22. september 2011

Landspítalinn velur HP tölvubúnað

Björn Zoëga, forstjóri Landspítala Háskólasjúkrahúss og Gunnar Guðjónsson, forstjóri Opinna kerfa

Opin kerfi ehf. og Landspítali hafa að undangengnu útboði handsalað samning um kaup á HP tölvubúnaði og þjónustu. Samningurinn, sem gildir til allt að þriggja ára, felur í sér kaup á borðtölvum, fartölvum og skjáum frá HP, sem er stærsta upplýsingatæknifyrirtæki í heimi. Einnig felast í samningnum kaup á búnaði undir sérstakt „Thin Client“-umhverfi spítalans.

Samningurinn er mikil viðurkenning fyrir Opin kerfi og HP tölvubúnað, sem hefur um árabil verið mest seldi tölvubúnaður í heimi. „HP tölvur eru hannaðar með það að leiðarljósi að lágmarka rafmagnsnotkun, hávaða- og hitamyndun, auk þess sem samsetning vél- og hugbúnaðar er þróuð til að einfalda alla umsjón til muna. Þetta samspil gerir HP að áhugaverðum kosti fyrir aðila sem eru að leita að hagræðingu í rekstri útstöðva,“ segir Sævar Haukdal, viðskiptastjóri og söluráðgjafi hjá Opnum kerfum.

Opin kerfi áttu hagstæðasta tilboðið í notendabúnað fyrir  Landspítala og samningurinn er skref í þá átt að ná fram auknu hagræði í rekstri spítalans. Opin kerfi eru öflugur sölu- og þjónustuaðili og við bindum miklar vonir við samstarfið", segir Björn Jónsson, deildarstjóri Heilbrigðis- og upplýsingatæknideildar Landspítala.

Til baka | Aðrar fréttir