4. mars 2011
Opin kerfi og harmon.ie hafa gert með sér endursölusamning á hugbúnaðarlausnum.

Opin kerfi og harmon.ie hafa gert með sér endursölusamning á hugbúnaðarlausnum.
Lausnir harmon.ie tengja Outlook saman við SharePoint á hátt sem ekki hefur sést áður en marga hefur dreymt um. Nú má flakka um SharePoint síður og skjalasöfn í Outlook, vista tölvupóst og viðhengi með „drag‘n drop“ og hengja skjöl úr SharePoint við tölvupóst. Allt er þetta framkvæmt innan úr Outlook og sparar því tíma og vinnu við að skipta oft um kerfi fyrir einfaldar aðgerðir.
Þess má geta að einnig er boðið upp á lausn sem tengir saman Lotus Notes við SharePoint á sama hátt.
Hafið samband við Halldór Kára Hreimsson (halldor@ok.is) fyrir nánari upplýsingar.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

