Opin Kerfi, í samstarfi við Microsoft, kynna Microsoft Office 365

 
Office 365 er ný hugsun í notkun á hugbúnaðarlausnum Microsoft sem í daglegu tali nefnast „productivity suite“ eða framleiðni svítan. Þessar lausnir samanstanda af:
 
  • Office 2010 Pro Plus
  • Exchange Server 2010
  • Sharepoint Server 2010
  • Lync 2010
Office 365 er alfarið hýst í skýinu hjá Microsoft og eru notendur með aðgang að sínu umhverfi ýmist alfarið í gegnum vafra eða með notendahugbúnaði uppsettum á vélum notenda, eftir því hvaða áskriftarleið er valin.
 
Af hverju Office 365
 
Office 365 hentar öllum fyrirtækjum, óháð
stærð og starfsemi. Samstarfsmenn vinna saman jafnt á milli skrifborða og heimsálfa,
allir hafa réttan aðgang að gögnum og lausnum, óháð landfræðilegri staðsetningu. Helstu ávinningar Office 365 eru:
  • Öruggt aðgengi að gögnum, hvaðan sem er.
  • Ávallt nýjustu útgáfur
  • Rauntíma afritun gagna
  • 25 GB pósthólf fyrir hvern notanda
  • 99,9% uppitímaloforð frá Microsoft
 
Áskriftarleiðir
 
Fjöldi áskriftarleiða og frelsi til þess að blanda saman þeim áskriftarleiðum sjá til þess að lausnin aðlagast þörfum hverju sinni. Ráðgjafar Opinna kerfa veita frekari upplýsingar og ráðgjöf varðandi bestu lausnina hverju sinni.