
Opin kerfi, í samstarfi við IMIS, bjóða nú QlikView sem hluta af sínum lausnum á sviði stjórnendaupplýsinga (BI).
QlikView er skýrslu- og greiningartól, notað af rúmlega 21.000 fyrirtækjum um allan heim og er talið eitt það allra besta af Gartner og Aberdeen Group. QlikView veitir betri yfirsýn yfir reksturinn sem sýnir sig í því að viðskiptavinir QlikView telja almennt að fjárfesting í hugbúnaðinum skili sér til baka á 3-6 mánuðum.
QlikView er einkar notendavænn hugbúnaður en samkvæmt IDC eru um 96% þeirra sem nota kerfið mjög ánægðir, auk þess sem um 50% innleiðinga eru framkvæmdar á einum mánuði. Einn helsti kostur hugbúnaðarins er hraðinn, en notandinn getur velt gögnum á alla vegu og niðurstöðurnar skila sér strax á skjáinn.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um QlikView á www.imis.is og á www.qlikview.com.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

