Opin kerfi innleiða Prophix
Opin kerfi hafa fengið umboð fyrir Prophix á Íslandi sem er áætlunarhugbúnaður.
Prophix var stofnað 1987 í Canada með höfuðstöðvar í Toronto og starfar nú í yfir 60 löndum um allan heim. Fyrirtækið starfar eingöngu á sviði áætlanargerðar og hefur þróað Prophix sem heildarlausn á sínu sviði. Kerfið tekur á öllum þeim þáttum sem varðar áætlunargerð og styður flest öll þau bókhaldskerfi sem eru í notkun í dag. Kerfið notar Microsoft SQL sem sinn gagnagrunn og er samþætting kerfisins við þennan gagnagrunn svo mikil að leyfisgjöld fyrir Microsoft SQL eru innifalin í verði kerfisins.
Kerfið státar af mjög auðveldum ferlum við alla vinnslu hvort sem það er að lesa gögn frá undirliggjandi kerfum , uppsetning áætlunarskjala, uppsetning á útreikningum, vinnuflæði áætlunar, aðgangsstýring, utanumhald við sjálfa áætlunargerðina eða stýring samþykktarferlis. Úrtak getur síðan verið með endurskrift niður í undirliggjandi kerfi, í skýrsluformi sem hægt er að stilla sjálfvirk ferli með aðgangsstýringum eða yfir í SharePoint 2010. Svo ekki sé talað um að samþætta gögn yfir í viðskiptagreindarhugbúnað sem býður upp á enn fleiri möguleika.
Hvað segja greinendur um kerfið?
Til að fá betri sýn á hvað kerfið hefur upp á að bjóða hvetjum við þig til að gefa þér tíma til að skoða þetta myndband sem segir þér á 8 mínútum hvað ProPhix er.
Ef áhugi hefur vaknað fyrir þessari lausn þá höfum við hjá Opnum kerfum innleitt Prophix hjá okkur og og getum glöð kynnt fyrir þér hvað lausnin hefur upp á að bjóða.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

