HP Compaq MultiSeat

HP Compaq MultiSeat er nýjung sem hentar tölvuverum sérstaklega vel. Ein HP Compaq MS6000 vél ásamt litlum skjátengiboxum leysir af hólmi allt að 10 aðrar vélar með tilheyrandi sparnaði í innkaupum og þjónustu. Þetta er því kjörin lausn þar sem fjármagn er takmarkað en þörf á tölvuaðgengi fyrir sem flesta. Í sumum tilfellum er hægt að setja upp HP Compaq MultiSeat MS6000 fyrir allt að 10 notendur á verði fimm hefðbundinna tölvuuppsetninga.
Uppsetning tölvunnar er einföld og fljótleg. Einungis þarf einn USB kapal á milli tölvu og tengibox (útstöðvar). Við það tengist svo skjár, lyklaborð, mús, heyrnatól og hljóðnemi. Einfalt er að stofna nýja notendur og geta þeir verið tugir eða hundruð eftir þörfum og allir hafa sérstakt heimasvæði fyrir gögn. Eins er hægt að tengja vélina inn á núverandi netkerfi og þá þarf ekki að stofna notendur beint á tölvuna heldur er nýttur sá aðgangur sem þegar er búið að útbúa og hafa þá notendur aðgang að öllum þeim drifum og gögnum sem þeir höfðu fyrir.
Einstakt umhverfi fyrir kennara og nemendur
Kennari getur með einföldum hætti stýrt aðgengi nemenda, hvers og eins eða allra samtímis. Nemendur geta í miðri kennslustund eða eftir stutt hlé skipt um sæti en haldið sinni uppsetningu og gögnum líkt og áður. Um leið og nemandi tengist inn á nýjum skjá eru allir gluggar og forrit opin líkt og var þegar hann stóð upp frá hinum skjánum.
Með HP Compaq MultiSeat lausninni má ná fram miklum sparnaði. Upphafs fjárfesting er minni, kostnaður við uppfærslur og þjónustu er lægri, kostnaður við uppsetningar er einnig lægri, og tryggir lausnin umtalsvert lægri orkukostnað og einfaldari umsýslu kennara eða tölvuumsjónaraðila.
Hægt er að skala lausnina eftir þörfum, byrja með grunnvélina sjálfa og bæta svo við tengiboxum eftir því sem fjölga á notendum. MultiSeat lausnin er kjörin í tölvuver skóla á öllum skólastigum og hentar einstaklega vel á bókasöfn.
HP Multiseat lausnin inniheldur:
• HP Compaq MS6000 tölvu sem er sérstaklega hönnuð fyrir þessi not.
• HP MultiSeat T100 tengibox fyrir hvern skjá sem tengja á.
• USB snúru, lyklaborð, mús, skjá og skjásnúru en einnig er hægt er að nota þennan búnað frá eldri uppsetningum.
Nánari upplýsingar veitir Guðmundur Zebitz (zebitz@ok.is) vörustjóri tölvubúnaðar í síma 570-1064


Um okkur
Veftré
Hafa samband

