3. maí 2010

OK búðin - ný og glæsileg verslun Opinna kerfa

Þann 8. maí opnuðu Opin kerfi nýja og stærri verslun í húsnæði félagsins að Höfðabakka 9. Nýja verslunin er öll hin glæsilegasta með áherslu á fjölbreytt úrval á búnaði og þjónustu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Lögð er áhersla á upplifun viðskiptavina sem njóta framúrskarandi þjónustu. Nýja verslunin ber nafnið „OK búðin“ sem undirstrikar enn frekar þá stefnumörkun Opinna kerfa að leggja aukna áherslu á einstaklingsmarkað við hlið hins hefðbundna reksturs þar sem áherslan hefur verið sala og þjónusta við fyrirtæki og stofnanir.

Með nýrri og glæsilegri verslun gefst félaginu kostur á því að auka vöruúrval sitt verulega því þó HP vörulínan sé í um helmingi rýmisins þá njóta viðskiptavinir fjölbreyttara úrvals s.s. tölvubúnaðar og smávöru frá Apple, aukahluta og hugbúnaðar frá Microsoft, netbúnaðar og fleira frá Cisco, farsíma og símtæki svo fátt eitt sé nefnt.

 


Við hönnun OK búðarinnar var tekið mið af því sem HP, Apple og Microsoft eru að gera í sínum verslunum úti í heimi.

Fjölmörg spennandi tilboð verða áberandi fyrstu vikurnar eftir opnun sem vert er að líta eftir. Þessi tilboð á búnaði verða jafnt fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Endilega fylgist með opnun OK búðarinnar. Allir velkomnir á Höfðabakkann!

Til baka | Aðrar fréttir