Starfsmannastefna
Ráðningar og móttaka nýliða
Við leggjum áherslu á að hafa ávallt á að skipa hæfustu sérfræðingum á sínu sviði og laða til okkar starfsfólk sem býr yfir þeim lykilþáttum sem settir eru fram í gildum Opinna kerfa. Við tökum vel á móti nýjum starfsmönnum með það að markmiði að þeir upplifi sig frá fyrsta degi sem hluti af OK fjölskyldunni. Allir nýir starfsmenn fara í gegnum fyrirfram skilgreint nýliðaferli sem m.a. felur í sér fræðslu um starfsemi fyrirtækisins, þjónustu þess og starfsfólk.
Starfsþróun
Við aukum stöðugt verðmæti okkar með því að leggja áherslu á þekkingaröflun og fögnum áskorunum í starfi. Óskir okkar um fræðslu og þróun eru metnar með skipulögðum hætti í árlegum starfsmannasamtölum.
Samskipti og starfsandi
Traust og heiðarleg samskipti eru lykilstoðir í menningu okkar.
Við leggjum áherslu á að veita hvort öðru uppbyggilega gagnrýni og fögnum þeim ábendingum sem okkur berast enda leynast í þeim áskoranir. Við tileinkum okkur virka hlustun og styðjum við bakið hvert á öðru í þeim aðstæðum sem upp koma.
Jafnræði
Við erum metin á eigin forsendum, eigum jöfn tækifæri til starfsþróunar og umbunar innan félagsins, óháð stöðu, kyni, aldri og bakgrunni.
Skýr og mælanleg markmið miða að því að hagsmunir okkar og félagsins fari saman.
Heilsustefna og vinnuvernd
Við vitum að góð heilsa er grundvöllur lífsgæða og leggjum því áherslu á heilsurækt, gott og heilsusamlegt vinnuumhverfi og hollan og góðan mat.
Fjölskyldustefna
Við lítum á fjölskyldur okkar sem hluta af OK fjölskyldunni og leggjum áherslu á jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Við búum við sveigjanleika sem auðveldar okkur að samræma þarfir fyrirtækisins og fjölskyldunnar.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

