21. maí 2010

OK afleysingaþjónusta

Opin kerfi bjóða fyrirtækjum og stofnunum upp á staðgengilsþjónustu og stuðning við rekstur upplýsingakerfa þegar lykilstarfsmenn eru í fríi. Þetta hentar vel í sumarfríum, foreldraorlofi, námsleyfum, lengri veikindum og annarri fjarveru. Fjölbreytt þjónusta er í boði. Boðið er upp á tvö þjónustustig á borðinu. Annars vegar er tekið a móti verkbeiðnum, þeim komið í farveg og fylgt eftir. Hins vegar er borðið mannað sérfræðingum sem sjá m.a. um vöktun og afritun auk þess sem þeir geta yfirtekið vélar og leyst flest mál í gegnum fjartengingu eða ráðgjöf í síma. Okkar markmið er að viðskiptavinir fái sín mál í farveg með einu símtali.

Viltu kynna þér hvort samningur við þjónustuborðið hentar þínu fyrirtæki? Þá er þér velkomið að hafa samband við Lindu Hersteinsdóttur, hópstjóra þjónustuborðs Opinna kerfa í síma 570-1066 eða í gegnum tölvupóst linda@ok.is
Til baka | Aðrar fréttir