Adobe – Hvað er það?

Adobe er eitt af stærstu hugbúnaðarfyrirtækjum heims og er þekkt fyrir sitt fjölbreytta úrval af hugbúnaðarleyfum. Vöruúrval á Adobe hugbúnaði hentar vel fyrirtækjum og einstaklingum sem eru til dæmis í hönnun, ljósmyndun, myndbandavinnslu og vefvinnslu- og þróun.

Helstu leyfi Adobe

  1. Photoshop – er myndvinnsluhugbúnaður sem er gjarnan notaður af ljósmyndurum, hönnuðum og listamönnum. Photoshop býður meðal annars upp á að búa til, breyta og lagfæra stafrænar myndir.
  2. Illustrator – er hugbúnaður til að búa til teikningar, myndskreytingar og listaverk. Illustrator hentar vel fyrir t.d. grafíska hönnuði.
  3. InDesign – er umbrotshugbúnaðarforrit notað til að búa til „lay out“ fyrir bækur, bæklinga, tímarit, dagblöð og annað prentefni. Hentar vel t.a.m. við gerð prentverka.
  4. Premiere Pro – er myndbandsvinnsluhugbúnaður sem er notað til að búa til og vinna myndbandsefni fyrir t.d. kvikmyndir, þætti og aðrar gerðir myndbanda.
  5. Acrobat Pro – er ein vinsælasta varan sem Adobe býður upp á en forritið er hugsað fyrir vinnslu .pdf skjala. Með hugbúnaðinum er hægt að lagfæra og breyta .pdf skjölum eftir þörfum. Það eru alls konar tól sem hægt er að nýta í Acrobat Pro. Það er t.d. að taka út viðkvæmar upplýsingar, rekja rafrænar undirskriftir og bæta við upplýsingum.
  6. Creative Cloud svítan innheldur öll helstu leyfi (20+) úr vörusafni Adobe. Þar má t.d. nefna, Photoshop, Illustrator, Premiere Pro, After Effects, InDesign og Acrobat Pro. Ásamt því færðu aðgang að alls konar sniðmátum og þúsundir tegunda af skriftarfontum í gegnum „Adobe Fonts“ safnið.

OK hefur verið viðurkenndur endursöluaðili á Adobe hugbúnaði í fjölda ára og getur boðið upp á flestar gerðir af leyfum fyrir fyrirtæki, hvort sem það eru hefðbundin leyfi (e. commercial), leyfi fyrir stjórnvöld (e. government) eða fyrir skóla (e. educational). Þegar leyfi eru keypt í gegnum OK er greitt fyrir árið. Á þessu árstímabili er hægt að bæta við leyfum eftir þörfum. Þegar árið er liðið, taka svo viðskiptavinir ákvörðun eftir þörfum um hvort það þurfi að bæta við eða fækka leyfum.

Höfundur Hallur Flosason, viðskiptastjóri.

Ef þú hefur áhuga á að kynna þér Adobe betur, ekki hika við að hafa samband á hugbunadur@ok.is.

deildu fréttinni

Explore more about OK