalengda.  Hugsanlega má vinna að frekari hagræðingu á hefðbundinn hátt með dýrum vegabótum eins og jarðgöngum og vegskálum. Slíkt er þó varla fýsilegt vegna mikils kostnaðar.
*Fjöldi íbúa 1. des. 2002			1466		
*Nemendur í grunnskólum 2003/4		  213
*Fjöldi skóla					      4
Þjálfunar- og kennsluþáttur
Þjálfunarþátturinn er kominn til framkvæmda en hann hófst á árinu 2002.  Farið hefur fram einstaklingsbundið mat á tölvufærni allra kennara, sem kenna í viðkomandi skólum á svæðinu, og efnt hefur verið til nokkurra námskeiða í tengslum við matið. Framundan eru margvísleg námskeið sem eru liður í þeim áætlunum sem settar hafa verið fram og miða að því að ná tilsettum árangri með verkefninu.  Þessi námskeið eru m.a. á þessum sviðum:  
*notkun rafrænna miðla við kennslu, 
*kennsla í fámennum skólum,
*nýir og breyttir kennsluhættir, 
*upplýsingatækni,
*stjórnun og samskipti,
*endurmenntun.
Námskeiðahaldið er unnið í samstarfi við Kennaraháskóla Íslands.
Staðan í dag
Fartölvuvæðing kennara er lokið og hefur stjórnsýslan þar með um leið verið tölvuvædd og er þar stuðst við forritið ?stundvísi? frá Mentor.  Kennarar munu þannig nýta sér tölvutæknina við að halda utan um alla þætti sem snúa að kennslu og nemendaskráningu í viðkomandi bekkjardeild.  Um leið opnast aðgengi fyrir foreldrana heiman frá til að fylgjast með framvindu og ástundun barnanna í námi. 
Sá myndfundabúnaður sem tekinn hefur verið í notkun gerir kennurum nú þegar fært að samkenna milli skóla og nýta netið við kennsluna. Ekki er þó gert ráð fyrir að samkennsla hefjist fyrr en á næsta ári.  Þá hefst um leið samræming alls skólahalds og stundartöflu þessara skóla. 
Tækniumhverfi
Verkefni þetta byggir á notkun FS-háhraðanets framhaldsskólanna. FS-net byggir á IP-staðli sem einfaldar mjög fjarskipti vegna myndfunda og opnar nýja möguleika fyrir nýtingu Internetsins. Til þessa hafa símenntunarmiðstöðvar byggt á ISDN tengingum, upphringisambandi og skrefatalningu sem er óhagkvæmt og hægvirkt fyrir myndfundi og Internetþjónustu.  Með FS-neti býðst fastlínutenging og margföldun á flutningsgetu.  Aðalstöðvar símenntunarstöðva verða tengdar FS-neti með 100 mbps sambandi yfir ljósleiðara en útibú þeirra með 2 mbps sambandi.
Tækjakaup
Í samráði við Sensa hf. fór fram þarfagreining á tækjabúnaði sem þyrfti að vera til staðar til að ná fram settum markmiðum.  Tækjabúnaður var því boðinn út meðal fjögurra stærstu tölvubirgja landsins og í framhaldi af því var ákveðið að ganga til samninga við Opin kerfi ehf. um kaup á öllum búnaðinum.  Voru samningar undirritaðir í september sl. en allur búnaðurinn hefur nú verið afhentur.  Búnaður þessi samanstendur af 40 Compaq EVO n1015 fartölvum ásamt netbúnaði fyrir þráðlaust net.  Þessar fartölvur og netbúnaðurinn er keyptur á 3ja ára leigusamningi við HPFinance í Danmörku.  Einnig var fest kaup á iPover myndfundabúnaði þ.e.a.s. einu iPpower 9800 með innbyggðri myndbrú fyrir IP staðal og 2 stk. iPower 680 einnig fyrir IP staðal.  Þá var líka  keyptur iShare búnaður við þennan myndfundabúnað en hann nýtist fyrir jaðartæki t.d. fartölvu til að koma inn skjölum.  Keyptir voru einnig fjórir HP-VP6120 skjávarpar til að nota við kennsluna, sem og þrír tölvuskjáir.  Ennfremur var fjárfest í öflugum ProLiant netþjóni, ásamt Exchange hugbúnaði, en hann mun gegna lykilhlutverki sem miðlægur þjónn og halda utan um gögn á þessu neti. Keypt var McAffee vírusvörn í allan tölvubúnaðinn og gerður samningur um Microsoft Office hugbúnaðarpakka.
Af þessu má vera ljóst að um verulega fjárfestingu að ræða.  Til staðar er ViewStation búnaður sem er í eigu Fræðslumiðstöðvar Vestfjarða og er hann nýttur í þessu verkefni og staðsettur á Birkimel á Barðaströnd.Við myndfundabúnaðinn sem keyptur var af Opnum kerfum, frá vinstri: Haraldur A. Haraldsson, verkefnisstjóri, Gústaf Gústafsson, aðstoðarskólastjóri grunnskóla Vesturbyggðar og Ingimundur Óðinn Sverrisson, kerfisstjóri skólans.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Rafræna skólataskan
- Sigríður Anna Guðbrandsdóttir, frönskukennari í Menntaskólanum við Hamrahlíð, skrifar um lokaðan námsvef á netinu
			<description><![CDATA[Haustið 2002 komst ég í samband við franskan mann í gegnum E-scola á netinu. Ég var að leita að pennavinum fyrir nemendur mína og Frakkinn Bernard Garcin hafði samband við mig. Bernard þessi kennir við framhaldsskóla í Frakklandi.  Hann hafði árið áður komist í samband við Háskólann í Savoie í Frakklandi en þeir höfðu þá nýlega sett upp lokaðan námsvef á netinu sem er kallaður ?Rafræna skólataskan?. Bernard hafði í nokkurn tíma langað að tengja tölvur við nám nemenda sinna. Hann byrjaði því strax að skipuleggja notkun þessa námsumhverfis til bréfaskrifta milli bekkja í ólíkum löndum. Fyrst vann hann með Þjóðverjum og Japönum en seinna bættust fleiri lönd við, þ.á.m. Ísland með Menntaskólanum við Hamrahlíð. Nú taka u.þ.b. 25 lönd þátt í bréfaskriftum á vegum ?Rafrænu skólatöskunnar?.
Bréfaskriftirnar fara þannig fram að hverjum bekk er skipt upp í smærri hópa (þrjá til fjóra nemendur) og þeir skrifast á við álíka marga nemendur frá þremur til fjórum öðrum löndum. Í fyrra skrifuðu nemendur okkar nemendum frá Frakklandi, Bretlandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum. Frakkarnir voru þeir einu sem skrifuðu á ensku (enda þurfa þeir að þjálfa hana) en hinir notuðu frönskuna sem samskiptamál. Er mjög skemmtilegt að í okkar heimshluta, þar sem enskan ræður oftast ríkjum, skuli nemendur notast við frönskuna til að spjalla saman. Að jafnaði skrifuðu nemendur bréf einu sinni í viku um fyrirfram ákveðin efni, s.s. að kynna sig, kynna skólann sinn og borgina sína; segja frá skemmtilegum menningarviðburði í bænum þeirra eða degi í lífi venjulegs framhaldsskólanema. Nemendur voru almennt ánægðir með þessa hópvinnu, voru spenntir að fá bréf og áhugasamir um að skrifa sjálfir.
Hver hópur vinnur á lokuðu svæði innan ?Rafrænu skólatöskunnar? og kemst enginn inn á það nema kennarinn þeirra og svo hóparnir í hinum löndunum. Hægt er að setja inn á svæðið þeirra myndir, bæði af skólunum, nemendunum sjálfum eða hverju því sem þá langar að sýna pennavinum sínum. 
HP styrkir tölvutengd verkefni
Bernard hefur verið duglegur við að fá styrktaraðila að verkefninu og meðal þeirra er tölvufyrirtækið Hewlett Packard í Frakklandi. Það fyrirtæki hefur m.a. á stefnuskrá sinni að styrkja tölvutengd verkefni í skólum víðs vegar um Evrópu með því að gefa til þeirra tækjabúnað (svo nefnt : HP-Pan-European-Intiative). Í febrúar sl. kom í ljós að Ísland var í þeim hluta Evrópu sem þeir styrktu árið 2003 en umsjón með því hefur M. Jacques Misselis, deildarstjóri mennta- og rannsóknardeildar HP í Frakklandi.
HP tækjakostur í frönskudeild MH
Til að skólinn fengi tækin þurftum við að kynna skólann og fá fulltrúa Hewlett Packard til að veita okkur meðmæli. Það ferli varð flóknara en reiknað hafði verið með. Við fengum mikla aðstoð frá markaðsstjóra Opinna kerfa, en þeir eru umboðsmenn HP á Íslandi. Markaðsstjórinn heitir Halldóra Matthíasdóttir, gamall MH-ingur, og sá hún um allar bréfaskriftir við Hewlett Packard í Danmörku. Vegna þess hve samskiptaferlið var flókið, en það þurfti að fara í gegnum Íslendinga, Dani og Frakka, dróst nokkuð að gjöfin kæmi til okkar en með þrautseigju Halldóru, Bernards og minnar eigin náði þetta loksins í gegn. Þann 29. september kom tækjakosturinn loksins í Menntaskólann við Hamrahlíð, tvær fartölvur, litaprentari og skjávarpi. Tækin eru hugsuð til að auðvelda nemendum frönskudeildar MH áframhaldandi samstarf við frönskunemendur annarra landa í gegnum ?Rafrænu skólatöskuna? Fögnum við því innilega.
Tungumál notað á skapandi hátt
Að lokum má geta þess að ?Rafræna skólataskan? hefur nýlega hlotið tvenn verðlaun: ?Multilingual Learner Award" í Svíþjóð en það eru alþjóðleg verðlaun og Nets d?or@école frá franska símafyrirtækinu Télécom, en bæði verðlaunin hlaut ?Rafræna skólataskan? fyrir að nota tungumál á skapandi hátt með aðstoð netsins.
Ef þið viljið skoða verkefnið nánar má finna það á eftirfarandi slóð:
http://www.ac-grenoble.fr/wkto/
Sigríður Anna Guðbrandsdóttir, 
frönskukennari í Menntaskólanum við HamrahlíðSigríður Anna Guðbrandsdóttir, frönskukennari í MH ásamt nemendum sem taka þátt í Rafrænu skólatöskunni.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Netkerfi og tölvur
			<description><![CDATA[Netkerfi og tölvur hófu starfsemi á  innflutningi  á sérvörum  fyrir netkerfi og vélbúnaði í tölvur og þaðan  kemur nafnið á fyrirtækinu. Fyrirtækið var einnig með þjónustusamning og starfsmannaleigu við önnur tölvuþjónustufyrirtæki. Á þessum tíma voru starfsmenn tveir.
Um áramótin 2001-2002 breyttist reksturinn og Netkerfi og tölvur  er i dag alhliða upplýsingatækni, sölu- og þjónustuaðili á vél og hugbúnaðarkerfum. Starfsmenn eru fjórir og starfa þeir sem  tæknimenn/forritarar, sem og við almennar viðgerði á verkstæði og uppsetning á nýjum búnaði, einnig við bókhald og fjármálaþjónustu fyrirtækisins. 
Þjónusta í tölvu- og netbúnaði
Að sögn Gunnars Björn Þórhallssonar eiganda Netkerfi og tölvur hafa starfsmenn fyrirtækisins  áratuga reynslu í að þjónusta upplýsingakerfi fyrirtækja og stofnana. ?Við þjónustum önnur tölvu- og tæknifyrirtæki og mörg af stærri fyrirtækjum  á Akureyri, þá þjónustum við öll sveitafélög, og nánasta alla skóla/stofnanir á Eyjafjarðarsvæðinu. Þjónustan er bæði í tölvu- net og hugbúnaðarkerfum  við veitum einnig almenna tækniþjónustu og ráðgjöf,. Einnig vinnum við að úttekt og ráðgjöf fyrir stjórnendur fyrirtækja til að benda á leiðir til að lækka fastan rekstrarkostnað kerfana og auka afköst, öryggi, skilvirkni og framleiðni,  við höfum einnig komið að uppbyggingu á hýsingar/kerfisleigu þjónustufyrirtæki og erum hluthafar í einu þannig fyrirtæki en í dag, fyrirtækið hefur alla tíð lagt mikla áherslu á að vera leiðandi í frumkvöðlastarfi og við þróun á nýjum lausnum.? segir Gunnar Björn.
Gott samband við sérþjónustufyrirtæki 
Gunnar Björn er með langan starfsaldur í faginu og með góð sambönd við önnur öflug sérþjónustufyrirtæki á og utan Akureyrar sem og erlendis. Að sögn Gunnars hafa starfsmenn Netkerfi og tölvur mikla reynslu og þekkingu varðandi hin ýmsu hugbúnaðarkerfi og netstýrikerfa frá Microsoft, Novell, Unix, og víðnetsbúnaði meðal annars frá Cisco, einnig höfum við sett upp og rekum í dag öflugt örbylgjukerfi sem nær yfir alla Akureyri og nágreni, sem og minni kerfi sem nota þráðlausar eða  xDSL tengingar.
HP tölvubúnaður
Netkerfi og tölvur selja aðallega tölvubúnað frá HP, netbúnað frá Cisco og hugbúnað frá Microsoft til fyrirtækja og stofnana. ?Einnig bjóðum við minni búnað sem hentar fyrir einstaklinga og minni fyrirtæki. segir Gunnar. einnig aðstoðum við fyritæki með forritun á gagnagrunnstengdum vefsíðum. Að sögn Gunnars er markmið okkar að  útvegað heildarlausn í þjónustu og búnaði og hefur þar verið mikil aukning í samstarfi við HP Financial  um fjármögnun í þannig stærri verkefnum.Hlynur Jónsson framkvæmdastjóri Greifans eignarhaldsfélags hf. í tækjarými við HP vélbúna sem hýsir öll upplýsinga- og vefkerfi fyrir Veitingahúsið Greifann og fimm hótel Hótelveitinga ehf. 
á Akureyri, Reykjavík, Mývatnssveit, sem og minni félög þeim tengd.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP NX7000 fartölva
			<description><![CDATA[Nýlega hófst sala á nýrri kynslóð fartölva með nýjum örgjörvum og breiðari skjám en áður þekktist á fartölvum. Þessari nýju kynslóð var tekið hreint ótrúlega vel, eftirspurnin gríðarleg og ljóst að tími hafi verið kominn á þessa breytingu. 
HP NX7000 fartölvan kemur ýmist með 1,5 eða 1,6 Ghz Intel Pentium M örgjörva og Centrino tækni. Um er að ræða nýja tegund af fartölvuörgjorva með helmingi meira skyndiminni en áður þekktist, eða 1GB. Aukið minni í örgjörvanum sjálfum eykur vinnslugetu vélarinnar gríðarlega, sérstaklega í grafískri og/eða myndvinnslu. Aðrið kostir sem Centrino tæknin  hefur umfram aðrar kynslóðir Intel örgjörva eru m.a. innbyggður stuðningur við þráðlaus netkerfi, aukinn orkusparnaður þar sem að örgjörvinn getur stillt klukkuhraða eftir þörfum. Þannig er notandinn ekki að nota meiri orku en þarf hverju sinni. Þetta getur skilað sér í aukinni endingu á rafhlöðunum. 
Á NX7000 fartölvunni er 15.4? WSXGA+ TFT skjár eða Widescreen SXGA+. Skjárinn ræður við 1680x1050 bita upplausn. Breidd skjásins gerir notendum auðvelt að vinna í tveimur eða fleiri gluggum samtímis. 
Vinnsluminnið sem kemur með fartölvunni er 512MB DDR en það er stækkanlegt upp í 2GB. Skjákortið er ATI Radeon 9200 með 64MB minni. Grafísk vinnsla, mynd- og myndbandsvinnsla eru því leikur einn á vélinni. 
Á fartölvunni eru paralell tengi, 3 USB tengi, SVHS og firewire tengi auk skjáútgangs. Einnig eru rauf fyrir Secure Digital kort og infrarautt tengi sem er nánast staðalbúnaður á fartölvum í dag. Þá eru í vélinni innbyggt mótald, netkort, þráðlaust netkort og Bluetooth. Þetta gerir notandanum kleift að komast á internetið við flestar aðstæður. Þá er ein PCMCIA rauf á vélinni. Tengimöguleikar fartölvunnar aukast ef notuð er tengikví. 
Hljóðið í NX7000 fartölvunni er mjög gott, einkum sökum þess að í henni eru JBL hátalarar sem gefa frá sér þéttan hljóm. Þetta er kærkomin breyting þar sem að í flestum ferðavélum er þetta ábótavant, hljómurinn oft kraftlítill og jafnvel dósalegur. Vissulega jafnast hljómurinn ekki á við að hafa PC hátalara við vélina en þetta er engu að síður mikil bót og ekki eina HP vélin á markaðnum í dag þar sem hljómgæði hafa verð stórbætt. 
Í stuttu máli þá er hér á ferð hreint frábær tölva. Nýja Centrino tæknin virðist vel heppnuð og stendur undir öllum þeim væntingum sem til hennar eru gerðar. Breiði skjárinn færir fartölvumenninguna í nýja vídd bæði hvað varðar vinnu og afþreyingu. Öflugt skjákort og minni auk skyndiminnisins í Centrino tækninni tryggja að öll vinnsla fer fljótt og örugglega fram. Mynd- og myndbandavinnsla sem hefur hingað til farið nánast alfarið fram á PC tölvum er hægaleikur á NX7000. 
HP hefur gefið tóninn og nú verður gaman að heyra hvernig framhaldið hljómar.HP NX7000]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin Kerfi Group - birta 9. mánaða uppgjör
			<description><![CDATA[Opin Kerfi Group sendu frá sér fréttatilkynningu í dag vegna  9. mánaða uppgjörs sem er að finna á heimasíðu félagsins www.okg.is - eða með því að smella á vefslóðina hér að neðan. 
			<author>ok@ok.is</author>
Skráningarlýsing Opin Kerfi Group hf.
			<description><![CDATA[Skráningarlýsing Opin Kerfi Group hf. er að finna á heimasíðu Opin Kerfi Group, á www.okg.is, eða smellið á vefslóðina hér að neðan.
Ef þú hefur áhuga á að fá prentaða útgáfu af skráningarlýsingunni, hafðu þá samband við Halldóru, halldora.matthiasdottir@okg.is, eða í síma 570-1000.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Kerfi AB er nýtt nafn á sameinuðu fyrirtæki sem er í eigu Opin Kerfi Group í Svíþjóð
			<description><![CDATA[Opin kerfi Group eiga fyrirtækið Kerfi AB í gegnum eignarhaldsfélagið Opin Kerfi Sweden AB í Svíþjóð, en Kerfi AB er nýtt heiti á sameinuðu félagi Datapoint Svenska AB og Virtus AB. Opin Kerfi Group keyptu í nóvember árið 2001 allt hlutafé í Datapoint Svenska af eigendum þess, Datapoint Newco 3 Ltd. og fest voru kaup  á öllum hlutum í sænska tæknifyrirtækinu Virtus í byrjun maí 2003 og kom félagið inní samstæðuna 1. júní 2003.  
Unnið er að sameiningu Datapoint og Virtus enda eru félögin í mjög líkum rekstri. Gerð var ein áætlun og eitt skipurit fyrir sameinað félag sem tók gildi 1. júní s.l. en yfir félaginu er nú sama stjórnin. Lögformleg sameining mun þó miðast við 1. janúar 2004. Aðalstöðvar félagsins verða í Millenium húsinu í Stokkhólmi, sem stendur við Årstaängsvägen 21 í Stokkhólmi, frá febrúar 2004. 
Kerfi AB rekur alls 12 starfsstöðvar í Svíþjóð og Noregi. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í Stokkhólmi og að auki eru 11 skrifstofur víðsvegar um Svíþjóð og í Noregi er ein lítil skrifstofa. Kerfi AB leggur áherslu á að staðsetja útibú nálægt stórum viðskiptavinum og þá sérstaklega í þeim sveitarfélögum sem eru í viðskiptum við félagið.
Hið sameinaða félag verður einn helsti samstarfsaðili HP í Svíþjóð varðandi sölu á HP búnaði og heildarlausnum til fyrirtækja og stofnana. Sameinað félag verður með áætlaða ársveltu um 1 milljarð SEK. Sameining þessi mun styrkja Opin Kerfi Group í því að verða í hópi öflugustu fyrirtækja á norræna upplýsingatæknimarkaðinum. 
Starfsemi Kerfi AB skiptist í tvö megin svið, annars vegar ráðgjöf hýsing og sala á kerfislausnum og hins vegar sala á tölvubúnaði. Í ráðgjöf, hýsingu og sölu á kerfislausnum er áhersla lögð á alhliða ráðgjöf til viðskiptavina og smíði sérlausna í samræmi við þarfir þeirra. Gerðir hafa verið samstarfssamningar við viðskiptavini um ráðgjöf varðandi öll mál er varða upplýsingatækni.
Sameinað félag er leiðandi sölu- og þjónustuaðili í upplýsingatækni í Svíþjóð. Félagið þjónustar bæði meðalstór og stærri kerfi og valdar hugbúnaðarlausnir fyrir meðalstór og stór fyrirtæki. Auk þess býður Kerfi AB vörur frá leiðandi framleiðendum eins og HP sem saman mynda heildarlausn með þjónustunni. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Tveir vinningshafar í námsmannaleik hjá Sparisjóði Vestfirðinga
			<description><![CDATA[Nú nýlega voru dregnir út 25 heppnir viðskiptavinir námsmannaþjónustu Sparisjóðanna og hlutu þeir 20 þúsund króna bókaúttekt hver. Tveir hinna heppnu eru í viðskiptum hjá Sparisjóði Vestfirðinga, þær Hrafnhildur Ýr Elvarsdóttir hjúkrunarfræðinemi við Háskóla Íslands og Guðríður Þorbjörnsdóttir nemandi í Menntaskólanum á Ísafirði. Guðríður var auk þess ein hinna 25 til að hljóta aðalvinninginn, fullkominn HP litaprentara.
Öllum viðskiptavinum námsmannaþjónustu sparisjóðanna gafst kostur á taka þátt í úrdrættinum en þurftu þó að skrá sig sérstaklega til leiks. 
Á meðfylgjandi mynd sést Katrín Skúladóttir, þjónustustjóri hjá Sparisjóði Vestfirðinga á Ísafirði, afhenda Guðríði litaprentarann í útibúi Sparisjóðs Vestfirðinga á Ísafirði í dag.Guðríður Þorbjörnsdóttir og Katrín Skúladóttir.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Áhafnarmeðlimir á Höfrungi III Ak250 með HP nx7000 fartölvur
			<description><![CDATA[Tíu  áhafnarmeðlimir af frystitogaranum Höfrungi III Ak 250 tóku sig saman og keyptu allir HP nx7000 fartölvur af Tölvuþjónustunni á Akranesi. 
Að sögn Einar Jónssonar hjá TA er þráðlaust netsamband um borð og því hafa þessir áhafnarmeðlimir aðgang að tölvupósti og interneti, auk þess sem þeir geta haft samband sín á milli. ?Skjárinn á HP nx7000 fartölvunni er hágæða 15,3" Widescreen og því einnig gott að horfa á DVD myndir á tölvunni í hléum," segir Einar.Áhafnarmeðlimir á Höfrungi III Ak250 sem keyptu HP nx7000 fartölvur af Tölvuþjónustunni á Akranesi.Áhafnarmeðlimir á Höfrungi III Ak250 sem keyptu HP nx7000 fartölvur af Tölvuþjónustunni á Akranesi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Gerðahreppur gerir samning við Samhæfni um HP tölvubúnað og þjónustu
			<description><![CDATA[Nýlega var undirritaður HP Financials Services rekstrarleigusamningur vegna endurnýjunar á tölvubúnaði Gerðaskóla. Hreppsnefnd Gerðahrepps skipaði nefnd í vor sem í voru Einar Jón Pálsson frá hreppsnefnd Gerðahrepps, Gísli Heiðarsson frá skólanefnd, Svavar Herbertsson, tölvukennari og Erna M. Sveinbjarnardóttir, skólastjóri. Nefndin hafði það markmið að endurskoða tæknimál Gerðaskóla og bæta aðbúnað nemenda og kennara er varðar upplýsingatækni. 
Að sögn Einars Jóns Pálssonar, formanns nefndarinnar, gekk vinnan vel og skilaði hópurinn niðurstöðum fyrir skemmstu. ?Það er stefna hreppsnefndar að ekki sé verið að tjalda til einnar nætur heldur sé um viðhorfsbreytingu að ræða og gert ráð fyrir að halda Gerðaskóla í fremstu röð hvað varðar menntun og þá aðbúnað í upplýsingatæknimálum.?
Eftir að hafa leitað tilboða var ákveðið var að semja við Samhæfni ? tæknilausnir um rekstrarleigu á HP Finans tölvubúnaði til þriggja ára. ?Sveigjanleiki rekstrarleigunnar er mjög hentug fyrir rekstraraðila eins og sveitarfélög, þar sem hægt er að bæta inn í samninginn hvenær sem er á samningstímabilinu, sem og að skipta út búnaði í lok tímabilsins,? segir Einar Jón. Gerðaskóli skipti út aðalnetþjóni skólans í HP Compaq Proliant ML350 Xeon með 2.4GHz örgjörva sem keyrir á Windows 2003 Server stýrikefinu. Auk þess voru teknar á rekstrarleigu átján HP D510 small-form-factor,  Pentium 4 borðtölvur með 15" TFT flatskjám, nettengdur geislaprentari og A3 litaprentari á kennarastofuna. Til að tryggja öryggi var einnig ákveðið að setja upp McAffe vírusvörn á allar tölvur skólans sem eru nú 35 talsins.
Svavar Herbertsson er umsjónarmaður tölvukerfis Gerðaskóla: ?Við erum mjög ánægð með þessa viðbót við tölvukost skólans, sem var orðin löngu tímabær. Auk þess erum við mjög ánægð með að í haust var skipaður vinnuhópur meðal kennara sem finna á leiðir til að nýta sem best þá möguleika sem tölvutækni bíður uppá í tengslum við skólastarf í framtíðinni.?]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin kerfi ná markmiðum með OK Beint
			<description><![CDATA[Opin kerfi afhentu Davíð Erni Svavarsyni, sölumanni tæknivöru hjá Prentsmiðjunni Odda, HP pcs 2175 fjölnotatæki og HP Photosmart 735 stafræna myndavél að gjöf í dag, í þakklætisskyni vegna samstarfs fyrirtækjanna í netverslun Opinna kerfa, OK Beint.
Fjöldi fyrirtækja nýtir sér þessa þjónustu Opinna kerfa en Davíð hefur verið ötull stuðningsmaður og nýtt sér hana vel. Stór hlutfall pantana Odda eru gerðar á OK Beint. Auk þess var það pöntun Davíðs sem kom okkur yfir það markmið sem við höfðum sett okkur í sölu á OK Beint. Það er því mikil ánægja að færa honum gjöf að þakklæti.
Davíð sagðist vera mjög ánægður með OK Beint: ?Segja má að ég sé með aðgang að tveim lagerum, því þegar viðskiptavinur spyr mig um ákveðna vöru, get ég svarað honum strax hvort varan sé til eða ekki, þar sem ég hef aðgang að lagerupplýsingum hjá Opnum kerfum. Þetta skiptir mjög miklu máli fyrir okkur, auk þess sem við getum pantað hvenær sem er sólarhringsins og fáum alltaf vörurnar afgreiddar strax."Við afhendingu þakklætisvotts, frá vinstri: Pétur Bauer, sölustjóri heildsölu Opinna kerfa, Davíð Örn Svavarsson, sölumaður tæknivöru hjá Odda og Arna María Gunnarsdóttir, viðskiptastjóri netsölu Opinna kerfa.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Stafræn offsetprentvél af fullkomnustu gerð
			<description><![CDATA[Stafræna prentsmiðjan / Leturprent ehf. tók fyrir skömmu í notkun nýjustu gerð stafrænnar offsetprentvélar af gerðinni HP/Indigo 3000 frá Hewlett & Packard sem er afar fullkomin. Kristján Ingi Einarsson, framkvæmdastjóri og eigandi fyrirtækisins, segir að stafræn prentun, sem ruddi sér til rúms rétt fyrir síðustu aldamót, hafi þróast geysimikið á fáum árum.
Stafræna prentstofan hefur fylgst vel með þeirri þróun enda tók fyrirtækið í notkun fyrstu Indogo stafrænu prentvélarnar sem komu til landsins árið 1999, Indigo Turbo Stream og Indigo E pro tveimur árum síðar. Að sögn Kristjáns er reynslan af hinni nýju vél með afbrigðum góð og hann telur að fyrirtækið hafi styrkt mjög stöðu sína á sviði stafrænnar prentunar hérlendis. 
Hvorki notaðar plötur né filmur
Kristján bendir á að flókin og vandasöm stafræn tækni geri verkferlið mun einfaldara og fljótvirkara þótt það kunni að hljóma undarlega. Hvorki eru notaðar filmur né plötur heldur er prentvélin mötuð með stafrænum upplýsingum og skilar fullunnum prentgrip svo til samstundis hvort sem er í smáu eða stóru upplagi.
Stafræn prentun mörgum kostum búin
Kristján segir kostina við stafræna prentun umfram hefðbundna offsetprentun einkum vera þá að auðvelt sé að framleiða lítið upplag í hámarksgæðum, bæði í einföldum og afar flóknum prentverkum, t.d. litljósmyndir eða listaverk þar sem miklar kröfur eru gerðar um liti og skerpu. Auk þess kemur prentgripurinn alveg þurr og tilbúinn úr vélinni svo að öll eftirvinna, s.s. skurður, brot og hefting, getur hafist samstundis. Annar kostur við stafrænu prentunina er mikilvægur en hann er sá að auðvelt er að prenta margar útfærslur af sama verkinu samtímis sem er ógerlegt í öðru prenti. 
Kristján leggur áherslu á að mikilvægt sé að gera sér grein fyrir muninum á stafrænni ljósritun annars vegar og stafrænni prentun hins vegar því að það sé tvennt ólíkt enda séu gæði prentunarinnar ólíkt meiri en ljósritunar. Indigo vélarnar prenta í fjórlit (CMYK) á flestar gerðir pappírs. Þær prenta einnig á plastefni, glærur, filmur, límmiða og margt annað, allt upp í A3.
?Hraðinn er mikill kostur við stafrænu prentunina,? segir Kristján, ?en án þess að hann komi niður á prentgæðunum og vinnslutími er mun styttri vegna einfaldari forvinnu, eins og að framan greinir. Þetta styttir allt framleiðsluferlið verulega og jafnframt standa viðskiptavinum til boða sérstakar hraðbrautir í prentun sem njóta forgangs. Auk þess er prentun með HP-Indigoaðferð umhverfisvæn.?
Tæp 50 ár frá stofnun fyrirtækisins
Á næsta ári 2004 eru liðin 50 ár frá því að Einar Ingi Jónsson, faðir Kristjáns Inga stofnaði Leturprent í litlum bílskúr vestur í bæ. Einar rak fyrirtækið allt til ársins 1985 að Kristján Ingi tók við rekstri fyrirtækisins þegar heilsa Einars brast. Prentsmiðjan hefur gengið gegnum öll þróunarstig prentunar allt frá handsetningu leturs til stafrænnar prentunar.
Nafni prentsmiðjunar var breytt til áréttingar á nýrri prenttækni í Stafrænu prentstofuna Leturprent ehf. árið 1999. Fyrirtækið er nú rekið í eigin húsnæði að Síðumúla 22 og starfsmenn eru sjö talsins.
Hin nýja prentvél HP Indigo 3000 er fyrsta afurð Hewlet Packard samsteypunnar og er talin fullkomnasta stafræna prentvélin sem nú er völ á en hún er hin fyrsta sinnar tegundar á Norðurlöndum. ?Vélin er tæknilega betur búin, og skilar enn meiri prentgæðum, því að uppbygging hennar og vinnsla fer algjörlega fram með lögmálum offsetækninnar. Þar með er Stafræna prentstofan fyrsta prentsmiðjan á Íslandi sem býður stafræna offsetprentun,? segir Kristján.
Heimild: www.si.isKristján Ingi Einarsson og Burkni AðalsteinssonKristján Ingi Einarsson og Burkni Aðalsteinsson]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP stimplar sig inn
			<description><![CDATA[Þótt Hewlett-Packard hafi selt stafrænar ljósmyndavélar í nokkurn tíma hafa þær vélar fengið misjafna dóma, enda margar ekki þróaðar hjá fyrirtækinu. Með nýrri slíkri vél, HP 945, má þó segja að fyrirtækið stimpli sig inn á ljósmyndamarkaði svo um munar. 
Vélin nýja, arftaki HP Photosmart 850, er með ríflega fimm milljón díla skynjara, sem er býsna gott á ekki dýrari vél, en mesta athygli vekur á að á henni er 8X aðdráttarlinsa sem samsvarar 300 mm linsu á hefðbundinni 35 MM vél. Þegar nota á 8X aðdráttinn er eins gott að vera ekki skjálfhentur og best að hvíla vélina á einhverju traustu ef unnt er. Neðan á henni er skrúfgangur fyrir þrífót sem kemur í góðar þarfir, en einnig hefði verið gott ef í vélinni hefði verið búnaður til að draga úr skekkjum vegna hugsanlegs hristings.
Skjárinn á baki vélarinnar er ágætur, en sjónopið fyrir augað er einnig með skjá, þ.e. maður sér ekki í gegnum opið heldur er þar fyrir innan örsmár kristalsskjár. Þetta er væntanlega vegna hins öfluga aðdráttar, en einnig er hægt að stilla skerpu á þeim skjá þannig að ekki þarf að hafa gleraugun á sér er taka á mynd. Slökkt er á þessum skjá til að spara rafhlöðurnar, en kviknar á honum um leið og augað kemur að, en fyrir neðan opið er ljósnæmur skynjari.
Það þótti mér gagnlegt að hægt er að stækka myndir 150X á skjánum á bakinu ef maður vill ganga úr skugga um að mynd sé örugglega í lagi. Það kostar aftur á móti smábið, því það tekur vélina tíma að lesa myndina sem á að skoða af kortinu í minnið - skiljanlegt þar sem hver mynd er rúm 2 MB. Það hvað myndirnar eru stórar skýrir einnig hve vélin er lengi að geyma þær myndir sem teknar eru en það kemur ekki svo að sök því biðminni í henni er stórt, rúmar sex myndir af mestu gæðum, og því hægt að halda áfram að taka myndir á meðan hún er að vista.
Minniskort í vélinni er SD-kort og fylgir 32 MB kort. Hægt er að taka upp á henni hreyfimynd, upp undir 60 sekúndna langt, og svo eitt sem er snjallt; það er hægt að bæta munnlegum athugasemdum við ljósmyndir eftirá. 
Hægt er að stilla litamettun og einnig hægt að velja svart/hvítt, brúntón og svo venjulegan lit. Leifturljósið verða menn að velja sjálfir, þ.e. smella því upp þegar við á. 
Það verður sífellt algengara að stafrænar vélar taki ekki bara myndir og visti heldur vinni með þær í vélinni sjálfri. Ágætt dæmi um það er í HP 945-vélinni, það sem frameiðandinn kallar stafrænt leifturljós, en þá lýsir vélin sjálf þau svæði sem hún telur að séu undirlýst. Víst getur maður gert það sjálfur í myndvinnsluforriti þegar búið er að afrita myndirnar inn á tölvu, en í vélinni er notast við óþjappaða skrá sem ætti að skila betri árangri en þegar unnið er með JPG-þjappaðar myndir. 
Þegar vélin er tengd tölvu er hægt að láta hana birtast sem myndavél og setja upp viðeigandi hugbúnað fyrir það eða sem USB-aukadrif sem þarf engan aukahugbúnað. Þannig er hægt að afrita myndir af henni inn á nánast hvaða tölvu sem er án þess að setja upp flókinn hugbúnað. Hugbúnaðurinn, sem fylgir vélinni, og er mjög skemmtilegur, getur aftur á móti notfært sér upplýsingar frá vélinni, til dæmis um að senda myndir sem merktar hafa verið í henni á fyrirfram ákveðinn stað, afritað í skrásafn, prentað út samstundis, sent sem tölvupóst o.s.frv. 
Kostir: Öflug vél sem fer vel í hendi. Góð aðdráttarlinsa, gott innra minni.
Gallar: Vantar hugbúnað til að jafna hristing þegar 8x aðdráttur er notaður. Lengi að geyma og sækja myndir. Lítið minniskort fylgir með (32 MB).
Vélin kostar 79.900 kr.
Heimild: Morgunblaðið, 10.10.2003.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Skoðaðu stafrænar myndir eða hlustaðu á tónlist með Linksys Wireless Media Adapter
			<description><![CDATA[Linksys Wireless Media Adapter - WMA11B-EU gerir manni kleift að skoða stafrænar myndir í sjónvarpinu sínu eða í gegn um skjávarpa og/eða spila tónlist í gegn um sjónvarpið/skjávarpa/heimabíó. 
Uppsetningin á Media adapternum er mjög einföld. Með tækinu fylgir geisladiskur sem leiðir notandann í gegn um netuppsetningu. Hægt er að velja um Ad-hoc þ.e. að samskiptin séu á milli einnar vélar og WMA11B eða Infrastructure sem þýðir að tækið er hluti af stærra þráðlausu netkerfi. Þá er hægt að velja á milli Static IP og DHCP, stilla 64 eða 128 bita dulkóðun og að mynda dulkóða með því að slá inn lykilorði - líkt og á öðrum linksys búnaði.  Hafa ber þó í huga að WMA11B virkar einungis á Windows XP stýrikerfinu.
Þegar grunnuppsetningu er lokið þarf að setja inn lítið forrit sem segir til um hvaða möppur innihalda myndirnar og tónlistina á tölvunni sem keyrt er á. Þetta forrit krefst .NET Framework 1.1 til að virka. Forritið má keyra á fleiri en einni vél ef til þarf. Lendi menn í erfiðleikum er Acrobat PDF skjal á geisladisknum sem útskýrir nánar uppsetningu og notkun á tækinu.
Tækið tengist við sjónvarpið með RCA hljóðtengi og RCA eða S-Video myndtengi (snúrurnar fylgja með). Það er ekkert mál að tengja þetta í skart millistykki eða beint í sjónvarp/myndbandstæki/skjávarpa. 
Það er einfalt að nota WMA11B. Með tækinu fylgir fjarstýring sem stýrir öllum aðgerðum. Þegar kveikt er á því kemur upp stillimynd á sónvarpinu/skjávarpanum þar sem sambandið við tölvuna er greint. Komi upp tenginarvandamál er hægt að fara yfir stillingar án þess að nota tölvuna, það er hægt að stilla tækið til með notkun fjarstýringarinnar. Náist samband kemur þægilegt viðmót upp með helstu aðgerðum og út frá því velur notandinn myndirnir sem hann vill skoða og/eða tónlistina sem hann vill spila.  Það er auðvelt að búa til spilunarlista, flokka tónlist eftir tegundum eða flytjendum, raða myndum í myndasýningar, stilla birtingartíma mynda (3,5,10,15 sek.) ofl. 
Gæði ljósmynda halda sér nokkuð vel. Á sjónvarpi má alltaf búast við því að gæði stafrænna mynda tapast líttilega, sérstaklega ef RCA tengið er notað í stað S-Video. Þetta sést best þegar það er zoomað inn í myndirnar. Ef skjávarpi er notaður er minna um gæðatap.
Þetta tæki er mjög sniðugt fyrir áhugamenn um stafræna ljósmyndun, þá sem vilja spila MP3 í heimabíóinu sínu án þess að þurfa að vera með tölvuna við hliðina á sjónvarpinu eða langar snúrur á gólfum og fyrirtækjum sem vilja keyra myndasýningar en geta illa tengt tölvurnar beint við sjónvarp/skjávarpa.
WMA11B les JPG (ekki JPEG), TIFF, BMP og GIF myndir og styður MP3 og WMA hljóðskrár. Ekki er hægt að spila bíomyndir með tækinu. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Microsoft og HP gera þér frábært tilboð
			<description><![CDATA[Fáðu leyfin á hreint og þú færð fartölvu í staðinn. Nú gefst þér færi á að fá yfirsýn yfir hugbúnaðarleyfi þín, gríðarmikla þjónustu frá Microsoft og fartölvu frá HP að auki. Nýttu tækifærið og fáðu fartölvu fyrir 20. nóvember 2003.
Það skiptir máli hvernig þú færð hugbúnaðarleyfin þín. Þú sparar ekki aðeins með því að gera hugbúnaðarsamning sem hentar þér og þínu fyrirtæki sem best:
Vissir þú til dæmis:
*að með því að vera áskrifandi að hugbúnaði frá Microsoft getur þú auðveldað þér fjárfestingar í upplýsingatækni?
*að þú getur fengið hugbúnað á heimatölvur starfsmanna ásamt bæði kennslu og notendaþjónustu - án auka leyfiskostnaðar ef þú ert með leyfissamning? 
*að það nægir að upplýsa fjölda tölva fyrirtækisins aðeins einu sinni á ári en jafnframt haft allt á hreinu með leyfin? 
Fáðu leyfin á hreint og við gerum þér einstakt tilboð sem stendur aðeins til 20. nóvember 2003 - fyrir hver 10 leyfi á OSL eða MYO samning færðu fartölvu frá HP eða HP Compaq Business Notebook (við verðum því miður að takmarka fjölda fartölva við 10 tölvur á hvern viðskiptavin). 
Open License
- Afsláttarsamningur fyrir minni fyrirtæki sem óska eftir að kaupa lágmark 5 hugbúnaðarleyfi í einu.
Multi Year Open (MYO), eigandi að þínum eigin framtíðar hugbúnaði frá Microsoft
-Þriggja ára samningur sem krefst aðeins þess að þú hafir lágmark 5 vinnustöðvar og að þú óskir eftir að hafa allt eða hluta fyrirtækisins á sama samningi.
-Þetta samningsform auðveldar umsjón og gerð fjárhagsáætlunar fyrir upplýsingatæknideild fyrirtækisins, með jöfnum greiðslum.
- Þú færð nýjustu útfærslur á eftirfarandi vörum: Windows Professional update, Office Pro viðskiptamanna aðgang á Windows-, Exchange-, SMS- og Sharepoint Portal Server.
- Þú færð sjálfkrafa sent, án endurgjalds, uppfærslur fyrir Windows Pro og Office Pro og einnig ókeypis tækniaðstoð, allt eftir stærð samningsins.
Open Subscription License / hugbúnaðarleiga
- Þriggja ára leigusamningur, áskrift sem gefur aðgang að öllum nýjustu útgáfum, fast verð á tölvu. Þessi samningur krefst aðeins þess að þú hafir minnst 5 vinnustöðvar og að þú hafir allar vinnustöðvarnar á sama samningi.
-Þetta samningsform auðveldar umsjón og gerð fjárhagsáætlunar fyrir upplýsingatæknideild fyrirtækisins, með árlegum greiðslum.
- Þú færð hér sömu nýjustu útfærslur á hugbúnaði og í MYO.
- Þú færð einnig sjálfkrafa sent án endurgjalds uppfærslur út frá sömu reglum og gilda fyrir MYO.
Þú getur lesið meira um Microsoft samninga á: www.microsoft.dk/license
Ath. þetta frábæra tilboðið gildir aðeins til 20. nóvember 2003
Stór aukin afköst með HP Compaq fartölvu 
Með HP Compaq nx9005 fartölvunni færðu:
· meiri hreyfanleika og afköst sem eykur framleiðni en tölvan er þróuð fyrir þá sem eru mikið á ferðinni og þurfa fartölvu með góðri rafhlöðuendingu. 
· fartölvu sem er hönnuð til þess að vera nettengd hvar og hvenær sem er, innbyggð tækni gerir þér kleift að vera tengdur jafnt á skrifstofunni sem annars staðar.
· þægilega og handhæga fartölvu sem er einföld í notkun, með þrjá flýtihnappa sem einfaldar aðgang að skjölum. 
· fartölvu með sérstakri snertimús sem er auk þess með skrunhnöppum (upp og niður).
Tæknilýsing 
HP Compaq nx9005 
AMD Athlon 2400+ 1.8 G Hz örgjörvi ? 40GB harður diskur ? 256MB minni ? ATI MobRadeon skjákort ? Sambyggt DVD drif og CD-RW geislaskrifari ? TFT 15? XGA skjár ? Microsoft Windows XP Professional stýrikerfi ? ársábyrgð. 
Nánari upplýsingar veitir söludeild Opinna kerfa í síma 570-1000.HP nx9005 fartölva sem þú færð fyrir 10 Microsoft leyfi.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP mest seldu fartölvur í heimi
			<description><![CDATA[Frelsi og hreyfanleiki er krafa nútíma þjóðfélags. Þú vilt geta unnið hvar og hvenær sem þér hentar. HP fartölvur veita þér fullkomið frelsi. Með fartölvum getur þú stundað nám eða vinnu í því umhverfi sem hentar þér best. HP er stærsti framleiðandi fartölva í heiminum. Þar fara saman gæði, áreiðanleiki og gott verð. Opin kerfi er eini viðurkenndi innflutnings- og þjónustuaðili á tölvubúnaði frá HP á Íslandi. Opin kerfi bjóða upp á breiða línu fartölva frá HP sem eru fáanlegar hjá sölu-, umboðs- og þjónustuaðilum um land allt. 
HP og Compaq
Eftir kaup HP á Compaq á síðasta ári var ákveðið að Compaq yrði vörumerki sameinaðs fyrirtækis á tölvum, bæði borð- og fartölvum. Nú rúmu ári síðar er HP aðalvörumerki fyrirtækisins, en Compaq undirmerki. Að sögn Guðbrands Sigurðssonar vörustjóra í heildsölu Opinna kerfa hefur verði mikil eftirspurn eftir HP fartölvum þetta haustið. ?Við erum með mikið og breitt úrval. Við leggjum áherslu á að vera með góðan skjá og því eru flestar fartölvurnar okkar með 15? skjá. Auk þess eru allar okkar fartölvur með sambyggðu DVD geisladrifi og geislaskrifara og Microsoft Windows XP Pro stýrikerfi.? 
HP vörulínan
Guðbrandur segir vörulínu HP í fartölvum breiða og á verði fyrir alla, eða frá 129.900 krónum. ?Við bjóðum upp á þrjár fartölvur undir vörumerkinu HP, sem heita HP nx9005, nx9000 og nx7000. HP nx9005 er með Mobile AMD Athlon XP-M 2000+ örgjörva, 30 GB hörðum disk, og góðum tengimöguleikum, eins og USB, sjónvarpstengi og Firewire. HP nx9000 er með Mobile Intel Pentium 4 örgjörva, 40 GB hörðum diski og sömu tengimöguleikum. ?HP nx7000 er tvímælalaust vinsælasta hjá okkur, hún kemur með Centrino tækninni, er með 15,4? breiðskjá (Wide-Screen) og Mobile Intel Pentium M 1.5 örgjörvanum, 512 MB minni, 40 GB hörðum disk, góðum tengimöguleikum eins og Firewire. HP nx7000 kemur einnig með innbyggðu þráðlausu netkorti fyrir (802.11b) sem og Bluetooth þráðlausu tækninni.? Að sögn Guðbrands seldist fyrsta sendingin sem kom af þessari nýju fartölvu upp á einum degi en nú geta viðskiptavinir nálgast fartölvuna hjá söluaðilum Opinna kerfa.
Compaq vörulínan
Boðið er uppá þrjár tegundir af Compaq fartölvum þetta haustið, Compaq N1015v, N800v og N620c. Compaq N1015v er með Mobile AMD Athlon XP-M 2000+ örgjörvanum, 40 GB hörðum disk, USB og sjónvarpstengi. Compaq Evo N800v er með Mobile Intel Pentium 4 örgjörva. 40 GB hörðum disk og sömu tengimöguleikum og N1015v. Compaq N620v er hönnuð fyrir fólk sem vill mjög létta,  áræðanlega og afkastamikla fartölvu. Compa	q N620c er með nýja Mobile Intel Pentium M 1,5 Ghz örgjörvanum, 512 MB vinnsluminni, 60 GB hörðum disk og 14? TFT skjá með 1400x1050 punkta upplausn. Þessi fartölva er með 6 klst. rafhlöðuendingu sem gerir hana einstaklega þægilegan ferðafélaga. Tengikví með disklingadrifi og geisladrifi fylgir tölvunni, en hægt er að hlaða tölvuna án tengikvíar. Þessi frágangur á fartölvunni gerir það að verkum að fartölvan er umtalsvet þynnri og meðfærilegri en aðrar fartölvur á markaðinum.
Centrino tæknin
Með Centrino tækninni stígur Intel nýtt skref til framfara í þróun á tækni fyrir fartölvur. Þessi tækni gerir notendum kleift að tengjast þráðlausu neti með þynnri og léttari fartölvum, sem eru með lengri rafhlöðuendingu. Centrino tæknin skilar byltingarkenndum afköstum með minni aflnotkun.
Intel Centrino er ekki nýr örgjörvi heldur tækni sem samanstendur af þremur eftirfarandi hlutum frá Intel:
-	Intel Pentium M örgjörvanum
-	Intel 855 kubbbasettinu
-	Intel Pro 2100 þráðlaust netkort
?Þó að fartölva sé með Centrino tækni er það ekki sjálfgefið að menn séu að fá betri afköst eða lengri rafhlöðuendingu,? segir Guðbrandur.  ?Það eru margir söluaðilar að bjóða villandi upplýsingar um þessa tækni og rafhlöðuendingu.  Til dæmis er HP Compaq Evo N800v með Pentium 4M örgjörva og fjögurra tíma rafhlöðuendingu en aðrar tölvur samkeppnisaðila á sambærilegu verði með mun afkastaminni örgjörva og minni rafhlöðuendingu.?  
Samkvæmt Intel þá eru eftirfarandi örgjörvar sambærilegir í afköstum:
Mobile Intel Pentium M (Centrino tækni)	     Mobile Intel Pentium 4M		
1.3 GHz örgjörvi		=		1.8 GHz örgjörvi
1.4 GHz örgjörvi		=		2.0 GHz örgjörvi
1.5 GHz örgjörvi		=		2.2 GHz örgjörvi
1.6 GHz örgjörvi		=		2.4 GHz örgjörvi
1.8 GHz örgjörvi		=		2.6 GHz örgjörvi
Guðbrandur segir því skipta miklu máli að skoða öll tilboð vandlega og gera raunhæfan samanburð.
www.fartolvur.is
Opin kerfi bjóða uppá þá nýbreytni að gera HP viðskiptavinum kleift að panta fartölvur og fylgihluti á vefsíðunni www.fartolvur.is. Þar eru að sögn Guðbrands upplýsingar um allar HP fartölvur, fylgihluti og ýmsan annan HP búnað. ?Ekki er um að ræða vefverslun þar sem ekki er tekið á móti greiðslu. Viðskiptavinir geta valið hjá hvaða söluaðila þeir vilja nálgast fartölvuna sem mun hafa samband við hann, sem getur þá annað hvort sótt tölvuna hjá viðkomandi eða fengið hana senda í póstkröfu.? Guðbrandur segir að fartolvur.is hafa fengið mjög góðar viðtökur og bæði viðskiptavinir og söluaðilar séu ánægðir með þessa lausn. 
Hvar verður þú 2006?
Það er staðreynd að bilanatíðni fartölva er mun meiri en borðtölva þar sem þær verða fyrir mun meiri hnjaski. Samkvæmt könnunum CNet er bilanatíðni á öllum fartölvum  að meðaltali 25% á fyrsta ári. Þetta meðaltal er lægra hjá virtari framleiðendum.  Yfirtæknimaður CNet mælir með að fjárfest sé í viðbótaábyrgð frá framleiðanda til að tryggja hámarksþjónustu- og uppitíma. ?Við hjá Opnum kerfum mælum með að fjárfest sé í viðbótarábyrgð frá HP, Carepack,? segir Guðbrandur. ?Carepack ábyrgðin framlengir staðlaða ábyrgð í þrjú ár, bæði á vinnu og varahlutum.  Einnig nær þessi ábyrgð til allra landa í Evrópu þar sem HP er með þjónustuaðila.?
Útskiptitilboð HP
Þegar keypt er ný HP fartölva þá gefur útskiptitilboð HP þér möguleika á að fá til baka greiðslu fyrir gömlu fartölvuna þína á einfaldan hátt án þess að hún sé af þekktu PC vörumerki. Eina krafan er að fartölvan sem skilað er inn sé í starfhæfu ástandi. Nánari upplýsingar er að finna á www.fartolvur.is]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Mikil spenna við áhorf á næstsíðustu keppni í F1 þetta árið!
			<description><![CDATA[Opin kerfi buðu viðskiptavinum í Formúluveislu, í gær sunnudaginn 28. september til að horfa á næstsíðustu keppni þessa tímabils í Indianapolis í Bandaríkjunum. Fyrir keppnina var spennan gífurleg og örfá stig sem skildu þrjú efstu liðin og þrjá efstu ökumenn  að í keppninni um heimsmeistaratitilinn.
Viðskiptavinir Opinna kerfa fengu einnig að spreyta sig á brautinni í Indianapolis í leiknum F1 Challenge 1999-2002 og var mikil spenna. Veitt voru verðlaun fyrir hraðasta hring og fyrir besta meðalhraða í keppninni , en hver keppandi keyrði eftir tímatöku alls 3 hringi.
Svavar Kvaran frá Skýrr keyrði hraðasta hring á 01:21:11, og Ísleifur Gíslason, frá Samhæfni keyrði á mesta meðalhraða eða 171 km/klst. Þess má geta að Montoya keyrði í tímatökum á laugardaginn hraðasta tíma í brautinni sem var 350,3 km/klst. Svavar fékk hp photosmart 7150 ljósmyndaprentara og Ísleifur fékk hp psc 2110 fjölnotaprentara, sem auk þess að prenta, skannar og fjölfaldar.
Við viljum nota tækifærið og þakka þeim sem mættu á svæðið og hvöttu BMW Williams liðið til dáða fyrir góða skemmtun.Frá vinstri: Svavar Kvaran frá Skýrr,  Ísleifur Gíslason, frá Samhæfni og Halldóra Matthíasdóttir frá Opnum kerfum ehf.Frá vinstri: Svavar Kvaran frá Skýrr,  Ísleifur Gíslason, frá Samhæfni og Halldóra Matthíasdóttir frá Opnum kerfum ehf.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
F1: Þríeykið klárt í titilslaginn
			<description><![CDATA[Michael Schumacher, Kimi Raikkönen og Juan Pablo Montoya voru glaðbeittir á blaðamannafundi á Indianapolis í dag. Allir eiga möguleika á titli en enginn rígur virtist á milli þeirra á fundinum. Þeir munu útkljá sín mál á kappakstursbrautinni.
Heimsmeistarinn Schumacher sagði; "Við erum með rétta pakkann fyrir þennan kappakstur og höfum lagt mikla vinnu að baki síðustu vikurnar. Við erum vel undirbúnir en það er betra að tala minna og sýna meira á sunnudaginn", segði Schumacher en allir virtust þeir í góðu skapi, kapparnir í titilslagnum. "Liðin hafa færst nær hvort öðru að styrkleika sem hefur gert meistaramótið spennandi."
Montoya er aðeins 3 stigum á eftir Schumacher. "Ég mun gera það sem ég get og verð að minnka muninn í Schuma. En ég þarf að hugsa um titil bílasmiða, ekki bara sjálfan mig og titil ökumanna. Þá verð ég að gæta þess að Raikkönen komist ekki framúr!", sagði Montoya,´"Ég þarf ekki að vinna en halda stöðunni hæfilegri á milli okkar þriggja. Sá sem vinnur titil ökumanna gæti jafnframt tryggt liði sínu meistaratitil bílasmiða."
Raikkönen finnst ekki sérstakt álag á sér þrátt fyrir spennandi stöðu í mótinu. "Ég verð bara að gera mitt besta og vera fljótari en hinir. Ég undirbý mig alltaf eins og það er til sigurs. Ég hef reynt Michelin dekkin mikið og bíllinn verður betri núna en nokkru sinni fyrr", sagði Raikkönen
Heimild: Rúv/F1.Kampakátir í Bandaríkjunum]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Verðlaunahafar í Sinbad litaleik
			<description><![CDATA[Opin kerfi í samstarfi við Sambíóin stóðu fyrir litasamkeppni í tengslum við barna-og fjölskyldumyndina, Sinbað sæfari og þjóðsagan um höfin sjö sem kemur frá framleiðendum Shrek. Litasamkeppnin var í tveim flokkum. Annars vegar gat yngri kynslóðin litað myndir af aðalsögupersónunum í sérstakri tölvulitabók á heimasíðu Opinna kerfa og prentað út. Eldri kynslóðin gat tekið þátt í frjálsri aðferð, sem fól í sér að taka afrit af myndum úr Sinbað sæfara og þjóðsögunni um höfin sjö og líma saman á eitt blað. 
Um 250 myndir bárust í samkeppnina sem stóð til 1. september s.l. Best litaða myndin í tölvulitabókinni litaði Lilja Kristín Svavarsdóttir, Lundabrekku 4 í Kópavogi og fékk hún HP psc 1210 fjölnotaprentara. Frumlegustu myndina teiknaði Hanna Björk Hilmarsdóttir, Baldursgarði 11 í Reykjanesbæ en hún bjó til teiknimyndasögu um ævintýri Sinbad sæfara. Hanna Björk fékk HP psc 2110 fjölnotaprentara í verðlaun. HP fjölnotaprentarar eru auk þess að vera prentarar, skannar og með ljósritunarmöguleika.
Upplýsingar um vinningshafa er að finna á heimasíðu Opinna kerfa hf., www.ok.is, en aðrir vinningshafar fengu Sinbad veglega litakassa, mjúka hunda úr myndinni, Sinbad boli með myndum af Sinbad sæfara og Marinu sæfara og bíómiða á myndina. Verðlaunahafar á landsbyggðinni hafa þegar fengið vinningana senda til sín, en vinningshafar á höfuðborgarsvæðinu eru beðnir um að nálgast vinningana hjá Opnum kerfum að Höfðabakka 9 í Reykjavík. Á myndinni eru frá vinstri Lilja Kristín Svavarsdóttir, Halldóra Matthíasdóttir, markaðsstjóri Opinna kerfa og Hanna Björk Hilmarsdóttir.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Fimmtíuþúsund manns í LEGOhátíð í Smáralind
			<description><![CDATA[Opin kerfi í samstarfi við HP, tóku þátt í LEGOhátíð sem Reykjalundur, umboðsaðili LEGO á Íslandi stóð fyrir í Vetrargarðinum í Smáralind, dagana 28. ágúst til 7. september s.l. HP bauð gestum LEGOhátíðarinnar að taka þátt í LEGO samkeppni, þar sem þátttakendur kubbuðu listaverk eftir eigin höfði sem síðan var fest á pappír með stafrænni myndavél frá HP og prentuð út á fjölnotaprentara frá HP. Þessar myndir voru síðan hengdar upp á vegg í Smáralindinni og 10 bestu LEGO-listaverkin voru síðan valin. 
Um 50.000 manns heimsóttu LEGOhátíðina þessa tíu daga sem þeir stóðu yfir og um 600 tóku þátt í LEGOsamkeppninni. Hlín Hilmarsdóttir, fékk fyrstu verðlaun sem var HP psc2110 fjölnotaprentari og Aron Ágúst Jóhönnuson, stóran BMW-Williams LEGO-formúlu1-bíl. Önnur til tíundu verðlaun fengu, Vilhjálmur Ragnarsson, Sandra og Sunna Júlíusdætur, Alma og Helga Ólafsdætur, Árni Snær Jónsson, Daníel Bent Alexanderson, Arnar Freyr Heimisson, Anton Örn Kristjánsson, Viktor Helgi, Ingólfur og Hákon. Ekki náðist í þá Viktor Helga, Ingólf og Hákon fyrir verðlaunaafhendinguna.Á myndinni eru frá vinstri; Arnar Freyr Heimisson, Anton Örn Kristjánsson, Aron Ágúst Jóhönnuson, Hlín Hilmarsdóttir, Daníel Bent Alexandersson, aftari röð; Halldóra Matthíasdóttir Opnum kerfum, Vilhjálmur Ragnarsson, Sandra Júlíusdóttir, Sunna Júlíusdóttir, Alma Ólafsdóttir, Helga Ólafsdóttir
Árni Snær Jónsson og Elfa Hannesdóttir Opnum kerfum.
Ljósmynd; Jón Svavarsson MOTIV.Á myndinni eru frá vinstri; Arnar Freyr Heimisson, Anton Örn Kristjánsson, Aron Ágúst Jóhönnuson, Hlín Hilmarsdóttir, Daníel Bent Alexandersson, aftari röð; Halldóra Matthíasdóttir Opnum kerfum, Vilhjálmur Ragnarsson, Sandra Júlíusdóttir, Sunna Júlíusdóttir, Alma Ólafsdóttir, Helga Ólafsdóttir
Ljósmynd; Jón Svavarsson MOTIV.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Stofnfundur Félags áhugamanna um .net á Íslandi
			<description><![CDATA[Haldinn var stofnfundur Félags áhugamanna um .net  (.NET User Group Iceland) í húsakynnum Opinna kerfa, að Höfðabakka 9, 11. september s.l. Á fundinn mættu um 90 manns frá yfir 30 fyrirtækjum sem öll eiga það sameiginlegt að nýta sér .net tæknina frá Microsoft. Félagið er byggt að fyrirmynd erlendra notendahópa og er félagi í alþjóðlegum samtökum .net hópa (INETA - International .NET Association). 
Að sögn Gísla Rafns Ólafssonar er markmið félagsins að skapa vettvang til samskipta milli þeirra sem eru að vinna með .net tæknina, miðla upplýsingum um og auka útbreiðslu .net á Íslandi. Í því skyni mun félagið standa fyrir fundum mánaðarlega, annan fimmtudag í mánuði.
Stjórn félagsins var kjörin á fundinum og hana skipa Gunnar Leó Gunnarsson, Sæmundur Valdimarsson, Gísli Rafn Ólafsson og Markús Guðmundsson. Að loknum kosningum hélt Gísli Rafn Ólafsson fyrirlestur um hvers er að vænta í næstu útgáfum af Visual Studio.net, SQL Server og Windows hugbúnaðinum.
Þeir sem hafa áhuga á að gerast félagar geta sent póst á netugi@gridland.net og fá þeir þá sendar upplýsingar um dagskrá og staðsetningu næsta fundar.Frá stofnfundi Félgas áhugamanna um .net á Íslandi]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Færri fermetrar en meiri lofthæð
			<description><![CDATA[Eins og þeir viðskiptavinir Opinna kerfa sem hafa sótt vörur á lager Opinna kerfa hafa tekið eftir, hefur lageraðstaða fyrirtækisins flutt sig um set. Aðstaðan sem var áður í kjallaranum að Höfðabakka 9 er nú komið í hluta af því húsnæði sem hýsti áður starfsemi Marels, eða í portinu beint fyrir framan bogabygginguna að Höfðabakka 9. Að sögn Þórhalls Sveinssonar lagerstjóra er aðstaðan allt önnur. ,,Við fórum úr 800 fermetrum í 744 fermetra, en lofthæðin er nú sjö metrar í stað þriggja metra áður, sem hefur í för með sér mun betri nýtingu en áður.? 
Mikil hagræðing
Nú er allar birgðir á einum stað í stað tveggja áður, sem hefur í för með sér mikla hagræðingu. ,,Mun betri aðstaða er fyrir viðskiptavini,? segir Þórhallur. ,,Boðið er upp á kaffi og létt meðlæti eins og áður en nú geta viðskiptavinir einnig farið á netið og til dæmis pantað vörur á vefversluninni OK beint.? Húsnæðið er bjart og skemmtilegt og hentar einstaklega vel undir okkar lagerhald. Að sögn Þórhalls er einnig uppsetnigaraðstaða fyrir PC tölvur á staðnum, á millilofti fyrir ofan afgreiðsluna, mjög björt rúmgóð og vel tækjum búin aðstaða.?
Vörur afhentar fyrr til viðskiptavina
Eftir að nýja lagerhúsnæðið var tekið í notkun einfaldaðist einnig vöruferlið hjá Icelandair Cargo. ,,Nú koma allar vörur beint frá Keflavíkurflugvelli til okkar, en áður fór varan fyrst í húsnæði Icelandair að Héðinsgötu áður en við gátum skoðað hana. Þetta einfaldar ferlið þannig að vörurnar koma fyrr inn á gólf til okkar og þá einnig til viðskiptavina okkar,? sagði Þórhallur að lokum..Starfsmenn á lager Opinna kerfa. Frá vinstri: Árni Magnússon, Bjarni Gunnarsson, Hrafnkell magnússon, Aðalsteinn Scheving og Þórhallur SveinssonStarfsmenn á lager Opinna kerfa. Frá vinstri: Árni Magnússon, Bjarni Gunnarsson, Hrafnkell magnússon, Aðalsteinn Scheving og Þórhallur Sveinsson]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Itanium2 netþjónar til Tryggingastofnunar ríkisins
			<description><![CDATA[Tryggingastofnun ríkisins hefur gert samning við Opin kerfi um kaup á tveimur Itanium2 netþjónum. Um er að ræða annars vegar HP rx5670 með tveimur 900 MHZ Itanium2 örgjörvum sem munu tengjast HP VA7100 diskaboxi. Að sögn Geirs Ómarssonar, í tölvu- og upplýsingatæknideild, verður þetta aðal gagnagrunnsþjónn stofnunarinnar og mun keyra HP-UX og Oracle 9i gagnagrunn.
Hinn netþjónninn, HP rx2600 er með einum 900 MHz örgjörva og verður tengdur HP FX1010 diskaboxi og notaður í þróunarvinnu.Arngrímur Sigmarsson, kerfisstjóri hjá Tryggingastofnun ríkisins við nýja búnaðinn.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Endurnýja tölvubúnað
			<description><![CDATA[Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki endurnýjaði á dögunum borðtölvur stofnunarinnar. Að sögn Helgu Rósu Guðjónsdóttur voru endurnýjaðar tölvur bæði fyrir starfsemi heilsugæslunnar sem og sjúkradeildir. ?Til stendur að taka í notkun nýja útgáfu af Sögu, sem er forrit fyrir heilsugæslustöðvar og krefst sú útgáfa öflugri véla en við vorum með.?, segir Helga. ?Uppsetningin gekk vel og við erum mjög ánægð með nýju vélarnar og flötu skjáina, sem eru nettir og taka lítið pláss.?
Heilbrigðisstofnunin Sauðárkróki skiptist í sjúkrasvið og heilsugæslusvið. Sjúkrahús Skagfirðinga hóf starfsemi sína í ársbyrjun 1907 í nýbyggðu húsi við Aðalgötu 1 sem nú er Safnaðarheimili Sauðárkróks. Sjúkrahúsið var starfrækt í þeim húsakynnum fram til ársins 1961 eða þar til flutt var í núverandi húsnæði á Sauðárhæðum. Heilsugæslustöð var síðan byggð í tengslum við Sjúkrahúsið og tekin í notkun árið 1985. Í því húsnæði eru einnig ýmsar stoðdeildir s.s. skurðstofa, slysastofa, rannsóknastofa, röntgen, endurhæfing og þvottahús. Hjúkrunar- og dvalarheimili var einnig byggt í tengslum við Sjúkrahúsið og var fyrsti áfangi þess tekinn í notkun á árinu 1986. Nýjasta viðbyggingin við stofnunina er Endurhæfingarhús sem tekið var í notkun í ársbyrjun 2000. 
Heilsugæslan þjónar öllum íbúum Skagafjarðar nema Fljóta, auk þess ferðamönnum og nemum framhaldsskóla í héraðinu. Starfið skiptist í höfuðatriðum í móttöku og vaktþjónustu heilsugæslulækna, heimahjúkrun og hjúkrunarþjónustu, ungbarna- og mæðravernd og skólaheilsugæslu. Einnig heyra undir hana sjúkraflutningar, sérfræðileg læknisþjónusta og ýmis önnur heilsuvernd. Á Hofsósi er læknisþjónusta, ungbarnavernd, skólaheilsugæsla, heimahjúkrun og hjúkrunarþjónusta ásamt lyfjaafgreiðslu.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin Kerfi Group birtir sex mánaða uppgjör 2003
			<description><![CDATA[Fréttatilkynning 12. ágúst 2003. 
Stjórn og forstjóri Opin Kerfi Group hf. hafa gengið frá árshlutareikningi félagsins fyrir 1. janúar ? 30. júní 2003 og hefur hann verið kannaður af löggiltum endurskoðendum þess. Reikningurinn er gerður eftir sömu reikningsskilaaðferðum og á undanförnum árum að öðru leiti en því að hætt er að verðleiðrétta reikningsskilin. Ef beitt hefði verið sömu reikningsskilum og á fyrra ári hefði tap tímabilsins orðið 1,2 milljónum minna og eigið fé félagsins 11,1 milljón hærra.
			<author>ok@ok.is</author>
Opin Kerfi Group hf. selja Tölvudreifingu hf.
			<description><![CDATA[Opin Kerfi Group hf. ( OKG ) hafa selt allan hlut sinn í dótturfyrirtækinu Tölvudreifingu hf. til tveggja framkvæmdastjóra þess.
Um er að ræða 67% eignarhlut og miðast viðskiptin við 30. júní s.l. en söluhagnaður OKG er óverulegur.  Með sölunni á Tölvudreifingu fara u.þ.b. 600 mkr. úr veltu OKG á seinni árshelmingi en áhrif á afkomu eru lítilsháttar.
Starfsemi Tölvudreifingar flokkast ekki undir kjarnastarfsemi OKG og var því eignarhlutur félagsins seldur.
Viðskiptin voru að frumkvæði framkvæmdastjóra Tölvudreifingar fyrir milligöngu Kaupþings Búnaðarbanka.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP prentarar fá hæstu einkunn 12 árið í röð
			<description><![CDATA[Tölvunotendur láta í ljós álit sitt á prenturum í júli hefti PC Magazine tímaritsins. Þessi könnun hefur verið gerð árlega  síðustu sextán árin og byggir hún á svörum rúmlega 18.000 lesenda tímaritsins. Þetta árið er gerður greinarmunur á því hvort um heimilisprentara eða vinnuprentara er að ræða. Það auðveldar úrlestur úr þessari árlegu könnun tímaritsins. 
Enn og aftur, tólfta árið í röð fá HP prentarar  A+ í einkunn og er eina vörumerkið sem fær A+. Næst á eftir kemur Samsung með einkunnina  A og þar á eftir  Epson með B.  Þar á eftir kemur Canon sem færir sig upp úr D- einkunn á síðasta ári í B-,  á þessu ári.  Lexmark fellur úr D+ í D-.
Nánari upplýsingar um greinina er að finna á slóðanum hér að neðan.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Vörustjóri á grafískum vinnustöðum frá HP (Workstation) kynnir nýja vörulínu á Íslandi
			<description><![CDATA[Lasse Sörensen vörustjóri á grafískum vinnustöðvum frá HP (Workstation), kynnti nýja vörulínu fyrir viðskiptavinum Opinna kerfa 7.júlí s.l. Góð mæting var á kynninguna þó margir séu í sumarfríum á þesum tíma.
Eftir sameiningu HP og Compaq á síðsta ári hefur þrotlaus vinna verið lögð í þróun nýrrar vörulínu grafískra vinnustöðva. Útkoman er xw línan þar sem það besta frá báðum framleiðendum sameinast í þremur nýjum grafískum vinnustöðvum, xw4100, xw6000 og xw8000. 
Í xw línunni er ný tækni sem hentar sérstaklega vel fyrir vinnustöðvar. Tvíhliða minnisnotkun (dual channel) með allt að 4.2 Gb/sek. Reiknihraða, ásamt hröðustu eins og tveggja örgjörva vinnslu sem fáanleg er, tryggir áður óþekkt afköst.
Möguleiki er á allt að 6 GB minni af hinu afkastamikla og hagkvæma DDR-minni. Átta hraða AGP raufin gerir þér kleift að velja bestu fáanlegu grafísku skjákortin á markaðinum í dag.
Niðurstaðan er kröftug og afkastamikil vinnustöð sem hlotið hefur verðskuldaða athygli, enda hefur HP jafnan staðið frems á meðal jafningja í framleiðslu á grafískum vinnustöðum.
Frekari upplýsingar um grafískar vinnustöðvar veitir Ófeigur í söludeild Opinna kerfa í síma 570 1000.Lasse Sörensen vörustjóri á grafískum vinnustöðvum frá HP (Workstation), við nýju xw6000 grafísku vinnustöðina sem er til sýnis hjá Opnum kerfum hf.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Tvöfaldur sigur BMW Williams liðsins
			<description><![CDATA[Ralf Schumacher vann sannfærandi sigur í kappakstrinum á Nurburgring í gær, en félagi hans Juan Pablo Montoyra varð í öðru sæti í spennandi keppni, en þeir félagar aka báðir fyrir BMW Williams liðið.
Michael Schumacher jók forskotið í stigakeppni ökumanna, þrátt fyrir óhapp í kappakstrinum á Nurburgring. Þetta var góð afmælisgjöf fyrir Ralf, sem á afmæli í dag og gleðilegt fyrir Williams og BMW, sem sömdu í vikunni um framhalda á samstarfi til ársins 2009.
Ralf græddi á því í rásmarkinu að vera á hreinni línu brautarinnar, fyrir aftan Kimi Raikkönen og komst frammúr Michael Schumacher. Rubens Barrichello komst frammúr Juan Pablo Montoya á sama. Oliver Panis byrjaði vel en missti bílinn útaf fljótlega og hætti síðar keppni fyrir samskonar akstursmistök.
Í 15. hring fóru bæði Michael Schumacher og Kimi Raikkönen á þjónustusvæðið, og Ralf náði forystu. um tíma. Eftir þjónustuhlé Ralf  komst Raikkönen aftur í fyrsta sætið. Það reyndist skammvinn gleði. Vélin sprakk í 25 hring og Raikkönen varð að draga sig í hlé. Finninn hafði keyrt listavel og var með gott forskot. 
Michael fór öðru sinni á þjónustusvæðið, í 35 hring og féll í 5. sæti. Montoya tók hlé, missti þó lítinn tíma og hann náði að koma út á undan Barrichello. Ralf fór á þjónustusvæðið öðru sinni, en náði að koma út í forystuhlutverkinu. Coulthard elti hann uppi, en þurfti skömmu síðar bensín og ný dekk. 
Montoya fór á þjónustusvæðið, en hann náði út á undan Barrichello. Skömmu síðar tók Ralf síðara hlé sitt.. Náði út á undan Coulthard, sem átti eitt hlé eftir. Það hlé mistókst og Coulthard tapaði dýrmætum tíma.
Montoya elti Michael eins og óður væri og reyndi frammúrakstur í utanverðri beygju,  í slag um silfrið. Og það heppnaðist, en Michael missti bíl sinn útaf. Var stálheppinn að komast inn á brautina aftur og náði að halda áfram eftir að brautarverðir ýttu honum inn á.. Montoya var kominn sæll  í annað sæti, en Schumacher féll í það sjötta.
Ralf og Montoya sigldu öruggir lokasprettinn í fyrsta og öðru sæti, en Coulthard misreiknaði sig í slagnum við Alonso. Alonso var í vandræðum með bremsukerfið og það truflaði Coulthard fyrir krappa beygju. Hann endasentist ú taf til að sleppa við aftanákeyrslu. Fór ei lengra.. Michael græddi sæti á þessu og dýrmæt stig í slagnum um meistaratitilinn. Hann hefur nú náð 7 stiga forskoti á Raikkönen. Síðan kemur þéttur hópur ökumanna, Ralf með 43 stig, Alonso 39, Montoya 39 og Barrichello 37.
Heimild: www.ruv.is/formula ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opin Kerfi Group kaupa hluti í Skýrr hf.
			<description><![CDATA[Opin Kerfi Group hf. hefur gert samninga um kaup á hlutum í Skýrr hf. samtals að nafnverði 59.586.819    krónur, sem svarar til 22,63% hlutfjár í félaginu. Opin Kerfi Group átti fyrir 50,45% hlut í Skýrr í gegnum eignarhaldsfélag sitt Opin Kerfi Eignarhaldsfélag ehf. en eftir viðskiptin mun eignarhlutur Opinna Kerfa Group og Opinna Kerfa Eignarhaldsfélags verða 73,07%. 
Viðskiptin fara fram á genginu 6,5 krónur á hlut, en seljendur bréfanna eru Lífeyrissjóðir Bankastræti 7, Íslandsbanki hf., VVÍB hf., sjóður 10 og VVÍB hf., sjóður 6. Greitt verður fyrir hlutina með hlutum í Opnum Kerfum Group. Skiptigengi viðskiptanna er 0,326983 hlutir í Opnum Kerfum Group á móti einum hlut í Skýrr.
			<author>ok@ok.is</author>
Sérfræðingur frá HP hélt Blade kynningar
			<description><![CDATA[Þann 19. júní héldu Opin kerfi í samvinnu við HP "Blade Workshop".    Tvö 
slík voru haldin og mætti öflugur hópur tæknimanna frá viðskiptavinum Opinna 
kerfi til að skoða þessa nýju netþjóna tækni og fá kennslu í hvernig Blade 
netþjónar er settir upp.  Einnig var farið yfir stýrihugbúnað og þá 
möguleika sem það býður uppá.  Að sjálfsögður voru Blade netþjónar á 
staðnum með öllu tilheyrandi.
Það var Kim Iversen frá HP sem hélt þessi "workshop" við mikla ánægju þeirra 
sem mættu.  Þekking Kim á sviði netþjóna er mjög yfirgripsmikil enda hefur 
hann starfað sem sérfráæðingur í ProLiant netþjónum síðastliðin átta ár.
Ef þú hefur spuringar varðandi Blade hafðu þá endilega samband við söludeild 
Opinna kerfa í s: 570-1000
			<author>ok@ok.is</author>
Forritunarkeppnin Calculus í Verslunarskóla Íslands
			<description><![CDATA[Verðlaun fyrir besta árangur í forritunarkeppninni Calculus 2003 sem fram fór í Verzlunarskóla Íslands voru afhent í byrjun júnímánaðar. Keppnin hefur farið fram árlega síðan árið 2001 og er þetta því í þriðja skiptið sem hún er haldin. Verkefnið var lokaverkefni í forritun 113 í 5. bekk og fólst það í því að hanna og forrita reiknivél. Kennarar voru Anton Karl Ingason og Gísli Björn Heimisson. 
Bestu lausninni skilaði hópurinn Arnar Tumi Þorsteinsson, Eyþór Rúnar Eiríksson, Óskar Páll Elfarsson og Vignir Ísberg. Athygli vakti hversu mikinn metnað nemendur lögðu í verkefnið og er greinilegt að hér er um að ræða efnilega forritara sem eiga framtíðina fyrir sér. Halldóra Matthísdóttir, markaðsstjóri Opinna kerfa ásamt sigurvegurum í forritunarkeppninni Calculus 2003 í Verslunarskóla Íslands, Arnar Tumi Þorsteinsson, Eyþór Rúnar Eiríksson, Óskar Páll Elfarsson og Vignir Ísberg.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Góð þátttaka á HP Open golfmótinu á Akranesi
			<description><![CDATA[HP Open golfmótið var haldið á Garðavelli á Akranesi þann 14.júní s.l. Þáttaka í mótinu fór fram úr björtustu vonum en þáttakendur voru um 90 talsins víðs vegar af landinu.  Veðrið var eins og best varð á kosið, blankalogn 17 stiga hiti og hálfskýjað. Glæsileg verðlaun voru í boði á mótinu m.a. stafrænar myndavélar, prentarar skannar ofl. Einnig fengu allir þátttakendur 16Mb minnislykil merktan HP í teiggjöf. 
Keppendur voru himinlifandi í lok móts og höfðu á orði að þetta mót hefði verið eitt það vel heppnaðasta sem þeri höfðu farið á þetta sumarið. Ekki skemmdu fyrir glæsileg verðlaun og frábær golfvöllur en Garðavöllur er talinn einn besti golfvöllur á Íslandi.Hluti þátttakenda í HP Open golfmótinu á AkranesiHluti þátttakenda í HP Open golfmótinu á Akranesi]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Kominn er á markaðinn nýr og öflugur skjávarpi á góðu verði
			<description><![CDATA[VP-6110 er tilvalinn skjávarpi fyrir heimili, fundarherbergi eða skólastofur.  VP-6110 er með öflugri 1500 lumens peru sem að gerir honum kleift að varpa mynd á vegg eða tjald í dagsbirtu.  Skjávarpinn inniheldur svokallaða DLP tækni sem að skilar svarta litnum mun betur frá sér og skilar þ.a.l. mun meiri skerpu en hefðbundnir ?LCD? skjávarpar.  
Nánari upplýsingar um VP-6110. 
Upplausn: 800x600 (-) 
Birtustig: 1500 Ansilum 
Skerpa: 1000:1 
Skjátækni: DLP 
Þyngd: 3kg, hljóð úr varpa 36db 
Fjarstýring 
Port: VGA, S-Video, Component og composite video, sound 
2ja ára ábyrgð]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Ný kynslóð borðtölva frá HP - HP Compaq
			<description><![CDATA[HP hefur sett á markað nýja kynslóð borðtölva undir vörumerki HP. Eftir sameiningu HP og Compaq í maí á síðastliðnu ári voru allar tölvur sameinaðs fyrirtækis seldar undir Compaq vörumerkinu.  Nú rúmlega ári síðar hefur verið tekin sú ákvörðun að allar tölvur verða seldar undir HP vörumerkinu og þar með eru allar  vörur fyrirtækisins seldar undir sama vörumerki.  HP er skammstöfun á Hewlett-Packard en fyrirtækið var nefnt eftir stofnendum þess, þeim Bill Hewlett og Dave Packard sem stofnuðu fyrirtækið í bílskúr í Palo Alto í Kaliforníu í Bandaríkjunum 1939 . 
Nýju tölvurnar eru til í miklu úrvali, allt frá litlum og nettum borðtölvum í stórar turntölvur. HP Compaq d330 og d530 tölvurnar eru með öflugri örgjörva og gagnabrautir en forverar þeirra Compaq Evo d310 og d510 og með hraðvirkara minni og stærri diska. Einnig eru USB- og hljóðtengi nú framan á tölvunum. Nýja HP Compaq línan er til afgreiðslu á lager Opinna kerfa strax. 
Nánari upplýsingar um þessa nýju kynslóð borðtölva gefur söludeild Opinna kerfa.hp compaq d530sff fyrirferðalítil borðtölvahp compaq d530sff fyrirferðalítil borðtölva]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Opna HP golfmótið á Garðavelli, Akranesi
			<description><![CDATA[Opna HP golfmótið verður haldið á Garðavelli, Akranesi, laugardaginn 14. júní n.k. Um er að ræða 18 holu punktakeppni. Hármaksvallarforgjöf er 24 fyrir karla og 28 fyrir konur. Mótsgjald er kr. 2.800. Ræst er út af fyrsta teig frá klukkan 08:00-12:00. Frábært HP 3820 bleksprautuprentari í nándarverðlaun á öllum par 3 holum og skemmtileg teiggjöf handa öllum þátttakendum. Skráning í síma 431-2711 og á www.golf.is/gl.
Nánari upplýsingar um verðlaun á pdf skjalinu hér til hliðar.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Nýtt útlit á heimasíðu Opinna kerfa
			<description><![CDATA[Heimasíða Opinna kerfa fékk andlitslyftingu og var nýja útlitið sett í loftið í dag föstudag, 6. júní. Einnig var farið yfir efnisinnihaldið á síðunni og reynt að auðvelda viðskiptavinum leit á heimasíðunni sem og aðgengi að efni. 
Þeir sem hafa einhverjar ábendingar eða athugasemdir eru vinsamlegast beðnir um að senda þær á netfangið ok@ok.is. ]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP er stærsti fartölvuframleiðandi heims
			<description><![CDATA[Á fyrsta ársfjórðungi fyrir 2003 er HP stærsti framleiðandi fartölva í heiminum.  HP var með nokkra yfirburði á keppinauta sína og sem dæmi má nefna að IBM er í fimmta sæti með meira en helmingi færri vélar seldar en HP.
Þessi staða HP í fartölvum staðfestir að gæði, áreiðanleiki og gott verð fara saman hjá HP.  Opin kerfi bjóða uppá breiða línu fartölva frá HP og er áhugasömum bent á að hafa samband við Opin kerfi í s: 570-1000]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Viðurkenning fyrir fjárfestatengsl annað árið í röð
			<description><![CDATA[Tímaritið Investor Relations Magazine veitir árlega skráðum félögum viðurkenningu fyrir góð samskipti og góða upplýsingagjöf til fjárfesta. Opin Kerfi Group unnu verðlaunin annað árið í röð í flokki smærri fyrirtækja.  Fulltrúi Kauphallar Íslands, Helga Björk Eiríksdóttir, kynningarstjóri afhenti Chris Jansen forstjóra Opin Kerfi Group verðlaunin í Bojesen Center, Axelborg í Kaupmannahöfn 22. maí síðastliðinn. Í flokki stórra og meðalstórra fyrirtækja var Össur hf. Hlutskarpast á Íslandi annað árið í röð 
Investor Relations Magazine veitir viðurkenningu fyrir það hvernig skráð félög á hlutabréfamarkaði standa að upplýsingagjöf og samskiptum við fjárfesta. Í flokki smærri fyrirtækja voru Nýherji, Marel og Opin Kerfi Group tilnefnd og í flokki stærri fyrirtækja sem eru í úrvalsvísitölunni voru Bakkavör og Íslandsbanki tilnefnd ásamt Össuri.
Að sögn Chris Jansen eru verðlaunin mjög mikill heiður fyrir fyrirtækið þar sem fjárfestatengsl er mikilvæggur þáttur í stefnu Opin Kerfi Group. Fyrirtækið leggur áherslu á virka upplýsingagjöf til Kauphallarinnar, hluthafa og annarra fjárfesta með því að halda kynningar á ársfjórðungsuppgjörum, auk þess sem fréttum er dreift til hluthafa reglulega með fréttabréfi og á heimasíðu félagsins. 
Samhliða verðlaunaafhendingunni er haldin ráðstefna um fjárfestatengsl og upplýsingagjöf til fjárfesta og er þetta í fimmta skipti sem þessi ráðstefna er haldin. Félag um fjárfestatengsl, sem stofnað var á Íslandi í apríl sl., og Kauphöllin sáu um að kynna ráðstefnuna á Íslandi. 
Tilnefningarnar voru byggðar á viðtölum við ýmsa aðila á íslenska markaðnum, svo sem sjóðsstjóra og greiningaraðila. Aðalverðlaun kvöldsins, Grand Prix for Best Overall IR by a Nordic Company, voru í boði NOREX samstarfsins. Nokia hreppti þau verðlaun núna eins og á síðasta ári.Chris Jansen forstjóri OKG tekur við verðlaununum frá Helgu Björk Eiríksdóttur, kynningarstjóra Kauphallar Íslands.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
HP Superdome endurheimtir heimsmet í afköstum
			<description><![CDATA[HP Superdome server með sextíu og fjórum Itanium örgjörvum endurheimti hraða heimsmet sem IBM Regatta náði af HP fyrir aðeins 2 vikum.
Prófunin sem hraðinn er mældur með er TPC-C prófun (e.  Transaction Processing Performance Council's test).  Prófið býr til gríðarlegt álag á vélina og hermir eftir innkaupapöntunum, breytingum á vöruhúsa upplýsingum o.s.frv.
Þetta met er enn ein rós í hnappagat Itanium tækninnar sem HP og Intel hafa þróað. 
Sjá alla fréttina hér:   http://news.com.com/2100-1010-1008943.html?tag=nl]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>
Forstjóri HP í Danmörku heimsækir Opin kerfi ehf.
			<description><![CDATA[Sölu- og þjónustudeildir Opinna kerfa bjóða viðskiptavinum sínum árlega í hátíðarkvöldverð. Niels Svenningsen forstjóri HP í Danmörku hélt hátíðarerindi við þetta tilefni í Gyllta salnum, Hótel Borg, 15. maí sl.
Niels kynnti markmið HP og framtíðarsýn og upplýsti viðskiptavini að nú væri sameining HP og Compaq um garð gengin og nefndi sem dæmi að HP í Danmörku hefði aukið markaðshlutdeild sína í Danmörku á síðustu mánuðum.Gyllta salnum, Hótel Borg, 15. maí sl.]]></description>
			<author>ok@ok.is</author>