Fastus endurnýjar Alrekstrarsamning
Opin kerfi og Fastus hafa endurnýjað samstarfssamning sinn um heildarrekstur upplýsingakerfa og notendaþjónustu.
Hjá Fastus starfar öflugur hópur starfsfólks með mikla reynslu í sölu, þjónustu, ráðgjöf og hönnun á heilbrigðis- og fyrirtækjamarkaði.
Fastus býður upp á hagkvæmar lausnir frá heimsþekktum framleiðundum hvort sem um ræðir skurðstofu, veitingastað eða mötuneyti.
Fyrirtækið hefur undanfarin tvö ár verið í alrekstri hjá Opnum kerfum og hefur vaxið töluvert á tímabilinu.
„Í mínum huga er lang hagkvæmasta leiðin við rekstur upplýsingakerfa að útvista rekstrinum. Með þessu nær Fastus að sinna sinni kjarnaþekkingu og hefur sérfræðinga í rekstri upplýsingakerfa til að reka miðjubúnað og útstöðvar, veita notendaaðstoð og ráðgjöf fyrir fasta upphæð á mánuði. Ég er einstaklega ánægður með tækniborð Opinna kerfa sem getur yfirtekið tölvur með fjartengingu og veitt starfsmönnum aðstoð þegar þörf er á. Samstarf okkar hefur gengið mjög vel og við endurmat á samningi þá var það niðurstaða mín að halda áfram með núverandi fyrirkomulag og tryggja mér það bakland sem ég hef hjá Opnum kerfum“ segir Arnar Bjarnarson, markaðsstjóri Fastus.


Um okkur
Veftré
Hafa samband

