1. júní 2010

TimeXtender morgunverðarfundur

Þann 26. maí sl. buðu Opin kerfi til morgunverðarfundar um TimeXtender.

TimeXtender er hugbúnaðarkerfi sem dregur fram og hleður gögnum inn í vöruhús gagna ásamt því að hanna OLAP- tening þar sem öll forritun fer fram innan kerfisins. Tæknilegur framkvæmdastjóri TimeXtender, Thomas Christiansen var fyrirlesari fundarins og kynnti "Accelerated BI".

Niðurstaðan skilar sér í lágmarks kostnaði í uppbyggingu á BI umhverfi, allt að 80% styttri innleiðingartíma og lækkun á rekstrarkostnaði. TimeXtender styður MS SQL, Oracle, IBM DB2, Excel, TXT, ODBC, Microsoft Dynamics Nav (Native), IBM Informix og My SQL.

QuickCubes í TimeXtender eru tilbúnir teningar sem hægt er að bæta við kerfið og er þá hægt að koma BI umhverfi í gang á einum degi. QuickCubes eru til fyrir Microsoft Dynamic Nav, Ax, CRM, LSRetail og fleiri kerfi.

Árið 2006 markaði tímamót hjá TimeXtender þegar fyrirtækið varð aðili að Microsoft‘s DataWarehouse Alliance (DWA). www.timextender.com

Nánari upplýsingar um TimeXtender veitir Stefán Rafn Stefánsson hjá Opnum kerfum í síma 570-1000 eða í gegnum tölvupóst stefan@ok.is. Einnig má skoða TimeXtender nánar hér

 Við þökkum gestum fundarins innilega fyrir komuna.

Til baka | Aðrar fréttir