Saga Opinna kerfa

Upphafið
Veturinn 1983-84 unnu tveir viðskiptafræðinemar að úttekt á íslenska tölvumarkaðinum. Í ljós kom að Hewlett-Packard hafði sterka markaðshlutdeild erlendis en enga á Íslandi. Tvímenningarnir skrifuðu til Hewlett-Packard í Genf og viðruðu áhuga sinn á því að opna skrifstofu fyrir Hewlett-Packard á Íslandi. Þeir fengu þau svör að ef fjárhagslegur bakgrunnur væri tryggður og til staðar væri meiri markaðsþekking á íslenska tölvumarkaðinum, þá væri Hewlett-Packard reiðubúið til viðræðna. Í framhaldi af nánari viðræðum var það mat Hewlett-Packard að réttasta leiðin væri að Hewlett-Packard opnaði eigið útibú í stað þess að fara þá leið að finna umboðsmann hérlendis.
Frosti Bergsson var ráðinn framkvæmdastjóri útibúsins og byrjað var smátt, nánar tiltekið við eldhúsborðið heima hjá honum. Í fyrsta viðskiptabréfinu, sem var frá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf., segir: "Við þökkum skjóta afgreiðslu á mótor í Hewlett-Packard-teiknivélina okkar sem þú sendir okkur frá Danmörku í síðustu viku. Greiðslu munum við senda þér strax og þú lætur okkur vita hvernig þú vilt fá hana".

1985-1990
Hewlett-Packard á Íslandi var "alútlenskt" fyrirtæki eins og það var kallað í dagblöðunum. Starfsemi fyrirtækisins olli nokkrum taugatitringi á tölvumarkaðinum og framtakssamir aðilar fóru fram á að Verðlagsstofnun kannaði lögmæti starfseminnar.
Útibú Hewlett-Packard á Íslandi var formlega opnað 8. maí 1985. Í tilefni af opnuninni var Verkfræðistofnun Háskóla Íslands fært að gjöf tölvuvætt teiknikerfi. Fjölmargir gestir, innlendir og erlendir, óskuðu Hewlett-Packard velfarnaðar á Íslandi. Þeirra á meðal var Steingrímur Hermannsson, þáverandi forsætisráðherra.
Hewlett-Packard var annað alþjóðlega tölvufyrirtækið til að stofna útibú á Íslandi. Árið áður hafði IBM opnað útibú. Þetta þóttu mikil tíðindi á þessum tíma og setja þurfti sérstök lög um opnun útibúsins en það var þáverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra Matthías Á. Mathiesen sem hafði forgöngu um málið. Starfsmenn Hewlett-Packard á Íslandi voru fimm talsins. Menn voru stórhuga og leigt var húsnæði að Höfðabakka 9, sem er enn aðsetur fyrirtækisins en fermetrunum hefur fjölgað.
Fyrsti stóri samningurinn var við Reiknistofu lífeyrissjóðanna. Notendur á kerfinu voru 200 talsins og tengingar um allt land. Þetta var fyrsta prófraunin á tengingu í gegnum x-25 víðnet Pósts og síma. Hewlett-Packard á Íslandi í samstarfi við TOK seldu heildarlausnir, hugbúnað og vélbúnað, meðal annars til margra endurskoðunarskrifstofa á Íslandi.
Árið 1986 var RISC tæknin kynnt. Mikilvægir viðskiptavinir eins og Orkustofnun, Reiknistofa HÍ og Reiknistofa Pósts og síma koma til sögunnar. Allt frá upphafi var lögð áhersla á samstarf við íslensk hugbúnaðarhús. Í auglýsingum fyrirtækisins frá þessum tíma segir: "Íslenskt hugvit og alþjóðleg reynsla tryggja góðan árangur".
Sífellt fleiri viðskiptavinir sáu kosti Hewlett-Packard. KEA bættist í hópinn árið 1987 svo og Reykjavíkurborg með Landupplýsingakerfi Reykjavíkurborgar, LUK-R. Samið var við Pharmaco um sölu á Hewlett-Packard lækna- og efnagreiningartækjum árið 1990.

1991-1995
Frosti Bergsson, ásamt starfsmönnum og Pharmaco keyptu 75% hlut í félaginu árið 1991 og það varð íslenskt hlutafélag og fékk nafnið HP á Íslandi hf. Markmiðið var að auka sveigjanleika og sníða fyrirtækið að íslenskum aðstæðum. Í auglýsingu í tilefni af breytingunum sagði: "Með opnum kerfum og góðri fótfestu á íslenskum markaði eru nýja fyrirtækinu og viðskiptavinum þess allir vegir færir".
Gerður var samningur við endursöluaðilana Tæknival hf., Örtölvutækni-Tölvukaup hf. og Heimilistæki árið 1992. Þá má segja að heildsölurekstur fyrirtækisins hafi orðið til og er heildsalan rekin enn þann dag í dag í svipaðri mynd. Á þessum tíma voru HP Vectra einkatölvurnar í mikilli sókn.
Á árinu 1992 var gerður tímamótasamningur þar sem sett var upp víðnet og netbúnaður fyrir Ríkisskattstjóra og allar skattstofur landsins.
"Í nýjan ham" var yfirskrift ráðstefnu á vegum HP á Íslandi árið 1994. Þar var annars vegar vísað í nýjar áherslur í starfsemi fyrirtækisins og hins vegar til þess að HP kynnti merkar nýjungar sem voru í takt við þær breytingar sem voru að verða á starfsumhverfi fyrirtækja.
Velta HP á Íslandi fór yfir 500 milljónir kr. á árinu 1994 og starfsmenn voru orðnir 17 talsins.
Árið 1995 seldi Hewlett-Packard 25% hlut sinn í HP á Íslandi til félagsins og í framhaldi af því var nafni þess breytt í Opin kerfi hf.
Fjárfestingarekstur hófst með kaupum á hlut í Tæknivali hf. og Teymi (Oracle). Hluturinn í Tæknivali var seldur 1996 með verulegum hagnaði.
Fjölmargir stórir viðskiptavinir bættust í hópinn og má þar nefna Húsasmiðjuna, Kaupfélag Skagfirðinga og Íslenska álfélagið. Fyrirtækið var vakandi fyrir þeim sóknarfærum sem gáfust á íslenska tölvumarkaðinum á þessum tíma og náði góðri  markaðshlutdeild.

1996-2000
Heimasíða Opinna kerfa hf. var opnuð árið 1996. Heimasíðan var með beintengingu við heimasíðu Hewlett-Packard þar sem allar upplýsingar um HP vörur og þjónustu var að finna. Á þessum tíma var um byltingu að ræða hvað varðar aðgengi upplýsinga og samskipti milli landa, en til dæmis var hægt að sækja uppfærslur á prentararekla og biopsa.
Á árinu 1996 sló nýi örgjörvinn PA-8000 öllum öðrum við, en Reiknistofa lífeyrissjóðanna og Tölvumiðstöð sparisjóðanna voru meðal fyrstu kaupenda. Þá hófst einnig sala og þjónusta á Cisco víðnetsbúnaði og Microsoft hugbúnaði.
Árið 1997 var tímamótaár í rekstri félagsins. Veltan fór yfir einn milljarð kr. í fyrsta sinn (heildarvelta 1.210 milljónir kr.) og starfsmenn félagsins voru orðnir 35. Keyptur var meirihluti í Skýrr hf. og í samstæðu uppgjöri var veltan vel yfir tveir milljarðar króna og starfsmenn samstæðunnar orðnir 159. Á árinu 1997 var einnig keyptur hlutur í tölvufyrirtækinu ACO og 1998 var keyptur stór hlutur í Tæknivali.
Hlutabréf félagsins voru skráð á Verðbréfaþing Íslands (Kauphöll Íslands) og á árinu 1998 hækkuðu hlutabréf í Opnum kerfum hf. mest allra á markaðinum eða um 128,4%.
Á árinu 1998 undirritaði Ríkisskattsjóri rekstrarleigusamning (HP Finans) við Opin kerfi um 250 einkatölvur og vakti samningurinn verulega athygli.
Á árunum 1998 og 1999 ríkti góðæri sem skilaði sér víða í þjóðfélaginu. Tölvumarkaðurinn var ekki undanskilinn og var hann í uppsveiflu. Flest tölvukerfi á þessum tíma voru hönnuð útfrá tímatali 20. aldarinnar og gerðu ekki ráð fyrir að ártal væri annað en á milli 1900 og 1999. Mikil vinna skapaðist því vegna undirbúnings tölvukerfa fyrir komu ársins 2000.
Á árinu 2000 voru rekstrartekjur samstæðunnar 5.446 milljónir kr. og móðurfélagsins 3.168 milljónir kr. Hagnaður samstæðunnar fyrir tekjuskatt var 632 milljónir króna og móðurfélagsins 463 milljónir kr. Á árinu hófst fartölvuvæðing framhalds- og háskóla og tóku Opin kerfi virkan þátt í því með HP Omnibook fartölvunum. HP í samstarfi við Opin kerfi héldu evrópskan blaðamannafund á Bifröst þar sem fartölvur frá Hewlett-Packard og þráðlaus ,,loftnetsbúnaður" í háskólaumhverfi voru kynnt.

2001-2005
Útrás Opinna kerfa hófst árið 2001 þegar fyrirtækið keypti í nóvember þess árs öll hlutabréf í Datapoint Svenska AB í Svíþjóð fyrir um 1700 milljónir íslenskra króna. Hjá fyrirtækinu störfuðu um 120 starfsmenn. Einnig var fyrirtækið Enterprise Solutions A/S stofnað í Danmörku í desember 2001.
Árið 2002 fór velta félagsins í heild yfir 10 milljarða króna og fjöldi starfsmanna yfir 400.
Árið 2002 keypti Hewlett-Packard tölvufyrirtækið Compaq, en þau voru sameinuð undir nafninu HP. Í bréfi sem Opnum kerfum barst frá Carly Fiorina þáverandi forstjóra HP kom fram að samruninn yrði viðskiptavinum beggja fyrirtækja til hagsbóta bæði hvað varðar vöruúrval og þekkingu. Í kjölfarið varð Opin kerfi eini innflutnings-, sölu- og þjónustuaðili nýja HP á Íslandi.
Mikil áhersla var lögð á fagmennsku í samskiptum við hluthafa, greiningaraðila og fjölmiða. Félagið fékk meðal annars fjárfestatengsla verðlaun (IR Awards) árin 2002 og 2003 í flokki minni og meðalstórra fyrirtækja.
Stofnað var nýtt félag, Opin kerfi ehf. 1. janúar 2003, sem tók við sölu- og þjónustustarfseminni á Íslandi. Nafni móðurfélagsins var jafnframt breytt í Opin Kerfi Group hf. Helstu dótturfélög þess voru Opin kerfi ehf., Skýrr hf., Datapoint AB (nú Kerfi AB) og Enterprise Solutions A/S (nú Kerfi A/S).
Á árinu 2003 keypti Opin Kerfi Group hf. Virtus AB og sameinuðu Datapoint Svenska AB undir nafninu Kerfi AB og miðaði lögformleg sameining við 1. janúar 2004. Enterprise Solutions keyptu í mars 2003 allt hlutafé í upplýsingatæknifyrirtækjunum Delta Teamco og Delta Consulting en það var áfangi í að auka umsvif starfseminnar í Danmörku.
Fyrsta EVA 5000 diskastæðan var seld og "Ofurtölva" eða 130 tölvur í einum klasa var sett saman fyrir Háskóla Íslands árið 2003.
Kerfi A/S keypti félagið DataRex í Danmörku árið 2004 og tvöfaldaði þar með stærð sína.
Opin Kerfi Group hf. velti 14,7 milljörðum króna árið 2004 og voru starfsmenn þess um 600. Markaðsverðmæti félagsins var þá rúmlega 8 milljarðar króna. Kögun hf. gerði síðla árs 2004 yfirtökutilboð í öll hlutabréf félagsins sem gekk eftir og í kjölfarið var félagið afskráð úr Kauphöll Íslands.
Nýir eigendur færðu Skýrr hf. og Teymi ehf. beint undir rekstur Kögunar þar sem starfsemi Kögunar var flokkuð annars vegar með áherslu á hugbúnað og hins vegar áherslu á vélbúnað. Opin Kerfi Group hf. samanstóðu þá af Opnum kerfum ehf., Kerfi AB í Svíþjóð og Kerfi A/S í Danmörku og var áherslan lögð á sölu tölvubúnaðar og tengda ráðgjöf og þjónustu.

2007 - dags
Í nóvember 2007 keypti OK2 ehf., eignarhaldsfélag í eigu Frosta Bergssonar, Opin kerfi ehf. af Opin Kerfi Group hf.  Fljótlega samþykktu stjórnir Opinna kerfa ehf. og Titan ehf.  að sameina félögin og hófst undirbúningur í desember 2007 og varð sameiningin að veruleika þann 14. mars 2008. Velta ársins 2007 var rúmlega 3,3 milljarðar með 101 starsmenn að meðaltali.
Um vorið 2008 var byrjað á aðhaldsaðgerðum og hagræðingu sem stóð yfir allt árið og megnið af 2009. Þetta dró verulega úr kostnaði og jók hakvæmni í rekstri. Velta ársins 2008 var um 3,5 milljarðar með 119 starfsmenn og 2009 um 3,6 milljarðar með 95 starfsmenn.
Forstjóri Opinna kerfa ehf. er Gunnar Guðjónsson og starfa nú rúmlega 100 starfsmenn hjá félaginu og gera áætlanir ráð fyrir að velta félagsins verði um 4 milljarðar króna á árinu 2010 með u.þ.b. 110 starfsmenn.