Laus störf hjá Opnum kerfum
Opin kerfi leita að öflugum framherjum í eitt sterkasta lið landsins sem:
- Hafa brennandi áhuga á upplýsingatækni og metnað til að ná árangri í starfi
- Eru úrræðagóðir og vinna vel undir álagi
- Hafa tileinkað sér skipulögð, öguð og sjálfstæð vinnubrögð
- Búa yfir framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Eru reiðubúnir að leggja allt í sölurnar fyrir liðið.
Störf í boði:
CISCO SNILLINGUR:
Helstu verkefni: Ráðgjöf, innleiðing og þjónusta á Cisco net- og símkerfum
Hæfniskröfur: Minnst 5 ára reynsla af rekstri netkerfa og ip símkerfa í Cisco umhverfi. Cisco CCVP/CCNP gráða æskileg og haldgóð menntun sem nýtist í starfi.
OPEN SOURCE OFURHETJA:
Helstu verkefni: Ráðgjöf, innleiðing og þjónusta í Open Source umhverfi
Hæfniskröfur: Minnst 5 ára reynsla af rekstri upplýsingakerfa. Góð þekking á Linux og eftirlitshugbúnaði. RHCE gráða æskileg.
Viltu vita meira? Ekki hika - sláðu á þráðinn og fáðu að vita um hvað málið snýst. María svarar þér í síma 864-1088 og heitir þér fullum trúnaði!
HUGBÚNAÐARSÉNÍ:
Helstu verkefni: Ráðgjöf og samþætting hugbúnaðarlausna og hugbúnaðargerð í Microsoft.net umhverfi. Hönnun, þróun og prófun hugbúnaðarlausna.
Hæfniskröfur: Víðfem reynsla auk MCPD gráðu eða sambærileg er æskileg. Reynsla af forritun í Microsoft.net umhverfi og þekking á Microsoft SharePoint, CRM og SQL BI. Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða kerfisfræði er kostur.
MICROSOFT GÚRÚ:
Helstu verkefni: Ráðgjöf til viðskiptavina, þjónusta við rekstur á upplýsingakerfum, hönnun og innleiðing rekstrarlausna.
Hæfniskröfur: MCITP gráða eða sambærilegt. Háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði, kerfisfræði eða sambærileg menntun er kostur. Minnst 5 ára reynsla af kerfisrekstri eða sambærilegum störfum. Reynsla af rekstri helstu Microsoft kerfislausna s.s. Active Directory, Exchange, Windows Server, SQL, ISA, SharePoint og System Center lausna.
Viltu vita meira? Ekki hika - sláðu á þráðinn og fáðu að vita um hvað málið snýst. Árni Þór svarar þér í síma 864-1010 og heitir þér fullum trúnaði!
TÆKNISCHNILLINGA Á VERKSTÆÐI:
Helstu verkefni: Móttaka og bilanagreining tölvubúnaðar. Viðgerðir og upplýsingagjöf til viðskiptavina varðandi viðgerðarferlið. Notendaþjónusta í síma.
Hæfniskröfur: Haldgóð reynsla af viðgerðum pc véla og fartölva. Hæfileiki til upplýsingaöflunar á ensku og vilji til að veita framúrskarandi þjónustu.
Viltu vita meira? Ekki hika - sláðu á þráðinn og fáðu að vita um hvað málið snýst. Hafsteinn svarar þér í síma 864-1080 og heitir þér fullum trúnaði!


Um okkur
Veftré
Hafa samband

