31. janúar 2012
Stærsta tölva Íslandssögunnar!
Norrænt ofurtölvuver byggt á HP tölvubúnaði í samstarfi við Opin kerfi
Háskóli Íslands samdi nýverið við Opin kerfi og HP um uppbyggingu á ofurtölvu sem starfrækt verður hér á landi. Samningurinn er liður í samnorrænu verkefni Háskóla Íslands og þriggja erlendra stofnana: Danish Center for Scientific Computing, Swedish National Infrastructure for Computing og UNINETT Sigma í Noregi.
Ofurtölvan samanstendur af 288 HP BL280G6 netþjónablöðum með samtals 3.456 Intel tölvukjarna af nýjustu gerð, um 7TB af vinnsluminni og yfir 80TB af diskageymslu. Afkastageta ofurtölvunnar í fyrsta áfanga verkefnisins er 35 þúsund milljarðar reikniaðgerða á hverri sekúndu sem samsvarar til reiknigetu um 10.000 einmenningstölva.
„HP hafa um árabil verið einn stærsti söluaðili ofurtölva í heiminum. Fyrirtækið stendur einna fremst í nýtingu á plássi, kælingu og orku og hefur sýnt fram á getu til að ná framúrskarandi árangri með viðskiptavinum við að hagræða í rekstri og stuðla að umhverfisvænni starfsemi,“ segir Guðbrandur Randver Sigurðsson, sölustjóri hjá Opnum kerfum.

Ofurtölvan kom til landsins í byrjun desember á síðasta ári. Verkefnastjórn, uppsetning, innleiðing og prófanir á búnaði voru í höndum sérfræðinga Opinna kerfa og HP. Lausnin hefur staðist allar þær kröfur sem settar voru fram og voru staðfestar með viðtökuprófunum frá sérfræðingum Reiknistofnunar Háskóla Íslands.
Mynd af NHPC stæðunni: Albert Jakobsson

Um okkur
Veftré
Hafa samband