Microsoft gengisfesting verður 150
Samningar hafa nú náðst við höfuðstöðvar Microsoft um áframhaldandi festingu á evrugengi Microsoft fram til júníloka. Miðað verður við evrugengið 150 fram til þess tíma.
Nú er svo komið að krónan hefur haldist nokkuð stöðug frá miðju síðasta ári og heldur styrkst síðustu mánuði, sem er vonandi til marks um að efnahagslífið sé farið að ná sér eftir hrunið 2008. En um leið þýðir þessi stöðugleiki að sífellt erfiðara verður að réttlæta sérstakt evrugengi Microsoft hér á landi. Því virðist á öllu sem þetta verði síðasta framlenging evrugengisins og því muni raungengi krónunnar taka við 1. júlí næstkomandi.
Með evrugengi Microsoft tókst að hlífa viðskiptavinum félagsins við versta skellinum sem varð við hrun krónunnar og halda markaðnum gangandi á erfiðum tímum.
Nú er um að gera að nýta síðustu mánuði evrugengisins sem best – og að sjálfsögðu vonast til að sjálf íslenska krónan haldi áfram að styrkjast þannig að viðbrigðin verði sem minnst þegar Microsoft tekur aftur upp raungengið þann 1. júlí.
![]()


Um okkur
Veftré
Hafa samband

