6. janúar 2012
Nýr sérfræðingur hjá Opnum kerfum!
Guðný Jenný Ásmundsdóttir hóf störf hjá Opnum kerfum þann 3. Janúar 2012.
Jenný gengur til liðs við sérfræðinga Opinna kerfa í viðskiptagreind og kemur til með að sinna ráðgjöf, innleiðingu og þjónustu við viðskiptagreindarlausnir á lausnasviði.
Jenný starfaði áður á fjármálasviði Nýherja. Hún er viðskiptafræðingur að mennt, með M.Sc. gráðu í fjármálum fyrirtækja.
Við bjóðum Jenný velkomna til starfa!


Um okkur
Veftré
Hafa samband

