Gildi Opinna kerfa

Sigurvilji
VIÐ gerum það sem þarf til að ná árangri og höfum í heiðri framkvæmdagleði og frumkvæði.
VIÐ fögnum og verðlaunum góðan árangur.


Eitt lið
VIÐ veitum hvert öðru uppbyggilega gagnrýni, stöndum saman sem ein heild til að ná fram því besta frá hverjum og einum.
VIÐ komum fram við hvert annað af virðingu með því að tala við hvert annað en ekki um hvert annað.
VIÐ vinnum saman sem lið sem leitar og deilir lausnum með hag heildarinnar að leiðarljósi.


Opinn hugur
VIÐ spyrjum spurninga og hlustum, við leitum eftir og tökum til greina gagnrýni frá öllum liðsmönnum OK fjölskyldunnar.
VIÐ einbeitum okkur að lausnum við breytingar, með því að taka fyrsta skrefið og leita kosta og tækifæra í öllum aðstæðum.


Heiðarleiki
VIÐ leitum sannleikans með því að spyrja beinna spurninga án sleggjudóma.
VIÐ deilum skoðunum okkar með því að segja okkar álit á opinskáan hátt.