7. apríl 2011

Námskeið í maí

Nú eru spennandi Red Hat og Cisco námskeið framundan hjá Opnum kerfum. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að skrá sig fyrir 29. apríl.

2. - 5. maí - Red Hat RHCE hraðnámskeið REL 6.0:

Red Hat hraðnámskeiðið (RH299) er ætlað reyndum Red Hat kerfisstjórum. Á námskeiðinu er farið hratt yfir efni RHCSA hraðnámskeiðs (RH199) annars vegar og efni Red Hat kerfissjórans III hins vegar á fjórum dögum í stað átta. Á námskeiðinu er byggt á kunnáttu nemenda á skipanalínu Linux og farið hratt yfir verkefnin, stöðuprófin og umræðurnar sem tilheyra ofangreindum námskeiðum. Nemendur eiga við lok námskeiðsins að hafa komist í snertingu við alla þá þætti sem koma fyrir í RHSCA og RHCE prófunum...lesa meira og/eða skrá mig.

6. maí - RHCE og RHCSA próf:

Skrá mig í RHCE próf

Skrá mig í RHCSA próf

9. - 13. maí - Cisco DataCenter námskeið:

Á námskeiðinu verður farið yfir routing og switching í DataCenter umhverfi. Aðal áhersla verður á notkun og uppsetningu Nexus 7000 svissa í DataCenter umhverfi en auk þess er farið yfir tengingu þeirra inn á Nexus 5000, uppsetningu á Fiber Channel over Ethernet (FcoE) og Nexus 2000 Fabric Extender.

Af öðru sem farið verður yfir má nefna Virtual Device Contexts (VDC) Layer 2 og 3 möguleika í Nexus, security og QoS auk þess sem farið verður yfir uppbyggingu NX-OS stýrikerfisins. Nemendur munu framkvæma uppsetningar með Nexus 7000 simulator...lesa meira og/eða skrá mig.

Allar nánari upplýsingar um námskeið veitir María Ingimundardóttir (maria@ok.is) í síma 570 1062.

Til baka | Aðrar fréttir