6. september 2010

Gunnars Majones í alrekstur

Opin kerfi bjóða Gunnars Majones ehf. velkomið í hóp alrekstrarviðskiptavina fyrirtækisins.

Fannar Ólafsson framkvæmdastjóri Gunnars Majones: „ Við komumst að því að úthýsing er mun ódýrari kostur en að sjá um tölvukerfið sjálf og mikið öryggi fylgir því að hafa öflugan aðila eins og Opin kerfi til að sjá um það fyrir okkur. Við höfum góða reynslu af samstarfi við Opin kerfi undanfarin ár og sú reynsla og mjög samkeppnishæf verð urðu til þess að við gengum til samninga við Opin kerfi. Okkar reynsla af þjónustu þeirra hefur verið með eindæmum góð. Þjónustuborðið bregst hratt við öllum fyrirspurnum og ef eitthvað bjátar á eru tæknimenn félagsins mættir innan skamms. Frábær þjónusta í alla staði.“

Með þessu taka Opin kerfi að sér allan hefðbundinn rekstur á tölvukerfi Gunnars Majones og verða í raun tölvudeild fyrirtækisins. Gunnars Majones hefur með þessu tryggt sér aðgengi að þjónustuborði, helstu sérfræðingum og ráðgjöf eftir þörfum. Gunnars Majones er rótgróið fyrirtæki sem hefur boðið landsmönnum upp á úrvalsvöru í rúmlega 40 ár og starfa þar 18 manns. Allir þekkja vörurnar frá Gunnars Majones en frekari upplýsingar um fyrirtækið má finna á heimasíðu fyrirtækisins.
Frekari upplýsingar um alrekstur hjá Opnum kerfum má finna hér.

Til baka | Aðrar fréttir