Microsoft Dynamics CRM 2011

Microsoft Dynamics CRM 2011 – Nýjasta útgáfan hefur farið í gegnum miklar breytingar á sínum líftíma og heldur áfram að þróast með öðrum Micosoft Dynamics vörum. Í þessari útgáfu er verið að bæta tengingu við Outlook og að nýta þá möguleika sem komu með Office 2010 hvað varðar vinnustiku sem og sýnilegri leið við að setja inn gögn í CRM kerfið. Loksins er síðan komið Dashboard sem auðvelt er að nota og geta notendur stillt sitt umhverfi að sínum þörfum á einfaldan hátt. "Roled based security" ásamt "field security" er komið inn sem auðveldar alla aðgangsstýringu í kerfinu og uppsetningu á spjöldum. Stuðningur við samþættingu Microsoft Dynamics Nav / AX við Microsoft Dynamics CRM 2011 er komin. Tengingar við SharePoint 2011 til að auðvelda geymslu skjala og annarra gagna hefur verið bætt inn í kerfið og er auðveld að skilgreina viðmót. Landing síður eru komnar inn í kerfið sem auka möguleika á skráningum bæði innan og utan frá við kerfið. Stuðningur við "Cloud computing" hefur verið aukin sem og stuðningur við sérskriftir frá þriðja aðila. 64 bita stuðningur er betri og hefur hraðaaukning orðið í kerfinu. Yfir heildina er verið að tala um yfir 400 hundruð breytingar sem og viðbætur við kerfið í þessari útgáfu. Opin kerfi hafa í dag sérfræðinga á öllum sviðum viðkomandi lausna hvort sem er um að ræða uppsetningu á grunnkerfum, kennslu, þróun, hönnun eða að búa til viðskiptasýn á CRM í gegnum SQL reporting service eða OLAP teninga þar sem viðskiptagreind er ofan á Microsoft Dynamics CRM.
Microsoft Dynamics CRM (Customer Relationship Management) viðskiptatengslakerfið er eitt af þeim kerfum sem hefur á síðustu árum verið að sanna sig í rekstri fyrirtækja. Þau fyrirtæki sem hafa innleitt viðskiptatengslakerfið hafa vaxið hraðar en önnur fyrirtæki í sambærilegum rekstri og sýnt að viðskiptavild viðskiptavina þeirra hefur aukist að sama skapi. Með því að samþætta upplýsingar frá öðrum stoðkerfum inn í Microsoft Dynamics CRM skapast upplýsingatorg sem hefur að geyma þær upplýsingar sem starfsmenn viðkomandi fyrirtækis þurfa til að taka réttar ákvarðanir ásamt því að hafa aðgengi að þeim samskiptum sem viðskiptamenn hafa átt við fyrirtækið í gegnum aðra starfsmenn. Með þessu myndast betri sýn á viðskiptamanninn innan viðkomandi fyrirtækisins og gefur þ.a.l. réttari mynd af þeim samskiptum sem hann hefur átt við fyrirtækið. Þjónustustigið hækkar þar sem allir starfsmenn hafa aðgengi að þeim upplýsingum sem þeir þurfa til að tryggja að viðskiptamaðurinn fái lausn sinna mála og sá eltingaleikur sem fer í að finna réttan aðila innan fyrirtækisins því óþarfur.
Í því þjóðfélagi sem við lifum í dag þarf að hafa allar upplýsingar við höndina ásamt því að það á að vera auðvelt að sjá allar hliðar málsins til að taka réttar ákvarðanir. Rekjanleiki er líka orðinn stór þáttur í því að stunda viðskipti í dag þar sem það þarf að vera hægt að sjá hvaðan og hvernig viðkomandi mál fór í gegnum kerfin ásamt því hvernig það klárast innan fyrirtækisins. Að ógleymdri þeirri þekkingu og upplýsingaglötun sem hefur átt sér stað með breytingum á mannahaldi innan fyrirtækja. Að nota CRM í daglegum rekstri felur í sér að snertifletir innan fyrirtækisins minnka þar sem starfsmenn þurfa ekki að reiða sig eins og viðskiptavinurinn á að finna þann aðila innan fyrirtækisins sem hefur viðkomandi upplýsingar á sínum snærum. Kerfið býður upp á að hægt er að fletta viðkomandi viðskiptamanni upp í því og rekja þau samskipti og ákvarðanir sem hafa verið teknar innan fyrirtækisins.
Með innbyggðu verkferlakerfi er síðan hægt að láta kerfið leiða notendur í gegnum ákveðin ferli svo skráning og ákvarðanaferli sé rétt og fylgi ákveðnum ferlum innan viðkomandi fyrirtækis. Verkferlakerfið gefur viðkomandi aðila möguleika á því að takast á við það vandamál að það sé ekki verið að fylgja eftir málum sem koma inn á borð daglega eða verkefni sem hafa endurtekningarferli í sér. Verkefni á borð við að senda út beiðni, tölvupóst eða búa til verk eru fá þeirra dæma sem hægt að framkvæma til að búa til ákveðin ferli innan kerfis.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

